Vísir


Vísir - 18.03.1965, Qupperneq 11

Vísir - 18.03.1965, Qupperneq 11
V í SIR . Fimmtudagur 18. marz 1965. 11 Þróttur vann Axekmótii í innanhússknattspymu Spennandi úrslitnleikur þeirrn við Keflnvík 6:5 Þróttur vann alla slna leiki í innanhússmóti Vík- ings, Axelsmótinu, í gær- kvöldi og þar með glæsi- legan bikar, sem Vátrygg- ingafélagið h.f. gaf. Sigrar Þróttar í gærkvöldi voru þó ekki eins auðveldir og kvöldið áður, aðeins einu marki munaði í báðum leikjunum, en samt var það bezta lið keppninnar, sem þarna fór með sigur af hólmi, og er það ekki í fyrsta sinn, sem Þróttarar ná góðum árangri í þessari íþróttagrein. Leikir kvöldsins i gær fóru þann ig: Þróttur—Fram 5:4 Keflavík—KR 7:4 Valur-FH 4:1 Víkingur-b—Haukar 5:2 Breiðablik—Víkingur-a 7:6 Fram—Víkingur-b 8:3 Breiðablik—Haukar 6:6 Víkingur-a—FH 4:7 Valur-KR 8:2 Þróttur—Keflavík 6:5 Örslitaleikurinn var afar jafn og spennandi frá byrjun og leikmenn lögðu sig alla fram bæði i vöm og sókn. Var harkan oft mikil og tveim Keflvikingum var visað út snemma í leiknum, en ekki tókst Þrótturum þó að hagnast verulega á því og Jón Jóhannsson jafnar 2:2 á því tímabili. Haukur skoraði 3:2 fyrir Þrótt rétt fyrir hlé. Sig- urður Albertsson skorað; 3:3 i byrjun seinni hálfleiks, en Ómar svarar með 4:3 eftir að hafa bjarg að knálega á marklínu ákafri sókn Keflvikinganna. Haukur Þorvalds- son bætti við 5:3, en ekki voru Keflvíkingar af baki dottnir, hertu sóknina nú um allan helming og .. . Ui ... ... VUBksc ': .., JH3S& .. Þróttarliðið sem sigraði. Frá vinstri: Axel Axelsson, Ólafur Brynjólfsson, Jón Magnússon, þjálfari liðsins, Haukur Þorvaldsson, Jens Karlsson. FyrirliBi liðsins, Ómar Magnússon, er með bikarinn. ALL T TILBUIÐ FYRlÍt SKÍÐALA NDSM Ó TIÐ — en úhyggjur út uf snjónum Lokið er nú meginundirbúningi að Skiðalandsmótinu I Hlíðarfjalli. Akureyringar hafa haft mjög gott skíðafæri í vetur og fjölda mörg mót hafa verið haldin. Þar hefur starfslið skíðalandsmótsins fengið sína þjálfun, en sennilega munu ekki færri en um hundrað manns starfa við mótið. Sennilegt er að mótið í Hlíðar- fjalli verði stærsta mót sinnar teg undar hér á landi, en enn er ekki fullvíst um þátttöku frá einstökum skíðaráðum. Hermann Sigtryggsson á Akureyrj sagði í viðtali í gær- kvöldi, að hann vildi koma þvi á framfæri við skíðaráðin, að flýta því að tilkynna þátttakendur sem mest. Skiðafólkinu verður komið fyrir í Skíðahótelinu í Hliðarfjalli, á Hótel KEA og i heimahúsum víða um Akureyri. Uppi f Hlíðarfjalli eru hin ákjós- anlegustu skilyrði. Að visu sagði Hermann að allir þar nyrðra væru á nálum út af snjónum. Enginn veit hvenær snjór helzt og hvenær ekki. Þess vegna er hættan alltaf fyrir hendi að snjóleysi verði, þótt gæfan verði f þetta sinn á bandi þeirra Norðanmanna. Verst verður með keppnina í stökki, en mikinn snjó þarf til að hún geti farið fram og í vetur hefur aldrei verið hægt að framkvæma hana á Akureyri og yfirleitt hvergi nema á Ólafsfirði, þar sem skíðastökk hefur einu sinni farið fram. Ef ekki væri hægt að framkvæma þá grein,' mundu nor- ræn tvíkeppni og stökk verða að fara fram síðar. Skíðahótelið í Hlíðarfjalli er um þessar mundir rekið með miklum dugnaði og áhuga af hinum nýja hótelstjóra, Frímanni Gunnlaugs- syni og konu hans, Karólínu Guð- mundsdóttur og ár, efa verður góð miðstöð fyrir mótið þar. Uppi í Strompinum svokallaða hefur íþróttabandalag Akureyrar1 fest mikið fé f framkvæmdum, en j það er í skíðalyfturini svo og vegna háspennustrengs, sem þama liggur í 7 — 800 metra hæð um 1300 metra veg í spennistöð fyrir mannvirkin f fjallinu. tókst með harðfylgí að jafna 5:5. Sigurmarkið skoraði Jens Karlsson mjög laglega. Hann fékk boltann utarlega í vítateignum, lék laglega á vamarmann og komst inn á miðj Úrslit keppninnar urðu þau, að Þróttur hlaut 8 stig, Valur 7 stig, Keflavík 5 stig_ Fram 5 stig, FH 4 stig, Breiðablik 4 stig, KR 3 stig, Víkingur-b 3 stig, Haukar 1 stig og Víkingur-a ekkert stig. Sigurmarkið skorað af Jens Karlssyni í gærkvöldi. Aumingja AJAXj Dönsku meistararnir Ajax. sem hér voru í haust og fengu hina herfilegustu útreið hjá íslenzkum handknattleiksmönnum. Iéku um helgina síðari leik sinn í undanúrslitum Evrópukeppninnar f hand- knattleik og mættu júgóslavnesku meisturunum Medvescak í Bel- grad. Danirnir, sem unnu fyrri leikinn í Kaupmannahöfn 24:20, töpuðu nú með miklum mun, 21:11 og eru þar með úr keppninni. Þeir komu nú sem fyrr með hinar fáránlegustu afsakanir fyrir tapinu, t. d. að þeir hefðu þurft að sitja í bíl í 20 mínútur og keyra til staðarins þar sem þeim var ætlað að búa, og fleiri voru af- sakanirnar i sama dúr. Já, maturinn var líka slæmur. En hand- knattleikur Ajax? Á hann var vart minnzt. Jan Wiehmann skorar í Belgrad. ut

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.