Vísir - 04.01.1965, Síða 13

Vísir - 04.01.1965, Síða 13
VIS IR II Mánudagur 4. janúar 1965 13 !■■■■■■! .V.V/.VV.V.V.V.V.V.VW.W.V.W Bandarískur verka) Fyrsta bók Handrita- lýðsfrömuður í I stofnunarinnar komin út Reykjavík — Viktors saga ok Bldvus í útgófu Jónasar Kristjónssonar Ben Segal. Hér í Reykjavík var staddur nýlega bandarískur verka- lýðsfrömuður á vegum Full- trúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Það var Ben Segal, fræðslustjóri Landssambands rafvirkja og útvarpsvirkja f Bandaríkjunum. Hann er fædd- ur Ungverji en hefur búið í Bandaríkjunum frá tíu ára aldri. Segal hefur tekið mikinn þátt í verkalýðsmálunum í Bandaríkj- unum og hefur ferðazt mikið í sambandi við fræðslu- og út- breiðslustarfsemi verkalýðsfé- laga. Hann kom hingað á sunnu daginn og fór aftur í morgun. Hann hélt hér fyrirlestra á veg- um ýmissa verkalýðsfélaga, þar sem áhugamenn um verkalýðs- mál voru mættir. Kynnti hann starfsemi félags síns og ann- arra verkalýðsfélaga. Þótti mikill ávinningur að komu hans hér og fróðleik þeim, er hann flutti með sér. Myndin var tekin af Ben Segal á einum fyrirlestra hans hér. Hin nýfædda Handritastofnun ís- lands hefur nú gefið út sfna fyrstu bók. Er það riddarasagan Viktors saga ok Blávus, sem Jónas Krist- jánsson skjalavörður hefur búið til prentunar. Er þetta mjög vönduð fræðiútgáfa og eru skýringar og inngangur rúmir fjórir fimmtu af efni bókarinnar. Forstöðumaður Handritastofnun- ■.W.WA'.W.V.V.V.V.V.V.V.V.VW.W.V.VV.W/.W.V Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar Samkeppni um bæjarmerki Kópavogs Á fundi bæjarstjórnar Kópa vogs 18. des. sl. voru lagðar fram tillögur að merki fyrir kaupstaðinn. Samtals höfðu bor izt 92 tillögur. Bæjarfulltrúum þótti engin til Iagan henta sem merki bæjarins En ákveðið var að veita þremur tillögum nokkra viðurkenningu Höfundur tveggja þeirra er Sigurlaug Sæmundsdóttir, arki tekt, Bókhlöðustfg 7 Rvík og hinnar þriðju Ingi H. b.agnús son auglýsingateiknari Álfhóls- vegi 137 Kópavogi. Framhaldsstofnfundur Styrktarfé lags Tónskólans var haldinn 29. nóvember s. 1. Höfðu þá innritazt 150 styrktarfélagar og 10 félög og stofnanir. Samþykkt voru lög fyrir félagið og reglugerð fyrir skólann. í stjórn félagsins og skólaráð voru kosnir: Guðní Guðnason lög- fræðingur, Halldór Guðmundsson verkamaður, Hallgrímur Jakobsson söngkennari dr. Jakob Benedikts- son, Jón Leifs tónskáld, Jón Múli Árnason útvarpsþulur, Ólafur Kristjánsson húsgagnabólstrari, Sig urður Guðmundsson ljósmyndari og Stefán Ögmundsson prentari. 1 reglugerð skólans er lögð á- herzla á að Tónskólinn sé alþýðu- músikskóli (Volksmusikschule) en ekki tónlistarskóli (Konservatori- um), en nafnið Tónskóli þykir fara betur í máli en hið langa orð al- þýðumúsikskóli. í skólanum eru engin inntöku- skilyrði og f honum eru meðal námsgreina kennt á hljóðfæri eins og harmoniku, munnhörpu og gitar, sem ekki eru talin til hlutgengra námsgréina í námsskrá tönlistar- skólanna, en þessi alþýðuhljóðfæri eru engu síðri en ýmis önnur, ef þeim er beitt til alvarlegs náms. Það er megin ætlunarverk skól- ans að stuðla að því að sem flest fólk, börn og fullorðnir, iðki tón- l’ist sér til ánægju og menningar- auka, án þess að um fjárhagsleg- an ávinning eða atvinnu sé að ræða. Á fyrra námstímabili Tónskól- ans, mánuðina október—desember, voru í skólanum 160 nemendur, þar af 82 í éinkatímum. Þetta tíma bil störfuðu við skólann 8 stunda- kennarar og voru þessar námsgrein ir kenndar: Hljómfræði, harmonika, gítar, melodika, munnharpa, raf- bassi, mandolin, banjó, fiðla, trom pet, orgelharmoníum, píanó. blokkflauta, Kennslu lauk fyrir jól, sunnu- daginn 20. desember, með „Litlu jólum Tónskólans", þar sem 80 nemendur léku einleika og samleik á hin ýmsu hljóðfæri fyrir fullu húsi styrktarfélaga og aðstandenda. Meðal samleikshópanna var blokk- flautukór skipaður 60 bömum. Þau léku jólalög. Síðara námstímabil vetrarins hefst upp úr áramótum og stendpr til aprílloka. Þá kenna 3 stunda- kennarar til viðbótar og 2 náms- greinar bætast við. Knéfiðla og tromma. Innritun fyrir þetta námstímabil fer fram fyrstu viku janúarmánað- ar að Óðinsgötu 11 og í sfma 19246. Þjófur tekinn með 3 kjötlæri í fanginu Tveir lögregluþjónar, sem voru á gangi eftir Laugavegin- um aðfaranótt sunnudags, veittu athygli manni, sem var þar á gangi með þrjú myndarleg kjöt- læri í fanginu. Var farið með manninn niður á lögreglustöð og við nánari athugun kom f ljós, að hann hafði brotizt inn í Glaumbæ, þá um nóttina og stolið þaðan þremur kjötlærum, tveimur af hangikjöti og einu svfnakjötslæri. Var hann á leið heim með lærin, þegar lögreglu- þjónamir ónáðuðu hann. Fékk maðurinn sfðan gistingn i Sfðu- múla um nóttina. arinnar, próf. Einar Ól. Sveinsson, kynnti bókina fyrir blaðamönnum. Hann sagði bók þessa í sérflokki, hvað ýtarlega fræðimennsku snert- ir. 1 inngangi er rætt um mismun e’instakra handrita, þeim raðað og það upprunalegasta notað stafrétt. Þá er mikill kafli um málfræði- leg atriði textans og er það ó- venjulegt búsílag við handritaút- gáfu. Þá eru þar einnig bornar saman rithendur texta riddarasög- unnar og einnig saman við rit- hendur annarra fornra texta, svo sem fombréfa. Þetta er nýtt svið í handritarannsóknunum, og sagði próf. Einar Ól., að því yrði áreið anlega meira sinnt f framtíðinni. Þá er úrdráttur formálans á ensku og einnig t’illag frá próf. Einari Ól., þar sem rakin eru sagnaminni þess- arar riddarasögu og rakin sambönd þeirra við erlendar riddarasögur og innlenda þjóðfélagshætti á þeim tíma. Handritastofnunin hefur tekið við bókaútgáfu Handritanefndar og er Viktors saga ok Blávus II. bindi flokks riddarasagna. Áður var kom- in út Dínus saga drambláta, einnig í útgáfu Jónasar Kfistjánssonar skjalavarðar. Næstu verkefni Handritastofnun- arinnar í útgáfum sagði Einar Ól. vera þessi: Sýnisbók elztu íslenzkra handrita í útgáfu próf. Hre’ins Benediktssonar verður fullgerð snemma á næsta ári. Nær sú bók fram til 1270 og fylgir henni vönd- uð fornskriftarfræði og réttfitunar- fræði. Á næsta hausti eru svo væntanleg kvæði Jónasar Hallgríms sonar f eiginhandarrit’i. ERLENDAR FRÉTTIR í STUTTU MÁLI ► Lögreglan í Indland’i lét í gær til skarar skríða gegn Kommúnistaflokknum og hafa kommúnistaforsprakkar í hundr aða tali verið handteknir um land allt. Talsmaður innanrík- isráðuneytisins hefur neitað að láta nokkra skýringu í té. Með- al handtekinna er le’iðtogi flokksins á þingi, Gopalin. — Kommúnistaflokkurinn klofnaði s. I. haust í tvær fylkingar. Önn ur er vinveitt Rússum, hin Kín- verjum. ► Aðstoðarforsætisráðherra Malajsíu segir auknar ráðstaf- anir verða gerðar til varnar inn- rásartilraunum frá Indonesíu, eftir að boðuð hafi verið úrsögn þeirra úr samtökum Sameinuðu þjóðanna (skrifleg úrsögn ókom in, er síðast fréttist). Raunar, bætti ráðherrann við, hefir Indonesíuforseti frá því það kom til, þverbrotið sáttmála Sameinuðu þjóðanna með fram- komu sinni gegn Malajsfu, og megi Malajsíumönnum á sama standa þess vegna, hvort þeir séu í samtökunum eða ekki, — Malajsía fékk nýlega sæti í Öryggisráði og var Súkamo þá ofsalega réiður og boðaði úr- sögnina. ► Bandaríska útvarpið NCB- National Broadcasting Co — opnar nú aftur skrifstofur i Moskvu. ► Árið 1964 er talið mjög lé- legt síldarár í Noregi. í Norður- Noregi brást síldveiðin gersam- lega. Samtals mun ársmagnið vera 1 milljón hektólítra og að verðmæti (förstehaandsværdi) 20 millj. kr., og er það y3 hlið- stæðs aflaverðmætis 1963, en 1961 var það 90 millj. kr. (NTB) SENDISVEINN Okkur vantar sendisvein strax, þarf að hafa reiðhjól. FÉLAGSPRENTSMIÐJAN H/F SPÍTALASTÍG 10 HÚSEIGENDUR Á HITAVEITUSVÆÐI Hitna sumir miðstöðvarofnamir illa? Er hitaveitureikningurinn óeðlilega hár? Ef svo er, þá er hægt að lagfæra það. Þið, sem ætlið að láta mig hreinsa og lagfæra miðstöðvarkerfið f vetur, hafið samband við mig sem fyrst, og ég mun segja yður hvað verkið mun kosta. - Éf verkið ber ekki árangur þurfið þér ekkert að greiða fyrir vinnuna. Baldur Kristiansen pípulagningameistari. Njálsgötu 29. Simi 19131.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.