Vísir - 10.11.1964, Blaðsíða 2
V1SIR . ÞriBjudagur 10. növember 1964
AJAX-heimsóknm reynir fyrst á
þolrif íslenzks hondknattleiks
Þetta góða handknattleikslið heimsækir
Reykjavík i lok vikunnar — keppir 4 leiki
markhæsti leikmaður liðslns.
Hann hefur leikið 6 landsleiki,
5 unglingalandsleiki og 4 sinn-
um verið valinn 1 Kaupmanna-
Handboltínn fer fyrir alvöru að rúlla á sunnu-
daginn. Til þessa hefur lítið gerzt, handknattleiks-
mennimir hafa verið að búa sig undir átök vetrar-
ins og farið rólega gegnum Reykjavíkurmótið, sem
mörgum finnst orðin úrelt keppni, keppt við þýzkt
háskólalið, sem var ágætt handknattleikslið, en
fékk ekki þá mótstöðu, sem hefði mátt vænta af
Hðunum hér, sem vora því miður ekki í of góðri
atfingu. Nú segjum við sem sagt að handknattleik-
urinn fari af stað fyrir alvöra, því um næstu helgi
keppa Evrópubikarlið íslendinga og Dana, en lið
Dananna er Kaupmannahafnarliðið Ajax, sem fyr-
ir síðustu helgi vann finnsku meistarana Union í
Helsingfors með 34:18 og átti mjög létt með að
sigra í þeim leik. Nú reynir á þolrifin hjá Fram,
— sem leikur við sænska meistaraliðið Redbergs-
lid 8. desember n.k.
Það eru Valsmenn, sem taka
á móti AJAX og hafa veg og
vanda af heimsókninn'i hér, sem
stendur eina viku. Alls koma
14 menn hingað, 13 leikmenn
og fararstjóri.
Leikmenn AJAX eru mjög
jafnir og góðir leikmenn. Félag-
íð á ekki marga landsliðsmenn,
en liðið í heild er stórsnjallt
handknattleiksliS. Eftirtaldir
leikmenn eru í liðinu:
Morten Petersen (1), aðal-
markvörður liðsins, reyndur
leikmaður. Hefur leikið 16
landsleik og verið 43 sinnum í
Kaupmannahafnarúrvali. Var í
liði Dana á síðustu HM.
Peter Nielsen (5) er einn
marksælasti maður liðs'ins og
hefur undanfarin 3 keppnis-
tímabil verið meðal þriggja
BILL TIL SÖLU
Góður Dodge Pickup ’52 með aluminium-
húsi, hentugur fyrir iðnaðarmenn eða fisk-
sala til sölu og sýnis í Hvassaleiti 51 í kvöld
og á morgun. Sími 36407.
Bíll til sölu
Til sölu strax: (notaður) Rambler Classic ’63.
Skoðunarskýrsla fylgir. Vökvastýri og loft-
bremsur. Útvarp ásamt venjulegum „Classic"
fylgihlutum. Hagstætt verð og kjör. Til sýnis
í Rambler-búðinni.
JÓN LOFTSSON H/F . Hringbraut 121
Málfundaklúbbur
Heimdallar FUS
Magnús Jónssor
alþm.
Nýr málfundaklúbbur tekur til
starfa í Valhöll í kvöld kl. 8.30.
nf Klúbburinn stofnaður.
Magnús Jónsson alþm. ræðir
um „MÆLSKULIST“.
Kaffi-veitingar.
Félagar, fjölmennið
Ove Eilertsen (iengst til hægri) skýtur að marki finnsku meistar-
anna Union um síðustu helgi.
markhæstu leikmanna í 1.
deildinni dönsku. S.l. keppnis-
tímabil varð hann nr. 2 og
'skoraði alls 112 mörk. Hann
SKIPAFRÚTTIR
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
Ms. Esja
fer frá Reykjavík 14. þ.m. vest-
ur um land til Akureyrar. Vöru-
móttaka til Patreksfjarðar,
Sveinseyrar, Bíldudals, Þingeyr-
ar, Flateyrar, Suðureyrar, Isa-
fjarðar, Siglufjarðar og Akureyr-
ar á morgun og fimmtudaginn. j
Farseðlar seldir á föstudaginn. !
FÉLAGSLÍF
Ferðaféiag íslands
heldur kvöldvöku í Sigtúni
fimmtudaginn 12. nóv, — Húsið
opnað kl. 8.
Fundarefni:
1. Frumsýnd litkvikmynd
„Sveitin milli sanda“ tekin af
Ósvaldi Knudsen.
2. Myndagetraun, verðlaun veitt.
3. Dans til kl. 24.
Aðgöngumiðar seldir í bóka-
verzlunum Sigfúsar Eymundssonar
og Isafoldar. Verð kr. 40.00.
Glímufélagið Ármann.
Róðrardeild. Æfingar hefjast i
kvöld kl. 8 í Miðbæjarskólanum —
Yngri og eldri ræðarar eru hvattir
til að fjölmenna. Nýliðar velkomn-
ir. — Stjórnin.
K.F.U.K. — K.F.UM
AIþjóðabær’’vika félaganna er
þessa viku Sameiginleg samkoma
í kvöld kl. 8,30. Gunnar Sigur-
jónsson, guðfræðingur, hefur hug-
leiðingu.
hefur leikið 8 landsleiki og 23
sinnum verið valinn í Kaup-
■ rnannahafnarúrvalsleiki.
Ove Ejlertsen (4) er annar
hafnarúrval. Hann var með
landsliði Dana gegn Norð-
mönnum nú í nóvemberbyrjun.
Ove Anderson (6) er einnig
meðal sterkustu leikmanna l’iðs-
ins. Hann hefur leikið 2 lands-
leiki og verið 19 sinnum í úrvali
Kaupmannahafnar.
Aðrir leikmenn:
Erik Rasmussen (11).
Vagn Olsen (2).
Kurt Christiansen (3).
Jorgen Eriksen (7).
Jan Wichmann (8).
Bjarne Nissen (9).
Claus Sorensen (10).
Ole Hartung (12).
Bent Andersen (13).
AJAX—FRAM.
Fyrsti leikur Ajax hérlendis
verður sunnudaginn 15. nóvem-
ber kl. 16:00 og fer sá leikur
fram f fþróttahúsi varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli. Það
eru Islandsmeistararnir úr
Fram, sem mæta Danmerkur-
meisturunum í þessum fyrsta
leik þeirra hérlendis. Fyrir
Fram verður þetta nokkurs
konar lokaprófraun undir leik
þeirra f Evrópubikarkeppninni
gegn Svíþjóðarmeisturunum
Redbergslid í Gautaborg 8. des.
n.k. Verður le’ikur þessi án efa
mjög spennandi og tvfsýnn.
FORLEIKUR:
Á undan leiknum leika A. og
B. unglingalandslið er Ung-
lingalandsliðsnefnd H.S.l. hefur
valið.
AJAX—VALUR.
Næsti leikur verður svo f
íþróttahúsinu að Hálogalandi
þriðjudaginn 17. nóv. kl. 20.15.
Þá mun lið gestgjafanna VAL-
UR leika gegn Ajax. Verður
fróðlegt að sjá hvernig hinu
unga efnilega liði VALS tekst
upp gegn Danmerkurmeistur-
unum.
FORLEIKUR:
Áður en leikurinn hefst, mun
III. aldursflokkur frá Val og
Víking leika.
AJAX—F.H.
Þriðji leikur Ajax verður svo
fimmtudaginn 19. nóv. í fþrótta
húsinu að Hálogalandi kl. 20.15.
Mæta þeir þá Islandsmeisturun-
um (utanhúss) F.H. Verður sá
leikur vafalítið tvísýnn og
spennandi. F.H. hefur ágætu liði
á að skipa og hafa þeir verið f
forystusveit íslenzkra hand-
knattleiksliða mörg undanfarin
ár.
FORLEIKUR:
Þetta leikkvöld hefst með
baráttu milli mjög efnilegra liða
frá VaJ og K.R. í öðrum aldurs-
flokki.
AJAX—ÚRVAL H.S.Í.
Síðasti leikur Ajax verður
laugardaginn 21. nóv. kl. 17.00
í íþróttahúsi Varnarl’iðsins á
Keflavfkurflugvelli. Mæta Dan-
ir þá úrvali, sem landsliðsnefnd
Handknattleikssambands Is-
lands hefur valið. Þessi leikur
verður lokaprófraun væntanlegs
landsliðs gegn Spánverjum.
FORLEIKUR:
Meistaraflokkar kvenna frá
Val og F.H. leika forleik þenn-
an dag og verður án efa
skemmtileg og fjörug barátta
milli þessara kvennaliða. Valur
teflir fram íslandsmeisturum
kvenna, bæði utanhúss og inn-
an. Kvennalið frá F.H. hefur
undanfarin ár annað hvort
haft Islandsmeistarabikarinn
undir höndum eða verið mjög
í náinni snertingu við hann.
SKEMMUGLUGGINN
Amerísk
brjóstahöld
nýkomin í miklu úrvali Amerískur dömu-
undirfatnaður og náttkjólar í öllum stærð-
um. Hollenzkur barnafatnaður í miklu úrvali
SKEMMUGLUGGINN
LAUGAVEGI 66 — SÍMI 13488