Vísir - 08.05.1965, Blaðsíða 2

Vísir - 08.05.1965, Blaðsíða 2
BlTLARNIR aftur á toppnum! ☆ Bítlamir þúrftu ekki að bfða lengi eftir að komast á toppinn á ný, því þriðja platan þeirra „Ticket to Ride“ varð á svip- stundu efst á sölulista hljóm- plötuframleiðanda. Og á listan um yfir LP (long-playing = hæg gengar) plötur varð platan „Beatles for Sale“ efst á ný en hiín hefur ekki verið í efsta sæti á þeim lista síðan „The Rolling Stones nr. 2“ kom á markaðinn. Af þessu má sjá, að Bítlarn ir eru ekki á niðurleið og sögu Nýja platan þeirra, „Ticket to Hde“, er efst á sölulistanum f Bretlandi — LP-pIatan „Beat- Ies for sale“ komin upp fyrir „Rolling Stones Nr. 2.“ sagnir um að þeir séu að hætta virðast úr lausu lofti gripnar, því ákveðið hefur verið að þeir komi í hljómleikaferð til Dan- merkur fyrri hluta næsta árs. í fjórða sæti á listanum er plata frá hljómsveit sem nefnir sig „Unit For + 2.“ Það er tiltölulega ný hljómsveit, en því miður höfum við ekki feng ið mynd af henni. En það sem mesta furðu.vek ur, er að Cliff gamli Richard er kominn í 2. sæti. Cliff nýtur enn óskiptra vinsælda, og hver ný plata með honum rýkur Ut eins og heitar lummur. Senni- lega er það þó mikið „The Shadows" að þakka, hve vin- ssell Cliff hefur orðið. Cliff Richard virðisf alltaf eiga jafn- miklum vin- sældum oð fagna í Eng- landi Hægri Vinstri t>að er fátt, sem við getum ekki deilt um og gert að hita- máli. Nú hefur hið háa Alþingi varið talsvert löngum tíma af talsvert. löngum þingtíma til að deila um það hvort hafa megi minka f búrum hér á landi — hvort þeir f búrunum geti ekki ef til vill valdið meira tjóni en hinir, sem ganga utan búra í landinu. Ekki er þó málið kom ið enn á það stig, að Dýra- verndunarfélagið -— sem ann- ars er gott féiág — láti það til sín taka, en samkvæmt yfiriýs- ingu þess í sámbnndi ,'við sýn- ingu Hafnarfjarðarskátanna f fyrra, er það skylanst .lagabrot að setja nokkurt villt dýr í búr. Það getur þvf farið svo, að Al- þingi verði kært fyrir lagabröt ef það samþykkir minkahaldið, og fái það dóm ,er ekkert ann- að líklegra en að stjórn og þing verði að segja af sér og gengið verði til nýrra kosninga. Já, hann er hættulegur, mink- urinn. Því undarlegra er það, að frumvarpið um hægrihandar- akstur skuli ekki vera orðið að deilumáli eða valdið svo mikið sem velgju í þinginu. Þarna er þó greinilega um að ræða hægri og vinstri stefnu, hefði því mátt búast við að þingmenn skiptust f málinu samkvæmt flokkum —en svo undarlega bregður við, að jafnvel komm- únistar virðast þarna allt í einu orðnir hægrisinnaðir. Upphaf- lega mun það hafa verið fsl. kvensöðullinn sem réði því að tekin var hér upp vinstri stefna f umferðarmálum, löngu áður en nokkrir vinstrirnenn voru til hér á landi, nema þeir örvhentu Nú eru allar íslenzkar konur — eða öllu heldur, allar þær fáu íslenzku konur, sem setiast á hestbak, orðnar beggja handa járn og ríða tvívega, svo að ekki er.. lengur . þörf á að sýna þeim neina, sérstaka kurteisi, hvorki hægxa megin né vinstra megin og þau rök því úr sög- unni .-rr hafi þau nokkurn tíma V verið nokkuð annáð en hræsni. Sem sagt — þami hafi vinstri menn beðið einn sinn herfileg- asta ósigur án þess að gera sér grein fyrir því. Og jafnvei Þjóðviljinn þegir. Gegnir furðu, að þeir, sem eru manna sérfróð astir f öllum tæknilegum á- róðursbrögðum, skuli ekki hafa gert sér ljóst hvíiík áróðursá- hrif hin síendurteknu orð ,Víkið til vinstri" hafi haft á undir- meðvitund manna — og hvern ig bregða muni við þegar „haldið til hægri“ kemur í stað þeirra. Paul McCartney ásamt aðdáanda. Cartney og Lennon voru í fyrsta sæti yfir tónskáld og útsetjara. k. m.■m. ■m. > 20 efstu lögin 1. Ticket To Ride Beatles 2. The Minute You’re Gone Cliff Richard 3. Here Comes The Night Them 4. Concrete And Clay Unit Four + 2 5. Catch The Wind Donovan 6. For Your Love Yardbirds 7. Pop Go The Workers Barron Knight’s 8. King Of The Road Roger Miller 9. Bring It On Home To Me Animals 10. Stop! In The Name Of Love Supremes 11. Little Things Dave Berry 12. The Last Time Rolling Stones 13. The Times They Are A-Changing‘ Bob Dylan 14. Yau’re Breaking My Hart Keely Smith 15i I Can’t Explain The Who 16. A World Of Our Own Seekers 17. I’ll Be There Garry and the Pacemarker 18. True Live Ways Peter and Gordon 19. It’s Not Unusal Tom Jones 20. Silhouettes Herman’s Hermits lOefstu LP 1. Beatles For sale Beatles 2. The Rolling Stones No 2 Rolling Stones 3. The Freenheclin ’Bob Dylan Bob Dylon 4. Kinda Kinks Kinks 5. The Best Of Jim Reevs Jim Reevs 6. Lucky 13 Shades Val Doonican 7. Pretty Things Pretty Things 8. The Times They Are A-Chanin’ Bob Dan 9. Have I Teld You Lately That I Love You Jim Reevs 10. Sandie Sandie Shaw Kári skrifar: IVTaímánuður er án efa feg- ursti mánuður ársins. Þeg ar gróðurinn vaknar til lífsins og fjörið tekur að ólga í æð- unum, — þegar dagana lengir og sólin glampar á gangstéttun um — og „kýrnar leika við kvurn sinn fingur." Það er því í meira lagi skrýtin og óheppi- leg tilviljun að blessað unga fólkið skuli þurfa að hanga inn an dyra við lestur misjafnlega skemmtilegra bóka i þvílíku ,,fagnaðarfestivali“ náttúrunn- ar. Það er mjög til efs, að slfkt sé skaparanum þóknanlegt, þeg ar hann er á annað borð að '•'•’f'ja oitkur í hendur slíka smdrandi og lifandi fegurð. Að öllum líkindum er það aðeins gömul venja að halda próf að vori til — svona í endaðan vet- urinn. PRÓFUM SLEPPT En þegar veturinn, þ.e.a.s. námstíminn, er sifellt að lengj- ast, þá væri ekki úr vegi að taka til endurskoðunar gömlu reglugerðina um vorprófin, enda er víða farið að hugsa til þess að fella þau hreinlega nið- ur. Með því er átt við, að miða einkunnagjöf við frammistöðu yfir veturinn, við skyndipróf og frammistöðu í tfmum. Slíkt yrði án efa til mikilla hags- bóta, því prófin taka nú orðið heilan mánuð af námsárinu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.