Vísir - 22.10.1965, Blaðsíða 6
6
VlSIR . Föstudagur 22. október 19s5.
Frá bókauppboðinu í gærkvöldi Sigurður Benediktsson uppboðshaldari með bók i höndum og við hlið hans
uppboðsritarar. Fremst á myndinni sést á hnakka Páls Jónssonar bókavarðar og við hlið hans á Böðvar
Kvaran skrifstofustjóra.
Dýrasta ritiS var slegið
á 15000 króaur
Á bókauppboðl Sigurðar
Benediktssonar f gær — því
fyrsta sem haldið hefur verið á
þessu hausti fóru ýmsar bækur
á sanngjömu verði, jafnvel ó-
dýrt, þótt aðrar færu nógu hátt.
í meginatriðum gerðu menn þar
góð kaup.
Nýtt leikrit Jökuls
Jukobssonur
frumsýnt
Á þriðjudagskvöld frumsýnir L.
R. leikrit Jökuls Jakobssonar, sem
hlotið hefur 'nafnið „Sjóleiðin til
Bagdad“.
Tónlist við leikritið er eftir Jón
Nordal, leikstjóri er Sveinn Einars
son leikendur þau Guðrún Ás-
mundsdóttir, Inga Þórðardóttir,
Valgerður Dan, Steindór Hjörleifs
son, Helgi Skúlason, Gestur Páls-
son og Brynjólfur Jóhannesson.
Leikmynd er eftir Steinþór Sig-
urðsson.
Dýrasta ritið á uppboðinu
var Skímir frá 1855—1958,
samtals röskir 100 árgangar á
15 þúsund krónur.'
Aðrar bækur, sem fóru á 1000
krónur eða þar yfir voru Akur-
eyrar-Iðunn 1300 kr., Iðunn
Bjöms Jónssonar 1400, nýja Ið-
unn 1300 kr., Eimreiðin 5500,
Dvöl (1933—46) 1200, Járnsíða
1700, Ævisaga Jóns Eiríkssonar
1600, Lagasafn og hrafl af
Stjómartíðindum 1100, Lög-
fræðingur I—V 2500, Ferðabók
Olaviusar 12000, Sunnanfari
I—XIII 8500, Turistruter paa
Island I—V 1000, Vestur-Skafta-
fellssýsla og íbúar hennar 2500,
Lexicon poeticum (1931) 2200
kr., Lestrarbók Þorvaldar Böðv-
arssonar 1200, Líkprédikun yfir
Gísla Magnússyni 1700, Fjölnir
og eineygði Fjölnir 1500 kr„ Að-
finning við eineygða Fjölni 2700,
Garðyrkjufélagsársritið (1895—
1901) 2100, Garðyrkjufélagsárs-
ritið (1920—34) 2500, Frón I—
III 1000, Electron I—VI 1000
íslenzk fyndni (1—25) 1200,
ferðabók Mackenzie 1700, The
Birds of Iceland 1000, Ferðabók
Þorvaldar Thoroddsen 4600,
Ástkær eiginmaður, faðir og tengdafaðir
GUÐBJARTUR ÁSGEIRSSON
Lækjargötu 12 B Hafnarfirði
verður jarðsunginn á morgun laugardaginn 23. þ. m. kl. 3,30
e. h. frá Hafnarfjarðarkirkju.
Herdís Guðmundsdóttir
böm og tengdaböm.
Faðir okkar
KRISTINN STEINAR JÓNSSON
Laufásvegi 50
andaðist í Landakotsspítala að kvöldi hins 20. okt.
Börn hins látna.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
GEIRS KONRÁÐSSONAR kaupmanns
Guðbjörg G. Konráðsson,
Guðmundur S. Kristinsson.
leikrit Davíðs Stefánssonar
1100, Ijóðasafn Davíðs Stefáns-
sonar I—VII 2300, Munaðarleys-
inginn 2500, Leikhúsmál 1500,
Reykjavíkurpósturinn I—III
2200, Llf og list 1000, Leiðir og
lendingar I—II 1500, Láki 1100,
Búalög (Hrappsey) 1600, I upp-
námi I—II 1100, Skýrsla Bessa-
staðaskóla 2500, og Skýrsla
Lærðaskólans 4500 krónur.
gsamm
Súsanna —
Framhald af bls. 1.
ion skipafélagsins í Hamborg,
sem mun eiga átta eða níu
skip flest flutningaskip af líkri
stærð og Susanna Reith.
Eins og áður hefur verið sagt
frá í fréttum óskuðu eigendum
ir eftir því að lögbann yrði
lagt á skipið nú í haust, en
þeir lögðu ekki fram 2 milljón
króna lögbannstryggingu, svo
að kyrrsetningin féll þannig
sjálfkrafa niður.
Björgun h. f., sem gerir eignar
tilkall til skipsins getur ekki
fengið það lögskráð hér á landi
vegna þess, að það hefur ekki
verið afskráð í Hamborg. Ef
ekkert samkomulag næst myndi
því verða að fara í málaferli til
að fá það afskráð í Þýzkalandi.
En þess e.t.v. að vænta að lín
umar í þessu máli fari að skýr
ast nú við komu hins þýzka
skipseigenda til landsins
Susanna virðist vera í góðu
ástandi þar sem hún nú liggur
samansoðin um mittið. Hún
lekur ekkert og vélar hennar
ganga. Engar vemlegar skemmd
ir hafa orðið f klefum áhafnar
og mætti taka hana I notkun
með Iftlli fyrirhöfn.
Merkileg —
Framh. af bls. 1
stöðva mælinálina er sýnir
hraða bifreiðarinnar og hún er
þannig sönnunargagn gegn
beim sem tekinn er fyrir of
hraðan akstur.
Það er auðvelt að koma tæki
þessu fvrir í bifreiðum lögregl
unnar og beina geislanum þann
ig að beim bifreiðum sem lög
reglubjónar telia að gerist brot
'egar eegn reehim um öku-
braða. Þetta fvrsta tæki er
fengið til revnslu o<j v'rðist af
ölium aðctn^nm nð t>að eisi
"'rS npfp citnrf
’^nnar. Fram aö ^ecsM ba^a lö^
rnorVpfS Viraða bíf-
— -»i <-» *. moK oVo A ftffí-
beim og líkri ferð og þær eru,
eða með þv£ að setja mæliverði
meðfram akbraut á tveimur
stöðum og er erfitt um sönnun-
araðstöðu. Sú aðstaða ætti að
gerbreytast við tilkomu þessa
nýja tækis. Radar-tæki af ýms-
um gerðum hafa verið I notkun
við umferðargæzlu vfðsvegar f
Bandaríkjunum um langt ára-
bil og eru þau viðurkennd sem
óyggjandi sönnunargagn um
hraða bifreiða. Verður fróðlegt
að fylgjast með hvemig þetta
tæki reynist hér, vonandi get-
ur það stuðlað að bættu um-
ferðaröryggi, sem svo mikil
þörf er fyrir.
Rannsókn —
Framh. af bls. 16
Rannsókn í brennumálinu stóð
yfir f allan gærdag hjá bæjarfógeta
embættinu í Hafnarfirði. Auk þess
var nærliggjandi hreppstjórum og
lögreglustjórum gert aðvart um
brunann og þeir beðnir að vera vel
á verði og fylgjast með bílaferðum.
Lögreglan f Keflavík mun hafa tek-
ið tvo bifreiðarstjóra til yfirheyrslu
í gær og fannst bifreið annars
þeirra benzínlaus á Keflavfkurveg-
inum í gærmorgun. Hilmar sagði
að sér hefði enn ekki borizt skýrsla
frá lögreglunni um þessar yfir-
heyrslur en bjóst ekki við að þaðan
væri neins fréttnæms að vænta,
því þá myndi lögreglan vera búin
að láta sig vita.
í Hafnarfirði voru m. a. smiðir
þeir og verkstjóri kvaddir fyrir rétt,
sem að byggingunni höfðu staðið,
m. a, til að fá upplýst hver verð
mæti hafi verið gevmd í skýlinu
og hvort líklegt sé að einhverju
hafi verið stolið úr því. Ennfrem-
ur voru lögregluþjónar kvaddir
fyrir rétt, sem farið höfðu að
Straumi skömmu áður en eldsins
varð þar vart. En þeir urðu einskis
varir, eins og skýrt var frá í Vísi
í gær. Leið þó ekki nema hálf klst.
frá því að þeir voru á staðnum og
þar til skýlið stóð f björtu báli.
Fulltrúi bæjarfógeta sagði að
benzínbrúsamir hefðu verið sendir
tæknideild rannsóknarlögreglunnar
f Reykjavík til athugunar. Að lok-
um sagði hann, að enn hefði ekkert
það komið fram sem leiði grun í
ákveðna átt. Rannsókn í málinu
verður haldið áfram eftir því sem
tilefni verður til.
Barnaverndardagur
Framh. af bls. 16
framlagi. Með þvf fé sem félag
ið hefur lagt fram síðan og
þeim gjöfum sem sjóðnum hafa
borizt nemur hann nú rúmri
einni milljón króna. Sfðast í
gær afhenti Bamaverndarfélag-
ið sjóðnum 100 þúsund krón-
ur að gjöf_
Er forráðamenn sjóðsins
ræddu við blaðamenn í gær,
sögðu þeir að þörfin fyrir heim
ili fyrir taugaveikluð börn væri
mjög brýn, miklu brýnni en al-
menningur gerði sér grein fyrir.
Væru mörg börn svo illa á sig
komin að nær ótækt væri að
hjálpa þeim öðru vísi en koma
þeim á sérstakt heimili þar sem
þau gætu notið umönnunnar sér
! menntaðs fólks. Yrði hafizt
handa um byggingu heimilisins
eins fljótt og auðið yrði fjár-
hagsins vegna.
Á þessu ári hafa sjóðnum bor
izt um 270 þúsund krónur, en
árið er enn ekkj búið og því
óvíst hve há upphæðin verður
í árslok. Sjóðurinn hefur nú
°efið út minningarkort sem far
ið er að selja í Bókaverzlun
S'gfúsar Evmundssonar og á
Biskupsskrifstofunni..
í stjórn Heimilissjóðs tauga-
veiklaðra barna eru: Prófessor
Matthfas Jónasson, Jónas B.
Jónsson fræðslustjóri, Sigur-
jón Bjömsson sálfræðingur og
Ingólfur Ástmarsson biskups-
ritari.
Á morgun, á fjáröflunardegi
Bamavemdarfélags Reykjavfk-
ur verða seld merki félagsins og
bamaritið Sólhvörf, sem Anna
Snorradóttir hefur tekið sam'
an. Hvort tveggja verður af-
hent sölubömum f öllum bama
skólum Reykjavíkur og Kópa-
vogs kl. 9—4.______
Ljósmyndar um
350 bæi á
Vestfjörðum
Þegar Búnaðarsamband Vest-
fjarða verður sextugt er ætlunin
að gefa út mikið rit, þar sem birta
á myndir af öllum bæjum á sam-
bandssvæðinu og ábúendum þeirra.
Ferðaðist Jón A. Bjamason ljós-
myndari á ísafirði um sambands-
svæðið f sumar og tók myndir af
um 300 bæjum og ábúendum
þeirra.
Er Vísir hafði tal af Jóni kvaðst
hann eiga eftir að ljósmynda bæi
á svæði við ísafjarðardjúp. Þegar
verkinu væri lokið myndu liggja
fyrir myndir af um 350 býlum f
byggð og í eyði. Kvað hann mikið
vera af eyðibýlum á Vestfjörðum,
meira en hann hefði haldið og
fækkaði stöðugt byggðum bæjum.
Drukkinn —
Framhald af bls. 1.
hlið ökumannsins. Hann hlaut all
mikla áverka á andlit og var flutt
ur f Landakotsspítala að lokinni
bráðabirgðarannsókn í slysavarð-
stofunni.
Þegar læknir tók að athuga
hugsanleg meiðsl á hinum
drukkna ökumanni, varð ökumað
urinn óður og kom til mikilla á-
taka hvað eftir annað milli hans
og lögreglumanna og að lokum
var ekki annað úrkosta en setja
manninn í jám. Hann var síðan
fluttur í fangageymslu og mun
þurfa að standa fyrir máli sfnu
einhvern tíma í dag. Hann var
mjög drukkifcn og dró heldur
enga dul á það sjálfur þegar hann
var tekinn.
í strætisvagninum sakaði eng-
an.
Athugasemd
Vegna fréttar, sem birtist f
Morgunblaðinu 8. þ.m. og greinar,
sem hr. Ragnar Ásgeirsson hefur
sent dagblöðunum og ber fyrir-
sögnina „Opið bréf til dómsmála-
ráðherra", vil ég leyfa mér að
taka eftirfarandi fram:
Það er rangt að ég hafi lýst því
yfir, að ölvun við akstur og of
hraður akstur væru 95% allra um
ferðarslysa. Hér er um misskiln-
ing að ræða af hálfu blaðamanns,
sem mætti á blaðamannafundi hjá
Umferðamefnd Reykjvíkur og sam
starfsnefnd tryggingafélaganna,
en þar lýsti formaður samstarfs-
nefndarinnar, hr Egill Gestsson,
þvf yfir, að of hraður akstur, gá-
leysi og ölvun við akstur væri or-
sökin fyrir 95% allra umferðar-
slysa hér á landi.
Einnig finnst mér rétt að benda
á það, í sambandi við þessi blaða-
skrif, að samkvæmt upplýsingum
frá rannsóknarlögreglunni, fékk
hún 2995 umferðarslys til rann-
sóknar á sl. ári og talið er að í
95 tilfellum hafi orsökin verið öiv
un. Er hér ekki eingöngu átt við
ölvun við akstur, heldur ölvaða
vegfarendur almennt, sem talið
er að hafi valdið slysi.
Virðingarfyllst,
Pétur Sveinbjamarson,
fulltr. Umferðardeildar
Gatnamálastjóra.