Vísir - 21.09.1965, Side 1
Pramh á ils 6
Á mundi sem forsætisráðherra
dr. Bjami Benediktsson hélt í
gær með þeim fjölmenna hópi
bandarískra blaðamanna, sem
hingað eru komnir í heimsókn,
mátti heyra glöggt, hvaða mál-
um Bandarikjamennirnir höfðu
mestan áhuga á. Þeir spurðu
mikið um þátttöku íslands i
Atlantshafsbandalaginu, um
Keflavíkurflugvöllinn, um að-
stöðu bandariskra hermanna
þar, um mótspyrnu hér á landi
gegn þátttöku í NATO um
stjórnmálaástandið og hvað
sterkur kommúnistaflokkurinn
væri. Þá höfðu þeir mikinn á-
huga á að vita ýmislegt um
efnahagsmál og um skipun al-
mannatrygginga og hver að-
staða erlendum fyrirtækjum
væri gefin hér til að koma upp
Hafravatns-
rétt í dag
í morgun hófst Hafravatns-
rétt, „Þetta er eitthvað svlpað
og í fyrra hjá okkur“, sagði
Kristinn Guðmundsson, réttar-
stjóri, bóndi á Mosfelli. „Ég
held að það hafi verið eitthvað
um þúsund þá og það verður
líklega ekki minna núna“.
Kristinn stóð við hliðið að al-
menningnum og var með stórt
gjallarhom í hendi. Þegar fór að
lagast með pláss í almenningn-
um var fénu hleypt inn í áföng
um.
„Þeir voru tveir fjallkóngarn-
ir að þessu sinni, Ingimundur
Ámundason á Hrísbrú og
Guðni í Þormóðsdal. Ingimund
Framhald á bls. 6.
VISIB
MRnagr — <BwSj»dagMr 24. septemfaer 1>9®5. — 214 tbl.
Hæstiréttur staðsett-
ur í Vatnsdal í dag
Hæstíréttur er í dag staðsett
ur notOar í Vatnsdal í áreið í
landamerkjadeilum milli nokk-
urra jarðeigenda norður þar.
Þessar landamerkjadeilur
sfcanda í sambandi við það að
Vatnsdalsá hefur breytt um far
veg á allstóru svæði, en hún
skipti áður landeignum þe'irra
jarða sem lágu austan og vest-
an hennar. Á undanfömum ár-
Framh. á 6. sfðu.
Nærþrjátiu kindur drukknuðu áleið
ti1 Undirfellsréttar í Vatnsdal
Það óhapp vildi til
lawgardaginn 18. þ. m.
þegar verið var að reka
safn Vatnsdælinga af
Grhnstunguheiði til
Undirfellsréttar að 28
lömb drukknuðu í ánni
Álku, sem fellur rétt
norðan við Grímstungu-
bæinn.
Álka fellur fyrst í glúfrum
gegnt Grímstungubænum, en
sfðan niður sléttar meleyrar og
niður í Vatnsdalsá. Tungan sem
myndast milli þessara tveggja
vatnsfalla nefnist Grímstunga
og af henni dregur samnefndur
bær nafn — ein af stærstu
jörðunum í Vatnsdal.
Á laugardaginn komu ganga-
menn með safnið niður af
Grímstunguheiðinni og voru á
leið með það til Undirfellsréttar.
Er safnið jafnan rekið yfir
Álku á eyrunum fyrir neðan
Grímstungu og aldrei komið
neitt óhapp fyrir, enda er áin
ekki sérlega vatnsmikil.
Guðmundur Jónasson bóndi
að Ási í Vatnsdal skýrði Visi
svo frá í morgun að í þetta
skipti þegar verið var að reka
safnið yfir ána, hafi einhver
tryllingur komið i safnið, það
hafi þust allt of margt út í ána
samtímis og blátt áfram mynd-
að eins konar stíflu £ henni.
Við þetta hafi 28 lömb drukkn-
að, langflest frá einum og sama
bónda í Vatnsdal, Hallgrími
Guðjónssyni í Hvammi.
Guðmundur í Ási tjáði Vísi að
Framh á 6 sið-.
Bt "Ð!Ð i DAG
Bls. 3 Útvarpsleikrit
verður til.
— 4 Siðferðisþroski og
siðmenning eftir
Pétur Sigurðsson.
— 7 Rætt um sigur
Erhards f þýzku
kosningunum.
— 8 Verzlunarskólinn
byrjar vetrarstarf
i — 9 Grein um Gunn-
fríði Jónsdóttur
myndhöggvara.
Nýtt haustverð á búvörum
Meðalhækkun um 11°/o — Meiri verðhækkun á kjöti en mjólk
„Þriggja manna nefndin", sem
ákveðið hefur verðlagningu land-
búnaðarafurða, hefur nú lokið
störfum, og eins og sjá máttl í dag-
blöðunum í morgun var þar birt
verð mjólkur og mjólkurafurða.
Nákvæmur listi yfir hækkun
kjötverðs og annarra afurða verð-
ur birtur á morgun. Grundvallar-
hækkunin er svipuð á öllum kjöt-
vörum, en mismunur í niðurgreiðsl
um veldur þvi að hækkunin er ekki
jöfn á öllum tegundum.
Hér fer á eftir úrdráttur úr
greinargerð nefndarinnar um verð-
lagningu landbúnaðarafurða:
Samkvaemt útreikningi Hagstofu
íslands hækkar verðgrunnur land-
búnaðarafurða um 11.4% frá
hausti 1964, og meðalafurðaverð til
bænda um 11.2% frá sama tíma.
Á fundi Framleiðsluráðs landbún-
aðarins sem haldinn var 10. sept.
þ. á. samþykkti ráðið tillögu um
verðtilfærslu milli sauðfjárafurða,
og mjólkurafurða, — þannig
að fært yrði frá mjólk 12.5%
af væntanlégri meðalhækk-
un grundvallarverðs yfir á kinda-
kjöt og færð yrði jafn mikil upp-
hæð af mjólk til nautgripakjöts,
enda yrðu þessar tilfærslur látnar
koma niður á verðlagningu osta,
smjörs, mjólkurdufts og kaseins.
Hér á eftir fer yfirlit yfir þær
aðaltilfærslur er nefndin gerði á
tekjuhlið grundvallarins.
Hækkun frá hausti 1964 til
hausts 1965:
Mjólk
Nautgripakjöt
Kindakjöt
Hrossakjöt
Kartöflur
Fyrfr Eftlr
tllfærslu: tilfærslu:
11.22% 8.43%
11.22% ca. 26.75%
14.97% ca. 17.27%
11.22% ca. 14.91%
11.22% ca. 9.14%
ForSætisráðherra dr. Bjarni Benediktsson á blaðamannafundinum í
gær.
Forsætisráðherra á fundi með bandarískum blaðamönnum
RÆTTUM VARNARMÁL 0G VIÐ-
SKIPTAMÁLISLENDINGA
atvinnufyrirtækjum.
Blaðamannafundur þessi fór
fram i borðstofu ráðherrabú-
staðarins f Tjarnargötu, og voru
um 30 bandarískir blaðamenn
á honum. Flestir eru þeir starf-
andi við ýmiss konar smáblöð
úti í héruðum Bandaríkjanna.
1 viðtali við fréttamann Vísis
höfðu þeir margir hverjir viður-
kennt að áður en þeir hefðu
komið hingað ,hefðu þeir bók-
staflega ekkert vitað um ísland
og mætti þar af ímynda sér
hve gagnleg þessi ferð væri
fyrir þá. ,
Hópurinn var það stór, að
þeir fylltu langhorð mikið sem
komið hafði verið fyrir í borð-
stofunni endilangri. Strax byrj-
uðu þeir að spyrja forsætisráð-
herra um þátttöku Islands í
NATO. Forsætisráðherra gerði
þeim glögga grein fvrir þeirri
mótspymu sem hér hefði verið
frá fornu fari gegn þátttöku f
Framhald á bls. 6.