Vísir - 07.12.1965, Side 8

Vísir - 07.12.1965, Side 8
BSI, 8 'im Otgefandi: Blaðaútgáfan VISIR Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ó Thorarensen Auglýsingastj.: Halldór Jónsson Sölustjóri: Herbert Guðmundsson Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald: kr. 90,00 á mánuði innartlands f lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f. Hverfur de Gaulle? J>að þóttu hvarvetna mikil tíðindi, er það barst út um heimsbyggðina í gær að De Gaulle hefði ekki hlotið nægilegan meirihluta til forsetakjörs í fyrstu atrennu — aðeins 44% greiddra atkvæða. Var það ekki sízt vegna þess að hann hefur lýst því yfir að ef hann hlyti ekki 50% atkvæða myndi hann draga sig í hlé. Margt mundi breytast í málum Evrópu, ef svo færi. De Gaulle er nú á góðum vegi með að sundra Efnahagsbandalagi Evrópu, þeirri merku tiiraun sem þar er gerð, og hyggst einangra land sitt frá varnarsamtökum vestrænna þjóða, Atlantshafsbandalaginu. Fyrir einingu Evrópu og sam vinnu þjóða álfunnar væri því ótvíræður hagur að nýjum manni í forsetasæti í Elyseéhöll. Merkt heilbrigðisstarf [>að er full ástæða til þess að vekja á því athygli hve gott og merkilegt starf áhugamenn um heilbrigðisefni vinna um þessar mundir hér í borg. Krabbameins- félagið hefur nú rannsakað þúsundir kvenna og fund- izt hafa sjúkdómseinkenni hjá um 40 konum. Hið mikilvæga er að stöðva sjúkdóminn á byrjunarstigi, og því má vissulega segja að þó nokkrar konur eigi líf sitt að launa þessari umfangsmiklu rannsókn. Sést af því hve mikilvægt áhugamannastarf hér er unnið af Krabbameinsfélaginu. Þá hyggst Hjarta og æðaverndarfélagið gangast fyrir hóprannsóknum á vissum aldursflokkum til þess að finna hjartasjúk- dóma, sem stafa af æðakölkun. Vissulega er þetta hið þarfasta verk og ber vonandi góðan árangur. Hér hafa leikmenn sem lærðir gengið saman til átaka við sjúkdómana, utan heilbrigðiskerfis ríkisins, og ber vissulega vel að meta það mikla og góða framtak sem í því felst. Lögregluríki JJngur íslendingur sem dvelst í Rhodesiu ritaði grein hér í blaðið fyrir fáum dögum og finnur ekkert at- hugunarvert við stjórnarfarið þar. Ekki sýnir hann ýkja mikla skarpskyggni, og erfitt er að vera sam- mála ályktunum hans. Sannleikurinn er sá að Rhode- sia er nú lögregluríki, blöð eru ritskoðuð, mannrétt- indi mjög takmörkuð og andstæðingum Smiths varp- að í fangelsi án dóms og laga. Til lengdar getur fá- mennur hópur hvítra manna ekki kúgað 4 milljónir litaðra með slíkum brögðum, sem minna á verstu verk Verwoerds. Sameinuðu þjóðirnar hafa mál Rhode siu til meðferðar og það er vonandi að rödd Islands heyrist þar meðal gagnrýnenda slíkra stjórnarhátta. VÍSIR Þriðjudagur 7. desember 1965. GOÐURLANDKYNN- INGARBÆKLINGUR Litbrá h.f. í Reykjavík hel'ur «ða myndabók, sem heitir sent á markaðinn litla litprent- „Reykjavík í dag“. Ný bók frá hendi Ævars R. Kvarans Frá hendi Ævars R. Kvarans leikara og rithöfundar hefur komið ný bók á markaðinn „Gildi góðleikans“ en það er safn rösklega 20 ritgerða um merka og sérstæða menn, óleyst ar gátur og ókunn svið. Um bók sína kemst höfundui inn sjálfur að orði, að í henni reyni hann með ýmsum ólíkum frásögnum að sýna hvemig það kemur ævinlega í ljós að lokum að kærleikurinn er sterkasta afl ið, sem maðurinn getur kynnzt Höfundurinn leiðir fram í bók inni hinar hatrömustu andstæð ur milli afla myrkursins annars vegar sem leiða til mannfórna, mannfyririitningar og skelfingar 0g hins vegar afla góðleiks og kærleika og þvílíkum ótrúlegum afrekum og árangri unnt er að ná í skjöli þess. Ævar R. Kvaran er enginn ný liði á ritvellinum og fyrri bækur 'ians hafa allar náð mikilli hylli vegna þess hve vel honum tekst að glæða frásögn sína lífi og gera hana læsilega og skemmti lega. Þeirra einkenna gætir í ríkum mæli einnig í þessari nýju bók hans. „Gildi góðleikans" um 200 síð ur að stærð, prentuð á góðan pappír og annar ytri frágangur hinn snyrtilegasti. Ægisútgáfan gaf út. í bókarkveri þessu eru sam- tals 34 litmyndir sem þeir Krist inn Sigurjónsson og Rafn Hafn fjörð, eigendur Litbrár hafa sjálf ir tekið að langmestu leyti. Text ann hefur Valdimar Kristinsson skrifað. í bæklingnum eru bráðsnotrar yfirlitsmyndir af Reykjavík, höfninni og fjallahringnum í kring, sumar þeirra teknar úr lofti. Þá eru sýndar ýmsar bygg ingar svo sem Alþingishúsið, Háskólahverfið og Hótel Saga, Stjórnarráðshúsið, sambýlishús og „villur“. — Myndir frá höfninni, Tjörninni, frá Árbæjar safninu, úr görðum og af lista verkum, þjóðbúningi, bömum að leik o. fl. Yfirleitt er reynt að gera höfuðborginni skil í fáum, en skýrum og glöggum dráttum og draga höfuðeinkenni hennar sem bezt fram. Myndirnar eru allar teknar á þessu ári og mjög vandað til frágangs og prentunar. Kverið er í grallarabroti og verði þess stillt í hóf. Það má i hvívetna mæla með því sem vina- eða jólagjöf, ekki sízt til gjafa út fyrir landssteinana I því er góð landkynning. Tvær norskar bækur í íslenzkri þýðingu frá Ægisútgáfunni Vísi hafa borizt tvær skáld- sögur, báðar þýddar úr norsku, sem nýkomnar eru á markað- inn frá Ægisútgáfunni. önnur þessara sagna „Leikur örlaganna“ er eftir norsku skáldkonuna og Nóbelsverð- launahöfundinn Sigrid Undset sem ásamt Selmu Lagerlöf, verð ur að teljast ein mikilhæfasta skáldkona Norðurlanda fyrr og síðar. Söguefni bókarinnar er um þrá ungrar stúlku til að verða leikkona og hvemig líf hennar þróast í baráttu milli leiklistar innar og heimilislífsins, eigin manns og barna. Þetta er mikil saga og skyggnzt inn í sálarlíf söguhetjunnar af miklu djúp sæi og skilningi, enda er Sigrid Undset fræg fyrir sálarlífslýs- ingar sínar. Þessi bók svíkur engan sem gerir kröfur til góðra bókmennta. Hin sagan heitir „Örninn í Hagafjalli“ eftir Steinar Hunne stad Hún er byggð á sannsögu legum atburði og er því mitt á milli þess að vera skáldsaga og frásaga. Segir í bókinni frá emi í fjöllum Noregs sem hreif 3ja ára stúlkubam í klær sínar og flaug með það upp að bæli sínu. Þaðan var telpunni bjargað lif andi nokkm siðar. í bókinni er skýrt frá hvarfi barnsins, sem virtist í allan máta dularfullt frá Framhald á bls. 3. kvik,. mynair ■ ™w||im|y|W»niir|inn«w|«««wrl"'""'y|llllll“,“',T] Nokkrar myndir eru nú sýnd ar í kvimyndahúsunum, sem em ofar — og ein eða tvær langt ofar — því venjulega. Háskóla- bló sýnir hina frægu mynd Hrun Rómaveldls, gerða af Sam uel Bronstein með Sophiu Loren, Stephen Boyd og Alec Guinness í aðalhlutverkum. Þetta er mik il mynd, afburða vel gerð og leikin. í henni er Islenzkur texti. Nýja Bíó sýnir Hlébarðann, ítalsk-ameriska mynd, með Burt Lancaster, Claudiu Cardi- nale og Alain Delon í aðalhlut verkum. Kvikmyndin hlaut Cannes-verðlaunin í hitteð fyrra. Margir kannast við efnið (sagan þýdd á ísl.). Tónabfó sýnir stór athyglisverða mynd um þrælasöl una í heiminum sem enn er við lýði þrátt fyrir alþjóðasam- þykktir. Það er átakanlegt að horfa á margt af því, sem djörf um kvikmyndatökumönnum hef ir hér tekizt að ná myndum af, — meðferðin á fólkinu, m. a. bömum og unglingum, og ekki sfður átakanlegt að sjá að þetta fólk þorir ekkert að segja, er það er spurt, — sættir sig stund um ekki ófúslega — að því er virðist, við kjör sin. Aðrir kaflar myndarinnar eru greinilega upp fyllingarefni og miklu síðri. Kópavogsbfó sýnir vel leikna og sérlega athyglisverða franska mynd, Unglingaástir, og er smekkl. með efnið farið en sams konar efni hefir sætt í sænsk um myndum. Myndin heitir Les Nymphettes. Aðalhlutv. Christ ian Pesey og Collette Descom- bes. — Kvikmyndin „Gildra fyr- ir njósnara" í Gamla Bíói er tæknilega skemmtileg og mjög spennandi. Robert Vaughn leik ur „Mr. Solon" Persónan Solon þessi er geysivinsæl i brezku og bandarísku sjónvarpi. — ftalska leikkonan Luciana Pal- uzzi leikur á móti honum. Þá er „Frá St. Pauli til Shanghai" í Laugarásbíói, þýzk mynd þar sem hver viðburðurinn rekur annan og allt logar tíð- um í slagsmálum. Hafnarbfó sýn ir „Sjóaragrín" sem fyndni og fjör einkennir, og Stjömubfó endursýnir ágæta mynd — „Byssumar f Navarone".—Aust urbæjarbfó er nýbyrjað að sýna Sophia Lorm „Á meðan borgin brennur". en það er pólsk mynd um sprengju árásimar á Dresden í síðari heimsstyrjöld. Á hana var varp að 600.000 sprengjum á einni nóttu. Á dönsku hét myndin „I nat dör en by“. —

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.