Vísir - 10.11.1964, Page 1
VISIR
54. árg. - Þriðjudagur 10. n/Svpmber 1964. — tbl.
VAR NÆRRI BÚ-
INN AÐ KYRKJA
SOFANDI MANN
Tveir starfsmenn kjötverzlunarinnar Borg halda á tveimur vænum rjúpnakippum.
Fyrir nokkrum nóttum var ráB-
izt harkalega á sofandi mann hér
f Reykjavfk, tekiB fyrir kverkar
honum og þrýst að, unz hann
missti meðvitund. En þá var hon-
um komið til hjálpar og mátti ekki
seinna vera. Á eftir fékk maðurinn,
sem fyrir árásinni varð, svo mikið
taugaáfall að hann truflaðist og
hefur verið á geðveikrahælinu að
Kleppi síðan.
Sá sem árásina framdi brauzt
inn i íbúð hjóna í einu hverfi borg-
arinnar um miðja nótt. Húsmóðirin
mun hafa heyrt skarkalann og fór
fram úr til að vita hverju hann
sætti, en bóndi hennar vaknaði
ekki. Innbrotsmaðurinn ryðst þá
inn í svefnherbergið, fram hjá kon-
unni og að rúminu þar sem bóndi
hennar svaf. Hafði hann á því
enginn umsvif önnur en að hann
tók fyrir í kverkar honum unz
maðurinn var allur blár í framan
orðinn og búinn að missa meðvit-
und.
Er ekki að vita hvert framhald
hefði orðið á þessum gráa leik, og
í rauninni ekki annað sýnna en
gengið hefði verið af manninum
dauðum, ef óvænt hjálp hefði ekki
borizt á síðustu stundu. Var því
þannig háttað að maður sem leigði
í næsta herbergi heyrði þegar
brotizt var inn í húsið. Fór hann
þá á kreik og kom á réttu augna-
blik'i inn i svefnherbergi hjónanna.
Kippti hann árásarmanninum ofan
af hinum og að því búnu var lög-
reglunni gert aðvart.
Við yfirheyrslu gaf árásarmað-
urinn þá einu skýringu á atferli
sínu að hann væri afbrýðisamur út
í eiginmanninn.
Tveim dögum eftir að árásin var
fram'in, var sá sem fyrir árásinni
varð, fluttur á Klepp. Hann hafði
hlotið taugaáfall svo mikið að
hann fær alltaf annað veifið óráðs-
köst, og lifir þá upp æ ofan i æ
köfnunartilfinn'ingu árásarinnar.
Yfír 6 þús. rjúpur skotnar
ú Holtavörðuheiði í vetur
Bóndinn í Fornahvnmmi hefur skofið um 700 rjúpur
„Það er ekki hægt að segja
annað en rjúpnaveið; hafi
gengið vel í vetur“, sagði Gunn
ar Guðmundsson, bóndi í
Fornahvammi, í stuttu viðtali
við Vísi i morgun. Gunnar
sagði að í vetur hefðu veiði-
thenn, sem lagt hefðu upp frá
Fornahvammi veitt yfir 6 þús.
rjúpur og auk þess hefur Gunn
Margir lagðir ú sjúkra-
hús vegna vírusveikinnar
Veikin er nú í rénun
Um miðbik ágústmánaðar fór að
verða vart hér virusveiki, sem náði
svo mikilli útbreiðslu, að hún fór
yflr sem faraidur. Margir hafa
veikzt illa af henni, og er'blaðinu
kunnngt um fólk, sem hefur orðið
að leggjast í sjúkrahús, vegna af-
leiðinga hennar en yfirleitt hafa
menn náð sér allfljótt, ef menn
hafa farið gætilega. Veikin er nú
í rénun hér f bænum, en mun vera
allútbreidd orðin sums staðar f sveit
um.
Blaðið hringdi 1 morgun í Heilsu-
BLAOIÐ S DAG
verndarstöðina og hafði tal af Birni
L. Jónssyni lækni og spurði hann
m. a. um nafnið á veikinni, en hún
er nefnd hér hvotsótt í skýrslum.
Kvað hann þetta vera tiltölulega
nýtt nafn á vírusveiki þeirri, sem
hér um ræðir, en hún hefur ekki
— svo menn viti — farið hér yfir
sem faraldur nema einu sinni áð-
ur og var það 1951. Er það þvl
í annað skipti, sem hún fer hér
yfir sem faraldur.
Framhald á bls. 6.
ar sjálfur veitt um 700 rjúpur,
frá því veiðitfmabilið hófst 15.
Ict.
„Ég geri fastlega ráð fyrir
að hér f Reykjavfk seljist f
vetur, ekki minna en 70—80
þús. rjúpur, enda er verðið
Iágt“, sagði Páll Guðjónsson,
verzlunarstjóri hjá Tómasi. Páll
sagði, að rjúpan væri nú seld
út á um 40 krónur, en verzl-
unin keypti hana inn fyrir 30
krónur. „Rjúpan hefur selzt vel
enda er hér um að ræða yfir-
Ieitt góða rjúpu“.
Veiðimenn sem lagt hafa upp
frá Fomahvammi og skotið
rjúpu á Holtavörðuheiði, í
Tröllakirkju og Snjófjöllum hafa
veitt yfir 6 þús. rjúpur. Það
hefur verlð mikið um rjúpu,
sagði Gunnar Guðmundsson,
bóndi í Fornahvammi, en veð-
ur hefur alltaf öðru hverju
spillt fyrir veiðinni. í morgun
lögðu 10 menn upp frá Forna-
hvammi á rjúpnaveiðar og var
veður gott. 1 gær var heldur lé-
legt veiðiveður og voru þá tveir
Saksúknari beiðist skýrslu
um Útvegsbcnkamúlið
í gærmorgun barst
bankaráði Útvegsbank-
ans ósk um það frá sak-
sóknara ríkisins, Valde-
mar Stefánssyni að hon-
um yrði gefin skýrsla
um hið ólöglega verkfall
sem starfsmenn bankans
hér í Reykjavík og í úti-
búunum úti um land
stóðu að. Var samþykkt
að veita saksóknara
skýrslu um þessa at-
burði.
Vfsir átti tal við Valdemar
Stefánsson í morgun og spurð
ist fregna um málið. Saksókn-
ari kvaðst hafa sett fram þessa
ósk með tilliti til laga um bann
við verkföllum opinberra starfs-
manna. Honum hefði kl. 9 í
morgun ekki borizt skýrslan í
hendur. — Þegar hún kæmi
til embættisins yrði mál starfs-
mannanna athugað á grundvelli
hennar. Ekki er því enn vitað
hvort dómsrannsókn verður fyr
irskipuð í máli starfsmanna Út
vegsbankans.
í gildandi lögum er lagt bann
við verkfalli starfsmanna í þjón
ustu ríkisins og kveðið á um
viðurlög ef til verkfalls þeirra
kemur. Starfsfólk Útvegsbank
ans er opinberir starfsmenn
þar sem bankinn er ríkisbanki.
Ekki hefur það áður komið fyr-
ir. frá því lögin voru sett, að
opinberir starfsmenn hafi farið
í verkfall.
menn á veiðum. Fékk hvor
þeirra um 20 rjúpur. — Mesta
veiði yfir einn dag, hefur Gisji
Björnsson, lögregluþjónn, haft
107 rjúpur. — Veiðitímabilinu
lýkur 22. desember.
<®----------------------------------
VISIR
a morgun
Dr. Benjamín Eiríksson
bankastjóri ritar grein i Vísi á
morgun, sem hann nefnir Opið
bréf til Alþingismanna. Ræðir
hann þar um skáldskap Þórbergs
Þórðarsonar og spyr hvl gengið
hafi verið fram hjá honum við
veitingu hinna sérstöku lista-
mannalauna á þessu þingi.
Vestri
ritar greinina: Hvað gerist á Al-
þýðusambandsþingi? Sem kunn-
ugt er kemur þingið saman á
mánudaginn og eru nú uppi mikl
ar bollaleggingar um hvað þar
muni ske.
' V