Vísir


Vísir - 02.06.1965, Qupperneq 16

Vísir - 02.06.1965, Qupperneq 16
 Miðvikudagur 2. júní 1965. NORSK HYDRO ákveður að hætta ammoníakframleiðslumeð rafmagni íbúcirmr vlð Rjukan áhyggjufullir Það hafa þótt miklar fréttir úti í Noregi, að hið risastóra fyrirtæki Norsk Hydro hefur á- kveðið að hætta að nota raforku til að vinna ammoníak úr loftinu. Sú aðferð borgar sig ekki lengur, þar sem ný aðferð til að vinna amm oníak úr jarðolíu og jarð gasi sem er verulega ó- uyrara heíur nú rutt ser tu rúms. Norsk Hydro hefur sótt um það aö mega reisa risastóra verksmiðju tii að vinna ammóní ak úr olíu og samtímis verður hafinn undirbúningur að því að leggja niður ammoníakverk- smiðjuna frægu við Rjukan-foss inn. Þessar breytingar munu ekki gerast I einu vetfangi, held ur stig af stigi. Er áætlað að fyrstu verksmiðjuhlutarnir verði lagðir niður árið 1967, þegar hætt verður að starf- Framh. á bls 6 8MH Mynd úr línubrautinni yfir Rjukan tekin yfir hinar miklu verksmiðjur Norsk Hydro, sem nú verða iagðar niður. Sex ísknzkir listamenn Norræna listasambandið efnir til norrænnar listsýningar í Þránd heimi í Noregi. Er henni hagað með nokkuð öðru sniði en fyrri norrænum listsýningum. Þær hafa oft verið mjög stórar og yfirgrips miklar, en nú er stefnt að þvf að kynna verk takmarkaðs f jölda lista manna í hvert skipti svo að sýn- ingin verður ef svo má segja við- ráðanieg. Á þessari sýningu í Þrándheimi er fjöldi sýnenda hvers lands tak- markaður við sex og heimaþjóðin, Norðmenn, tekur e'. '.ii þátt í henni. Um hana hafa síðan birzt greinar víðsvegar á Norðurlöndum, list- gagnrýrlendur blaðanna hafa gert sér ferð á hendur til að skoða hana og ibúarnir í Þrándheim'i hafa sótt hana allvel. Þau blöð sem ritað hafa um hana fara yfirleitt lofsorðum um sýninguna. Telja þau, að hverju landi hafi tekizt að sýna sinn sér- staka sv'ip. Hér skal nú tekið upp það sem norska blaðið Aftenpost- en skrifar um íslenzku deildina.: „íslenzka deildin liggur and- spænis dönsku deildinn'i á neðri hæð Listafélagshússins og er sterk ari í túlkun sinni án þess þó að hún verki nýtízkulegri eða alþjóð legri. Málverk Gunnlaugs Schev- ings „Búðin“ hefur mikið af þeirri sterku lifameðferð, sem við minn umst frá fyrri sýn'ingu hans í Osló. Þó hefur hann aðeins dregið úr itastyrknum, stílfært formið svo >að er orðið hreint skreytinga- orm. Við hlið hans er Guðmunda tndrésdóttir með afstæðar upp- tillingar í hvítu-gulu-gráu eða ;vart-hvítu-bláu sem hún beitir af 'arkárni og formið rissað á léreft- ð. Þá kemur Steinþór Sigurðsson, ;n nærmynd hans „Stórir og litlir :teinar“ sýnir sterka uppbýggingu omisins. Þá kemur hinn óhlutræni Eirík- ur Smith með dimmar gróft mál- aðar náttúrustemningar. Jóhann Eyfells gefur sterkarí hugynd um íslenzka náttúru með myndum sínum úr aluminium, járni og kopar sem líkjast hinu íslenzka hraurii. Fast form þeirra og tilbreytingaríkt og marglitt yfir borð gerir myndir hans athygl- isverðari en hin stíliseruðu grönnu form Jóns Benediktssonar, sem einnig em úr aluminium og kopar en efnið meðhöndlað á marg víslegan hátt. Spariskírteinin eru þegar appseld Um 20. maí voru þegar að mestu seldar þær 40 milljónir króna, sem boðnar höfðu verið út í verðtryggð um spariskírteinum ríkissjóðs 13. maí s.l., og vegna mikillar eftir- spurnar ákvað fjármálaráðherra að seld yrðu tii viðbótar skírteini að fjárhæð 7 milljónir króna. Þessi við bót er nú þegar uppseld hjá Seðla bankanum og aðeins smáupphæðir munu óseldar hjá Landsbankanum og einstaka innlánsstofnunum öðr um. Samkvæmt lögum nr. 23/1965 var ríkissjóði heimilað að bjóða út innlent lán samtals 75 milljónir króna. Samkvæmt ofanskráðu hafa þegar verið notaðar 47 milljónir Aftenposten birtir þessa mynd og litlir steinar“. eftir Steinþór Sigurðsson( „Stórir króna af þeirri heimild. Ennþá hef ur ekki verið ákveðið hvenær eft- irstöðvamar, 28 milljónir króna verða boðnar út, en það verður væntanlega ekki fyrr en með haust Kaupið miða - Gerið skil Fyrir 100 kr. getið þér feng- ið aðra tveggja Ford Fair- Iane bifreiða í Landshapp- drætti Sjálfstæðisflokksins. Bif reiðirnar eru til sýnis f Austur stræti og er hœgt að fá miða keypta í þeim. Verðmæti hvorr ar bifreiðar er 330 þús. kr. og er því eitt glæsilegasta bíla- happdrætti ársins á ferðinni. Mjög mikilsvert er, að þeir sem hafa fengið miða senda, gerj skil þegar í stað, þar sem timi er nú orðinn naumur. Menn eru beðnir að hafa sam- band við skrifstofu happdrætt- isins í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll til þess að skila af sér, en einnig er hægt að fá miða þar keypta. Látið ekki tækifærið til þess að eignast bíl fyrir sumarleyf- ið ganga úr greipum yðar. Það gæti verið, að verið væri að selja vinningsmiðann næst þeg ar þér eigið leið fram hjá bif- reiðinni. List forfeðranna í Þjóðminjasafninu Norskar bergristur sýndar þar í dag verður opnuð í Boga- sal Þjóðminjasafnsins sýning á norskum bergristum. Þar eru til sýningar myndir og gúmmí afsteypur gerðar eftir frum- Sýnishom af bergristum bænda menningarinnar gömlu. myndum, sem em frá 3000 og allt til 500 fyrir Kr. . Sýning þessi er hingað komin á vegum menntamáladeildar norska untanríkisráðuneytisins og hefur próf. Anders Hagen gengið frá sýningunni af hendi Norðmanna, en héma hefur Gísli Gestsson séð um sýning- una. Sýning þessi á mikið er- indi hingað, sagði Kristján Eld járn, þjóðminjavörður við fréttamenn blaðanna í gær. — Við Islendingar sýnum yfirleitt ekki áhuga á neinu, sem er frá eldri tíma en víkingaöldinni og óhætt ætti að vera að fullyrða, að þessar myndir sýna menn- ingu forfeðra okkar í Noregi. Einnig gæti sýning þessi átt erindi til nútímalistamanna, enda þótt menn þeir sem gerðu þessar myndir hafi sennilega ekki gert þær eftir „mottóinu", listin fyrir listina, heldur er álit ið, að myndirnar hafi verið gerðar í sambandi við galdra, í trúarlegum tilgang'i eða til þess að orka á náttúruöflin. Frummyndimar eru ýmist frá menningu veiðimanna eða bænda og er nokkur munur á Framh. á bls. 6.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.