Vísir - 03.02.1965, Síða 10
w
VÍSIR . Miðvikudagur 3. febrúar 1965.
IpiÍiSsTgliB^ ia 1 Ifl fS! J|(S BIRGIR
Lórus Sulómonsson skrífur um Skjuldurglímuna:
17ÁRA, 06 LAGÐIALLA
KEPPINAUTA SÍNA
Glíman fór fram 31. jan. í Há-
logalandi og átti að hefjast kl.
16, en fyrsta glíman hófst ekkj
fyrr en kl. 16.18, sem mun hafa
stafað af því að þátttakendur frá
Glímufélaginu Ármanni mættu
ekki nema einn, en 5 voru skráð
ir. Beðið var nokkuð þar til að
sýnt var, að fleiri mættu ekki.
Sex glímumenn frá KR voru
skráðir og mættu allir. Keppend
ur voru því 7 alls. Glímudeild
Glfmufél. Ármanns sá um mót-
ið. Hörður Gunnarsson farm.
deildarinnar setti mótið og gat
hess að hér myndu beztu glímu
nenn borgarinnar leiða saman
hesta sína. Hann harmaði að
skráðir keppendur skyldu ekki
mæta. Þorsteinn Einarsson,
íþróttafulltrúi var glímustjóri
og kynnti keppendur. Skýrði
hann vanhöldin og voru sumar
ásteeðumar torskildár, að sum-
um fannst. Þorsteini tókst
glímustjórnin vel. Hann hafði
mörg hlé,í glímunni, sem gerðu
mótið dauft, en hléin voru nauð-
synleg vegna hvíldar fyrir glímu
mennina og lögákveðin. 1 slík-
um hléum þyrfti að koma eitt-
hvað upplífgandi. Það bætti úr
að Þorsteinn gat hvað margar
glímur væru í allt og hversu
margar glímdar.
Ingimundur Guðmundsson var
yfirdómari. Meðdómarar Guð-
mundur Ágústsson og Ólafur
Óskarsson og mátti segja að
þeim tækist starfið vel. Afhend-
ing verðlauna og mótsslit ann-
aðist Gunnar Eggertsson, form.
Glímufél. Ármanns. Áhorfendur
voru allfáir, enda var mótið illa
auglýst. Glíman í heild var ekki
sem verst, en öllum þótti leiðin-
legt að skr. keppendur skyldu
ekki mæta og setti það rauna-
svip á fyrirmennina og mótið í
heild. Frumlagið var því aumlegt
miðlagið gott, en andlagið setti
allt niður.
Úrslitin urðu þau, að sigur-
vegari varð Sigtryggur Sigurðs-
son úr KR og felldi alla, fékk 6
vinninga. Næstur varð Hilmar
Bjarnason úr KR með 5 vinninga
og feldi alla nema Sigtrygg. —
3. Gunnar Pétursson KR, 4 v.
4. Garðar Erlendsson KR, 3 v.
5. Elías Ámason KR, 2 v. 6.
Ragnar Þorvaldsson úr Ármanni
með 1 v. 7. Sveinn Hannesson
KR, engan vinning.
Glíman var ekki svipmikil, en
mót geta verið góð þó þau komi
ekki til jafns við það sem bezt
er og oft má finna að glímum
manna þó þær séu ekkuslæmar.
Sjá mátti í upphafi glímunnar að
sigurglíman yrði á milli Sig-
tryggs og Hilmars, en Hilmar er
ekki lengur sá Hilmar, sem áður
glímdi. Hilmar er lítið æfður var
þreytulegur enda sýndi hann
ekki sinn gamla fræknleik. Hann
Sigtryggur Sigurðsson.
er líka kominn á þann aldur, að
hann á annaðhvort að æfa óslit-
ið eða hætta. Aðrir glímumenn
sýndu nokkuð góðar glímur. Sig-
tryggur var vel að sigrinum kom
inn og komst aldrei í hættu við
neinn, en hann sýndi of mikla
ákefð í glímunni við Hilmar og
var sem hann reyndi að hrinda
honum til falls, en það var ekki
viljandi gert, heldur af því, að
Sigtryggur fór í sömu átt og
Hilmar, sem varðist falli við
gólfið.
Ég læt hér fylgja með yfirlit
um brögðin sem sigrað var á og
fjölda bragðategunda hvers
keppanda.
Sigtryggur vann Garðar á
j hægrihliðar mjaðmahnykk. Ragn
ar á h.-hliðar mjaðmahnykk.
Gunnar á v.f. sniðglímu á lofti.
Svein á h.-fótar klofbragði. Hilm
ar á h.-hliðar fastri sniðglímu
upp úr mjaðmarhnykkssókn. El-
ías á hárri v.f. sniðglímu.
Fjöldi bragðategunda: hægri-
hliðar mjaðmahnykkur, v.f. snið
glíma á lofti, h.-fótar klofbragð,
h.-hliðar sniðglíma. Alls 4
brögð, en 6 vinningar.
Hilmar vann Gunnar á v.f.
sniðglímu niðri. Elías á h.f. snið
glímu niðri. Garðar á h.f. snið-
glímu niðri (sem mótbragði).
Svein á v.f. sniðglímu niðri.
Ragnar á h.f. leggjarbragði niðri.
Fjöldi bragðategunda: v.f. snið-
glíma niðri, h.f. sniðglíma niðri,
h.f. leggjarbragð niðri. Alls 3
brögð, en 5 vinningar.
Gunnar vann Garðar á háu v.
f. klofbragði. Elías á v.f. klof-
bragði. Svein á h.f. krækju niðri.
Ragnar á v.f. sniðglímu á lofti.
Framh. á 13. síðu.
L. H. Muller fékk
firmabikarinn
Firmakeppni (forgjafakeppni)
Skiðaráðs Reykjavíkur var haldin
í Ilamragili við iR-skálann s.l sunnu
dag. Margt var þar um manninn,
hiti um frostmark og sólskin allan
tímann. Mótstjórn annaðist skfða-
deild iR. 30 firmu kepptu til úr-
sl'ita og veitt voru 12 verðlaun.
Brautarlagningu annaðist Jóhann
Vilbergsson frá Siglufirði. Jóhann
þjálfar skíðamenn hjá Reykjavíkur-
félögunum um þessar mundir. —
Brautin var snilldarlega vel lögð,
um 40 port.
Benedikt G. Waage, heiðursfor-
seti ISf, flutti hvatningarræðu til
skíðamanna við kaffisamsætið, sem
haldið var í iR-skálanum að keppni
lok’inni. Ennfremur afhenti Bene-
dikt G. Waage 12 fallega silfurbik
ara (farandbikara) til hinna 12 fyr-
irtækja, sem höfðu haft hlutskörp
ustu keppendurna í úrslitakeppni
þessari. í lok ræðu sinnar mæltist
Benedikt G. Waage til þess, að
hrópað væri ferfalt húrra fyrir
r-róttum á íslandi.
Keppendur voru úr Ármanni, iR,
KR og Víking.
Úrslit urðu sem hér segir:
1. L. II. Muller, Valdimar
Ömólfsson iR 68.5 sek.
2. Steinavör h. f. Guðni Sig-
fússon IR 68.8 sek.
3. Ölgerðin Egill Skallagríms-
son, Þorbergur Eysteinsson
ÍR 70,0 sek.
4. Sveinn Björnsson h.f., Gunn-
laugur Sigurðsson KR 70.1 sek.
5. Jöklar h.f., Sigurður R.
Guðjónsson Ármann 72.0 sek.
6. Eggert Kristjánsson, heildverzl.
Þórir Lárusson iR 72.3 sek.
7. Nesti h.f. Hinrik Hermanns-
son KR 72.4 sek.
. Dagblaðið Tíminn, Sigurður
Einarsson ÍR 72.6 sek.
9. Sjóklæðagerðin, Kristinn
Þorkelsson KR 72.8 sek.
10. Otto Michelsen, Helgj Axels-
son IR 73.6 sek.
11. Bæjarleiðir, Bergur Eiríks-
son Ármann 74.6 sek.
12. Leðurverzlun Jóns Brynjólfsson
ar, Ásgeir Úlfarsson KR
75.1 sek.
13. Vlkingur h.f. Eyþór Har-
aldsson ÍR 75.2 sek.
14. Korkiðjan, Ásgeir Christian-
sen Víking 75.6 sek.
17. Pétur Andrésson, Hilmar
Steingrímsson KR 76.4 sek.
16. Skósalan, Theódór Blöndal
KR 77.2 sek.
17. P. & Ó., Bjöm Ólafsson
Víking 77.3 sek.
18. Sport, Þórður Sigurjónsson
IR 78.7 sek.
19. Heildverzl. Björns Björnssonar,
Guðm. Ingólfsson Á 84.2 sek.
20. Almenna Verzlunarfélagið,
Tómas Jónsson, Á 87.3 sek.
21. Skeljungur, örn Kærnested
Ármann 88.0 sek.
22. Einar J. Skúlason, Georg
Guðjónsson Ármann 88.9 sek.
23. Eimskip, Björn Bjarnason
iR 90.0 sek.
24. ísleifur Jónsson, Ólafur
Nilsson KR 92.4 sek.
25. Gufubaðstofan, Guðmundur
Björnsson Á 93.3 sek.
26. Sfld & Fiskur, Hrafnhildur
Helgadóttir Ármann 97.6 sek.
27. Völundur, Magnús Jónsson
Víking 103.6 sek.
28. Hydrol h.f., Einar Gunnlaugs-
son KR 104.0 sek.
29. Austurl ' rbíó Einar Þorkels-
son KR 111.3 sek.
30. Heildverzl. Rolf Johanson,
Kristín Björnsdóttir Á 121.5
sek.
-fr ÝMIS VINNA — ÝMIS VINNA
Bitstál — Skerpingar
Bitlaus verkfæri tefja alla vinnu. önnumst
skerpingar á alls kona'r verkfærum, smáum
og stórum.
BITSTÁL, Grjótagötu 14, sími 21500
Húsaviðgerðir
Tökum að okkur alls konar viðgerðir á húsum,
utan sem innan, svo sem gera við og skipta um
þök, einfalt og tvöfalt gler. Góð tæki til múr-
brota. — Útvega menn til mosaiklagna og ým-
islegt fleira. Góð þjónusta.
________Karl Sigurðsson, sími 21172
Teppa- og húsgagnahreinsun
Hreinsum teppi og húsgögn 1 heimahúsum.
__________________________Simi 37434
Vélhreingeming
Þægileg vinna, fljótleg vinna. Vönduð vinna.
Vanir menn.
Þrif, sími 21857 og 40469.
Bílaviðgerðir
Geri við grindur i bflum og fæst við alls
konar nýsmiði
Vélsmiðja Sigurðar V. Gunnarssonar,
Hrisateig 5, simi 11083.
Nýja fiðurhreinsunin
Endumýjum gömlu sængumar. Seljum dún
og fiðurheld ver.
Nýja fiðurhreinsunin
Hverfisgötu 57A. Sími 16738.
Mosaiklagnir
Annast mosaiklagnii ot aðstoða fólk við að
velja liti á baðherbergi og i eldhús ef óskað er
Vönduð vinna
Sími 37272
1 Vélahreingeming
• Teppahreinsun, húsgagnahreinsun.
• Vanir og vandvirkir menn. Ódýr og örugg
J þjónusta.
J ÞVEGILLINN, sími 36281.
• " --------------------------
• Vélahreingemingar
• Vélahreingerning og teppahreinsun. — Þægileg
• kemisk vinna.
• _________________Þ Ö R F, simi 20836
Ó Húsaviðgerðir
e Tökum að okkur alls konar húsaviðgerðir úti og
^ inni. Leggjum mosaik og fllsar. Skiptum um ein-
J falt og tvöfalt‘gler. Skiptum um og lögum þök.
• Vanir og duglegir menn.
: ívar Elíasson, sími 21696
• ■ ■■ ■■ ' ------- , ............ . ...
• Kópavogsbúar
2 Málið sjálf, við iögum fyrir ykkur litina.
2 Fullkomin og örugg þjónusta.
2 Litaval, Álfhólsvegi 9, sími 41585
---------------- , ------- ......... ■■...
j Bifreiðaeigendur
2 Ventlaslípingu, hringskiptingu og aðra mót-
• orvinnu fáið þér vel og fljótt af hendi leyst
^ hjá okkur.
^ Bifvélaverkstæðið
: Ventill s/f, sími 35313
• ■■■.. ' ■ ■■■'■■ ■ . ... ■ —... ■
2 Nýja teppahreinsunin
2 Hreinsum teppi og húsgögn 1 heimahúsum.
• önnumst einnig vélahreingerningar.
• Nýja teppa- og húsgagnahreinsunin
j Sími 37434.
•
2 Vélahreingeming
: önnumst vélahreingerningu og handhreingern-
2 ingu. — Hreinsum gluggarúður. Slmar 35797 »g
J 51875. Þórður og Geiri.
2 Félag hreingemingarmanna.
*