Vísir - 02.06.1965, Blaðsíða 5

Vísir - 02.06.1965, Blaðsíða 5
VlSIR . Miðvikudagur 2. júní 1965. 5 utlörid raorgun utlönd' í inorsun " útlö’rid í morgun utlönd í morgun VesturálfulýðveMin ■ OAS ■ hufu tekið við friðargæzlunni í Dominiku Enn fækkar þar í liði USA Fr'Sr’.rgæzlan í Dominiku er nú í • !fsm Stofnunar Vesturálfu- lýí : ,'.na (OAS eða Organisation of A-s ■ ican States), og er von á meira liði frá þeim, um leið og Bandaríkjamenn flytja burt þúsund ir hermanna sinna. í NTB-frétt í morgun segir, að utanríkisráðherra OAS' hafi sam- þykkt að skipa þriggja manna nefnd sem „hjálpi til að koma á að nýju eðlilegu ástandi í Dominiku", og var samþykkt þessi gerð með 10 at- kvæðum gegn tveimur (Uruguay og Mexikó), en þrjú ríki sátu hjá: Argentína, Chile og Venezuela. í nefndinni eiga sæti fulltrúar Braz- ilíu, Bandaríkjanna og E1 Salvador. Nefndin hefur vald til þess að gefa OAS-friðargæzluliðinu fyrir- mæli. JOHNSON Á FUNDI MEÐ FRÉTTAMÖNNUM Johnson ávarpaði fréttamenn í gærkvöldi og tilkynnti, að ákvörð un hefði verið tekin um að flytja burt 2000 Bandaríkjaherm. til við bótar, og yrðu þá 16 þúsund menn eftir í Dominiku, en voru flestir 21.000. Frekari fækkun yrði athug uð þegar lið, kæmi frá öðrum Vest urálfuríkjum til viðbótar því, sem þau hefðu áður sent. Johnson endurtók að landgöngu lið Bandaríkjanna hefði verið sent til þess að vernda líf bandarískra þegna og annarra, sem verndar ósk uðu. Liðið hefði flutt burt 5600 manns af 46 þjóðernum, fætt og klætt þúsundir manna og veitt sam tals 15.000 manns læknishjálp. Nú þegar náðst hefði samkomulag um vopnahlé, væri unnið að því að finna grundvöll fyrir samsteypu- stjórn, sem hefði almenningsheill að marki. Fréttaritarar viku að því í fyrir spurnum sínum, að. hapn hefði markað nýja stefnu, þ.e. að senda bandarískt lið á vettvang hvar sem sú hætta skyti upp kollinum í Vest urálfu, að kommúnistar hrifsuðu til sín völdin. Hann svaraði þvi, að hann hefði margsinnis lýst yfir þeirri skoðun sinni, að með komm únisma og lýðræðiskerfi Vestur- álfuríkja væri ekkert sameiginlegt. Hann vék að baráttunni fyrir fram förum í Vesturálfu, „Allianc for Progress“-samtökunum en þau ættu að gagna öllum þjóðum Vest- urálfu. Báðir hefðu þeir átt hlut í því, að til þessara samtaka var stofnað, Kennedy heitinn forseti og hann. „Þessi stefna hefur verið mikið auglýst, hátt á loft haldið — hún er ekki ný — en mér þykir leitt ef ég hefi orðið valdur að þvi að sumum hafi hitnað í hamsi úl af henni“, sagði Johnson. Johnson vék að hinni fjrrirhug- uðu ferð í mönnuðu geimfari kring um jörðu, sem ráðgert er að hefj ist á morgun, með því að skjóta á loft Gemini 4 — geimfarinu, og kvaðst hann ekki hafa gefið nein fyrirmæli varðandi geimferðina. Það væri ekki að sinni uppástungu ef geimfararnir færu út úr geim farinu á ferðalaginu o. s. frv. Viðskipti Dana við EBE FRÉTTARITARI NTB í Brussel símar, að Danir óttist að útflutn ingur á landbúnaðarafurðum til sammarkaðslandanna (EBE) muni enn minnka, og að er frá líði verði ógerlegt að selja þangað egg og alifugla. Kemur þetta fram í grein arerð, sem hefir verið afhent í Brussel. í henni óska Danir vemd ar og betri skiiyrða til viðskipta við sammarkaðslöndin. Per Hækkerup utanríkisráðherra Dana ræðir við nefnd frá EBE um þessi mál nú í vikunni. — Óhagstæður viðskipta jöfnuður Danmerkur við bandalags löndin eykst stöðugt og var í fyrra 2.4 milljarðar króna, en viðskipti Dana við Fríverzlunarbandalags- löndin (EFTA) var hagstæður svo nam 470 millj. króna. Verðbólguhættu á Englundi í kjölfur kuuphækkunu ört vuxundi Fréttir frá London herma, að verðbólguhættan á Englandi sé mjög vaxandi og horfi alvarlega. Atvinnuleysið hefur aldrei verið minna síðan árið 1961 og í kjöl far kauphækkana koma verðhækk anir, sem enginn ræður við. Skýrslur yfir allt landið sýna, að um miðbik maí voru 300.000 menn ^kráðir atvinnulausir, en 400.000 manna vantaði til ýmissa starfa. í einstökum landshlutum er þó at- FEGURÐARSAMKEPPNIN 1965 LOKAÚRSUT OG KRÝNINGARHÁTIÐ fer fram á HÓTEL SÖGU — SÚL NASALNUM fimmtudag 3. og föstudaginn 4. júní FIMMTUDAG: Kjömar verða: Ungfrú ísland 1965 og Ungfrú Reykjavík 1965 MEÐAL SKEMMTIATRIÐA: Hljómsveit Ásgeirs Guðmundssonar (Dumbo sextett frá Akra- nesi) Söngvari Sigursteinn Hákonarson. — Tízkusýning, nýjasta kvenfatatízkan frá kjólaverzluninni EIsu og dömubúðinni Laufið — Hattar frá Hattaverzlun Soffíu Pálma. Stúlkur úr Tízkuskól- anum h.f. sýna Stjórnandi Sigríður Gunnarsdóttir. — Danssýning Camilla Hallgrímsson. — Gamanvísur og eftirhermur Jón Gunn- laugsson. — Dans til kl. 1 eftir miðnætti. FÖSTUDAGUR KRÝNINGARHÁTIÐ OG TÍZKUSÝNING Einnig verða hin sömu skemmtiatriði og fyrra kvöldið. Rósa Einarsdóttir krýnir ungfrú ísland 1965 og ungfrú Reykjavík 1965. Hljómsveit Ásgeirs Guð-mundssonar (Dumbo sextett frá Akranesi) skemmta til kl. 2 eftir miðnætti. Aðgöngumiðar að báðum kvöldunum má panta í síma 20743 og Súlnasal og borðpantanir verða í Súlnasal Hótel Sögu miðvikudag fimmtudag og föstudag milli kl. 2 og 6 e. h. vinnuleysi, mest í Norður írlandi (7%) Stundakaupsvísitalan er kom in upp í 155 stig (1956 100 stig), verðhækkanir enn 2 stigum minni, en miíljþnir manna krefjast hærra kaups. Fyrir tveimur mán. gat George Brown efnahagsmálaráðherra lýst yfir með stolti, að launa og verð- lagsstefna hans nyti stuðnings at- vinnurekenda og verkalýðsfélaga, en nú horfir svo að ekki verði við neitt ráðið. George Brown og Ray Gunter verkamálaráðherra hafa skorað á alla að gæta hófs í kröf um og ríkisstjórnin hefir skipað sérstaka nefnd til athugunar á ’próuninni á sviðum kauphækkana og verðlagshækkana, en nefndin hefir ekki vald til þess að gera neitt. Samtímis er framleiðslan minnk- andi. Tölur fyrir marz sýndu að Hryðjuverk í Kongó Stjómarhersveitir í Kongó, sem stjómað er af hvítum málaliðum, hafa tekið bæinn Bondon í Norður Kongó, og aðrar stjómarhersveit ir sækja fram til Buta. Hersveit- irnar hafa fundið lík 10 Evrópu- manna, sem myrtir höfðu verið. Hinir myrtu vom Portúgalar og Grikkir en óvíst um þjóðerni sumra Einnig fundust 8 særðir Evrópu- menn. — Talið er, að uppreisnar menn f Buta hafi um 100 menn í haldi, en þeir em seinustu gíslam ir, sem þeir hafa í haldi. Talið er að frá þeim tíma er belgisku fall hlífahermennimir tóku Stanlcyville (í nóv. f fyrra) hafi uppreisnar- menn drepið 300 hvíta menn og hafi flestir þeirra verið portúgalsk- ir og grískir. — Reynt hefur verið að riá samningum við uppreisnar- menn í Buta um að sleppa hinum hvítu gíslum, en forsprakki þeirra Makundo ofursti, neitaði. George Brown hún var orðin minni en í nóvember, þegar heldur fór að rætast úr eft- ir margra mánaða kyrrstöðu. Oscar Lancaster, skopteiknari Daily Express, leggur „aðalkven- persónu" teikinga sinna þessi orð í munn(„umskrifuð“ fræg ummæli Churchills): „Með þessu áframhaldi mun ekki líða á löngu þar til Mr. Brown get- ur tilkynnt með stolti, að aldrei fyrr I iðnaðarsögu mannkynsins hafi eins lítið verið framleitt af jafn mörgum". Fyrir nokkrum dögum varð Eng landsbanki að grípa til allviðtækra ráðstafana, vegna hættu þeirrar sem sterlingspundinu var búin af völdum spekúlanta á meginlandinu að því er talið var. Enn sprenging í kolanómu MIKIL sprenging varð niðri í kolanámu á eynni Kyushu f Japan í fyrradag. Þegar sprengingin varð voru 552 menn niðri í námunni, en um 260 gátu þegar komizt upp, Hinir voru í námugöngum, sem lok uðust. Sakurauchi verzlunarráð- herra baðst þegar lausnar, er hann frétti um slysið, en hans ráðu- neyti ber ábyrgð á öryggi f nám-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.