Vísir - 18.10.1965, Page 1
VISIR
55. árg. — Mánudagur 18. oktðber 1965. — 237. tbl.
Nýr hafnarbakki fyrir
fískibáta við Örfirisey
Miklar framkvæmdlr hafa
verið við Reykjavíkurhöfn
að undanförnu. Hafa þær aðal-
.
lega belnzt að Norðurhöfninni
sem kölluð er, það er að gera
viðlegupiáss við Norðurgarðinn
og bryggjur í knkanum hjá
Sfldarverksmlðjunni í Örfirisey.
Er það bryggjupláss sem nú
fæst allt ætlað fiskiskipaflotan-
um.
Fyrir nokkru er lokið við
smíði bryggju út frá Síldarverk-
smiðjunni og bætist við með
þeirri bryggju 150 metra við-
legupláss.
Þá eru nú langt komnar miklar
framkvæmdir við Norðurgarö
inn svokallaða, sem liggur frá
Örfirisey og út að hafnarmvnni.
Við hluta af honum hefur verið
gerð mikil uppfylling, en þama
er fiskiskipum ætlað pláss, það
er um 150 metra hafnarbakki
sem þama bætist við, svo að
fimm bátar geta legið þar hver
aftan við annan.
Verk þetta hefur gengið mjög
vel og er búizt við að þetta nýja
viðlegupláss verði tilbúið til
notkunar fyrir byrjun vetrarver-
tíðarinnar næstu. Með þessu
eru stórbætt skilyrði fyrir fiski-
skip í Reykjavíkurhöfn.
Fréttamaður Visis flaug nú fyrir helgina yfir Reykjavíkurhöfn og tók þessa mynd af hinni nýju
uppfyllingu og viðleguplássi hjá Sfldarverksmiðjunni í Úrfirisey. Á myndinni sést glöggt athafna-
svæðið á uppfyllingunni meðfram Norðurgarðinum og ennfremur nýja bryggjan sem gerð hefur
verið við Sfldarverksmiðjuna. Þegar myndin var tekin var verksmiðjan 1 fullum gangi og stóö snjó-
hvftt reykskýið úr reykháf henpar ásamt lyktinni og beint á haf út eins og myndin sýnir.
Útvarpsumræða um
I kvöld
í kvöid fer fram fyrsta umræða
um fjárlagafrumvarpið fyrir 1966
og er það úvtarpsumræða. Fram-
söguræðuna flytur Magnús Jóns-
son fjármálaráðherra og hefst hún
kl. 20.00. Síðan fá þingflokkarnir
hálfrar stundar ræðutíma í þess-
ari röð: Alþýðubandalag, Alþýðu-
flokkur, Framsóknarflokkur. Loks
hefur fjármálaráðherra stundar-
fjórðung til andsvara.
Fjárlagafrumvarpið var lagt
fram í þlngbyrjun, sem kunnugt
er og er það fyrsta mál þingsins.
Þess hefur áður verið getið ítar-
lega hér í blaðinu.
Dettur haustsíldarvertíðin
við Vesturland alveg niður?
Nær engín s'ild hefur veiðzt jbar á Jbeim átta vikum, sem liðnar eru af vertiðartímanum
Nær engin síld hefur veiðzt
á þessu hausti í Faxaflóa og
við Snæfellsnes og skýtur
þar mjög skökku við fyrri
haust. Oft hefur veiðin „út af
Jökli“ hafizt í ágúst og náð
hámarki um þetta leyti, um
miðjan október, en f þetta
sinn hefur lftið fundizt.
Síldarbátar hafa við og við
haust verið að þreifa fyrir sér í
Faxaflóa en án árangurs og síld
arleitarskipið Hafþór leitaði á
svæðinu í nokkra daga, en einn
ig án árangurs. Á miðvikudag-
inn í síðustu viku fengu þó
þrjú skip afla út af Grundar-
firði, Grundfirðingur I., Farsæll
og Valafell, og örlítið hefur
veiðzt af
Sundum.
smásíld hér inni á
Skipstjórar á stóru síldveiði
skipunum hafa ekki haft áhuga
á þessum veiðum, því aflahrot-
an á síldveiðinni fyrir austan
hefur staðið yfir frá því fyrir
mánaðamót og von á góðri veiði
áfram, ef vel gefur á sjó. Þessa
dagana hefur verið leiðindaveð-
ur eystra og i nótt fengu aðeins
níu skip afla samtals 2650 mát
og tunnur.
Hér vestra hefur einnig verið
ruddaveður um helgina og var
enn í morgun og öll síldarskip
lágu inni.
Sviplegt dauðsfall varð vestur í
Selbúðum í Reykjavík aðfaranótt
laugardagsins eða á laugardags-
morguninn. Stendur yfir rannsókn
i þvf máli hjá rannsóknarlögregl-
unni og hvort þaö kunni að vera
af mannavöldum eða ekki. Lik-
krufning áttS að fara fram fyrir
hádegið í dag og þar til að hún
hefur leitt eitthvað f ljós telur lög-
reglan sig ekki geta sagt neitt á-
kveðið.
Atburður þessi varð í húsinu
Selbúð 3. Það er allstór portbygg-
ing og í henni býr fjöldi fólks, m.
a. óreglufólk og aðrir þeir sem
orðið hafa — einhverra orsaka
vegna — útundan í lífsbaráttunni.
Meðal annars búa í þessu húsi
margir þeirra sem bjuggu í Pólun-
um gömlu áður en þeir voru rifnir.
Meðal íbúanna í Selbúð 3 eru
hjón, barnlaus, og konan mun vera
um 20 árum eldri en eiginmaður-
inn. Þau eru bæði nokkuð drykk-
felld, og telja nágrannarnir, að
í íbúð þeirra sé oft háreysti mikil
og drykkjulæti fram eftir öjlum
nóttum, en mest þó um helgar, eða
eftir að bóndinn hefur fengið kaup-
greiðslu á föstudögum. Mun oft
hafa komið til einhverra átaka milli
hjónanna í þessum drykkjulátum.
Síðastliðinn laugardagsmorgun.
sennilega nálægt kl. 11 f. h. kom
Framh. á bls. 5