Vísir - 18.03.1965, Blaðsíða 1

Vísir - 18.03.1965, Blaðsíða 1
VÍSIR ■ LOKIÐ VERKFALUNUÁ KAUPSKIPAFLQTANUM K 5S. árg. — Fhnmtndagnr 18. marz 1985. - 65. tbl. Eftir 55 klukkustunda samfelld I ustu staðfestingar trúnaðarmanna an sáttafund, tókust samningar í ráða fengust síðan klukkan tíu um vinnudeilu yfirmanna á kaupskip- kvöldið og var þá verkfalli þvf af- unum klukkan níu f gærkveldi. Sfð I lýst á farskipaflotanum, sem stað 97 millj. króna hetur veriB varið til nýbyggingar Landspítalans Undanfarið hefur verið unnið að þvf að slá upp fyrir væntan- Iegum aðalinngangi f Landspítal ann, og er það hinn myndarleg- asti inngangur eins og sjá má af myndinni hér að ofan. Þar sjást tengiálma og vesturálma viðbótarbyggingar Landspftal- ans, en milli þeirra er aðalinn- gangurinn. Blaðið sneri sér í morgun til landlæknis og forvitnaðist um byggingaframkvæmdir við Land spítalann og fékk eftirfarandi upplýsingar: Viðbótarbygging Landspítal- ans hefur staðið yfir sfðan árið 1953. í árslok 1964 hafði verið varið til byggingarinnár um 97 millj. króna. Byggingin greinist í þrjá meg inhluta, svonefnda tengiálmu, vesturálmu og austurálmu. í tengiálmu hefur þegar verið lokið við tannlæknadeild, sem er staðsett í kjallara, kennslu- stofur læknastúdenta á 1. hæð, skurðstofur á 2. hæð og sjúkra deild fyrir 25 handlæknissjúkl- inga á 3. hæð. Á þessu ári er auk þess gert ráð fyrir að ljúka við rannsóknarstofur, sem eru á 1. hæð í þessari álmu. í vesturálmu er fyrirhugað að ljúka á þessu ári við 2. og 3. hæð, en þar verður Barnaspítali Hringsins til húsa. Á hann að rúma um 60 börn. Ennfremur er ætlazt til að lokið verði bygg- ingu 4. hæðar á árinu, en þar verður sjúkradeild fyrir 24 lyf- læknissjúklinga. Þá er gert ráð fyrir að vinna nokkuð við aðal- inngang, stigahús, ketilhús og Framh. á bls. 6 ið hafði yfir í tæpa tvo sólarhringa Þar sem það tók svo skamman tíma, urðu litlar sem engar tafir á skipaferðum vegna verkfallsins. Heizta atriði hinna nýju samn- inga er, að fastakaup hækkar um 6,6%, en ekki yfirvinna. Þá var samið um smávægis aukningu á orlofi auk lítilisháttar annarra breytinga. Samkomulagið gildir til 5. júní í sumar og er í samræmi við júnísamkomulagið svonefnda frá því í fyrra. Forseti ísiands kominn heim Forseti íslands, herra Ásgeir I Ásgeirsson, kom heim frá Osló I aðfaranótt 17. þ. m. úr för | sinni til Svíþjóðar þar sem hann var viðstaddur útför drottning- ar Svíþjóðar á laugardag. Vi8 1 komuna til Keflavikurflugvallar tóku á móti honum handhafar forsetavalds, þeir Þórður Eyj- ólfsson forseti Hæstaréttar og Birgir Finnsson, forseti Alþing- is, og auk þess Gunnar Thor- oddsen fjármálaráðherra. Var myndin tekin við komuna 1 til flugvallarins. Forsetinn hef- i ur nú tekið við stjómarstörf- um á ný. _______ SamiB ó Akureyri í nótt Samkomulag náðist klukkan eitt í nótt f vinnudeilu verk- smiðjufólks á Akureyri og hafði þá sáttafundur staðið yfir hjá Steindóri Steindórssyni mennta skólakennara og sáttasemjara, frá þvi klukkan fjögur siðdegis í gær. Samningarnir hljóða upp á óbreytt kaup og gilda til 5. júnf í sumar. Iðnrekendur sam þykktu jafnframt að greiða starfsfólki sínu kaup alla verk BLAÐ'Ð 1 ÐAG Bls. 3 Félagsheimili Heimdallar — 7 Niðursuða verður stóratvinnurekstur — 8 Leikdómur um þjófa, lík og falar konur. — 9 Ræða Gunnars Frið- rikssonar á iðnrek- endaþingi — 10 Viðtal við Benedikt Gunnarsson. fallsdagana þrjá. Eru samning ar þessir hliðstæðir þeim, sem verksmiðjufólk á Akureyri gerði við SlS-verksmiðjumar í janúarlok. Taka verksmiðjurn ar aftur til starfa á hádegi í dag, en samkomulagið hafði ver ið staðfest í morgun. Verkfallið, sem hefur staðið yfir frá því á mánudag, var gert hjá sex verksmiðjum á Akur- eyri, súkkulaðiverksmiðjunn’i Lindu, vinnufatagerðinni Burkna, kexverksmiðjunni Lore le'i, gosdrykkjaverksmiðjunni Sana, nærfataverksmiðjunni Amaro og Dúkaverksmiðju Vigfúsar Jónssonar. Sovézkur geimfari fer úr geimfari úti í geimnum og inn / það aftur Fór 5 metra fró geimfarinu og gerði mikilvægar athuganir NTB-fréttastofan birti um það frétt árdegis í dag, að annar geimfaranna í sovézka geimfarinu VOSHNOD II, sem er nýskotið á loft, sbr. frétt á 5. síðu, hafi orðið fyrsti maðurinn til þess að ganga um f geimnum eigin fótum. Ekki var þetta skýrt tækni lega, en geimfarinn hafði samkvæmt fréttinni farið út úr geimfarinu úti í geimnum („spaserte utav romskipet") og farið („beveget sig“) allt að fimm metra frá geimfar- inu — og svo inn aftur. Það var, samkvæmt fram- haidsfregn, geimfarinn Leon- ov, sem var að „spássera“ þama f lausu lofti. Hann var í sérstökum búningi, sem á var sjálfvirkur björgunarút- búnaður, og gerði geimfarinn mikiivægar athuganir áður en hann fór aftur inn í geim- farið. Hann kveðst ekki hafa fundið til neinna óþæginda fyrir utan geimfarið eða eftir að hann kom til baka.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.