Vísir - 21.09.1965, Side 2

Vísir - 21.09.1965, Side 2
VISIR . Þriðjudagur 21. september 1965. § . .. ■. ' 38 ÍMÍ&3ÍS6. <. / ' %} ' ^ ÍUtf Það verða oft orðahnippingar á leikvellinum. Hér er verið að reka einn leikmanna Sunderland af velli, en fyrirliðinn, Charley Hurley mótmælir. Hurley er írskur landsliðsmaður og lék hér fyrir nokkrum árum. .CjLÓUÚ ^BíUHJjOit WEST BROMWICH tek- ur forystuna West Bromwich tók við forystunni í 1. deild- inni ensku um helgina með stórum sigri yfir Stoke City, 6:2. John Kay, miðherji liðsins skoraði 3 mörk, „hat- trick“, í þessum leik, sem var mikill yfirburða Ieikur WBA, eftir að fyrstu 20 mínúturnar voru jafnar. Tottenham lék sinn 30. leik án taps á heimavellinum og vann nú Liverpool með 2:1 i mjög spennandi leik, sem 46.770 manns komu til að horfa á. Alan Gilzean skoraðl 1:0 með skalla og Eddie Clayton bætti öðru við. Geoff Strong skoraði eina mark Liverpool rétt fyrir lelkslok. West Bromwich og Sheffield United hafa nú bæði 13 stig en United, sem vann Sheffield Wednesday með 1:0 á laugar- daginn hefur lakara markahlut- fall. Burnley hefur 12 stig og er f þriðja sæti en Bumley tap- aði útileik sínum í Newcastle með 2:3. Tottenham og Leeds hafa líka 12 stig. Leikurinn milli Newcastle og Bumley varð nokkuð harður á köflum og varð dómarinn D. Payne að kalla leikmenn fyrir sig og áminna þá um að sýna betri lelk og ekki eins mikla hörku. Manchester United vaknaði loks til lífsins aftur á laugar- daginn, vann Chelsea 4:1 og skoraði Denis Law þrjú mörk í selnni hálfleik og naut sín nú aldeilis vel. Úlfamir leika nú í 2. deild og um helgina urðu þeir að þola mesta tap sitt siðan fyrir stríð, þeir töpuðu 9:3 fyrir Southampton og skoraði ung- lingalandsliðsmaðurinn Martin Chivers 4 mörk. Um helglna fóru 38 leikir fram í deildunum i Englandi og voru óvenju mörg mörk skoruð, eða 153 taisins og tíu leikjunum lauk þannig, að liðin skomðu 4 eða fleiri mörk. Valbjörn Reykja- víkurmeistarí — en Ólafur og Kjartan eru ekki langt undan Valbjörn Þorláksson varð Reykjavíkurmeistari í tugþraut í fyrradag, en hann hlaut 6836 stig, sem er langt frá hans bezta árangri, en Ólafur Guðmundsson varð annar, vann Kjartan Guðjónsson og hlaut 6492 stig, sem er hans bezta, en Kjartan hlaut 6420 stig og Jón Þ. Ólafsson 5800, en það er bezti árangur Jóns til þessa. ólafur Guðmundsson vann 100 metra hlaup á 10.7, sem er bezta afrekið í hlaupinu í ár og lang- stökk vann hann einnig, stökk 7.00, sem er sömuleiðis bezta afrekið á íslandi í ár. Kjartan kastaði kúlu lengst 13.61 en Jón Þ. vann að sjálfsögðu hástökkið 2.02. í 400 metra hlaupi varð Ólafur hlut- skarpastur með 50.6 sek. og leiddi eftir fyrri dag með 3613 stig en Valbjöm hafði 3578 stig og hafði enga grein unnið. Valbjöm vann 110 metra grinda- hlaupið á 15.2 sek., en Jón Þ. kringluna á 40.68, Valbjöm stöng- ina á 4.19 og spjót á 57.35, en Ól- afur vann 1500 metrana á 4.31.4. Úrsllt: Valbjöm Þorláksson, KR, Reykja- víkurmeistari (11.0 — 6.52 — 12.67 — 1.80 — 51.7 - 15.2 — 34.35 — 4.19 — 57.35 — 5.26.0). Ólafur Guðmundsson, KR (10.7 — 7.00 — 11.09 — 1.71 — 50.6 — 16.9 — 30.30 — 3.01 — 49.00 — 4.31.4). Kjartan Guðjónsson, ÍR (11.4 — 6.62 — 13.61 — 1.80 — 57.0 — 19.7 - 37.49 — 3.22 — 54.15 — 5.12.0). Jón Þ. Ólafsson, ÍR (11.6 — 6.41 — 12.02 — 2.02 — 61.8 — 17.3 — 40.68 — 3.03 — 45.33 - 5.57.1). jr Arsþing GLI Ársþing Glímusambands Islands 1965 verður haldið sunnudagitjn 24. okt. n.k. og hefst kl. 10 árdegis í húsakynnum Iþróttasambands Is- lands. Tillögur frá sambandsliðum, sem óskast lagðar fyrir ársþingið þurfa að hafa borizt stiórninni þrem vik- um fyrir þingið. Stjórnin. Þessi mynd var tekin á sunnudaginn á Akureyri og eru Akureyringar að skora annað marka sinna. úfifl Herbergi óskost Herbergi óskast til leigu strax fyrir þýzkan bifvélavirkja. Uppl. í síma 15450. Ungling pilt eða stúlku, vantar til sendiferða. TOLLSTJÓRASKRIFSTOFAN, Arnarhvoli. Veitingnstofn Veitingastofa með öllum fullkomnustu tækj- um til leigu fyrir sanngjarnt verð. Sá, sem hugsaði um að skapa sér sjálfstæða atvinnu með því að sinna þessu þarf að geta borgað sem svarar hálfs árs leigu fyrirfram. Uppl. í síma 18400 kl. 3—5 daglega. Laugavegi 56.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.