Vísir - 10.11.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 10.11.1964, Blaðsíða 5
VI S IR . Þriðjudagur 10. nóvember 1964. 5 útlönd í ..•------ í morgun „útlönd í,; morgun útlönd í morgim útlönd í morgun Deilan um Rússa karðnar Bæði Sovétrlkin og Bandaríkin<?>mitt leita nú stuðnings hinna smærri landa í samtökum Sameinuðu þjóðanna í deilunnj út af skuld- um Sovétríkjanna sem safnazt hafa saman vegna þess að þau hafa neitað að greiða framlag sitt til friðargæzlunnar í Kongo, Pal- estlnu og víðar. Sovétríkin til- kvnntu í gær, að stefna þeirra vreri óbreytt í þessu máli, og Bandarikin að þeirra stefna væri óbreytt, þ.e. að ríki sem komast í vanskil skuli svipt atkvæðisrétti á Allsherjarþinginu. Skemmst er að minnast, að þinginu var ein- frestað þar til I næsta mán- uði • vegna þess, að verið var að leita samkomu'lagsleiða um lausn málsins. Samkvæmt vestrænum heimild- um er nú ekki lengur fyrir hendi nokkur möguleiki á samkomulagi út af þessari deilu, sem margir óttast að geti leitt til þess, að Sameinuðu þjóðirnar geti ekki á komandi tímum haldið uppi frið- argæzlu í heiminum. Rússar hafa gefið í skyn, að þeir muni segja sig úr samtökunum, ef þeir verði sviptir atkvæðisrétti. Áreiðanlegar heimildir eru sagð ar fyrir því, að sendinefndir á vett vangi S.Þ. frá Bretlandi, Banda- ríkjunum og öðrum vestrænum löndum séu sannfærðar um, að nauðsynlegur meirihluti eða 2/3 muni fást fyrir því í Allsherjar- þinginu að aðildarríkin verði að halda í heiðri 190. grein sáttmála Sameinuðu þjóðanna, en 1 henni er svo að orði komizt, að hvert rík; sem ekki hafi greitt innan tveggja ára það, sem því sé gert að greiða, skulj missa atkvæðis- rétt sinn á Allsherjarþinginu, Sovétríkin skulda 52.6 millj. dollara vegna friðargæzlunnar í Ný tillaga um vantraust á stjórn Wilsons — en hún verður hka felld Harold Wilson hélt velli eins og búizt var við, — tillaga íhalds- manna um þjóðnýtingu stáliðnaðar- ins var felld með 307 atkvæðum gegn 300. Frjálslyndir greiddu ekki atkvæði. Þeir eru á móti þjóðnýtingu stál- iðnaðarins, en vildu ekki hjálpa til að fella stjórnina með því að greiða þessari tillögu atkvæði, en raunar vill íhaldsflokkurinn ekki heldur fella stjórnina eins og sakir standa, þar sem enginn áhugi er á nýj- um kosningum fyrr en nokkur tími er liðinn. En stjórnin virtist óneitanlega í nokkurri hættu, því að þingmenn frá Skotlandi töfðust vegna þoku, en komust þó á þingfund á sein- ustu stundu, — hefðu þeir ekki komið hefðu nokkrir íhaldsmenn ef til vill gengið af fundi, til þess að stjórnin félli ekki. í kvöld fer fram atkvæða- greiðsla um vantraust, en líklega verður hún felld með meiri mun en hin, því að Frjálslyndir ætla að sitja hjá við þá atkvæðagreiðslu. Einn þingmanna krata, Wyatt, hvatti í gær til samstarfs Verka- lýðsflokksins og Frjálslynda flokks ins. McLeod sagði í ræðu sinni í gær, að það myndi verða efnahag Bretlands til tjóns, -ef þjóðnýting | næði fram að ganga, en Lee námu- málaráðherra sagði, að tilgangur- j inn með þjóðnýtingu væri fullkomn lari rekstur og nýting, sem mundi bætg kpppnisaðstöðu Breta á al- t þjóða stálmarkaðinum. Kongó og Palestínu. Tillagan mun verða samþykkt ef nægilega mörg ríki sitja hjá við atkvæðagreiðsl- Sovétstjórnin heldur því ‘ fram, að með tillögum vestrænu þjóð- anna sé verið að grafa undgn ör- yggi Sameinuðu þjóðanna, og að Vesturveldin hafi að yfirlögðu ráði blásið þetta mál út til þess að valda misklíð. Bandarlkjastjórn hefir ekki lát- ið I Ijós neitt álit um þetta sein- asta skref sovétstjórnarinnar, kveðst/aðeins trúa því, að tillaga vestrænu þjóðanna nái fram að ganga og úrslit I málinu verði að fást þegar á fyrsta degi Allsheri- arþingsins, 1. desember. Skápasmíði Getum tekið að okkur eldhúsinnréttingar, svefnherbergisskápa og sólbekki, og smíðum einnig Hansa-hillur. Uppl. í síma 41309. Heimsþekkt merki: ,Aven' JÁRNSAGARBlÖfi ,Aven' BANDSAGARBLÖD ísland er meðal sextíu og tveggja landa, sem fær að njóta þessarar frábæru vöru. SÍMI 21500 BITSTÁL, Grjótagötu 14 Æskilegt, að fjáröflun fari fram með skuldabréfasölu sss^ði f járméBaróðlierra á ASþingi s gær Fundir voru haldnir i báðum deildum Alþingis i gær. I efri deild t voru tvö mál á dagskrá, innlent lán og frv. um breytingu á lög um um Framleiðsluráð landbún- aðarins. í neðri deild voru m.a. á dagskrá frv, um áætlunarráð ríkisins og frv. um Vestfjarða skip. INNLENT » SKULDABRÉFALÁN Fjármálaráðherra. 3unnar Thorodd- >en, lagði fram í ifri deild frv. um íeimild- fyrir rík sstjórnina til að :aka innlent lán. 1 rv. segir, að itjórninni sé heim It að gefa út til >ölu' innanlands ríkisskuldabréf eða spariskírtein- að upphæð 75 millj. kr. Skulda bréf þessi skulu vera vísitölu- tryggð, svo og undanþegin fram talsskyldu og skattlagningu. Fjármálaráðherra hóf mál sitt á þvl að gera grein fyrir fjáröfl un ríkisins. Hún er venjulegar tekí ur þess. erlendar lántökur t. d eins og enska framkvæmdalánið I des ’62 og oftar, og í þriðia lagi innlendar lántökur. Einkum væru það lán f bönkum og stærri span sjóðum og samkv. framkvæmda 'iætlun ríkisins s.l. 2 ár þá hefði verið samið við bankana um það, að þeir lánuðu vissan hluta af sparifjáraukningu sinni til ríkis-. ins. Stundum hefðu verið boðin út skuldabréfalán en það hefði seinast verið gert með happdragtt- isláninu svopefnda, ’47 — ’48. En síðan hefði þetta ekki verið gert og hefði það einkum stafað af verðbólguþróuninni. Þó væri bæði nauðsynlegt og æskilegt, að fjár öflun fari franr með skuldabréfa- sölu innanlands, því sala skulda bréfa hér á landi væri minni eri víðast hvar annars staðar En þar sem þetta hefði ekki verið gert hér í svo langan tírna yæri nokk ur vandi á höndum hvernig reeð skyldi fara. Sú vísitala. seni heizt mætti ímynda sér, að við yrði miðað væri visitala oyggingar kostnaðar. Gert væri ráð fyrii að bréfir væru gefin út ti! 10 ára Þó gætr kaupendur fengið þau innleys: fyrr, t. d. eftir 3 — 4 ár. Vexti: færu stighaikkandi, yrðu hærr- seinnihíuta lánstímabilsins. En menn gætu fengið lánið endur greitt eiginlega hvenær sem væri Hér væri um nokkra nýjung að ræða til að skaþa mönnum tækifæri. sem þeir áður hefðu ekki naft. Nú væri fé lagt i banka á ákveðnum vöxtum, en samkv. frv. yrði féð verðtryggt. Nú kann einhver að segia. að þetta verði tij að draga fé út úr bönkum og sparisjóðum og veikja lánastarf- semi þeirra. Það getur e. t. v. far- ið svo, en það er von okkar, að þetta verði til að auka sparnað. Að vísu væri ekkert hægt að full yrða að svo komnu máli. Fé það, sem fengist með þess um hætti hyggst rikisstjórnin nota til framkvæmda. Samkvæmt fram kvæmdaáætlun þetta ár vantar fé til ýmissa framkvæmda s s íil raforku og byggingu sjúkra- húsa. Og að þv! ieyti sem skulda bréfasalan yrði umfram það sem nota þyrfti til framkvæmda, yrði bað notað til að greiða niður skuldir ríkissjóðs. Þá væri einnig í frv. heimiki til að gefa bessi bréf út að nýju Að lokum lagðj ráðherrann á herzlu á, að r.efnd sú sem fengi þetta máí til meðferðar hraðaði "M ein- og unnt væri því áætl- að, væri að hefja sölu bréfanna 20. þ.m. Þessu næst i tók Ólafur Jó- v hanness. til1 máls i; og kvaðst hann ^fagna frv. og Ivera meðmæltur Ibessarj tilraun. í >amb. við vísi- tölutryggingu skuldabréfanna minnti hann á frv. Framsóknar manna um verðtryggingu spari- fjár. En þrátt fyrir það, að hann væri ánægður með frv. þá hefði hann ýmislegt við það að at- huga. Það værj býsna óákveðið um margt t. d. vantaði lengd lánstímans, vaxtakjör o.fl. Hér væri aðeins um að ræða heim- ild til lántöku en hann teldi rétt að binda öll höfuðatriði lánanna ; sjálfu frv. Þá' væri heimildin í 5. grein nokkuð rúm þar sem stæði, að ráðherra væri heimilt að gefa út ný verðbréf, eftir þvf -em á þarf að halda, til innlausn ar þeim sem upphaflega verða útgefin. Þá kvartaðj hann einn- ip .undan þvl, að -ráð töfunarrétf ur fjárins, sem inn kremi fyrir öluna, væri of víðtækur. Fjármálaráðh. svaraði þessu nokkrum orðum og sagði, að verðtrygging sparifjár væri stórt og veigamikið mál En ef það vrði verðtryggt yrðu sams konar ákvæði að giída um útlán. Þess vegna hlýtur athugun að taka nokkurn tíma, en nauðsynlegt yæri a.ð finna einhverjar leiðir í þessu máli. Hvað viðvék þvl, að frv/ væri öákveðið. bá væri þvf til að svara að þessi háttur væri yfirleitt hafður á í slíkum frv. Vegna þess að hér væri um nýjung að ræða, hefði verið ákveðið að bjóða ekki út allt lánið I einu, heldur sjá til með undirtektir. Eftir þeim færi hvort áfram yrði haldið en þá þyrfti að breyta lögunum, og væri það hægara ef þau væru aðeins reglugerð. Ólaf- ur teldi æskilegt, að ákveða I frv. til hvers fénu skyldi varið. Við því væri það að segja, að ríkissjóður hefði oft tekið lán, án þess að ákveðið væri til hvers þau skyldu ganga, og þeim hefði einnig verið útbýtt án af- skipta Alþingis. En samkv. fram kvæmdaáætlun vantaði fé til raf orkuframkvæmda, vegamála, hafnagerða sjúkrahúsa, atvinnu hótasjóðs og kísilgúrverksmiðju. í STUTTU MÁLI. 1 efri deild mælti landbúnaðar- ráðherra, Ingólfur Jónsson, fyr- ir frv. til staðfestingar á bráða- birgðalögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins þ.e. um veitingu sláturleyfa. I neðri deild mælti Einar 01- geirsson fyrir frv. um áætlunar- ráð ríkisins. Hefur hann oft flutt þetta frv. áður og eggjaði hann nú þingmenn lögeggjan, að þeir afgreiddu nú málið á viðeigandi hátt. Sigurvin Einarsson mælti I neðri deild fyrir frv. sem hann flytur ásamt Hannibal Valdimars syni um kaup á Vestfjarðaskipi. Skal það vera 6 — 7 hundruð tonn að stærð og mega kosta 25 millj, og skal Skipaútgerð rfkisins sjá um rekstur þess.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.