Vísir - 15.06.1965, Page 9

Vísir - 15.06.1965, Page 9
VI S IR • Þriðjudagur 15. júní 1965. 9 MINNING: Alexander Jóhannesson dr. phil. & jur. Ég skal koma þessu fram Þegar Alexander Jóhann- esson var skipaður prófessor árið 1930, hafði hann kennt 15 ár í háskólanum, 11 ár sem einkadósent og 4 ár sem dósent. Ekki var það háskólanum að kenna, að þessi braut var honum að vonum seinfarin, heldur var Alþingi á þessum tíma all- tregt til þess að hleypa mik' um vexti í þessa ungu st' un. Samt er óhætt að segja, að það var ekki fyrr en Aléx ander var orðinn rektor há-. skólans, haustið 1932, sem samkennurum hans fór að verða ljóst, hvílíkan athafna mann þeir höfðu lengi haft sín á meðal, án þess að krafta hans hefði verið neytt. Með þessu rektorskjöri hófst ekki einungis nýr þáttur í ævi og starfi Alexanders, heldur nýr kapituli í sögu há- skólans, nýr skilningur þess, hvað rektor ætti að gera og væri gert. Þá sögu þarf ekki að rekja lengra. í þessum fáu línum langar mig aðeins til þess að rifja upp tvö at- vik af öllu því, sem mér er minnisstætt frá 64 ára kynn- um og margra ára nánu sam starfi. í febrúar 1933 kvaddi rekt or saman kennarafund og bar fram þá tillögu, að háskól- inn sækti til alþingis um einkaleyfi til peningahapp- drættis í því skyni að afla fjár til háskólabyggingar. Málinu var vísað til háskóla- ráðs, og þar voru síðan þrír menn kosnir í nefnd til þess að vinna að því, rektor og við Magnús Jónsson. Af því að ég átti þá ekki sæti í háskóla ráði, komu þeir Alexander og Magnús heim til mín þeg- ar að fundi ráðsins loknum. Magnús gerði fyrstur grein fyrir sinni skoðun, enda var hann þaulreyndur alþingis- maður og öllum hnútum kunnugur. Hann sagði, að eins og nú blési í þinginu, væri það allra skásta, sem fyrir slíkt happdrættisfrum- varp gæti komið, að það yrði steindrepið. En að öllu líkindum mundi málinu jafn- vel reiða svo vel af. Hug- myndinni yrði stolið frá há- skólanum og happdrætti sett á stofn í þágu einhverra verkefna, sem arðvænlegri þættu, eða jafnvel til þess að bæta lélegan hag ríkissjóðs. Hér væri ekkert vit í öðru en fara sem dulast með hug myndina og reyna að bíða betri tíma og tækifæris. Al- exander svaraði þessum úr- tölum með fáum orðum, án þess að fara út í frekari rök- ræður: „Ég hef einu sinni komið frumvarpi gegnum efri deild (það mun hafa ver ið um síldarleit á flugvél- um), þó að þeir Jónas Jóns- son og Jón Þorláksson greiddu báðir atkvæði á móti því, — og ég skal koma þessu fram.“ Mér er nær að halda, að þessi nefnd hafi ekki haldið fleiri fundi. En málið var tekið upp í þing- inu og happdrættisfrumvarp ið samþykkt sem lög 3. maí um vorið.. Vitanlega áttu margir góðir menn innan þings og utan, meðal annarra Magnús Jónsson, góðan hlut að úrslitunum. Og þó hygg ég ekki ofmælt, að hlutur A1 exanders hafi verið drýgst- ur. Áhugi hans og trú á mál stað sinn, mannheill hans og lagni orkuðu þar ótrúlega miklu. En svo stórt spor sem stigið var með happdrættislögun- um, var það fé, sem árlega féll til, ekki líkt því nægi- legt til skjótra framkvæmda. Og þetta voru krepputímar erfitt að útvega lán. Alex- ander sýndi í því sem öðru, er að byggingu háskólahúss- ins laut, bæði hugkvæmni og þrautseigju. Hann háfði auga á hverjum fingri. Allar lán- tökur varð að bera undir há- skólaráð til samþykktar. Það gekk vitanlega greiðlega. En einu sinni, þegar Alexander bað um leyfi til þess að taka að láni 10 þúsund krónur úr sjóði Þingvallahrepps, nenntu háskólaráðsmenn ekki að rétta upp hendurnar. Við klöppuðum! Og það er líklega í eina skiptið í sögu þessa virðulega ráðs, sem samþykkt hefur verið gerð með lófataki, svo að það á skilið að vera fært í letur, ef það skyldi ekki vera bókað í fundargerðinni. Rúmum sjö árum eftir setn ingu happdrættislaganna og rúmum mánuði eftir hernám ið, 17. júní 1940, var há- skólahúsið vígt. Það kostaði með öllum húsbúnaði um 2 milljónir króna. Mörgum fannst þá húsið alltof stórt og allt of dýrt. Og það var ævintýri líkast að koma því upp svo myndarlegu sem það var á þeim tímum, sem nú eru teknir að fymast hinum yngri kynslóðum. Þó að forganga Alexanders Jóhann essonar í þeim framkvæmd um væri ekki nema eitt brot af miklu ævistarfi, hlýtur alltaf að leika um það brot sérstakur ljómi í minni þeirra sem því voru kunnugastir. Sigurður Nordal. Mér er ljúft og skylt að minnast kennara míns og vinar drs. Alexanders .Jó- hannessonar, er dó á annan í hvítasunnu. Ég var nemandi hans í háskólanum á árunum 1943-’49 og man ekki sízt eftir fyrstu kennslustundinni þegar hinn lærði málfræðing ur var að skýra okkur, er þá hófum nám, frá því verkefni er biðu okkar. Við yrðum fyrst að glöggva okkur á ger mönsku málunum, en síðar skyggnast víðara um til alls indóevrópska málaflokksins. Alexander vann þá af alefli að orðabók sinni hinni miklu, og sveif hugur hans í kennsl- unni því oft frá þurrum mál- fræðireglum yfir í skýringar á uppruna orða og skyldleika tungumála. Voru þá tíðum mörg sverð á lofti og gaman að sjá í einni sjónhendingu langt aftur í aldir og skilja í svipinn, að manni fannst, þessa huldu dóma málsins, er voru máske ekki svo flóknir, þegar að var gáð. Mörgum árum síðar, þegar leið að al- vöru prófsins, setti maður í sig herkju og lærði helztu reglurnar, en metur nú samt meira hugboðið, sem þessi kennsla veitti, en sjálfa viss- una. Alexander Jóhannesson blandaði ekki mjög geði við nemendur sína utan kennslu stunda. Hann mátti ekki vera að því, hann stóð í stórræð- um. Var að reisa hús yfir há skolann .og,,stofnanir hans:,, Ég kynntist~lionum því ekki að verulegu ráði fyrr en mestu önnum hans var lokið, og var þá gott að líta inn til þeirra hjónanna á Hring braut 57, þiggja hjá þeim kaffisopa og spjalla um heima og geima. Ég veit, að nánustu sam- starfsmenn Alexanders munu í minningargreinum rekja ýt arlega feril hans og marg- þætt fræði- og þjóðþrifastörf, svo að ég mun ekki fara út í þau efni hér, heldur eru þetta einungis fáein kveðju- og þakkarorð frá einum hinna yngri nemenda hans. Alexander Jóhannesson var sannur höfðingi í sjón og raun, hugsjónamaður, er lét ekki sitja við orðin tóm, for dæmi öllum þeim, er vilja beita sér þjóðinni til þroska og framfara. Ég votta að lokum frú Hebu innilega samúð mína. Finnbogi Guðmundsson. Mep dr. Alexander Jó- hannessyni er til moldar hniginn einn af beztu son- um þesfearar þjóðar. Hvað hæst bar í lífi hans er erfitt að sjá í skjótri svip- an, því að dr. Alexander var svo fjölhæfur og margslung- in hans áhugamál. Er ég heimsótti hann allmörgum árum eftir að hann var kom- inn á eftirlaun sýndi nann mér málverk, er hann hafði verið að ijúka við. Sköpunar þráin þurfti sína næringu, það var ekki honum líkt að sitja auðum höndum. Persónulega held ég, að þótt málvísindi og stórbrotið brautryðjendastarf i málefn- um Háskóla íslands hafi tek- ið stóran meiri hluta af ævi- starfi hans og hann þar eins og svo viða annars staðar reist sér óbrotgjarnan minnis varða, þá hafi hann samt haft einna mestu ánægju af afskiptum sínum af flugmál- um, en þar gerðist hann brautryðjandi á myndarlegan hátt á árunum 1928-’31. Það varð mér því nokkurt undrun arefni, er ég á dögunum fletti upp nafni dr. Alexanders í bókinni íslenzkir samtíðar- menn og sá þar að engu getið þessa merka tímabils ævi hans. Það eitt, að háskóla- prófessor og dr. í málvísind- um skuli gerast flugbraut- ryðjandi og forstjóri flug- félags í hjáverkum er ærið undrunarefni. Hitt að það skyldi gert af miklu viti og fyrirhyggju er næsta furðu- legt. Ég hef margoft haldið því fram í ræðu og riti að það hafa ekki nsegt minna en alheimskreppa til að eyði- ' 1é£gja FÍugfélag 'lslands hið annað í höndum dr. Alexand ers. Áhugi dr. Alexanders var svo brennandi og bráðsmit- andi, að hann hreif alla með sér eins og hinn fæddi leið- togi og ég held, að viðhorf hans til þessara mála sé bezt lýst með þvf að birta orðrétt lítinn kafla, þar sem hann segir frá fyrstu flugferð til Norðurlandsins, en farið var vestur um land með fyrstu viðkomu á Isafirði. FYRSTA FLUGIÐ TIL ;NORÐURLANDS. Eftir að búið var að reyna „Súluna“ í Reykjavík og nokkur hringflug farin í ná- grenni Reykjavíkur, var lagt upp í fyrstu flugferð til Norðurlandsins 4. júní 1928, kl. 9,30 að morgni. Við vor- um 4 í vélinni, Simon flug- maður, Otto Wind, vélamað- ur, Walter flugstjóri og ég. Veður var ekki gott, all- dimmt í lofti og flugum við því ekki yfir Snæfellsnes- fjallgarð, heldur tókum stefnu beint í vestur á Snæ- fellsnes. Flugum við fram með Svörtuloftum, fram hjá öndverðamesi og stefndum þaðan beint á Látrabjarg. Skyggni var mjög lélegt, og vorum við komnir mjög ná- lægt Látrabjargi áður en okkur varði, en Simon var fljótur að snúa vélinni beint í vestur. Flugum við síðan með öllum Vestfjörðum og Frh. á bls t

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.