Vísir - 22.10.1965, Blaðsíða 8

Vísir - 22.10.1965, Blaðsíða 8
8 V í S I R . Föstudagur 22. oktúber 19s5. VÍSIR Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ó. Thorarensen Auglýsingastj.: Halldór Jónsson Sölustjóri: Herbert Guðmundsson Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald: kr. 80,00 á mánuði innanlands f lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Nýir menntaskólar \ síðasta þingi var samþykkt að reistir skyldu menntaskólar á Vestfjörðum og Austurlandi, þegar Alþingi veitti fjárveitingar til þeirra framkvæmda. Var þessi ákvörðun í fullu samræmi við þá stefnu núverandi ríkisstjórnar að auka fjárveitingar til skóla- mála og byggja nýja mennta, gagnfræða og barna- skóla. í fjárlagaræðu sinni gat Magnús Jónsson þess, að þótt veitt væri nú byrjunarfjárveiting til þessara tveggja menntaskóla kæmi að sjálfsögðu ekki til mála að hefja byggingu þeirra skóla fyrr en viðunandi ástand hefði fengizt í sambandi við hina mennta- skólana. Er þar fyrst og fremst nauðsynlegt að stór- stækka byggingar Menntaskólans á Akureyri, hraða byggingu nýja menntaskólans í Hamrahlíð og auka við húsrými Laugarvatnsmenntaskólans. AUt eru þetta aðkallandi framkvæmdir og fer vel á því að ekki eru áhöld um þá stefnu að vinna þær áður en hafizt verður handa um byggingu fleiri menntaskóla. Lýðræði götunnar ^llar líkur eru til þess að í fyrrinótt hafi brennu- vargar verið á ferð við Straum og lagt eld í nýju toll- búðina þar. Minnir sá atburður á þau lítilmenni, sem í skjóli myrkurs sprengdu myndastyttuna í Tjörninni. í bæði skiptin hefur yfirgangseðlið og skrílsmennsk- an náð yfirhöndinni — mótmælin borin fram að hætti sjúkra afbrotamanna. Vitanlega tefur bruni tollbúð- arinnar ekki opnun hins nýja Keflavíkurvegar um einn dag, eða frestar ákvörðuninni um innheimtu vegaskattsins. En bruninn sýnir að til eru þau öfl í þjóðfélaginu, sem ekki hafa heyrt getið um lýðræðis- legar bardagaaðferðir, en kjósa að láta andúð sína á stjórnarathöfnum í ljós með ofbeldi og lögbrotum. Því framferði verður að svara með viðeigandi ráðum. Hrópað á byggingarhöft J>jóðviljinn og Tíminn kvarta nú dag eftir dag undan því að leyft er hindrunarlaust að byggja íbúðarhús og verzlunarhús í landinu. Hrópa þessi málgögn á hömlur og eftirlit með slíkum byggingum og helzt strangar takmarkanir. Halda þau að þjóðin hafi gleymt Fjárhagsráði og þeim eftirminnilegu haftaár- um, þegar menn um allt land voru sektaðir fyrir að byggja sér bílskúra og steingirðingar? Vilja þessir flokkar innleiða svipað haftaástand aftur í íslenzkt þjóðfélag? Annað er ekki að skilja á skrifunum. Friður saminn í fiskveiði- deilu Breta og Færeyinga Endanlegur friður hefur nú loksins verið saminn í „þorska strfðinu“ milli Færeyinga og Breta. Gerðist þetta með þeim hætti að samkomulag varð milli færeyskra útgerðarmanna og nefndar brezka útvegsins um að lina á hömlum á innflutningi færeysks fisks til Bretlands. Þegar Færeyingar lýstu yfir 12 mílna landhelgi, skapaði það mikla reiði meðal enskra tog- aramanna, svo að þeir komu á í hefndarskyni takmörkunum á fisklöndunum Færeyinga. Árið áður höfðu Færeyingar selt til Bretlands fisk fyrir 1,2 milljónir sterlingspunda, en nú var ákveð ið að takmarka það við 850 þúsund sterlingspund. Eins og geta má nærri hefur-þessi aftur- kippur í útflutningnum valdið færeysku útgerðinni miklum erfiðleikum og hefur það komið fyrir að skip þeirra sem komin voru til brezkra hafna hafa ver- ið rekin til baka með farm sinn. Að vísu hafa Færeyingar ekki verið í vandræðum með að selja afla sinn, en fá ekki eins gott verð á öðrum mörkuðum. Samkomulagið sem nú var gert gengur út á það, að hækka þennan færeyska innflutnings- kvóta upp í eina milljón ster- lingspunda á ári. Ein ástæðan fyrir því að brezku útvegsmennimir reiddust Færeyingum svo mjög segir blaðið Fishing News var sú, að meðan erlendum togurum var bannað að veiða innan 12 mílna landhelginnar fengu færevskir togarar að halda áfram veiðum þar. Nýjasta sjúkrabifreiðin í Reykjavík. Sjúkraflutningar jukust um 20% á s.L ári. Sjúkrabifreiðirnar í Rvík fóru meira en 13 þús. ferðir á sl. ári Frá aðalfundi Reykjav'ikurdeildar Rauða krossins Aðalfundur Reykjavíkur- deildar Rauða kross íslands var haldinn I s.l. mánuði 1 Tjamar- búð. Varaformaður deildarinnar Óli J. Ólason, stórkaupmaður, bauð fundarmenn velkomna, en hann hefur gengt formanns- störfum í nálega 2 ár í veik- indaforföllum formanns, sr. Jóns Auðuns, dómprófasts. Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri hefur gengt starfi varaformanns á sama tímabili. Formaður flutti skýrslu um störfin á s.l. ári Starfsemi deild- arinnar var með líku sniði og áður. Sumardvalir bama. Á starfstímabilinu naut sam- tals 701 barn sumardvalar í sveit á vegum deildarinnar alls 38.120 dvalardaga. Einkum voru látin sitja fyrir böm frá heim- ilum þar sem aðstæður voru erf- iðar, sökum veikinda eða af öðrum orsökum. Færði for- maður þeim frk. Jónu Hansen og frk Danfríði Ásgeirsdóttur, forstöðukonum sumarbúðanna, þakkir fýrir mikil og óeigingjörn störf. Kvað hann þörfina fyrir sumardvalir bama aukast ár frá ári, og væri lagt að deildinni að auka þessa starfsemi sfna svo sem unnt væri. Það væri þó miklum erfiðleikum bundið, m. a. vegna mikils viðhaldskostnað- ar húseignarinnar, að Laugar- ási. Rekstur sjúkrabifreiða. Deildin á nú þrjár sjúkra- bifreiðir sem staðsettar eru á Slökkvistöð Reykjavíkur, og er ein þeirra ný-tekin til notkunar. Það óhapp vildi til i nóvember 1964, að ný sjúkrabifreið sem deildin hafði eignazt fyrir nokkrum mánuðum, gereyði- lágðist í árekstri, en deildin fékk þá lánaða eldri bifreið frá Hafnarfjarðardeild R.K.Í. meðan beðið var eftir nýrri. Nú er ný bifreið í pöntun og gert ráð fyrir að hún verði komin í notkun um áramót, því að þörf in eykst stöðugt. Á s.l. starfstímabili fóru sjúkrabifri.:ðir deildarinnar sam tals 13444 ferðir, og var það 20% aukning frá fyrra tímabili. Það sem af er þessu ári höfðu sjúkrabifreiðir Reykjavíkur- deildarinnar farið rúmlega 4500 ferðir. Hjálp í viðlögum. Deildin stóð fyrir kennslu í hjálp í viðlögum fyrir almenn- ing og starfshópa, og var sér- stök áherzla lögð á kennslu í blástursaðferðinni. Aðalkennari á námskeiðunum var Jón Odd- geir Jónsson. Sjúkrarúm og dýnur voru lánuð til sjúklinga í heimahús- um, og var sú aðstoð mjög vinsæl, Er nú unnið að því að endurnýja rúm og ' hjúkrunar- gögn tjl útláns. Á tímabilinu 1. jan. 1964 til 1. sept. 1965 voru 186 útlán á sjúkrarúmum, gegn vottorðum heimilislækna. Stjórn Reykjavíkurdeildar R. K. í. skipa nú: Óli J. Ólason, stórkaupmaður, formaður, sr. Jón Auðuns, dóm- prófastur, varaformaður, Ragn- heiður Guðmundsd. læknir ritari Jón Helgason, kaupm., gjald- keri, og þeir Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri, Páll Sigurðsson, tryggingayfirlæknir, og Eggert Ásgeirsson, fulltrúi, meðstjórn- endur. ,.am —iiiin iii fim iiinn iiuiii inniTT Efc—

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.