Vísir - 04.01.1965, Síða 2
eins góður, en mörg skot þeirra
strönduðu í fangi Þorsteins, sem
fyrr segir.
Ármenningar unnu með 20:14,
sem er of stór sigur.
tseztu menn noanna 1 gær voru
Hörður, Lúðvík og Þorsteinn hjá
Ármanni og Þórður hjá Haukum.
Daníel Benjamínsson dæmdi og
gerði það ágætlega.
Tuttugu mínútur v. . af landsleik Tyrklands og Búlgaríu á hin-
um nýja og glæsilega ieikvangi í Istanbul, en hann kostaði um 50
millj. króna, þegar ofsahræðsla greip um sig á áhorfendastæðunum.
Eldur hafði kviknað í pylsusölu og fólkið byrjaði að flýja út af vellin-
um, margir eyndu að komast í gegn um gaddavírsgirðinguna inn á
völlinn. Alls saérðust 68 manns, en enginn lézt af völdum þessa at-
burðar og þykir mesta mildi. Myndin er frá atburði þessum.
VÍSIR . Mánudagur 4. janúar 1963
FH HELDUR ENN ÁFRAM
Gefa út íþrótta
almanak
Vígi Reykjavíkursneistarannsa féll
s gærkvöldi í hörkuleik
FH heldur áfram sigur-
göngu sinni í 1. deild í
handknattleik og lagði erf-
iðan andstæðing, Reykja-
víkurmeistara KR, í gær-
kvöldi með yfirburðaleik í
síðari hálfleik. Útlitið hjá
hinu Hafnarfjarðarliðinu,
Haukum, er svartara, en
liðið er nú á botninum og
hefur ekki unnið leik, og
tapaði í gærkvöldi fyrir Ár
manni.
Það virtist sem Reykjavíkur-
meistaramir ætluðu að klekkja á
FH í gærkvöldi, og með ákveðnum
leik var fyrri hálfleikurinn mjög
jafn. Að vísu skoruðu Hafnfirðing-
arnir 3 fyrstu mörkin í leiknum,
en KR náði 3:2 og tókst að jafna
í 7:7. Aldrei tókst KR þó að ná
forystunni, aðeins að jafna og það
gerðu þeir næst í 10:10 og í hálf-
leik var staðan 12:11 fyrir FH.
Vítakast Karls Jóhannssonar
færði 12:12 í byrjun seinni hálf-
leiks, en næstu þrjú mörk em öll
frá FH. Nú var eins og neistinn
væri búinn hjá KR-ingum, úthald,
hraði og harka á þrotum. Að sama
skapi efldust FH-ingar og greini-
legt var, að fátt gæti komið Reykja-
víkurmeisturunum til bjargar. FH
var brátt 17:13 yfir, Karl skorar
17:14 og þrjú mörk Páls Eiríksson-
ar I röð dynja á KR-mark'inu og
Kristján bætir einu fallegu marki
við og staðan er nú orðin afar ó-
gæfuleg fyrir Vesturbæinga, sem
þó tjölduðu með allt sitt sterkasta
lið plús Egil rakara á áhorfenda-
stæðunum, 21:14.
Úrslit leiksins urðu 25:17 og eru
það sanngjörn úrslit í þessum
harða og fremur ljóta handknatt-
leik_ sem dómarinn, Magnús Pét-
ursson, ber ábyrgð á. Magnús hef
ur lítið dæmt í vetur og er í lé-
legri æfingu. Þessi leikur hefði
ekki verið erfiður fyrir Magnús
eins og hann á að sér að vera, en
í gærkvöldi var Magnús ekki upp
á sitt bezta. Dómarar verða að
muna að kunnátta þeirra er ekki
úr ryðfríu stáli. Sé henni ekki
haldið við, er hætt við að falli á
hana og komi að litlu liði, þegar
á reynir.
Beztu mann.leiksins í,gær fund-
ust mér. þeir Kristján . Síftfápsfcon,
sem kom nú fram í sviðsljósið þeg
ar KR-ingar reyndu að halda Ragn-
ar'i niðri með því að gæta hans
stöðugt, og þó var Ragnar góður
I gær. Páll Eiríksson og hinn ungi
Geir Hailsteinsson, bráðskemmti-
legur ieikmaður með boltann, þótt
ungur sé. Hjalti varð’i líka oft
mjög vel.
Af KR-ingum var Karl góður og
Gísli Blöndal mjög skemmtilegur
leikmaður. Annar góður leikmaður
er Pétur Stefánsson, greinilega enn
ekk’i í fullri æfingu, en verður mik
ill styrkur liðsins síðar í vetur, ef
æfingin lætur ekki standa á sér.
Vaiur og Þróttur
unnu í 2. deild
Valur og Þróttur virðast skera
s'ig úr í 2. deild I handknattleik
og eflaust lýkur mótinu með
sigri annars hvors þessara að-
ila.
Á laugardagskvöldið léku
Þróttarar við IR og unnu léttan
sigur með 31:24, sigur sem hefð’i
eins getað orðið stærri.
Valur vann sama kvöld svip-
aðan sigur gegn Keflvíkingum,
31:23, en Keflvíkingum má segja
til hróss, að þeirra lið virðist
vera „sensasjónin“ í ár í hand-
knattleik. Aðra,r eins framfarir
hafa vart sézt hjá einu hand-
knattleiksliði á stuttum tíma.
Má eflaust þakka það þjálfara
þeirra Pétri Bjarnasyn’i. Hann
hefur fyrr náð árangri með lið
sín, eins og alkunna er.
ANA í l DEILD
Vilhjálmur og Höskuldur eru enn
komnír á stúfana. Nánar til tekið
eru þetta þeir Vilhjálmur Einars-
son og Höskuldur Goði Karlsson,
sem eru íþróttamönnum að góðu
kunnir fyrir ýmislegt gagnlegt sem
þeir hafa fitjað upp á. Að þessu
sinni hafa þeir gefið út nýstárlegt
dagatal, í ÞRÓTTAD AGATALIÐ
1965, og er ekki að efa, að það mun
prýða veggi allra íþróttamanna á
landinu.
Dagatalið er prýtt fjöldamörg-
um af beztu íþróttamyndum síð-
asta árs, en myndir þessar hafa
fæstar birzt áður í dagblöðum eða
tímaritum. Inn á reiti almanaksins
hafa verið prentaðir í stuttu mál'i
íþróttaviðburðir síðasta árs.
Verður dagatal þeirra Höskuldar
og Vilhjálms selt á götum Reykja-
víkur af blaðasölubörnum á laug-
ardaginn kemur, en að sjálfsögðu
verður það einnig selt í bókabúð-
um og söluturnum. Kostar það 50
krónur og sögðu þeir félagar, að
ef ágóði yrði, rynni hann til í-
þróttanámskeiða þeirra félaga.
Vilhjálmur sagði í gærdag um.
þetta almanak þeirra félaganna: —
Við erum raunar að reyna að keppa
við það alkunna fyrirbrigði Bítlana,
en myndir af þæim hanga víðs veg
ar v'ið rúm' flestra unglinga í dag.
Við viljum reyna að vekja áhuga
þessara ungmenna á íþróttum og
iðkun þeirra. Kannski tekst þetta
að einhverju leyti, — og þá erum
við ánægð’ir.
Þorsteinn Björnsson mark-
vörður Ármanns er ábyrg-
ur fyrir því gagnvart nýlið-
unum í 1. deild, Haukum,
að þeir fengu a. m. k. ekki
annað stigið í viðureign-
inni við Ármann í gær-
kvöldi. Það hefði a. m. k.
ekki verið óréttlátt. En
markvarzla hans hvað eft-
ir annað var glæsileg og
hann sannaði enn einu
sinni, að honum ber að
verja mark landsliðsins
þegar svo ber undir.
Hörður Kristinsson skorar í leiknum gegn Haukum í gærkvöldi.
Ármenningar virtust í upphafi
mun sterkara liðið og náðu 4:1,
og yfirburðastöðu, 10:4, fyrir
hálfleik, en í hálfleik voru Haukar
heldur búnir að rétta úr kútnum
og var staðan nú orðin 10:6 fyrir
Ármann.
Fyrstu tvö mörk seinni hálfleiks
skoraði ungur og efnilegur leik-
maður Hauka, Sigurður Jóakims-
son, og var staðan orðin 10:8, tais-
verð ógnun fyrir Ármann. Einhvern
veginn var tilfinning manns þó sú,
að Ármenningarnir með toppskytt-
ur sinar mundu eiga auðvelt með
þennan leik. Samt virtist ekki koma
nógu mikið út úr leik þeirra, og
mér fannst leikur Haukanna fullt