Vísir


Vísir - 07.12.1965, Qupperneq 4

Vísir - 07.12.1965, Qupperneq 4
 VlSIR . Þriðjudagur 7. desember 1965, í OFANVERÐUM októbermán- uði sóttu tveir fulltrúar ís- lenzkra viðskiptafræðinema mót samtaka norrænna verzl- unarháskólanema, sem að þessu sinni var haldið við Verzlunar háskólann i Stokkhólmi. Fuli- trúar íslenzkra viðskiptafræði- nema á þessu móti, sem haldið var dagana 17.—23. október si. voíu þeir Ragnar Einarsson og Ragnar Þór Magnús. Við rædd um við Ragnar Einarsson um þetta mót og einnig höfðum við tal af Júlíusi Sæberg Ólafssyni, sem er formaður íslandsnefnd- ar alþjóðasamtaka viðskipta og hagfræðinema, og inntum hann eftir þvi helzta, er þau samtök hafa á starfsskrá sinni. Ragnar Einarsson skýrði okk ur svo frá, að íslenzkir við- skiptafræðinemar hafi orðið þátttakendur í samtökum nor- rænna verzlunarháskólanema fyrir tveimur árum, en alls eiga 12 skólar, er útskrifa rekstrar- hagfræðinga, aðild að þessum samtökum. — Þetta er í fyrsta sinn, að íslenzkir viðskiptafræðinemar sækja mót samtakanna, sagði Ragnar, en mót þessi eru hald- in til skiptis við þá skóla, er eiga aðild að þeim, og verður hver skóli að taka á móti að minnsta kosti 100 fulltrúum auk sinna eigin. Að þessu sinni var mótið haldið við Verzlunarhá- skólann í Stokkhólmi, þar sem 1500 stúdentar stunda nám. Viðfangsefni á þessu móti var fyrst og fremst að hlýða á fyrir lestra um afstöðu Norðurlanda til markaðsbandalaga í Evrópu. Þeir, er að ráðstefnunni stóðu, sneru sér til sendiráða Norður- landaþjóðanna í Stokkhóimi og sænsku stjórnarinnar og ósk- uðu eftir að opinber fulltrúi hvers lands gerði grein fyrir af- stöðu þess til þessara mála og hlýddu þátttakendur á fulltrúa allra sendiráða nema hins ís- Ienzka, sem af einhverjum á- stæðum hafði ekki svarað beiðni mótsstjórnar. Margir fyrirlestrar voru fluttir, m. a. talaði Bertil Ohlin, sem er prófessor við IESEC gengst fyrir starfsskiptam viðskipta- og hagfræðinema Rætt við tvo viðskiptafræðinema um norrænt og alþjóðlegt samstarf Viðskiptafræðinemarnir Ragnar Einarsson og Júlíus Sæberg ölafss. þennan háskóla, um tildrög að stofnun markaðsbandalaganna og vandamál þeirra. Þá ræddu prófessorar og fulltrúar iðnrek- enda um ýmis mál þessu skyld, m. a. markaðsrannsóknir Norð- urlandanna innan bandalaganna. Okkur gafst tækifæri til að heimsækja ýmis fyrirtæki og kynnast rekstri þeirra. Við heim sóttum m. a. Philipsverksmiðj- urnar í Stokkhólmi og Electrolux rafr.ækjaverksmiðjurnar og rædd um við forstöðumenn þessara fyrirtækja um vandamál varð- andi útflutning og fleira. í lok mótsins var haldin for- mannaráðstefna fyrir skólana og sat Ragnar Þór þá ráðstefnu sem fulltrúi viðskiptadeildarinn- ar hér. Var þar aðallega rætt um fyrirgreiðslu um atvinnu fyr ir nemendur skólanna á hinum Norðurlöndunum. Ráðstefnan var gestgjöfunum til mikils sóma, enda var til hennar varið sem svarar 400 þús. ísl. króna og þó greiddu þátt takendur ferðir og nokkurt þátt- tökugjald. Má segja, að öil störf mótsins hafi farið fram í anda norrænnar samvinnu. Júlíus Sæberg Ólafsson er formaður nefndar alþjóðasam- taka viðskipt- og hagfræðinema, AIESEC, í viðskiptadeild Há- skóla íslands. — AIESEC eru ópólitísk sam- tök, sem stofnuð voru árið 1949, sagði Júlíus. Hlutverk þeirra er að auka kynna milli viðskipta og hagfræðinema og almenna þekk ingu þeirra og með þetta fyrir augum gangast samtökin fyrir gagnkvæmum starfsskiptum milli stúdenta, sem dveljast er- lendis um tveggja mánaða skeið að sumarlagi. í atvinnu hjá ein hverju fyrirtæki. Einnig eru haldin námskeið og ráðstefnur um hagfræði. Á hverju ári eru haldnar ráðstefnur allra aðildar- ríkja, þar sem starfsskiptin milli þjóða fara fram. Þá hafa fulltrúar í hverju landi kannað, hversu mörgum útlendingum sé unnt að bjóða til sumardvalar og eru skiptin ákveðin á ráðstefn- unni. Þess má geta til gamans, að á síðustu ráðstefnu, sem haldin var í Helsinki, voru á- kveðin gjöld einstakra landa til samtakanna. Var löndunum skipt í þrjá flokka og lagðar til grundvallar skýrslur Sameinuðu þjóðanna um meðaltekjur á hvern mann í viðkomandi lönd- um. Þessi skipting olli því, að við íslendingar erum í efsta flokki ásamt V-Þjóðverjum, Svisslendingum, Svíum og fleiri auðugum þjóðum. Okkur er þvi gert að greiða sem svarar 7000 fsl. krónum til samtakanna, en, því miður hefur erfiðlega geng- ið að afla þessa fjár. Mennta- Opið kvöld í Félagsheimilinu málaráðuneytið hefur veitt okk ur 15 þús. kr. styrk á ári hverju en því fé hefur verið varið til ferðalaga fyrir fulltrúa okkar á ráðstefnum. Við kunnum vel að meta þessa ágætu aðstoð menntamálaráðuneytisins, en við teljum tímabært orðið, að leita til einkaaðila um styrk. Næsta ár verður ráðstefna hald- in í Tel Aviv og ferðakostnað- ur næmi því um 20 þús. krónum og helzt þyrfti að senda tvo fulltrúa, ef við ætlum að sýna fullan áhuga á þessu samstarfi. íslendingar gengu í AIESEC árið 1961 og það sumar kom Framh. á bls. 6 Félagsheintilið Dagsskrá vikunnar Þriðjudagur 7. des.: Opið hús. Miðvikudagur 8. des.: Leshring- ur. Afstaða Frakka og fram- tíð NATO. Opið hús. Fimmtudagur 9. des.: Kynning- arkvöid fyrir kennaraskóla- nemendur. Leshringur: Hug- myndir um sameiginlegan kjarnorkuher og afvopnun. Föstudagur 10. des.: Opið hús. NATO-leshringirnir Fyrsti NATO-leshringurinn af fjórum, sem Heimdallur gengst fyrir um þessar mundir, var sl. föstudagskvöld. Skýrðar voru hinar ýmsu greinar Atlantshafs samningsins svo og skýrt frá starfsemi og starfstilhögun NATO. Margir tóku þátt í um ræðum og var víða komið við. Rétt er að. geta þess, að nokkuð var ræddur sá misskilningur, er virðist ótrúlega útbreiddur og óspart ei; alið á af ýmsum að- iljum, að Varnarsamningurinn við Bandarlkin sé innifalinn í At- lantshafssamningnum. Að sjálfsögðu er þessu ekki þannig farið, heldur er Vamar samningurinn frá 1951 sjálfstæð ur samningur við eitt ríki, Bandaríkin, og við afnám þessa samnings er því aðeins við Bandaríkin að eiga, en úrsögn úr NATO þarf alls ekki að koma til. En nú hafa andstæðingar NATO beitt þessum misskilningi fyrir áróðri sínum, alið á hon um, og falið sig bak við vig- orðin „Mót her í landi“. En þessi tilbúni skjöldur þeirra er algjörlega haldlaust hjóm eitt og blekking. Síðari leshringimir verða nán ar auglýstir síðar, og er full ástæða að hvetja menn að vera með. Skólamál rædd / „Verzló '44 í sl. viku efndi M.F.V.l. til mál fundar um skólamál. Var fundur þessi vel sóttur sem aðrir mál- fundir skólans. Umræður urðu aðall. um námsefni og kennslu fyrirkomulag, og var ákveðið að skipa 5 nemendur til að endur skoða námsefni og kennslubæk ur skólans. Skyldu þeir skila áliti til skólanefndar. Þá var rætt um nauðsyn þess að um // valfög yrði að ræða í skólanum og inntökuprófum þyrfti að breyta. Töluverðrar óánægju gætti um skólagjaldið en það er nú 5600 krónur. Um kennaralið skólans urðu harðar umræður, en að lok um urðu nemendur ásáttir um ágæti þeirra. Lauk fundi þessum síðla kvölds og má segja að slík ir fundir séu mjög gagnleeir nem. og skólum._______________

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.