Vísir - 24.03.1965, Blaðsíða 7
VÍSIR . Miðvikudagur 24. marz 1965.
7
★
Alvara iífsins virðist vera
þeim víðs fjarri, þar sem þau
ganga blaðrandi og hlæjandi í
hópum inn um dyrnar á Iðn-
skólabyggingunni. Þau sem
koma út eru jafn laus við alla
alvðru, þau tala saman af eld-
móði og eru með bæklinga og
upplýsingapésa í höndunum. Inn
anum greinir maður þó alvar-
lega studiosa, tilvonandi háskóla
borgara, þeir eru þyngri á brún-
ina finna dálítið til ábyrgðar-
innar, sem fylgir því að velja
sér lífsstarfið.
brosti út f annað munnvikið —
einn kom og spurði hvort stétt-
in væri ekki að deyja út. Það
ætlar sér enginn að verða verka-
maður, þau vilja öll læra, til
allrar hamingju.
Skólarnir eru þarna með kynn
ingu á starfsemi sinni. Verzlun-
arskólinn sýndi hvernig unnið er
með ýmsum vélum, sem notað-
ar eru við verzlunarstörf, einnig
var kynning á félagslífi innan
skólans. Samvinnuskólinn sýndi
kvikmynd tekna af skólalífinu
og var alltaf troðfullt út úr dyr
um því fátt virðist hafa meira
aðdráttarafl en heimavistarróm-
antík upp í sveit.
í einni stofunni var hægt að
fræðast um skólanám erlendis
og var þröngt við borð leiðbein-
andans. Að því er virtist voru
það einkum ungpíur, sem höfðu
áhuga fyrir því að komast á
stutt námskeið erlendis. En
unga fólkið er fróðleikfúst, og
vill læra, það sýndu hópamir,
sem leituðu sér fræðslu um
skólanám.
Kristín^ Bjamheiður og Margrét ætla að nema stærðfræði.
AÐ VELJA SÉR LÍFSSTARF
Unglingarnir hafa líka áhuga
á listum. Ungu stúlkurnar vilja
verða leikkonur einn og einn pilt
ur spyr líka um leiklistina. Marg
ir vilja líka fræðast um teikni-
nám, tízkuteiknun er t.d. nýr
liður á starfsfræðsludeginum og
þegar við förum út komum við
við f tónlistardeildinni. — Það
er nú aðallega komið hingað og
spurt um hvar sé hægt að læra
á trompet gítara og trommur, og
hvar sé hægt að kaupa'hljóðfæri
segir fulltrúi tónlistarinnar og
kímir.
Inni er þröngt á þingi, á öll-
um fimm hæðunum er ys og
þys. Við borð undir hverju skilti
sitja fulltrúar viðkomandi starfs
greinar og reyna eftir beztu
getu að svara spumingum, sem
em e.t.v. ekki alltaf jafn gáfu-
legar. Þarna eru samankomnir
fulltrúar a.m.k. 170.starfsgreina,
skóla og stofnana svo að unga
fólkinu er nokkur vandi á hönd-
um.
Þama em fulltrúar fyrir gaml-
ar starfsgreinar eins og skó-
smíði, sem eiga ekki upp á pall
borðið hjá æsku nútímans. —
Þegar rætt var við fulltrúa þeirr
ar greinar sagði hann að 3—4
hefðu spurt hann í alvöru. Þeg-
ar blaðamaður kom að borði
verkamannsins, ságði hann og
Bjöm Eysteinsson er að skoða
gírkassa með miklum áhuga,
hann segist vera í 4. bekk Flens
borgarskólans og hafi mestan á-
huga á mótomm og svoleiðis.
Hann er helzt að hugsa um að
verða flugvirki en lízt einnig
vel á að fara í Tækniskólann. —
Ég vann í síldarverksmiðju í
sumar og var aðstoðarmaður við
vélamar, segir hann okkur, þeg-
ar við spyrjum hvort hann hafi
fengizt við vélar.
Islendingar vilja fylgjast með
tækninni því að stór hópur var
fyrir framan skiltið þar sem á
stóð Kvikmyndagerð og sjón-
varpstækni og áhuginn fyrir öll
um vélum var augsýnilegur.
Unglingamir vildu bersýnilega
vera vel inni í öllu er snertir
vélamenningu nútímans. Einnig
dró fræðslusýning byggingaefna
rannsókna að sér álitlegan hóp.
Fyrir utan eina stofuna náði
blaðamaður tal af Magnúsi Ingv
arssyni nemanda I 2. dekk Lang-
holtsskóla. Magnús var alveg
harðákveðinn f að leggja stund
á jarðfræði og sagðist hafa mik-
inn áhuga á öllu, sem væri £
náttúranni, ekki kvaðst hann
hræðast langskólanám. Mestan
áhuga hefði hann á steingerving-
um og hefur þegar safnað miklu
af steinum. Magnús var á hraðri
ferð svo við töfðum hann ekki
lengi.
Fyrir framan spjaldið sem á
stóð stærðfræði vom þrjár ung-
ar stúlkur og virtust hálfhik-
andi við að spyrja um sy^h^-
vísindalega grein en þær.-tókUi í
sig kjark og voru komnar f
hrókasamræður við fulltrúann
áður en lauk. Eftir á tökum við
þær tali. Þær em allar nemend
ur 3. bekkjar Menntaskólans og
sögðust heita Kristín Jónsdóttir,
Bjarnheiður Guðmundsdóttir og
Margrét Reykdal. Þær skýrðu
hlæjandi frá því að þær ætluðu
allar að fara í stærðfræði. —
Það eykst alltaf áhuginn á stærð
fræðinni sögðu þær, það ætla
fleiri stelpur f bekknum að fara
f stærðfræðileid núna en var f
3b f fyrra.
Kristín yar ejginlega alveg'
ia fas^|kv?|in ^fara í arkitekbir.'
þegar þær ém spurðar hvað þær
ætli sér að gera f framtíðinni,
Bjamheiður var að hugsa um
efnafræði eða lyfjafræði, hallað
ist þó heldur að lyf jafræðinni og
taldi það kost að geta lært hana
hér heima a.m.k. fyrri hlutann.
Margrét hallaðist að arkitektúr
náminu en er samt ekki alveg
ákveðin, — vfst ferðu, gall f
hinum, þú sem ert svo góð að
mála, — hún fékk verðlaun á
málverkasýningunni bættu þær
svo við, en Margrét vildi sem
minnst gera úr þvf. — Þegar
þær eru spurðar hvort þetta geti
breytzt brosa þær bara og segja
að það geti svo sem vel verið.
Áhugi fyrir vélunum var mikill . . .
Á starfsfræðsludeginum skipt
Magnús Ingvarsson.
Bjöm Eysteinsson.
ist á gaman og alvara. Ungling-
arnir velja sér ævistarf, það er
vandasamt val. En þeim er hjálp
að að taka þessa mikilvægu á-
kvörðun. Það er hlutverk starfs-
fræðslunnar.