Vísir - 11.05.1965, Síða 7

Vísir - 11.05.1965, Síða 7
VlSIR . Þriðjudagur 11. maí 1965. ? Fangahjálpin hefur afgreitt 3643 mál Störfunum þetta ár hefur verið hagað líkt og undanfarin ár, og allar framkvæmdir byggðar á þeirri reynslu, sem þegar hefur fengizt í 16 ára starfi. Hinm seku mörmum hefur verið veitt margvísleg aðstoð, svo sem til fatakaupa, — útvegunar at- vinnu og húsnæðis, — við eftirgjöf útsvars — og skattskulda, — um- sókna um náðun og uppreisn æru, — sem og breytingu varðhalds- dómar £ fésektir o. m. fl., eins og meðfylgjandi skýrsla um afgreiðslu hinna einstöku mál ber með sér. Störfin hafa aukizt mikið síðustu árin, og fjöldi afgreiddra mála aldrei verið eins mikill og á þessu ári, þar sem frá 1. maí ’64 til 1. jan. 1965, en þ.e. 8 mán. ársins voru afgreidd 316 mál, sem svara 1 til afgreiðslu 421 máls allt árið, og er það ca. 20% aukning frá árinu áður. — í þessu sambandi má geta þess, að fyrstu sex árin, voru að- eins afgreidd 65 mál að meðaltali á ári hverju, svo að nauðsyn þess- arar starfsemi virðist vera auðsæ. Samkvæmt dagbók, sem færð er daglega, voru 755 afgreiðslur á Oscar Clausen. ÚTDRÁTTUR úr skýrslu um störf Fangahjálparinnar 16. starfsár hennar frá 1. maí 1964 til 1. janúar 1965. árinu, og er þar einnig um 20% aukningu a ðræða. Náðanir og reynslulausnir. Á þessu ári var engum fanga Áskorun um uð gætu vur- úður í notkun slönguhútu Skipaskoðun ríkisins hefur gefið út aðvörun t'il manna að fara varlega í notkun hinna svo kölluðu slöngubáta, sem famir eru að tiðkast talsvert hér á landi. Menn fara með þá í bíl um sínum upp um sveitir og róa þeim út á vötn. Segir skipa- skoðunin að nýlega hafi legið við slysi þegar slfkur slöngu bátur sprakk. Var það maður sem farið hafði með fjölskyldu sína upp f sveit. Þar kom hann að stöðuvatni og dældi lofti í bátinn, en þá sprakk hann á vatnsbakkanum. Er auðséð hví lík hætta hefði getað verið því samfara, ef báturinn hefði sprungið, þegar út á vatnið var komið. Bátur þessi var orðinn 3 ára gamall og kom’inn fúi í hann, en þeir eru gerðir úr gúmmí- bornum striga, sem gæta þarf vel við geymslu. 1 þessu tilfell'i varð ekki slys og maðurinn og fjölskylda hans höfðu til varúðar sett á sig björgunarbelti, en ekki er víst að allir gæti jafnm'ikillar varúð- ar. Skipaskoðunin beinir nú þess um tilmælum til éigenda slíkra báta: a) Látið fagmann skoða bát- inn árlega a.m.k., helzt á vor- in, hafi hann verið geymdur vetrarlangt. b) Dælið ekk'i of miklu lofti f bátinn, tveggja punda þrýst- ingúr á ferþumlúhg';ef’'tióg. j ‘ ■ c) Sjáið um að,,allir'séu bún- ir björgunarbéltúm. d) Viðrið bátinn vel eftir notkun, þurrkið hann og þrífið áður en þér pakkið honum sam an, sérstaklegtF þegar fyrirsjá- anlegt er að hann verði ekki notaður um lengri tíma. Sérstaka áherzlu má leggja á það, að fólk, sem notar slíka báta og einnig plastbátana litlu búi sig björgunarbeltum. Er- lendis er mikið unj notkun slíkra báta í skemmtiferðum og þar má he'ita að það sé al- menn regla að menn fari ekki út á slfkum bátum, nema með björgunarvesti. Er það vegna dýrkeyptrar reynslu í þessum löndum. Hér á Iandi þykir notk un slíkra björgunarvesta ekki eins sjálfsögð, en byrfti að kom ast á. veitt aðstoð til þess, að losna úr fangelsinu eða umsóknar um náð- un. — En á fyrra ári voru 4 menn náðaðir fyrir vora milligöngu, og hefur enginn þeirra gerzt sekur : um afbrot aftur. Svo sem kunnugt er, voru flestir sakamenn á landinu náðaðir sum- arið 1963, í tilefni Skálholtshátíðar- innar. Meðal þessara manna voru 31 skjólstæðingur Fangahjálparinn- j ar, þ.e.a.s. menn, sem hún hefur j veitt ýmiss konar aðstoð og haft j afskipti af málum þeirra fyrr og síðar. — Enginn þessara manna hefur gerzt brotlegur aftur. Þeir hafa tekið sig á, og mega nú heita nýtir þjóðfélagsþegnar, sem vinna ifð&Istaðaldftþ'ög rækja: allar bqrg- aralegar:!skyidur sfnar, sem bezt. má verða. — Eins og skýrslur starfseminnar bera með sér undanfarin 16 ár, hafa fyrir afskipti Fangahjálparinnar 159 sakamenn verið náðáðir og fengið reynslu-lausn úr fangelsunum. — Þessum mönnum hefur verið veitt meiri og minni aðstoð af ýmsu tagi þegar þeir hafa þurft þess með, og vísast þar til starfsskýrslna stofn- unarinnar. Samkvæmt framansögðu er þá árangurinn af þessari grein starf- seminnar ca. 76% (eða mjög líkt og síðastl. ár), þar sem 121 afbrota- maður af þeim 159, sem fyrir milli- göngu Fangahjálparinnar hefur fengið lausn úr fangelsunum eða verið náðaðir, hefur ekki fallið i sekt aftur. Það skal þá einnig bent á til at- hugunar og samanburðar, að í lok ársins 1959, þegar Fangahjálpin hafði starfað f 10 ár, höfðu 100 afbrotamenn verið látnir lausir og náðaðir fyrir milligöngu hennar, — en þá var árangurinn aðeins 53%, eða m.ö.o. 25% lakari en við síð- ustu áramót, (1965), og má hiklaust slá því föstu, að þessi góði árang- ur, sé þeirri reynslu að þakka, sem fengizt hefur á starfseminni undan- farin ár. — Nú er þetta fallið undir Saksókn- ara ríkisins. Fyrstu 5 árin (1955—1959) var frestað ákæru á hendur 296 ung- lingum og þeir settir undir umsjón og eftirlit formanns Fangahjálpar- lingum og þeir settir undir umsjón og eftirlit formanns Fangahjálpar- innar, Oscars Clausen, og er þetta nú ein mikilvægasta starfsemi þeirrar stofnunar. Síðustu 5 árin hefur rúmlega tvöfaldazt tala þeirra unglinga, sem hafa orðið aðnjótandi þessarar viturlegu ráðstöfunar dómsvaldsins, þannig að við síðustu áramót hafði verið frestað ákæru í 2 ár á hendur 618 ungmennum. Árangurinn af frestuninni má teljast mjög góður, en hann er sem hér greinir: 416 hafa lokið eftirlitstímanum, án þess að verða sekir aftur. 89 hafa fallið í sekt aftur, en helmingur þeirra mjög smá- vægilega. 113 eru undir eftirliti 1. janúar 1965. 618 (sjá skýrsluna hér á eftir). Loks skal leidd athygli að því, að á árunum 1961—1963, voru 32 afbrotamenn látnir lausir og náð- aðir fyrir milligöngu Fangahjálpar- innar, en aðejns 2 beirra hafa fallið í afbrot aftur, og má því árangur- inn teljast orðinn 95%, sem má kallast glæsilegt, þegar tekið er' tillit til bess, hver árangurinn af hliðstæðri starfsemi er í nágranna-; löndum okkar, t.d. á Norðurlöndum. ! Heildar-árangurinn af ákæru- frestuninni á hendur tinglingum, eftir 11 ára reynslu (árin 1954— 1964 incl.) er þá ca. 86%. Eiga inneign hjá gjaldheimtunni Eftirlit með ungum afbrotamönnum. Með lögum nr. 22/1955 var Dórnsrnálrtrátfúii'eýtinú. veitt heimild til þess að fresta ákæru á hendur ungum 'mönnum, þegar um fyrsta og smávægileg afbrot er að ræða. ! Nokkur orð um ákæru- frestunina og eftirlitið. Þessum ungu piltum hefur, eins og undanfarin ár, verið hjálpað á margan hátt og veitt margvfsleg aðstoð; — þeim hefur t.d. oft ver- ið útveguð atvinna — herbergi til þess að búa í, — veittur styrkur til framfæris meðan stendur á því að fá vinnu, — til fatakaupa o. s. frv. Fjárhagur allmargra piltanna hef- ur verið kominn í óreiðu.og stund- um í fullkomið öngþveiti.,— Þeir hafa t.d. skuldað opinber gjöld, Framh á bls. 6 KARL KRISTJÁNSSON alþingismaður sjötugur Að undanfömu hafa allmörg heimili í Reykjavík og víðar feng- . ið upphringingar frá Gjaldheimt- unni f Reykjavík. Það óvenjulega við þær upphringingar er það, að Gjaldheimtan hefur beðið aðila um að sækja til sín inneign, en venju- lega þegar Gjaldheimtan lætur f sér heyra, vill hún að menn borgi sér, enda hennar hlutverk. Guðmundur Vignir Jósefsson, skattheimtustjóri, sagði blaðinu, að oft þegar fólk hætti að greiða skatta sjálfstætt, t.d. við giftingu að konan hættir að telja fram, við að maður fer úr lögsagnarumdæmi og f ýmsum tilvikum öðrum, þá vildi oft fara svo að inneign hefði myndazt hjá stofnuninni. Margir gleymdu þessari inneign, en sumir hefðu sinnu á að sækja hana. Þegar búið væri að leggja á á sumrin væri sendur út seðill og ef um væri að ræða inneign hjá Gjald- heimtunni, kæmi það fram á sér- stökum dálki, en fólk væri furðu sinnulaust og virtist ekki taka eftir að um inneign væri að ræða en ekki innheimtu á gjöldum. Þegar álagningin kom í fyrra var þessi tegund inneigna hjá Gjald- heimtunni 1.6 milljónir króna og hefði fólk getað verið búið að sækja þetta fé. Mikið af þvf fór hins vegar upp í nýju álagninguna, en allmikið fé varð eftir, sem fólk átti inni, sem ekki hafði fengið á- lagningu. Er nú verið að hringja í allar áttir til að reyna að leita þetta fólk uppi. Sem stendur eru um 285 þúsund kr. ósóttar af fé þessu og eiga 385 gjaldendur það. Núverandi aldursforseti Alþingis, Karl Kristjánsson, fyrsti þingmaður Norðurlandskjördæmis eytsra, var sjötugur í gær. Karl fæddist að Kaldbak í Þing eyjarsýslu þann 10. maf 1895, son- ur Kristjáns Sigfússonar, bónda þar og Jakobinu konu hans. Ungur að árum fluttist Karl með foreldrum sínum að Eyvík á Tjömesi og þar hóf hann nýkvæntur Pálfnu Jó- hannsdóttur búskap 25 ára að aldri. Að Eyvík bjuggu þau hjón, unz þau fluttust til Húsavíkur árið 1933 en þar hafa þau átt heima«síðan. Karl Kristjánsson var f hópi vor manna aldarinnar. Snemma gerðist i hann forustumaður í ungmennafé- : lagi á Tjörnesi. Sigurvegari f glfmu ; keppni Þingeyinga og um sömu i mundir irúnaðarmaður Kaupfélags Þingeyinga. Því félagi fómaði Karl miklum kröftum og vann það sjald gæfa afrek að verða flestra hug- Ijúfi fyrir að taka að sér innheimtu á skuldum bænda þegar mest reið á að rétta við erfiðan fjárhag fé- lagsins. Árið 1949 var Karl kosinn þing- maður Suður-Þingeyinga og hefur átt sæti á Alþingi síðan. I afmælisgrein, sem Jón Sigurðs son, bóndi á Yztafelli skrif- aði um Karl sextugan komst hann svo að orði: „Með hyggindum; kjarki og lag- kænsku vann Karl að endurreisn Kaupfélags Þingeyinga. Við treyst- um því, er við settum hann í þing- sæti Jónasar Jónssonar, að sömu eiginleikar myndu hjálpa honum að framgangi góðra mála á Alþingi. Við höfum ekki orðið fyrir von- brigðum". Ekki er mér kunnugt um, að nein ir, sem kynnzt hafa Karli Kristjáns syni og störfum hans hafi nefnt vonbrigði -í sambandi við þá kynn ingu. Það, sem mér er minnisstæðast frá fyrstu kynnum okkar er hversu áberandi gáfur og góðvild ein- kenndu málflutning hans allan. Það álit stendur enn óhaggað. Ræð ur hans sýna, að hann er blessunar lega laus við alla smekkblindu. Fág aðra mál mun nú næsta sjaldgæft í sölum Alþingis. Hugsjónastefnan, sem ungmenna félagar gerðu að aðalsmerki sínu á fyrri hluta þessarar aldar, hefur aldrei vikið frá Karli Kristjánssyni. Hann er enn sem fyrr glöggskyggn á allt, sem unnið er af góðum hug landi og lýð til heilla. Fegurðar- skyn hans og vandvirkni lýsir sér mæta vel í rithöndinni, sem er af- burðafögur og illa myndi rithanda fræðingum ganga að lesa neikvæða þætti út úr þeirrj skrift. Persónulega finnst mér mest gam an að ræða við Karl um skáldskap og eiga þess kost að hlýða á vísur, sem hann hefur mælt af munni fram í önn daganna. Ekki veit ég hversu vel hann hef- ur haldið þeim skáldskap til haga, en æskilegt væri, að það, sem hann telur sjálfur meðal þess, sem ganga megi f arf verði haldið til haga. Hlýhugur allt frá heimskauts- baug til Heimaeyjar mun um þess- ar mundir streyma til Karls Krist- jánssonar og hinna ágætu húsfreyju hans Pálínu Jóhannsdóttur. Ólafur Gunnarsson. i

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.