Vísir - 21.09.1965, Page 7

Vísir - 21.09.1965, Page 7
7 V1SIR mééhémm Þriðjudagur 21. september 1965. Erhard reyndist ekkert ,gúmmíljón'en Willy Brandt hefur heðið alvarlegan hnekki jjrsiit þingkosninganna I Vestur-Þýzkalandi eru fyrst og fremst tnikuð sem mikiil og óvænt- ur persónulegur sig- ur fyrir Ludwig Er- hard forsætisráðherra. Þau munu vissulega festa hann í vöidum, svo að hann getur verið miklu sterkari og sjálf- stæðari en hann var, þann tíma af síðasta kjörtímabili sem hann gegndi stjómarforust- unni. Þetta er vafalaust þýðingar- mesta ályktunin, sem dregin verður af kosningaúrslitunum. Og þýtta skiptir mestu máli í sambiandi Erhards við flokk sin'n. Með sigri sínum hefur hann ef svo má segja yfirunnið Adenauer fylkinguna, þennan harðskeytta hóp innan ftokks- ins, sem stöðugt hefur reynt að lítillækka hann og gera minni mann úr honum. Það var þessi fylking sem kom þeim hug- myndum af stað, að Erhard væri lítill og fákænn stjómmála maður. Þeir gáfu honum heitið „Gúmmíljónið“ og þeir gerðu honum á margan hátt mjög erf- itt fyrir. Nú síðast fáum dögum áður en kosningarnar voru kom Adenauer fyrirrennari hans fram á sviðið og gaf furðuleg- ar yfirlýsingar sem varla var hægt að túlka öðm vfsi en beina skemmdarstarfsemi gagnvart hans eigin flokk og Erhard. Adenauer lét í það skína, að kosningabaráttan væri töpuð, að það væri vegna þess, að Er- hard væri svo lélegur forustu- maður. En Adenauer sagði að það gerði ekki mikið til þó Jafn aðarmennirnir ynnu kosningarn ar, þá yrði stofnuð samsteypu- stjóm Jafnaðarmanna og Kristi lega flokksins. ZÁllum þessum hugmyndum Adenauer-hópsins hefur ver ið vísað á bug með úrslitum kosninganna. Eftir þennan glæsi lega sigur er ekki hægt að halda því lengur fram að Erhard sé lélegur stjómmálamaður. Má nú gera ráð fyrir að hann taki ým- is vandamál innan Kristilega flokksins ákveðnari tökum en áður. \ nnars er fylgisaukning Kristi lega flokksins að sumu leyti eðlileg og auðveldlega hægt að útskýra hana. í síð- ustu kosningum þótti mörgum fylgismönnum Adenauers að gamli maðurinn væri nú farinn að þrauka einum of lengi við íhuganir við úrslit þýzku kosningunnu stjómvölinn og óánægja hafði og komið upp vegna þess, hve hann hafði hlaupið á sig, þegar hann fékk þá hug- mynd að þjóða sig fram til for- seta, en dró svo allt það til baka. Vegna þessa var talið að allmargir fyrri fylgismanna flokksins hefðu þá kosið Frjálsa demokrataflokkinn til að mót- mæla með því þrautsetu Adenau ers. Nú þegar Erhard hefur tek ið við forustunni koma þessir kjósendur aftur og sést þetta m.a. bezt af því að Frjálsir demo kratar hafa mjög tapað atkvæð- um. Þó mikill meirihluti flokksins sé á sveif með Erhard er Ade- nauer-hópurinn enn mjög sterk ur. Adenauer sjálfur er nú orð inn rúmlega níræður, en hann var samt í kjöri enn og náði glæsilegri kosningu. 4 nnar flokksmaður, sem erfitt er að glíma við er sjálfur Frans Josef Strauss, sem varð að víkja úr stjórn fyrir þremur ámm vegna Spiegel-málsins. Hann var enn í kjöri í sínu heimaríki, Bæjaralandi og náði glæsilegri kosningu. Það var ekki að sjá að kjósendur hans hefðu mlsst trú á' honum og fylgi flokks háns, hin hæverska Kristilega flokks jókst enn nokk uð . í gær þegar umræður voru að hefjast í Bonn um stjórnmálaá- standið eftir kosningarnar var Strauss þar kominn og mun hann nú vafalaust sækja það fast að komast í stjórn aftur. Hann hefur nú fengið forustu- hlutverk sitt í heimahéraðinu viðurkennt og vafalaust verðun . • • V jmc X' Vfjr' Erich Mende neitar að sitja i sömu stjóm og Strauss. það fremsta krafa flokksdeildar innar f Bæjaralandi, að Strauss fái sinu framgengt. I^n á móti því kemur annað vandamál að Erich Mende foringi Frjálsra demokrata hef- ur lýst því yfir að flokkur hans sé algerlega mótfallinn því að taka þátt f stjóminni ef Strauss situr þar. Andstaða Frjálsra demokrata gegn Strauss er all einkennilegt fvrirbæri í þýzkum stjórnmálum. Undirrót þess er e.t.v. að Frjálsir demo- kratar leita kjósendafylgis ein- mitt á líkum slóðum og Strauss það er meðal efnaðri hluta borg arastéttarinnar. En þar við bæt- ist að Frjálsi demokrataflokk- urinn rekur rætur sínar að nokkru til þeirra afla í Þýzka- landi, sem ákveðnast börðust fyrir lýðræði í landinu. Sjálf- byrgingsháttur og hagsmuna- streita Strauss hefur farið mjög í taugarnar á þessum flokksarmi og þeir líta á Spiegel-málið sem stórfeilt hneyksli er eigi að úti Strauss þykist nú eiga rétt á ráðherrastóli. loka Strauss frá stjórnmálaaf- skiptum. Þessa þraut verður erfitt að leysa. Strauss var neyddur til að gefa eftir, þegar Spiegel-málið stóð sem hæst. Nú ætlar hann sér að nýju einhvern frama. Hann getur líka bent á það, að eftir þessar kosningar hafi fylgi Frjálsa demokrataflokksins dregizt svo saman að hann sé ekki orðinn meiri en flokksdeild in f Bæjaralandi. Vafalaust mun þessi ágreiningur gera Er- hard örðugt fyrir um stjórnar- myndun, en vafalaust mun hún samt takast, sennilega þannig að Strauss dragi sig enn í hlé því að annað yrði talið skemmd arverk gegn flokknum. # ■jVTú eftir kosningaúrslitin er talið útlokað að farið verði að semja við Jafnaðarmenn um stjómarmyndun. Sú hugmynd gat því aðeins gilt ef Kristilegi flokkurinn biði verulegan hnekki í kosningunum. Orslitin em þannig jafnmikill persónulegur ósigur fyrir Willy Brandt foringja Jafnaðarmanna eins og þau em sigur fyrir Erhard. Að vísu get- ur Brandt bent á það, að Jafn- aðarmannaflokkurinn hafi aukið atkvæðafylgið og hafi nú fleiri atkvæði en nokkm sinni eftir stríð. En það nægir honum ekki. Hitt er staðreyndin sem menn einblína á. að Brandt hef- ur nú tapað öðrum kosningun- um f röð, fyrst tapaði hann síð ustu kosningum Adenauers og nú fyrstu kosningum Erhards. Eftir það getur Brandt ekki gert sér neinar vonir um að vinna sigur fvrir flokk sinn. Brandt hefur mjög verið hossað, hann hefur verið gerður að nokkurs konar stjörnu, fylgismennirnir hafa dýrkað hann og trúað og treyst því að hann væri spámað- urinn, serh ætti að leiða þá á endanum út úr eyðimörkinni. Jafnframt því hafa þeir reynt að setja nýja og glæsilegri fram hlið á flokkinn, þaggað niður gömlu sósíalisku vígorðin en sýnt flokkinn í ljósi þeirra borg- araleg'i hugmynda sem nú hafa orðið Mls ráðandi í Þýzkalandi með aft<inni velmegun. n allt þetta hefur komið fyrir ekki og því er það mjög alvarlegt fyrir Brandt að hafa ekki náð takmarkinu. Það er örðugt fyrir hann að koma fram eftir alla þessa dýrkun. Þar við bætist það, að Willy Brandt hefur ekki tekið þátt í stjórnmál um Vestur-Þýzkalands. Hann er leiðtogi flokksins í Berlín fvrst og fremst, sem hefur staðið all einangruð og utan við stjóm- mál Vestur-Þýzkalands. Brandt hefur ekki starfað á sambands- þinginu í Bonn og hann hefur lítil persónuleg tengsl innan Jafnaðarmannaflokksins í Vest- ur-Þýzkalandi. Hann varð fyrir valinu sem foringi í tveimur mikilvægum kosningabardögum af því að litið var á hann sem ungan og glæsilegan mann, sem myndi verka líkt og kvikmynda stjama á kjósenduma. En allt af þegar sú leið stjörnudýrkun- ar er farin veldur það erfiðleik um og óánægju innan flokks- starfsins. Og það er nú þegar Erhard, hinn raunverulegi sig- urvegari. nóg af óánægju og urg innan þýzka Jafnaðarmannaflokksins. Þar verða sterkar raddir uppi um að hætta þessum Hollywood stíl, sem hefur einkennt forustu flokksins og hefja þess í stað stjórnmálabaráttu byggða á raunhæfu pólitísku mati. Otlitið fyrir Willy Brandt er því ekki sérlega glæsilegt f náinni fram- tíð. Brandt nær sér ekki eftir þetta áfall. Sænskur prófessor flytur erindi Rektor Uppsalaháskóla, prófess- or Torgny Segerstedt, mun dveljast hér á landi þessa viku f boði Há- skóla íslands. Hann flytur fyrir- lestur í Háskólanum í dag 21. sept. kl. 5.30 e. h. Fvrirlesturinn verður fluttur á sænsku, og nefn- ist hann „Utbildningssamhállet, dess framváxt och problem". Er öllum heimill aðgangur. Rektor Torgny Segerstedt er einn kunnasti háskólarektor á Norður- löndum. Hann er prófessor í fé- lagsfræði, en hefur jafnframt látið mjög til sín taka endurbætur á sænsku skólakerfi og þá einkum á sviði æðri menntunar. Brezku stroku- mennirnir þukku Flestir munu minnast brezku sjó- mannanna þriggja, sem struku af togara, er hann lá inni á ísafirði síðast í ágústmánuði. Hugðust þeir félagar halda fótgangandi til Reykjavíkur og voru lagðir af stað, þegar þeim var náð af um- boðsmanni togaraeigenda og flutt- ir til Reykjavíkur og þaðan til Englands. Orsök stroksins sögðu þeir vera slæma aðbúð um borð. Einn þeirra félaga hefur nú rit- að brezka sendiráðinu hér bréf, þar sem hann biður það að flytja öllum Islendingum ,sem þeir félag- ar hittu, beztu þakkir fyrir góða aðstoð og hjálp í þrengingum þeirra. Sá, sem bréfið ritar, er Steven Bunting, Doncaster, Eng- landi. Hann segir: „Hvarvetna sem við komum á Islandi var okkur sýnd mikil greið- vikni og hjálpsemi. Mundi sendi- ráðið geta komið þakklæti okkar til Islendinga áleiðis? Það myndi okkur ðllum þykja mjög vænt um“

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.