Vísir - 02.06.1965, Blaðsíða 4

Vísir - 02.06.1965, Blaðsíða 4
d V í S I R . Miövikudagur 2. jtai 1986. SVARGREiN í Vísi 9. marz 1965, er á- deilugrein á mig eftir Júlíus Ól- afsson með yfirskriftinni: „Bæn fyrir framliðnum". í þessari á- deilugrein sinni ræðst hann á mig út af grein sem ég skrifaði 1 júlí 1964 og var birt í Bjarma og öðrum kristilegum blöðum, sem ég votta þakkir fyrir. í þessari grein minni, sagði ég m. a.: Bæn fyrir dauðum er marklaus, hefur engan hljóm- grunn í orði Guðs og fyrirheit- um. Ot af þessum orðum mín- um og öðrum fleiri móðgast J. Ó. sem augsýnilega kemur til af misskilningi og þekkingar- leysi á orði Guðs, sem er sann- leikur. Jóh. 17,17. Bæn fyrir dauðum verður aldrei rökstudd af mannlegu hyggjuviti, hvorki heiðingjum, Gyðingum, né þeim, sem kalla sig kristna. Bæn fyrir dauðum verður aðeins rökstudd í ljósi orða Guðs, helgri Ritningu. Því segir svo: I þínu ljósi sjáum vér ljós, og þitt orð er ljós á vegum mínum og lampi fóta minna. Sálm. 119: Bæn þína aldrei byggðu fast á brjóstviti náttúru þinnar. í Guðsorði skal hún grundvallast. Það gefur styrk trúarinnar. Vér vitum ei hvers biðja ber, blindleikinn holds því veldur; orð Guðs sýnir þann sannleik þér sæll er sá, þar við heldur. H. P. i -fí.Þeir sem kenna að allir verði hólpnir án afturhvarfs og trúar, fara með blekkingar og lygi, og slá þannig blindu í augu fólks- ins og hrinda því í glötun. Hvílík synd, hvílíkt ódæði, að svíkja þannig sálir í dauða, sem Kristur hefur dáið fyrir, Páll postuli sagði: Ef nokkur boðar yður annað fagnaðarerindi en það, sem þér hafið viðtöku veitt, þá sé hann bölvaður. Gal. 1,9. Það hefur ætíð verið einkenni kærleikans að vara fólk við hættum og benda þvi á rétta leið, ekki sízt er það varðar líf og sáluhjálp manna, en það virðast ekki allir skilja, heldur kalla þá ofstækismenn, sem eru endurfæddir til lifandi vonar fyrir upprisu Krists frá dauðum og vilja þess vegna ekki taka á móti ýmsri trúarvillu í stað fagnaðarerindis Jesú Krists. J. Ó. virðist núa mér „um ofstæki og náttmykri hugar- farsins", en ég segi með Páli postula: Einskis ills er ég mér meðvitandi, en fyrir það er ég þó ekki réttlátur. Vér höfum allir syndgað og réttlætumst aðeins fyrir trú á Jesúm Krist, aðeins þeirri trú sem starfar í kærleika. Jesú sagði: Ég er vegurinn, sannleikurinn og líf- ið, enginn kemur til föðurins nema fyrir mig. J. Ó. talar mikið um bæn- ina, en er augljóslega ekki í hinum rétta og sanna anda bænarinnar. Guðs heilaga anda. Því segir svo: Biðjið í heilögum anda. Júd. 1,20. Varðveitið sjálfa yður f kærleika Guðs. Misnota ekki bænina, hin dýr- legustu réttindi, sem Jesús hef- ur af náð sinni lagt f okkar hendur, er á hann trúum. J. Ó. segir: „Eftir orðum Jesú eru mörg híbýli (vistar- verur) á himnum, og með því að biðja bænarinnar Faðir vor biðjum við Guð að ríki Hans og vilji komi til þessara vistar- vera”. Þessar vistarverur eru ekki í húsi föðurins, .því hvert híbýli þar er uppljómað af dýrð Guðs. Þar er lífið í fyll- ing sinni, sætt og yndislegt. Enda eru þessi híbýli dýrðar heimkynni, sælunnar lönd, feg- urðarinnar bústaðir. Þar er eng- in synd, allt er þar hreint, ekki hinn minnsti skuggi, því Jesús uppljómar allt með sinni dýrð, og er allra sinna barna líf og ljós. Þar snertir engann hið minnsta mein og nótt er þar ekki, heldur eilífur gleðidagur og eigi kemur þar vetur, heldur eilíft sælusumar, ekkert erfiði, engin fátækt, heldur gnægð af öllu góðu og fullkomnu. Fólkið sem þar er, hefur fengið fyrir- gefning synda sinna í hinu dýra blóði endurlausnar Jesú og' ljóma þar miklu fegri en sól. Jesús hefur með sinni saklausu pínu og dauða og dýrlegu upp- risu og himnaför, lagt veginn til Paradísar Guðs með hinum ynd- islegu og fögru perluhliðum. Opinb. 21. í Faðirvorinu er engin bæn fyrir dauðum. í bæninni: Til komi þitt ríki, biðjum vér um að ríki Guðs komi til vor og allra þjóða og einstaklinga, og er því einnig kristniboðsbæn. í húsi föðurins eru engar dimmar vistarverur, þar er Guðs ríki í fylling sinni bjart og yndislegt, því Jesús er þar konungur. En í ríki Satans er dimmt, þar ríkir ekki náð Guðs, heldur frá þímim ándá,11 Hvbrt1 fYúiíð frá þínu augliti, benda til að engínn getur falið sig fyrir Guði. Fyrir eldlegum augum hans fær ekk- ert óhreint staðizt. Þótt þú sætir hátt, eins og örninn, og byggðir hreiður þitt meðal stjarnanna, þá steypi ég þér þaðan niður, segir Drottinn. Óbadía. 1,4. Og þótt þeir vilji leynast fyrir augum mínum á mararbotni, skal ég þar bjóða sjóorminum að bíta þá. Amos 9,3. Opinb. 2,18. Til komi þitt ríki. „Þetta verður þegar Guð gefur oss sinn heilagan anda, svo vér trú- um fyrir hans náð, hans heilaga orði“, bíðandi hinnar sælu vonar og dýrðaropinberunar hins mikla Guðs og frelsara vors Krists, sem gaf sjálfan sig ryrir oss, til þess að hann leysti oss frá öllu ránglæti og hreins- aði sjálfum sér til handa eignar- lýð kostgæfinn til góðra verka. Tit. 2,9—14. Hver sem því lifir og kennir öðru vísi en Guðs orð kennir, sá vanhelgar Guðs nafn meðal vor, segir Lúther. Ég sé því ekki að okkur sé boðið í hinni helgu bók Biblíunni, að biðja fyrir dauðum. Páll post- uli segir: Fyrsþ af öllu áminni ég þá um, að fram fari ákall, bænir, fyrirbænir og þakkar- gjörðir fyrir öllum mönnum, fyrir konungum og öllum þeim, sem hátt eru settir, til þess að vér fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í allri guðhræðslu og siðprýði. Þetta er gott og þókn- anlegt fyrir frelsara vorum Guði, sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum, því að einn er Guð, einn er og með- algangarinn milli Guðs og manna, maðurinn Kristur Jesús, sem gaf sig sjálfan til lausnar- gjalds fyrir alla. Til vitnisburð- ar á sínum tíma. 1 Tím. 2,1—6. Ekkert annað frelsi er til fyr- ir oss, engin önnur lausn frá synd og eilífum dauða, en Jesú blessað blóð, sem rann úr hans helgu æðum á Golgata. Hvílík náð, hvílík heill og hvílíkt slys því hnossi að hafna. Á Golgata voru tveir ræningj ar krossfestir með Jesú, annar til hægri en hinn til vinstri. Annar bað Jesú líknar og fékk að heyra þessi lífsins orð af munni Jesú: Sannarlega segi ég þér: í dag skaltu vera með mér í Paradís. Hann kyssti Jesú kossi iðrunar og trúar og gekk inn til hinnar eilífu gleði í húsi föðurins, inn til fagnaðar, herra síns. En hinn spottaði Krist og fór í myrkur og dauða, þaðan sem enginn lausn er framar. Jesús sagði: Sá sem ekki trúir mun fyrirdæmdur verða. Mark. 16, 16. En allar guðhræddar og guð- elskandi sálir, sem hér hafa skil ið við í trúnni á Jesúm Krist, fara inn um hlið Paradísar Guðs, með hinum 12 perluhliðum, þar sem Jesús er við hægri hönd Guðs, og sem vor æðsti prestur og biskup vorra sálna biður fyr ir oss, að vér öðlumst þá náð, sem hann hefur oss afrekað, með komu sinni í heiminn og friðþæging. Það er augljóst af orði Guðs, að ekki þarf að biðja fyrir þeim sem sofnaðir eru í trú á Jesúm Krist. Því lambið er fyrir miðju hásætinu, mun gæta þeirra og leiða þá til lifandi vatns l’inda, og Guð mun þerra hvert tár af augum þeirra. Opinb. 7,9-17. Bæn fyrir dauðum, stangast því á við fagnaðarerindið um Jesúm Krist og hans dýrlegu og fullkomnu endurlausn, leysandi kraft hans heilaga og dýrmæta blóðs frá allri synd. En þessi bæn stangast einnig á við kom andi dóm Guðs, þvi allir mun um vér verða að birtast fyrir dómstóli Krists, til þess að sér- hver fái endurgoldið, það sem hann hefur unnið í líkamanum, samkvæmt því, sem hann hefur aðhafzt, hvort sem það er gott eða illt. 2 Kor. 5, 10. Sá sem trúir á Soninn, hefur eilíft líf, en sá, sem óhlýðnast Syninum, skal ekkj sjá lífið, heldur varir reiði Guðs yfir honum. Jóh. 3, 36. 1. Þessl. 1, 10. J. Ó. játar, að ekki séu „allir færir sem fara yfir landa- mærin, að gista sælustaði" En hann heldur að hægt sé að hjálpa þeim. En hvaða hjálp fékk hinn ríki maður, sem Je- sús talar um í Lúk. 16, 19-31? Eða hvað var sagt við hinar fávísu meyjar, sem komu að lokuðum dyrum og hrópuðu: Herra, herra Ijúk upp fyrir oss? Þær fengu þetta svar: Ég þekki yður eigi. Vakið því, þar eð þér vitið e’igi daginn né stund- ina. Matt. 25, 1-13. Hversvegna glatast menn, þar sem Jesús er fyrir þá dáinn og upprisinn? Vegna þess að þeir hafa ekki veitt honum Við töku, heldur hafnað honum, sem sagði: Ég er vegurinn, sann leikurinn og lífið, enginn kemur til föðurins nema fyrir mig. Jóh. 14, 6. Enginn sáluhólpinn nema fyrir hann, Jesús sagði: Sannlega segi ég yður: Hver sem ekki tekur á móti Guðsríki eins og bam, mun alls éigi inn í það koma. Lúk. 18, 17. Ég sagði i grein minni, að Guð væri enginn meinleysis gufa. Það hefur hailn sýnt frá sköpun veraldar, sem héilög Ritning ber vitni um og hin al- menna mannkynssaga. Guð læt ur ekki að sér hæða, það sem maðurinn sáir, það mun hann og uppskera, því sá, sem að sáir í hold sjálfs sín, mun af holdinu uppskera glötun, en sá, sem sá'ir í andann, mun af and anum uppskera eilíft líf. Gal. 6, 7-8. Því að þeir, sem ganga eftir holdi, hyggja á það, sem holdsins er, en þeir, sem ganga eftir anda, á það sem andans er, því hyggja holdsins er dauði, en hyggja andans líf og friður. Róm. 8, 5-6. Eftir dauðann kemur dómur inn, Hebr. 9, 27. Tími náðar- innar á enda, uppskeran komin. Og hafi einhver hafnað Kristi og hans endurlausn, er dyrun um Iokað að Paradís Guðs, sem enginn getur lokið upp. Op'inb. 3, 7. Jes. 22. 22. Treystu því ekki á bæn fyrir þér látnum En treystu Kristi Jesú af hjarta. Hann sem er dómari lifenda og dauðra og hann mun gefa þér og öllum sem á hann trúa, eilíft líf. Svo er þá eng'in fyrirdæming fyrir þá, sem tilheyra Kristi Jesú, því að lögmál lífsins Anda, hefur fyrir samfélagið við Krist Jesúm, frelsað mig frá lögmál'i syndarinnar og dauð- ans. Róm. 8, 1-2. Náð og friður Jesú Krists, Guðs sonar, sé með öllum, sem trúa. 1 kærleika Krists Kristján Á. Stefánsson frá Bolungarvík. Auglýsing frá sjávarútvegsmálaráðuneytinu um uppbætur á línu- og handfærafisk. Með skírskotun til 1. gr. laga nr. 34/1965 um ráð- stafanir vegna sjávarútvegsins, tilkynnist hér með, að sjávarútvegsmálaráðuneytið hefur falið Fiskifélagi íslands að sjá um greiðslu þeirrar 25 aura verðupp- bótar, sem þar er kveðið á um að ríkissjóður greiði fiskseljendum á hvert kíló línu- og handfærafisks, sem veiðist á árinu 1965. Verðuppbót þessi verður greidd fiskvinnslustöðvum gegn framvísun staðfestra vigtarnóta um móttekið fiskmagn af hverjum báti. Fiskifélagið getur auk þessa krafizt hvers konar gagna og vottorða, er það telur nauðsynleg, áður en til greiðslu kemur. Reykjavík, 31. maí 1965. HA PPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS VERfl KR. 100 Kaupið miða í happdrætti Sjálfstæðisflokksins úr hinum glæsilegu vinningsbílum í Austur- stræti. Þeir sem hafa fengið senda miða gerið skil í dag. DREGIÐ Á MORGUN

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.