Vísir - 29.07.1965, Blaðsíða 5
V í S IR . Fimmtudagur 29. júlí 1965.
5
útlönd í
morr/un
utlönd í morgm
útlönd i morgun útlönd í morgun
Frá orrustuvellinum að samningaborBinu
LBJ segir Bandaríkjamenn ávallf fúsa til samninga
Þegar Johnson Bandaríkja-
forseti tilkynnti í gær ákvarð-
animar, sem teknar voru að af-
loknum nærri viku viðræðum
við sérfræðinga og þingleið-
toga um Vietnam, tók hann
fram að Bandarikjastjórn væri
alltaf reiðubúin að flytja sig frá
orrustuvellinum að samninga-
borðinu, en undanlátssemin
byði öryggisleysinu heim, eins
og reyndin hefði sýnt, og
Bandaríkin mundu ekki hvika
frá þeim ásetningi að vinna af
megni gegn því að kommúnist-
ar næðu Suðaustur-Asíu á sitt
vald og öðrum frjálsum lönd-
um, en Bandaríkin væru jafn-
an reiðubúin til þess að semja,
og 15 sinnum væri Bandaríkja-
stjórn búin að gera tilraunir til
þess að'koma á samkomulags-
umleitunum um frið í Vietnam.
Forsetinn tilkynnti jafnframt,
að hann kynni vel að meta
hverja tilraun sem gerð væri
af einstaklingum og þjóðum til
þess að vinna að friði, og
nefndi bæði friðarnefnd Brezka
samveldisins og sendinefndina
frá Ghana, sem nú er komm til
Hanoi og hefir setið þar fyrsta
fund sinn með Ho Chi Minh,
og afhenti formaður nefndar-
innar honum bréf frá Nkrumah
forseta Ghana, en ekki frekara
um fundinn kunnugt. OG L.B.J.
tilkynnti, að hann hefði skrifað
U Thant framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna bréf og
hvatt hann til þess að halda á-
fram viðleitni sinni til þess að
fá aðila til þess að setjast að
samningaborði um Vietnam.
Þetta bréf afhenti Goldberg
hinn nýi aðalfulltrúi Bandaríkj-
anna á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna U Thant framkvæmda
stjóra f gær.
Meðal ráðstafana þeirra, sem
Johnson boðaði var að auka
lið Bandaríkjamanna í Suður-
Vietnam upp í 125,000 eða
fjölga um 50 þúsund í liðinu.
Hann kvað skrásetta nýliða til
þjálfunar verða 35,000 á mán-
uði nú í stað 17,000, en varalið
yrði ekki kvatt til vopna að svo
stöddu.
Útvarpað og sjónvarpað var
frá fundi forsetans með frétta-
mönnum og svaraði hann fyrir-
spurnum þeirra greiðlega.
HEATH B0ÐAR VANTRAUST Á
STJ0RN WILSONS
■ hún hélt vellS í gær með aðeins
tveggja atkvæða meirihluta
Edward Heath hélt í gær fyrsta
fund sinn með fréttamönnum og
boðaði, að hann mundi bera fram
tiilögu um vantraust á stjóm
Harold Wilsons eftir næstu helgi.
Einnig tilkynnti hann, að keppi-
nautar hans um flokksforustuna,
þeir Réginald Maudling og Enoch
Powell, verði í- „skuggastjóm-
inni“ (shadow cabinet), þ.e.
verði talsmenn1 sfjómarinnar í
málstofunni og ráðherraefni, ef
flokkurinn myndar ríkisstjörn.
Sama máli gegndi um Sir Alec
Douglas-Home fyrrverandi forsæt-
isráðherra og leiðtoga stjórnarand
stöðunnar, þar til Heath nú hefir
tekið við henni.
Menn höfðu búizt við því, að
Heath myndi bregða skjótt við til
sóknar og það hefir hann líka gert.
Stjómin hélt velli f gær með
aðeins 2ja atkv. meirihluta.
í gær var felld í neðri málstof-
unni, er rætt var um dýrtíðina,
tillaga sem fól í sér vantraust á
stjórnjna fyrir vanrækslu og getu-
leysi í að hamla gegn dýrtíðinni,
með' ááeiris'3ja átkváeðk riíúffl, éSF
breytingartillaga frá krötum um
traust til stjórnarinnar fyrir með-
ferð hennar á þessum málum
marðist í gegn með aðeins 2ja at-
kvæða meirihluta.
Kurr í liði krata.
Sterlingspund hækkaði í verði í
gær á alþjóða peningamarkaði eft-
ir að tilkynntar höfðu verið strengi
KÓPAVOGUR
Barn eða ungling vantar til að bera út í Kópa-
vogi, vesturbæ. Vinsamlegast hringið í af-
greiðsluna í Kópavogi, sími 41168.
VISIR
Bílskúr ti! leigu
Hentugur fyrir smáiðnað eða geymslu til leigu
í Norðurmýrinni. Uppl. í síma 41982 eftir kl.
5 í dag.
í ferðalagið
Filmur, sólgleraugu, sólolía og rafhlöður í
ferSatækið.
VERZLUNIN ÞÖLL Veltusundi 3
(gegnt Hótel ísland bifreiðastæði), sími 10775
legar ráðstafanir til þess að styrkja
sterlingspund og draga úr óhag-
stæðum greiðslujöfnuði (sbr. frétt
í Vísi í gær). En þessar ráðstaf-
anir eru óvinsælar heima fyrir á
Bretlandi og einkum í flokki krata
sjálfra, sem óttast að af sparnað-
inum leiði stöðvun á framkvæmd
nýrra félagslegra umbóta og að
til atvinnuleysis kunni að koma.
Þessa kvíða gætir einnig £ sam-
bandsstjórn verkalýðsfélaganna
(TUC).
SKIPAFRÉTTIR
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
Ms. Herðubreið
fer austur um land í hringferð 31.
þ.m. Farseðlar seldir í dag.
BÍLASALÁ
VIÐ SELJUM BÍLANA.
j Prince 4 ’62-’64, Fiat 1300 ‘63, Con
j sul Cortina ’63-’65, Zephyr-4 ’62
Ford Consul 315 ‘62, Skoda Octa-
via ’62, Land Rover, benzín ’64,
Willys station ‘55 í topplagi, Land
j Rover, diesel ’62-‘63, Fiat 500 ’60,
Volvo station ‘62, Ford station M
1700 ‘59, vill skipti á ódýrari bíl.
Gjörið svo vel og skoðið bílana.
Bílasalan Borgartúni 1
Símar 18085 og 19615.
Edward Heath — með
sigurbros á vör
FARSVÉL
hakkavél, kæliskápur, stór 3ja dyra óskast til
kaups. Þeir sem vilja selja þessa nluti gjöri
svo vel að leggja nafn sitt inn á augl.d. Vísis
fyrir 6. ágúst n. k. merkt „Farsvél".
RÖNNINC H.F.
Sjávarot-iut 2 vií ingólfsg.
Sfmi 14320
Raflagnir. viðgerðir j helmilis
tæk'”iv ofnissala
FLJÓT OG VÖNDUÐ VINNA
Ferðafélag íslands ráðgerir eft-
irtaldar ferðir um næstu helgi:
1. Þórsmörk
2. Landmannalaugar
3. Breiðafjarðareyjar og kringum
Snæfellsnes
4. Hveravellir og Kerlingarfjöll.
5. Hvanngil á Fjallabaksveg syðri.
6. Jökuldalur við Sprengisand.
Þessar ferðir hefjast allar á laug
ardag og standa yfir til mánudags.
Allar nánari upplýsingar og far-
miðasala á skrifstofu félagsins
Öldugötu 3, símar 11798 og 19533.