Vísir


Vísir - 04.01.1965, Qupperneq 1

Vísir - 04.01.1965, Qupperneq 1
VISIR 55. árg. — Mánndagnr 4. janúar 1965. — 2. tbl. SVÆS/N LÍKAMSÁRÁS Ölvaður madur ruddist inn á sofandi mann og barði hann Á nýársmorgun var framin allsvæsin likamsárás í Grinda- vík. Ruddist ölvaður maður inn að rúmi sofandi manns og barði hann til óbóta. Árásarmaður- inn var síðar handtekinn og flnttur til Hafnarfjarðar, en þar situr hann nú i gæzluvarðhaldi. Atvik voru með þeim hætti, að árásarmaðurinn sem er ung- ur piltur í kauptúninu, ruddist eftir ölvun um áramótin, kl. 7 um morguninn inn í hús Ein- ars Kr. Einarssonar skólastjóra í Grindavík. Var húsið ólæst og komst pilturinn inn f svefn- herbergi skólastjórans. Þar réð- ist hann á hann sofandi. Skóla stjórinn varð þegar við fyrstu höggin svo dasaður að hann Framh. a bls. 6. lítför Ólafs Thors á morgun Útför Ólafs Thors verður gerð á morgun kl. 1.30 e. h. frá Dómkirkjunni. Fer útför- in fram á vegum ríkisins og verður útvarpað frá athöfn- inni. Séra Bjami Jónsson vígslu- biskup mun jarðsyngja. — í kirkju verða tekin frá sæti fyrir ættingja, ríkisstjóm og alþingismenn, en að öðru leyti verður kirkjan opin al- menningi. Verkfall sjómanna: FUNDUR UM FISKVERDIÐ í DAG - SÁTTAFUNDUR Á MORGUN Ekkert samkomulag hefur enn náðst í deilunni um kaup og kjör sjómanna. Er nú beðið eftir úrskurði yfirnefndar um fisk- verðið, en yfirnefndin mun halda fund í dag og úrskurður er væntanlegur einhvem næstu daga. Sáttafundur hefur verið boðaður annað kvöld. Mikið ber á milli sjómanna og útvegsmanna. Að þvl er Jón Sigurðsson formaður Sjómanna- félags Reykjavíkur hefur skýrt frá opinberlega fara sjómenn fram á 34 prs af aflaverðmæti á veiðum með línu og net, en nú fá þeir 29.5 prs. Er þetta aðalkrafa sjómanna. Þá gera sjó menn kröfu um 5 prs hækkun á aflatryggingu og öðrum launal. áhafnar. í viðtali er Alþýðubl. átfi við Jón Sigurðss. Sagði Jón að LÍÚ hefði neitað að fallast á kröfdna um 5 prs hækkun hlutatryggingar. Kristján Ragn- arsson fulltrúi hjá LlÚ sagði hins vegar í viðtali við Vísi I morgun ,að LÍÚ hefði strax boð- Kristján, að þær væru miklu hærri en fram kæmi í viðtalinu við Jón Sigurðsson, ef allir lið- ir væru meðtaldir. Eins og fram kemur í frétt annars staðar í blaðinu eru róðr ar nú hafnir þar sem verkfall er ekki. Er m. a. róið frá Sand- gerði, þar sem verkfall var boð- að, en tilkynningin um verkfalls- Afgreiðslustúlkur brennast ið hækkun á hlutatryggingu. boðun lenti í óskalagaþætti út- Varðandi kröfurnar alm. sagði varpsins. — Miklar skemmdir í sölufurni 14 ára piltur henti blysi inn I söluturn við Barónsstíg með þeim afleiðingum að tvær stúlkur, sem voru við afgreiðslu, brenndust, og varð að flytja þær í Slysavarð- stofuna. Þá urðu einnig allmiklar skemmdir á söluturninum og vörur eyðilögðust. Það var kl. 16,52 á laugardaginn að slökkvilið og lögregla voru köll uð að söluturninum að Barónsstíg 20. Hafði pilturinn þá hen.t blysi inn um söluopið. Kviknaði í fram- hlið tumsins og lofti. Einnig urðu talsverðar skemmdir á vörum. — Tvær stúlkur voru við afgreiðslu, þær Halla Hallgrímsdóttir og Frfða Guðjónsdóttir. Brenndust þær báð- ar f andliti, á fingurgómum og hár sviðnaði. Stúlkumar voru fluttar í Slysavarðstofuna. BANASL YS VID UTSKIP- UN / GUFUNESI Andrés Sigurðsson Banaslys varð s. 1. laugardag í m.s. Dfsarfossi, sem þá var uppi í Gufunesi við að lesta áburð. Slysið varð þannig, að bóma féll á höfuð manni, Andr- és'i Sigurðssyni verkstjóra, Rauðalæk 6, og hlaut hann við það bana. Það var skömmu fyrir kl. hálf fimm s. d. að lögreglunni barst tilkynning um slysið. Og að því er lögreglan skýrði Vís'i frá í' morgun, hafði verið unnið frá hádegi við útskipun á áburði í skipið undir verkstjórn Andrés- ar. Rétt áður en slysið varð, þurfti að hækka bómuna til að geta komið áburðinum framar í lestina. Voru menn að vinna að þessu, en einhverra orsaka vegna féll bóman n'iður á stjóm borðssfðu skipsins, einmitt þar sem Andrés stóð. Maður sem stóð uppi á bfl- palli við skipshl'ið kallaði til Andrésar til að vara hann við hættunni, en Andrés heyrði ekki, enda skipti þetta heldur engum togum. Ándrés heitinn var sextugur að aldri og lætur eftir sig konu og uppkomin böm. Sölutuminn Barónsstíg 20, þar sem blysinu var hent inn. Ljósm, B. G. LAÐIÐ ! ÐAG Síðasti tollafgreiðsludagur ; Sandgerðis- bíla á gamla verðinu / dag bótar róa 1 dag er sfðasti möguleiki manna að fá nýja bíla tollafgreidda á gamla Ieyfisgjaldinu, en það hækkar á morgun úr 100% í 125%. Upphaflega átti hækkun leyfis- gjalda á bílum að koma til fram- kvæmda 1. janúar en skömmu fyr ir áramótin var sú ákvörðun tek- in í Fjármálaráðuneytinu að fresta hækkuninni f nokkra daga. Hefur það áreiðanlega orðið til að létta mörgum kaup á nýjum bíl, því eft- ir áramótin eru menn oft með mán aðarkaup f vasamim auk þess sem auðveldara er &ð útvega sér lánsfé eftir nýár en rétt fyrir það. Björn Hermannsson, deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu, skýrði frá þvi í viðtáli við Vfsi, að hækkun leyfisgjaldanna kæmi fram á þeim bílum, sem eru tollafgreiddir 5. janúar eða síðar. Eiga bílaumboð- in nú kost á því að fá pappíra nýju bílanna bankastimplaða í dag, 4. jan., og greiða þá f.o.b.verð bíl- anna, en innflutningsgjöldin þarf ekki að greiða fyrr en í síðasta lagi 11. janúar. Eftir það tekur hækkun leyfisgjaldanna gildi. Sandgerðisbátar róa, þótt verk- fall hafi verið boðað en boðunin lenti fyrir mistök hjá sjómanna- þætti ríkisútvarpsins og komst hún því ekki á löglegum tíma til sáttasemjara. Margeir Sigurðsson, formaður sjómannafélagsins í Sand gerði, sagði Vísi f morgun, að mál mundi verða höfðað á Landssím- ann fyrir þessi mistök, sem geta orðið sjómönnum f Sandgerði dýr, því samningar eru ekki aftur laus ir fyrr en að ári. I

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.