Vísir - 29.07.1965, Blaðsíða 16
Byggð sprettur upp við Suðurlandsveg
Samninga-
nefnd
farin til
Rússlands
Viðskiptasendinefnd er nú
farin til Rússlands til þess að
gera nýjan viðskiptasamning
við Rússa. í nefndinni eru þess-
ir menn: Dr. Oddur Guðjónsson
formaður, Björn Tryggvason,
dr. Kristinn Guðmundsson, Lúð
vík Jósepsson og Pétur Péturs-
son. Ráðunautar með nefnd-
inni sem einnig eru farnir út,
eru Árni Finnbjörnsson frá SH,
Bjarni Magnússon frá SÍS,
Gunnar Flóventz frá Síldarút-
vegsnefnd, Har. Kröyer sendi-
ráðunautur í Moskva og Vil-
hjálmur Jónsson frá Olíufélag-
inu.
Byggingarframkvæmdum uppi
við Selás miðar vel áfram.
Þegar fréttamaður Vísis kom
þangað í morgun, hitti hann að
máli trésmiði og verkamenn, í
stigahúsum i Hraunbæ, fast við
Suðurlandsveg. Húsin liggja
þétt saman. „Svona er það víst
í Finnlandi líka“, sagði korn-
ungur byggingarmeistari og tók
hressilega i nefið. Hann sýndi
útlitsteikningu af fjölbýlishús-
unum inni í skonsu sinni, þar
sem hann hafði einkasíma og
önnur þægindi. „Hann Kjartan
teiknar lagleg hús“, sagði
hann, „ekki vantar það“.
í næsta húsi við voru hressir
ungir menn að „rífa utan af“ í
akkorði.
„Á hvers snærum eruð
þið?“
„Við erum fyrir „Óskar og
Braga s.f.“, sem okkar á milli
sagt heitir Fúskari og braski,
en láttu það ekki fara lengra“.
Þarna voru tveir verkamenn
og sjö trésmiðir að vinna að
tveim stigahúsum. Hafði verið
byrjað að grafa grunninn seint
í maí. Þeir sögðu, að húsið yrði
fokhelt í september, en tilbúið
undir tréverk í febrúar og
sennilega flutt inn i það næsta
vor.
Verkamennimir kváðust vera
bræður, annar í menntaskéla í
Röskir menn, sem byggja stigahús í Hraunbæ: Bræðumir Viðar (fremst á myndinni) og
Gísli Ólafssynir (hefur klifrað upp á húsið) - báðir við langskólanám: Þórður Kristjánsson
og Gísli Guðmundsson, verðandi byggingameistarar (ljósm. stgr.)
6. bekk, en hinn á öðm ári í
læknisfræði.
„Af hverju eruð þið ekki á
sfld eða í hvalnum, piltar?“
„Ég var á síld í fyrra, en
varð leiður á því. Svo hefur
maður alveg eins gott upp úr
sér hér. Við erum allir yfirborg-
aðir á velmegunartímum".
Stigahúsin í grennd við Selás
eru flest um 240 ferm., 3ja
hæða með kjallara. Þau rísa
upp fyrr en varir og bæta úr
alvarlegum húsnæðisskorti
borgar í örum vexti.
/var Guðmundsson tekur vii
forstöiu skrifstofu S,Þ»
Góð síldveiði í nótt
Dönsku blöðin em nú að skýra I Guðmundsson sé að taka við for-
frá því að íslendingurinn ívar | stöðu upplýsingaskrifstofu S. Þ. í
Kaupmannahöfn. Meðal annars
birti blaðið Berlingske Aftenavis
fyrir nokkru stutt samtal við ívar
á forsíðu ásamt mynd sem tekin
var af honum við komuna til
Kaupmannahafnar, en þar var frá-
farandi forstöðumaður skrifstof-
unnar, Ný-Sjálendingurinn Hugh
Williams að bjóða ívar velkominn.
Blaðið segir að ívar sé hin mesta
kempa. Það rekur nokkuð feril
hans og hefur eftir honum þessi
ummæli: — Fyrir mig er þetta eins
og að koma heim. Ég varð stúdent
hérna 1933 og aðstoðarforstjóri
SÞ skrifstofunnar í Kaupmanna-
höfn var ég 1955—60, þegar Hugh
Williams tók við af mér og nú
tek ég við af honum. Ég hlakka
til að fara að vinna hér, viðfangs-
efnin eru nóg og ég hlakka til að
hitta aftur gamla vini og kunn-
ingja, sem ég á svo marga hér.
Ég er ennþá tengdari Kaupmanna-
höfn fyrir þá sök að þrír synir
okkar hjónanna eru allir fæddir
hér. Sá yngsti þeirra fæddist fyrir
tveimur árum. Þá fékk ég leyfi frá
störfum til þess að hann gæti
eins og hinir fæðst í Kaupmanna-
höfn.
Gatt veður var á síldarmiðunum
g.l. sólarhring. Skipin voru aðal-
lega við Hrollaugseyjar og fékkst
þar góS veiði. — Nokkur skip voru
um 110—140 mílur austur af Langa
nesi, en veiði var þar lítil og fund
ust litlar lóðningar.
Eftirtalin 41 skip tilkynntu um
afla, samtals 54.850 mál og tn.:
Raufarhöfn
Helgi Flóventsson ÞH 300 tn.
Dalatangi:
Guðbjartur GK 2400, Óskar Hall
dórsson RE 2250, Hafþór RE 1400,
Haraldur AK 2350, Sigurpáll GK
2250, Skírnir AK 1800, Gullberg
NS 1300, Jón á Stapa SH 1000,
Sigurborg SÍ 1800, Simnutindur
SU 1000, ísleifur IV VE 1100,
Heiðrún IS 500 tn., Guðrún Gað-
leifsd. ÍS 1800 mál, Guðm. Þórðar-
son RE 1500 Hoffell SU 900, Atma
SI 1200, Reykjaborg RE 2200, Marz
VE 800, Glófaxi NK 750, Bára
1200, Jón Oddss. 250 tn., Giss-
ur hvíti SF 900 tn. Pétur Sigurðs-
son 1004 mál, Björn Jónsson RE
Framh. á bls. 6.
Bílveltur í gær
Tvær bílveltur urðu í gær-
dag. Á Strandgötunni í Hafnar-
firði varð harður árekstur milli
tveggja bfla og lenti annar
þeirra á hliðinni. Þrir farþegar
voru í bílnum, auk ökumanns
og voru allir fluttir á Slysa-
varðstofuna. Þá valt fólksbfll
úr Reykjavík á Krisuvíkurveg-
inum.
Áreksturinn í Hafnarfirði var
milli vörubfls og lít'ils fólks-
bíls frá Akureyri. Bílstjórinn á
fólksbílnum var að aka fram-
úr vörubílnum á gatnamótum,
en veitti ekki athygli stefnu-
ljósum vörubílsins. Skipti það
engum togum að stuðari vöru-
bílsins kræktist í fólksbflinn.
Lenti hann á hliðinni og rann
áfram á hliðinni góðan spöl.
Hjón ásamt tveimur bömum
voru í bilnum. Sluppu börnin
ómeidd, en gert var að meiðsl-
um hjónanna á Slysavarðstof-
unni og fengu síðan að fara
heim.
Bílveltan í Krísuvík varð á
móts við Krísuvíkurbúið. Fólks
bfl'l úr Reykjavík fór þar út af
veginum og hvíldi, en engin
slys urðu á fólki.
ffætt vii ui kurtöflugrus
hu fi fullii noriunlunds
Mynd og frásögn Berlingske Aftenavis um komu ívars til Hafnar.
Þriggja stiga frost var norður
í Aðaldal í nótt og víðar norðan-
lands og er hætt við, þar sem
frost er það mikið í lofti, en enn
nieira á grasi, að kartöflugras hafi
fallið sums staðar norðanlands,
og að víða sjáist á kartöflugrasi.
Tíðindamaður frá Vísi. átti um
þetta stutt viðtal árdegis ,yið pál
■ 1 1 *.».,.v.v • v
V,ý V ■•.•* A' „v I: •;
Bergþórsson veðurfræðing. Nefndi
hann sem dæmi um hinn mikla
mun, sem getur verið á hita, að í
nótt var hér í Rvík 6 stiga hiti í
mannhæð, en á grasflöt — 0.3
stig, og er þetta þannig rúmlega
6 stiga munur.
I vikulokin síðustu brá til
norðanáttar og svalviðris en norð-
anáttin er nú dottin niður. Bjart
er fyrir norðan og fallegt veður
en búast má við skúraveðri sunn-
anlands.
I gær gerði feiki mikla skúr í
Kirkjubæjarklaustri og nam úr-
koman 24 mm, á mjög skömmum
tíma. Fylgdu úrkomunni þrumur og
eldingar. Skúrir voru víða, m. a.
í grennd við Vestmannaeyjar.