Vísir - 08.05.1965, Síða 1

Vísir - 08.05.1965, Síða 1
VÍSIR Vísmhmeamimr afArlis til Keflavíkur eftir viku ísbrjóturinn Edisto er nú kom- inn eins nærri Arlis II og álitið er mögulegt, þvl ísinn við jakann er mun þéttari en búizt var við. Er skipið nú í nokkurra rnílna fjar- lægð frá jakanum og 25 mílur inn- an isbrúnarinnar og hefur sú leið verið torsótt. 1 gær var byrjað að flytja tækin af jakanum. Helikopterflugvél ann- ast þetta verk og flýgur stanzlaust Framh i bls. 6 Gunnar Thoroddsen STÓRHUCA HUMKVÆMDAÁÆTL- ur lána, og stendur Fiskveiðasjóð ur undir þessum greiðslum. Til dráttarbrauta og skipasmíðastöðva verða lánaðar 15 m. kr. á þessu ári, og er þá gert ráð fyrir, að hafizt geti smíði þriggja nýrra dráttar- brauta. 55 m. kr. fara til iðnlána og 120 m. kr.' til stofnlána land- búnaðarins. Til ferðamála verða lánaðar 10 m. kr. Útlán Húsnæðis málastjórnar munu nema 248 m. kr. á árinu og er þar af þegar búið að úthluta 78 m. kr. í sumar verður veitt 65 m. kr. og svo verða veitt lán út á 750 íbúðir í haust alls 105 millj. kr. Heildarútlán út á íbúðir verða 268 m. kr. á árinu. Þá verður Framh. á bls. 6 UN KlKISSTJÚRNARINNAR Fjárfestingin verður 5 milljarðar króna á þessu ári Senn von á nýju kvöldsölu fyrirkomulagi Innan skamms munu þær breyt- ingar verða á lokunartíma mat- vöruverzlana, að 17 matvöruverzl- anir verða opnar til klukkan níu á hverju kvöldi, en skemur um helgar. Matvörubúðir í hinum ýmsu hverfum bæjarins munu skipta með sér störfum, þannig að ávallt verði a.m.k. ein verzlun opin í hverju hverfi. Jafnframt verða aftur kölluð bráðabirgðaleyfi um kvöld- sölu frá og með 1. júlí. Þetta var samþykkt á borgar- stjórnarfundi s.l. fimmtudag, og ennfremur að skipa nefnd til að hefja könnun á gildandi reglum um afgreiðslutíma verzlana. I þeirri nefnd eiga sæti fulltrúar frá Kaup- mannasamtökunum og KRON, Verzlunarmannafélaginu, Neyt- endasamtökunum og borgarstjórn. Tillögur Guðjóns Sigurðssonar um nætursölu á benzíni munu fara fyrir þessa nefnd, en henni er gert að skila áliti fyrir 1. des. n.k. Nánar verður skýrt frá síðar, hvenær breytingin á afgreiðslu- tíma matvöruverzlana gengur í gildi, og ennfremur birtur listi yfir þær verzlanir er opið hafa. í gærkvöldi flutti Gunnar Thor- oddsen Alþingi skýrslu rlkisstjórn arinnar um framkvæmda og fjár- öflunaráætlun rikisins fyrir árið 1965. í skýrslunni er ítarlega gerð grein fyrir því hver verði fjáröflun og framlög rfkisins til mikilvægra þátta þjóðarbúskaparins á þessu ári Fram kemur að áætlunin nær yfir þriðjung af heildarfjárfestingu landsmanna. Þá kemur og fram að fjárfestingin á undanförnum ár- um hefur farið sífellt vaxandi, en það sýnir vöxtinn og gróskuna f efnahagsiífinu á þessu tfmabili. Árið 1963 jókst hlutfall fjárfesting arinnar í verðmætaráðstöfun þjóð arbúsins um 29%, sem er hærri tala en með flestum öðrum þjóð- um. I fyrra var þessi tala þó enn hærri eða 31%. Framkvæmdaáætl- un var í fyrsta sinn samin af nú- verandi rikisstjórn fyrir tveimur árum. Var hún þá mikilvægt nýtt hagstjómartæki í fslenzkum efna- hagsmálum. Þetta er önnur fram- kvæmdaáætlunin sem samin er. Augljóst er hver hagur er að því að gera slfkar áætlanir fram f timann um skiptingu opinbers fjár milli mikilvægustu framkvæmd- anna. Hér fer á eftir stuttur útdráttur úr síðari hluta áætlunarinnar, en þar er fjallað um væntanlegar fram kvæmdir á þessu ári. 5 MILLJARÐA FJÁRFESTING. Samkvæmt þjóðhagsáætlun Efna hagsstofnunarinnar fyrir árið 1965 má áætla alla fjárfestingu ársins um fimm milljarða króna og nær framkvæmdaáætlun rfkisstjörnar- innar til um það bil þriðjungs þess- arar upphæðar, eða um 1722 millj. króna. Upp í þetta eru til ráðstöf- unar 1250 milljónir króna eigið fé og framlög hins opinbera, tryggt lánsfé nemur um 92 milljónum króna, en 380 milljónir króna þarf að útvega með sérstakri fjáröflún. Skiptist þessi fjáröflun þannig: 40 m. kr. ónotað fé, sem aflað var vegna áætlunarinnar 1964 75 m. kr. innlent ríkislán 75 m. kr. inn- lend bankalán 20 m. kr. mótvirðis- fé, 60 m. kr. PL-480 framlag, og 110 m. kr. aðrar lántökur, að veru legu leyti erlendis frá. 248 millj. í húsnæðismál. Til fiskiðnaðar verða lánaðar 96 m. kr. og eingöngu af fé viðkom- 'andi lánastofnaná, til fiskveiða 80 m. kr. að viðbættum 98 m. kr., sem eru þegar umsamdar endurgreiðsl- Frá fimmta landsþingi Landssambands íslenzkra verzlunarmanna. HÖFUÐ VERKEFNID AD SKIPU- LEGGJA FRAMTÍÐARSTARFIÐ Þing Landssambands íslenzkra verzlunarmanna sett ■ gær í gær var sett á Selfossi í Selfossbíó 5. þing Landssam- bands íslenzkra verzlunar- manna. Mættir voru flestir hinna 60 fulltrúa frá 20 félögum víðsveg- ar að af landinu. Þingið setti Sverrir Hermannsson formaður L.Í.V. Hann stakk upp á að Magnús L. Sveinsson varafor- maður Verzlunarfélags Reykja- víkur yrði valinn forseti þings- ins, varaforseti yrði Óskar Jóns- son formaður Verzlunarfélags Árnessýslu, en ritarar yrðú þeir Hannes Þ. Sigurðsson og Svanur Kristjánsson og voru tillögurnar samþykktar samhljóða. Sverrir las upp skýrslu stjórn arinnar. Hann minntist 1 fyrstu á, hver höfuðverkefni þingsins væru, en þau væru í meginatrið- um tvíþætt: „í fyrsta lagi ber okkur að líta yfir farinn veg og grandskoða starfsemi okkar og viðfangsefni á liðnum árum, meta og vega það sem vel hefur Frh. á bls. 6.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.