Vísir - 08.05.1965, Blaðsíða 15

Vísir - 08.05.1965, Blaðsíða 15
VÍSIR . Laugardagur 8. maí 1965. 75 SENKI fEOPLE WERE.SLAVES OF MV TRISEj LCNS TIVvE AGO--BUT WHEN MY FATHER BECA/AE CHIEF HE GAVE THEW' LAMF ANE> FREEEOM. WHEN’l TOL? THEfA I WAS My FATHER'S SON.THEY WANTEP >íuénoiv we MAK.E GUNMEN j TELL US THEIR mM- ]T~V-~:RTjPl secrets! ÆmygÞstCamá Euioir JonJ _ Ci lArpO BIG JOK.E,TARZANÍ GUNMEN THINIC'THEy HIPE HEKE-TO KILL US! NOW WE... . EXCELLEWT, ULl! ANt?, MY THANKS TO j THE GENK.I BEARERS—FOR FESERTINS i THE GUN-RUNNERS, ANF HELPING US í mg CATCH THEM! ,----------—------1 Endumýjun, gömlu sængura- ar, eigum dún- og fiðurheld vei. æðardúns- og gæsadúns- sængur og kodda af ýmsum I stærðurr — PÓSTSENDUTW ; Rest bezt koddar ■ Dún- og fiður- hreinsun, Vatnsstig i Sírrn 18740 (Örfá skrel trá Laugavegi) burðarmannanna fyrir að yfir- gefa vopnasalana og hjálpa okk- ur að grípa þá. Genkiþjóðin voru þrælar ættkvíslar minnar fyrir löngu siðan en þegar faðir minn varð höfðingi gaf hann þeim land og frelsi. Þegar ég sagði þeim að ég væri sonur föður míns langaði þá til þess að hjálpa okkur. Nú skulum við lúta vopnasalana segja okkur leyndar mál sín. Þetta er hreinasti . brandari Tarzan. Vopnaberamir halda að þeir séu hér í felum til þess að drepa okkur. Nú vjð ... Ágætt Uli. Og þakkir mínar til Genki ' ' ’ .« SBKSOSUOr eftir Marvin Albert,byggö ásamnefndri kvikmynd. ^ ^ -sr Og Angela Dunning, sem alltaf fann það á sér — með óblandinni ánægju — þegar hart var að einhverjum vegið í návist hennar, að viðurkenna það, Sir Charles, að hún hefur hitt naglann á höf uðið. Hvers vegna hlægið þér ekki með? Þér hafið alltaf tekið því hressilega, þegar einhver glettist við yður.“ „Það er auðheyrt", mælti Sir Charles, „að þér þekkið ekki þær reglur sem gilda í hnefaleik, Ang ela. Hennar hátign hefur leyft sér að brjóta þær reglur; þetta högg hennar hæfði fyrir neðan beltis- stað.“ Hann sagði þetta þykkjulaust, en nú dauðsá Dala prinsessa allt í einu eftir að hafa veizt þannig að honum. ..Fyrirgefið, Sir Char- les“, mælti hún. „en það var ekki ætlun mín að móðga yður.“ Hann var að því kominn að svara, þegar hann kom auga á einhvern úti fyrir glugganum. Það var Simone, sem stóð þar úti á fönninni. Þegar hún sá að hann hafði veitt henni athygli, gaf hún honum bendingu og var svo horf in út í myrkrið. Sir Charles svipaðist um meðal gestanna, og þegar hann þóttist þess fullviss að enginn þeirra, hefði tekið eftir Simone fyrir utao, gluggann, varð honum rórra. Én gestirnir misskildu spurnarsvipinn á andliti hans. „Svona, svona, Sir Charles1,, kvakaði Mary, kvikmyndastjarnan tilgerðarlega. „Þér megið ekki taka þetta alvarlega. I rauninni var ekkert meint með þessu, skiljið þér, og þér hafið það sigurorð á yður í þessum sökum, að þér þurf ið ekki að láta slíkt á yður fá.“ Sir Charles reis úr sæti sínu, mundi eftir því að hann var slas aður og kveinkaði sér eins og við átti, „Ég verð að biðja ykkur að hafa mig afsakaðan", mælti hann. Dala prinsessa starði undrandi á hann og iðraðist orða sinna sárlega. Mary, kynbomban, glápti á hann. „Yður getur ekki verið al- vara?“ mælti hún spyrjandi. Angela Dunning gaggaði: „Sir Charles ... það kom engum til hug ar að móðga yður ...“ „Ég er dálítið þreyttur", mælti hann kuldalega. „Ef þið viljið gera svo vel að hafa mig afsakað ann...“ Að svo mæltu haltraði hann á dyr. „Nei nú gengur fram af mér“, sagði brezki skáldsagnahöfundur- inn og starði á eftir honum. Sarajos, skipakóngurinn, starði einnig á eftir honum. „Ég blátt áfram trúi þessu ekki“, hreytti hann út úr sér. Dala prinsessa beit á vörina og vildi mikið til þess vinna að hafa ekki hrakið Sir Charles þannig á brott. Simone æddi fram og aftur um stíginn fyrir neðan og beið þess í óþolinmæði að Sir Charles kæmi. Og þá gerðist það, að eiginmaður hennar birtist í hóteldyrunum og kom að sjálfsögðp auga á hana, þó að myrkt væri. Henni brá ónotalega. „Ég hef alls staðar verið að leita að þér“, kallaði lögreglustjórinn og hraðaði sér til móts við hana. „Mér fannst ég þurfa að fá mér frískt loft“, sagði Simone og skalf af kulda. „Það má mikið vera, ef þú færð dkki lungnabólgu", varð eigin- manni hennar, að orði. Hann tók undir arm henni og leiddi hana heim að hótelinu. „Nú fqcum við beint í rúmið og hlýjum oíckur undir sæng. Mér er hroll- kalt sjálfum. Og syp' er ég syfj- aður líka“, bættí hann við. Andartaki síðar kom Sir Charles haltrandi niður stíginn. Þegar hann var kominn í augsýn frá setrinu, hætti' hann heltinni, gekk hratt og svipaðist um eftir Simone. En það var eins og hún hefði sokkið í mjöllina. Simone lá samanhnipruð í rekkj- unni og heyrði eiginmann sinn raula. glaðlega inni í baðherberg inu við lágværan undirleik raf- magnsrakvélarinnar. Og allt í einu heyrði hún annað hljóð berast í gegn um lokaðar millidyrnar úr næsta herbergi, svefnherbergi Sir Charles. Hún smeygði sér undan sængurfötunum, læddist á tánum að dyrunum og lagði eyrað við hurðina. 1 þögninni heyrði hún greinilega lágt marr í rekkjufjöðrum hinum megin við hurðina-. Henni varð litið í áttina að bað- herbergisdyrunum, og í sömu and- rá hljóðnaði gnýr rafm.rakvélar innar. Eiginmaðurinn hætti að raula rétt sem sriöggvast, en byrj aði Ttur á öðru og enn róman- tískara lagi. Simone hljóp yfir gólfið og smeygði sér undir sængurfötin aft ur. Það mátti heldur ekki seinna vera, því að eiginmaðurinn birtist í baðherbergisdyrunum, klæddur klæðskerasaumuðum náttfötum. Raulandi enn sitt rómantíska lag, virti hana fyrir sér rekkjunautinn með galliska glóð í augum og slökkti síðan ljósið, svo að myrkt varð inni nema hvað daufa skímu af skörðum mána lagði inn um gluggann. Simone leit skugga mynd eiginmannsins bregða fyrir gluggann, þegar hann nálgaðist rekkjuna. Svo smeygði hann sér undir sængurfötin hjá henni og raulaði enn. Hætti ekki raulinu fyrr en hann teygði hendina til hennar. „Jacques", hvíslaði Simone. „Já?“ Það var ákefð í röddinni. „Mér er kalt enn. Kannski ég ef fengi aðra ábreiðu í viðbót, skilurðu.... Hann dró að sér hendurnar með nokkurri tregðu. Fór fram úr og kveikti ljósið. Gekk yfir að skáp, náði í aðra ábreiðu og breiddi vendilega ofan á konu sína. Tók aftur til við að raula, slökkti á lampanunt, jsmeygði §ér « undir sængurfötin og.leitaði henn,ar. „Jaques“, hvislaði Simone. „Já?“ Röddin var heit af ákefð. „Þetta virðist ekki ætla að koma að neinu gagni. Ef ég fengi glas af heitri mjólk ... “ „En það er orðið svo seint, að ekkert fæst afgreitt í herbergin ... „Æ, það er satt.“ Og það voru ósköpin öll af vonbrigðqm, sem hún kom fyrir i þessum fáu orð- um. „En það gildir einu,“ mælti eig- inmaðurinn og rödd hans var þrungin umhyggju. „Fyrst dúfunni minni er kalt, skal hún fá heita mjólk, þó svo ég verði að beita valdi við að fá þá til að opna eldhúsið.“ Hann klappaði henni ástúðlega j kleif enn fram úr rekkjunni kveikti i á lampanum. tók slopp út úr i skápnum og brá sér í hann. i „Þú ert dásamlegur," sagði Sim ! one, og virti eiginmanninn fyrir ! sér, á meðan hann var að hneppa ; að sér sloppnum Hún sendi honum kosS á fingrinum. Hann svaraði henni í sama máta og lagði af stað eftir mjólkinni. Um leið og hann var horfinn út úr herberginu, brá Simone sér fram úr, hljóp yfir að millidyrun- um o? bankaði létt á hurðina. En sá, sem lá í rekkju Sir Charles hinum megin við hurðina, brá ekki blundi. \ Simone lagði eyrað við hurðina. Barði aftur. Og enn svaf hann. Hún brá sér yfir að skápnum, náði sér í slopp snakaði sér £ hann setti ilskó á fæturna og gægðist fram á ganginn. Þar var ekki sálu að sjá á ferli. Hún hljóp yfir að dyrunum á íbúð Sir Charles og reyndi á hurðarhúninn. Dyrnar voru ólæstar. Hún læddist inn fyr ir þröskuldinn og dró hurð að stöf um á eftir sér. „Charles," kallaði hún lágt og blíðlega. Ekkert svar. B LÚ MATuTÍN DÖGG Álfheimum G, Keykjavík Sími 33978. S ængur Endurnýjum gömlu sæng- urnar Eigum t dún- og fiður- • * held ver NVJA fiðurhreinsunin Hverfisgötu 57a Sfmi 16738 I Hef opnað nýja hárgreiðslustofu á Frakkastíg 7 undir nafninu ' Hárgreiðslustofan ARNA. 1 Sími 19779.___________________ Hárgreiðslu- og snyrtistofa STEINU og DÓDÓ I Laugavegi 18 3. hæS (lyfta) Slmi 24C16 1 Hárgreiðslustofan PERMA Garðsenda 21, sími 33968. Hárgreiðslustofa Ólafar í Björnsdóttur I HÁTÚNl 6, simi 15493. Hárgreiðslustofan PIROL I Grettisgötu 31, simi 14787 I Hárgreiðslustofa VESTURBÆJAR Grenimel 9, sími 19218. Hárgreiðslustofa AUSTURBÆJAR i (María Guðmundsdóttir) i Laugavegi 13, sími 14656 Nuddstofa á sama stað.________ i Dömuhárgreiðsla við allra hæfi' TJARNARSTOFAN | Tjarnargötu 11 Vonarstrætis- megin simi 14662._______________ ' Hárgreiðslustofan DÍS Ásparði 22. sími 3r"10 ! <| HÁRGREIÐSLU STOFAN AS7HILDUR KÆRNESTED GUÐLEIF SVEINSDÓTTIR SIMI 12614 HÁALEITISBRAUT 20 GrurJarstíg Simi 21777 2A Hárgreiðslustofan aowwiiiM S3HS5SWBMEE

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.