Vísir - 05.10.1965, Page 7
V í SIR . ÞriBJudagnr 5. októher 1965.
7
HERBERT GUÐMUNDSSON:
o
UM SVEIT, BÆ OG
UNNIÐ AF FYRIRHYGGJU.
Menn eru þegar teknir að
hugleiða þá spumingu, hvemig
byggð verði háttað á íslandi um
næstu aldamót og hverjar kröf-
ur aldamótakynslóðin muni gera
til lffsins £ landinu. Getgátur
einar eru ekki lengur látnar
nægja um fjarlæga framtíð,
heldur er reynt að beina á-
kveðnum straumum í farveg, þó
all rúman, til þess að nútíma
verk nýtist sem bezt fyrir fram-
tíðma.
Einn mest áberandi liðurinn
í þessari viðleitni, er að leggja
grófa drætti að útliti væntan-
legs höfuðborgarsvæðis, sem
kallað hefur verið Stór-Reykja-
vík og nær á milli Kjalamess og
Hafnarfjarðar. Eðlilega þenst
höfuðborgin út með síauknum
hraða og er nú þegar búin að
teygja anga sína inn fyrir EH-
iðaár, sem fyrir aldarfjórðungi
vora uppi í sveit. Margs þarf að
gæta í þessum efnum, bæði um
borgarsvæðið sjálft og sam-
skipti þess við aðrar byggðir,
nær og fjær.
Að þessum verkefnum hefur
Svæðaskipulagsnefnd tmnið und
anfarin misseri, en hún var sett
á laggimar að tiistuðlan Reykja
víkurborgar. Heildarskipulag
núverandi borgarsvæðis var til-
búið þegar í sumar og hefur
hlotið samþykki borgarstjómar.
Um þessar mundir er unnið að
skipulagi innan fleiri eininga,
svo sem £ Kópavogi, Garða-
hreppi og Hafnarfirði.
Stjórnendur höfuðborgarinnar
eiga sérstakar þakkir skildar
fyrir frumkvæði og brautryðj-
endastarf á þessu sviði, en
vinnubrögð þeirra £ málinu eru
einmitt dæmigerð um framsýni
þeirra og atorku við uppbygg-
ingu borgarinnar.
SAMSTARF.
Á þessu kjörtimabili hafa
komizt á reglulegir fundir með
borgarstjóranum i Reykjavík,
bæjarstjórum og sveitarstjórum
£ nágrenninu. Eru fundir þessir
eins konar rabbfundir og er
þeim ætlað, að skýra og kryfja
ýmis mál, sem snerta þessa að-
ila sameiginlega. Með þessu
móti ættu að mestu að vera fyr-
irbyggðir árekstrar milli þess-
ara aðila. Þvert á móti ættu
þessir fundir að hafa i för með
sér mikla hagkvæmni á ýmsum
sameiginlegum hagsmunasvið-
um, eins og er reyndar þegar
komið á daginn.
Þessi auknu samskipti for-
ystumanna borgarinnar, bæj-
anna og sveitanna hér Suð-
Vestanlands eru, ásamt nýlega
stofnuðum formlegum Samtök-
um sveitarféiaganna í Revkja-
nesumdæmi, með merkustu
framfaraskrefum í stjómum
byggðanna.
VEGIR FYRIR
HUNDRUÐ MILLJÓNA.
Góðar samgöngur eru eitt af
frumskilyrðum þess, að fólk nú-
tíðar og framtíðar fái notið lífs-
ins, bæði í eiginlegri og óeigin-
legri merkingu. Sá liður hefur
því verið ofarlega á baugi að
undanförnu og hefur fengið sér-
staka meðferð innan fyrr nefndr
ar Svæðaskipulagsnefndar. Þar
hefur að sjálfsögðu verið fjallað
um allar greinar samgangna, &,
landi, sjó og í lofti. I þeim öll-
um standa fyrir dyrum meiri
eða minni átök til frambúðar-
lausnar.
Á næstu grösum er áfanga-
bygging Sundahafnar £ Reykja-
vík. Þá eru uppi miklar um-
ræður um framtíðar flugvöll
fyrir innanlandsflugið, en það
mál á hvað óvissustu stigi. Það
iang fyrirferðarmesta er þó
vegagerð, sérstaklega úr var-
anlegu efni.
Næstu og mest knýjandi
verkefnin í vegagerðarmálum
eru endurbvgging Hafnarfjarð-
arvegar í gegn um Kópavog og
síðan áfram til Hafnarfjarðar,
iagning nýs Vesturlandsvegar
upp í Kollafjörð, varanleg gerð
Suðurlandsvegar og lagning nýs
vegar fyrir þungaflutning frá
Elliðaárvogi (Sundahöfn) austan
núverandi byggðar í Kópavogi,
Allar leiðir liggja frá Reykjavík. Fyrir dyrum standa vegaframkvæmdir í nágrenni höfuðborgarinnar
fyrir himdrað milljóna króna., en unnið hefur verið að undirbúningi þeirra bæði af hálfu Svæðaskipu-
lagsnefndar og ríkisins, sem hefur tekið megnið af þeim inn á Vegaáætlun.
Garðahreppi og Hafnarfirði á
Reykjanesbraut.
Þessar vegagerðarfraftíkvæmd
ir koma til með að kosta hundr-
uð miiijóna króna, t.d. endur-
'bygging Hafnarfjarðarvegar i
gegn um Kópavog 60—70
millj. kr. Aliar munu þær svo
kalla á margháttaðar fram-
kvæmdir og dýrar innan hinna
einstöku bæjar- og sveitarfélaga
á svæðinu.
VATNSSKORTUR
í HAFNARFIRÐI.
I fyrrasumar bar lítilsháttar
á vatnsskorti í Hafnarfirði. Var
honum bægt frá með aðgerðum
bæjaryfirvalda, sem létu byggja
stíflugarð við vatnsinntakið í
aðfærsluæðina, til þess að unnt
yrði að miðla vatni.
Á þessu sumri reis þetta
vandamál upp aftur, sérstaklega
síðari hluta þess. Hafa bæjar-
yfirvöid gripið til ýmissa ráða,
þ. á m. hafa þau látið leggja
leiðslur að brunnhúsinu með
vatnssöfnun fvrir augum, þá
hafa verið settar upp dæiur, auk
þess sem borað hefur verið á
svæðinu. Þegar í sumar fól bæj-
arstjóm bæjarverkfræðingi að
undirbúa byggingu vatnsgeymis
við aðfærsluæðina.
Það er misskilningur, sem
komið hefur fram, að vatns-
skorturinn stafi af ónógum
gagnráðstöfunum bæjaryfir-
valda. Þau hafa í þessum efnum
notið ráða fræðimanna, sér í
lagi Jóns Jónssonar, jarðfræð-
ings, sem hefur verið ráðgef-
andi um vatnsmál Reykjavíkur
og nágrennis.
Vandinn hefur reynzt meiri
en gert var ráð fyrir og er kennt
um einstökum þurrkum í ár og
snjóleysi undanfarna vetur. Hef-
ur úrkoma í ár aðeins verið um
65% af meðalúrkomu áranna
1930—1960. Hins vegar mun
ekki vera talin hærfh' á áð vatns
bólið í Kaldárbotnúm sé að
þorn,a upp.
Er vonandi að hinar ýmsu
ráðstafanir Hafnarfjarðarbæjar
viðvíkjandi núverandi vatnsbóli
nægi til þess að bægja frá vatns
skorti í framtíðinni.
Stofarað nemendasamband
Laugarvatnsstúdenta
Stofnað hefur verið Nemenda-
samband Menntaskólans að Laug
arvatni. Ákvörðun um það var tek
in á fjölmennum fundi nýstúdenta
og eldri nemenda skólans á Hótel
----------------------------1
Self óflokkað og
ómetið grænmeti
Yfirlýsing frá yfirmats-
manni garðávaxta.
Þar sem í ljós hefur komið
við athugun á kartöflu- og gulrófna
birgðum nokkura verzlana og mat-
sölustaða, að ofangreindar vörur
hafa verið seldar óflokkaðar og ó-
metnar, — þá er hlutaðeigandi að-
iljum hér með bent á að samkvæmt
33. gr. laga nr. 59/1960 um fram-
leiðsluráð landbúnaðarins o. fl. og
reglug°»ðar nr. 162/1962, skulu all
ar kartöflur, gulrófur og gulrætur,
sem seldar eru til manneldis, vera
metnar. flokkaðar og auðkenndar
á umbúðum eins og matsreglur á-
kveða.
Brot varða sektum nema þyngri
refsing liggi við samkv. lögum.
E. B. Malmquist.
•Sögu hinn ls. júni sl.. Samband-
inu var kosin þriggja manna
stjóm og skipa hana þeir Jóhann
Gunnarsson, vélfræðingur, Þórir Ó1
afsson menntaskólakennari og Ei-
ríkur Guðnason, nýstúdent.
Á stofnfundinum var gerð eftir-
farandi ályktun:
„Stofnfundur Nemendasam-
bands Menntaskólans að Laugar-
vatni vekur athygli á þvi mikils-
verða hlutverki sem menntaskól-
inn að Laugarvatn'i hefur gegnt frá
því hann var stofnaður. Skólann
hafa sótt fjölmargir nemendur sem
ella hefðu ekk; haft efni eða á-
stæður til að stunda framhalds-
nám. Stofnfundurinn lýsir ánægju
sinnj með þá áætlun, sem gerð
hefur verið um stækkun skólans,
og bendir á nauðsyn þess, að hon-
um verði hið allra fyrsta kom'ið i
þá stærð, sem teljast verður lág-
mark um slíka menntastofnun.
Jafnframt bendir fundurinn á, að
brýn þörf sé á að sjá skólanum
fyrir kennslutækjum, svo að nem
endum séu eigi búin lakari skilyrði
til námsiðkana þar en í öðrum
hliðstæðum skólum.
Nemendasambandið lætur í ljós
þá skoðun sína að menntaskóli sé
i vel i sveit settur á skólasetrinu að
Laugarvatni og minnir í því $am-
bandi á það hlutverk, sem skól-
anum var £ upphafi ætlað. Nem-
endur hafa verið úr öllum lands-
hlutum, og hafa nær allir haft þörf
fyrir heimavist.
Fundurinn lýsir yfir þeirri full-
vissu, að Menntaskólinn að Laug-
arvatni muni um langa framtíð
skipa veigam'ikinn sess í fræðslu-
kerfi þjóðarinnar, og heitir á for-
ráðamenn menntamála og fjárveit-
ingavald að veita skólanum braut-
argengi.
Til nemenda skólans fyrr og nú
beinir fundurinn þeirri áskorun,
að þeir leitist í hvívetna við að
gera veg skólans sem mestan.“
Ný útgúfa
Lagasafnsins
Eftir fáeina daga mun ný útgáfa
Lagasafnsins koma út. Mun það
fagnaðarefni öllum lögfræðingum
og hinum fjölmörgu öðrum sem
safnið þurfa að notá ,en síðasta út-
gáfa þess var gerð fyr’ir 10 árum.
Að þessu sinni er lagasafnið einn
ig í tveim bindum, en nokkru
stærra en síðasta útgáfa þess, þar
sem margir nýir lagabálkar hafa
I bætzt við á liðnum árum. Þá hefur
sú nýbreytni verið upp tekin að
fullkomið registur yfir allt verkið.
fylgir nú báðum bindunum. Laga-
safnið nýja nær allt fram til 1.
apríl í vor. Otgefandi þess er pró
fessor Ármann Snævarr, rektor |
Háskólans. I
NY BOK:
RAFTÆKNI- OG
LJÓSORÐASAFN
Menningarsjóður hefur gefið út
safn tækniorða í raftækni og ljós-
tækni. Bókin heit'ir: Raftækni- og
ljósorðasafn og er tæpar 400 bls.
að stærð.
1 bókinni eru rösklega 2000 orð
úr rafmagnstækni og ljóstækni, á-
samt þýðingum þeirra á ensku,
þýzku og sænsku.
Orð þessi skiptast í sex kafla.
Fyrstu fimm kaflarnir eru raf-
tæknilegs efnis. Fjórir þeirra eru
þýddir af orðanefnd rafmagns-
verkfræðingadeildar Verkfræðinga
félags íslands. Hana skipa eftirtald
ir menn: Eðvarð Árnason, Guð-
mundur Marteinsson, Gunnlaugur
Briem, Jakob Gíslason og Stein-
grímur Jónsson. Síðustu árin hefur
Jón A. Skúlason setið £ nefndinn'i
í stað Gunnlaugs Briem. Fimmti
kaflinn (um rafmagnstækni) er
þýddur af orðanefnd Kjarnfræðafé
lags fslands. Sú nefnd er þannig
skipuð: Björn Kristinsson, Gísli
Petersen, Gunnar Böðvarsson,
Steingrímur Jónsson og Þorþjörn
Sigurgeirsson.
Sjötti og síðasti kaflinn er al-
þjóðlegt ljóstækniorðasafn. Það er
þýtt af orðanefnd Ljóstæknifélags
íslands, en hana skipa: Aðalsteinn
Juðjonhsen, Jakob Björnsson, Ja-
kob Gíslason, Jón A. Bjarnason
og Steingrímur Jónsson.
Allar hafa nefndir þessar leyst
af höndum m'ikið starf. Sérstök á-
stæða er þó til að nefna fram-
Steingríms Jónssonar rafmagns-
stjóra, sem hefur verið í öllum
nefndunum og sýnt alls staðar
hinn þekkta áhuga sinn og dugnað
Bókinni lýkur með íslenzkri, enskri
þýzkri og sænskrj orðaskrá í staf-
rófsröð. Orðaskrár þessar eru sam
eig’inlegar fyrir alla kaflana og
fylla siðasta þriðjung bókarinnar.
I fróðlegum formála er gerð
allnákvæm grein fyrir samningu
bókarinnar. Þar er og að finna
stutt en greinargott yfirlit um ný-
yrðasmíði fslendinga á síðustu ára-
tugum.
Eðvarð Ámason hefur séð um
útgáfu bókarinnar og annazt próf-
arkalestur. Bókin er prentuð í AI-
þýðuprentsmiðjunni h.f.