Vísir - 18.05.1965, Blaðsíða 11
V í S I R . Þriðjudagur 18. maí 1965.
n
SBU-liðið valið
Búið er að ákveða lið SBU
til íslandsfarar, en liðið mun
leika hér 21.—30. júlí. Liðið
verður skipað eftirfarandi 17
leikmönnum:
Poul Vemer Henriksen, AB,
Mogens Johansen, Koge, Preben
Bjerre, AB, Karl Hansen, Koge,
Finn Jensen, Roskilde, Niels
Yde, AB, Soren Hansen, Lyng-
by, Claus Petersen, Holbæk,
Bjame Larsen, Lyngby, Knud
Petersen, Koge, Palle Reimer,
Roskilde, Jorgen Jorgensen,
Holbæk, E. Dyreborg, Næstved,
Kjeld Petersen, Koge, Finn Wi-
berg, AB, Per Holger Hansen,
Lyngby, og Poul Andreasen,
Næstved.
.V.W.'»W.V.%V.V.W.V.W.NSW.W.V.W.-.W.%W.NV
Baldvin sækir að HalikeU, markverði Fram.
KR VANN FRAM P0, EN
ÁW LlTIÐ I
KR og VALUR leika því til úrslita
í Reykjavíkurmótinu
þar
sem það voru Fram-
arar. sem áttu meira í leikn
KR vann Fram í gær-|
kvöldi í Reykjavíkurmót-j
inu í knattspymu með , , . . .
. ,. . ! um og tækifæri þeirra og
einu marki sem fyrrver-
andi Framari, Baldvin | tiiraunir voru betri en KR-
Baldvinsson átti heiðurinn! inga.
I
af. Þetta er heldur ,blÓðugt‘ | y>atta þýðir jafnframt það að KR og
I Valur eru jöfn að stigum með 7
| st:g þegar leikjum inótsins er lok-
ið, hafa ekki tapað neinum leik,
en gerðu jafntefli í leik sínum inn
byrðis. Verða liðin því að leika
saman úrslitaleik.
Leikurinn í gærkvöldi var í heild
heldur lélegur og í fyrri hálfleik
mátti heita að ekkert sæist jákvætt
það litla sem sást gátu Framarar
eignað sér. Seinni hálfleikur' var
öllu jákvæðari — þá ekki sízt fyrir
Framara, sem sannarlega áttu skil
ið að skora oftar en einu sinni.
Eina mark leiksins kom þó
frá KR. Það kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti. Baldvin Bald-
vinsson fékk boltann á miðjum
vallarhelmingi fyrrverandi
félaga sinna, óð upp, þræddi
hvern á fætur öðrum og tókst
að yfirbuga þrjá og að lokum
var hann kominn að markverð-
inum og var í dauðafæri, ekk-
ert eftir nema skotið, en þá var
honum brugðið mjög illa innan
vítateigs. Vítaspyma var dæmd
og Ellert Schram skoraði örugg-
lega.
Þetta gerðist á 4. mín. seinni hálf
leiks, en á 14., 15. og 16. mínútu
áttu Framarar hvað eftir annað
góð tækifæri og skot en voru með
fádæmum , óheppnir. Hins vegar
áttu KR-jngar ekki nærri eins mörg
góð tækifæri. , „
Beztu menn í þessum leik voru
þeir Ellert Schram og Heimir Guð-
jónsson hjá KR, Baldvin Baldvins-
son virðist enn ekki eiga heima í
liðinu, þarf að leggja áherzlu á að
verða „dús“ við boltann, en hraða
I og hörku hefur hann í ríkum mæli,
sem þó nægir í flestum tilfellum
ekki nema mjög skammt gegn góð-
um varnarmönnum. Af Frömurum
voru beztir, Ólafur Ólafsson,
Hreinn Elliðason og Hallgrímu'
Scheving.
Dómari var Baldur Þórðarson o;
dæmdi ágætlega — jbp.
Leikjaskráin komir
Eins og undanfarin ár gefa K. R
R. og K.S.Í. út í bókarformi skrá
yfir öll innanhéraðsmót Reykja-
víkur, landsmót í öllum flokkum og
aukaleiki í Reykjavík, sem fram
fara sumarið 1965. Er bókin kom-
in út og fæst í veitingasölunni á
völlunum og hjá Lárusi Blöndal,
Vesturveri.
í bókinni eru upplýsingar um
leikstað, leikdag og leikstund allra
leikja í þessum mótum og geta
knattspyrnuunnendur fært i bókina
úrslit allra leikja.
Handknattleiks-
mót íslands
Ákveðið hefur verið að íslands-
mót í útihandknattleik 1965 fyrir
M.fl. og 2. fl. kvenna fari fram á
Akureyri.
Ekki er endanlega búið að á-
kveða keppnisdaga og verða þeir
auglýstir síðar. Ennfremur hefur
verið afráðið að íslandsmótið í
karlaflokki fari fram í Hafnarfirði.
Framara, ekki sízt!
Undirbúuingur kndsméts
UMFÍ er / fullum gungi
Ellert Schram bjargar frá marki KR í leiknum í gærkvöldi.
Eins og kunnugt er fer 12. Lands-
: mót U.M.F.Í. fram að Laugarvatni
1 3. og 4. júlí í sumar.
Iléraðssambandið Skarphéðinn
! hefur tekið að sér framkvæmd
mótsins og fjárhagsábyrgð.
Allur undirbúningur mótsins
gengur eftir atvikum vel, en að
mörgu er að huga við undirbúning
! og framkvæmd slíks móts.
Framkvæmdum við íþróttavelli
; íþróttakennaraskóla Islands á
I Laugarvatni miðar vel áfram, eftir
I er að aka yfirlagi í hlaupabrautir,
girða vellina, og ýmis annar frá-
gangur.
Verða íþróttamannvirki þessi
mjög glæsileg og vönduð að öllum
frágangi, og vonir -standa til, að
hægt verði að vígja þau formlega
á landsmótinu. Árni Guðmundsson
skólastjóri íþróttakennaraskólans
hefur haft umsjón og eftirlit með
þessum framkvæmdum, sem staðið
hafa yfir um árabil.
Dagskrá mótsins er nú að mestu
ráðin. Verður hún með svipuðu
sniði og á undanförnum mótum, þó
verður sú breyting gerð, að í stað
ungmennafélagsfundar, sem verið
hefur að kvöldi fyrri mótsdaginn,
verður kvöldvaka með fjölbreyttu
efni.
Framkvæmdanefnd landsmótsins
er um þessar mundir að senda bréf
til héraðssambandanna, ásamt ýms
um upplýsingum um fyrirkomulag
mótsins.
Mótsstjóri verður Þorsteinn Ein-
arsson íþróttafulltrúi. Umsjónar-
maður starfsíþróttakeppni verður
Stefán Ólafur Jónsson.
Ráðgert er að efna til búvéla-
sýningar í sambandi við starfs-
íþróttirnar. Verður vélasýningin
inni á mótssvæðinu.
Hafsteinn Þorvaldsson ritari H.
S. K. hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri landsmótsnefndar.
Hann hefur skrifstofu að Engjavegi
28 á Selfossi, sími 274. Fastur við-
talstími hans í skrifstofunni er á
mánudögum og fimmtudögum kl.
9—12. Til hans ber að leita með
allar upplýsingar varðandi undir-
búning mótsins, svo og mótið sjálft
og framkvæmd þess.
Þá mun Ármann Pétursson, full-
trúi U.M.F.Í. í landsmótsnefnd
einnig gefa upplýsingar um allan
gang mála varðandi landsmótið.
Hann hefur síma 50772.
Þar sem gera má ráð fyrir, að
mjög mikill mannfjöldi sæki þetta
mót, mun landsmótsnefnd leggja
miklu áherzlu á að halda þar uppi
lögum og reglu. Vegna mikillar um-
ferðar mótsdagana að og frá móts-
staðnum, má gera ráð fyrir, að taka
verði upp einstefnuakstur, þegar '
umferðin er mest. Þá munu for-
ráðamenn Skarphéðins leggja mjög
mikla áherzlu á það, að allir ölv-
aðir menn verði tafarlaust fjar-
lægðir af mótsstaðnum.
Landsmótsnefnd væntir þess að
mótið beri fyrst og fremst svip
þeirrar fþróttaæksku er mótið sæk-
ir og mætir þar til keppni, og þess
glæsilega umhverfis sem mótið er
haldið f.