Vísir - 07.12.1965, Qupperneq 16
Þrfójudagur 7. desember 1965
SAMID ÍNÓTT VID MA TSVEINA
Samkomulag náðist kl. 1 i
nótt í kjaradeilu Félags mat
reiðslumanna og Skipaútgerðar
ríkisins og var það undirritað
með fyrirvara. KI. 2 eftir há
degi i dag verður haidinn fund
ur f Félagi matreiðslumanna,
þar sem samkomulagið verður
borið undir atkvæði.
Ef það verður samþykkt kem
ur ekki til neinnar röskunar á
strandferðum Skipaútgerðarinn
ar. Esja á að halda úr höfn
í hringferð í kvöld og hefði orð
ið fyrir skipið til að stöðvast
ef ekki hefði náðst samkomu
lag. Verkfall matreiðslumanna
hefur staðið yfir siðan á mið
nætti á laugardag og það átti að
ná til fjögurra matsveina á Esju
og Heklu
Akureyrarsjúkrahúsfö stækkað
fyrir 70 milljónir króaa
Jóhann Hafstein
dómsmálaráðherra
Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri er fyrir allöngu orðið
of lítið og er nú orðin knýjandi
nauðsyn á að viðbótarbygging
verði byggð við húsið. Er talið^
nauðsynlegt að hún verði um
14 þús. rúmmetrar, eða svipuð
og gamla byggíngin.
Er talið að sú bygging mundi
kosta allt að 70 millj. króna.
Samþykkti bæjarstjóm Akur-
eyrar á fundi sínum fyrir
skömmu að fela stjórn sjúkra-
hússins að gera áframhaldandi
athuganir á máli þessu og miða
við að framkvæmdir hæfust
1967. Þá var samþykkt að fara
þess á leit við fjárveitinganefnd
Alþingis að tekið yrði upp í
fjárlög 1966 bvrjunarframlag til
byggingar þessarar eigi lægra
en 3 millj. króna.
Aðalfundur Full-
trúaráðsins í
í kvöld verður haldinn aðal
fundur Fulltrúaráðs Sjálfstæðis
félaganna f- Reykjavík. Verður
fundurinn í Sjálfstæðishúsinu og
hefst kl. 20,30. Á fundinum fara
fram venjuleg aðalfundarstörf
en að þeim loknum mun iðnað-
armálaráðherra Jóhann Hafstein
flytja ræðu sem nefnist: „Á vega
mótum stóriðju og stórvirkj-
ana“. Að ræðunni lokinnl mun
framsögumaður svara fyrirspurn
um fundarmanna.
Stóriðjumálin hafa verið ofar
lega á dagskrá sfðustu daga, þar
sem gengið hefur verið frá frum
sainkomulagi milli fulltrúa ríkis
stjómarinnar og Swiss Aluminl-
um um byggingu alúmínverk-
smiðju við Straum. Eru fulltrúar
hvattir til að fjölmenna til fund
arins.
LÆKNAMIDSTÖD VAR jSíríus á strandstað;
í DREIFBÝUNU
Til þess að bæta úr hinum miklu
vandræðum, sem nú ríkja víða um
land í dreifbýlinu vegna lækna-
skorts hefur stjóm Læknafélags ís
lands sagt það álit sitt að þessi
vandi verður bezt ieystur á þann
hátt að komið verði á fót lækna
miðstöðvum þar sem fieiri læknar
sameinist um þjónustu á stærri
svæðum, en nú taka yfir einstök
læknishéruð.
Blaðið sneri sér til formanns
Læknafélags Isiands dr Ólafs
Bjarnasonar og spurðist fyrir um
hvort Læknafélagið hefði ein
hverja sérstaka staði i huga sem
hentugir gætu verið fyrir slíkar mið
stöðvar.
Kvað dr. Ólafur það mál að
sjálfsögðu hafa verið rætt, en að
svo stöddu væri félagið ekki tilbúið
að leggja fram neinar ákveðnar
tillögur i því máli. Ljóst væri að
aðstaða til að koma upp slíkum mið
stöðvum væri mjög mismunandi
og langt væri frá að þær hent
Framh. á bis. 6
FANNST MEÐ-
VITUNDARLAUS
1 gærmorgun fannst unglings-
stúlka llggjandl og meðvitundar
laus utan við Reykjaner autina
fyrir ofan Sólvang við Hafnar-
fjörð.
Þetta var 14 ára gömul telpa
sem á heima suður á Vatnsleysu-
strönd, en árla morguns eða seinni
hluta nætur í fyrrinótt tók hún
reiðhjól og hjólaði til Hafnarfjarð-
ar. Um erindi hennar er ekki vitað.
En rétt fyrir klukkan sjö í gær-
morgun rakst einhver vegfarandi
á telpuna þar sem hún að ein-
i hverju leyti lá ofan á reiðhjólinu
í rétt utan við vegbrún Reykjanes-
brautarinnar og var þá meðvit-
: undarlaus.
j Telpan var flutt fyrst í lögreglu
! varðstofuna í Hafnarfirði og þaðan j
j f slysavarðstofuna í Reykjavík til
j læknisskoðunar Seinna í gær sóttu
j foreldrar telpunnar hana og fóru
j með hana heim til sín.
j Það sáust engin teljandi meiðsli , indverskt Buddahof úr fílabeini sem
' á telpunni við læknisskoðun. Það boðið verður upp i dag á listmuna
| er helzt gizkað á að hún muni uppboði Sigurðar Benediktssonar í
I hafa fengið aðsvif 1 Þjóðleikhúskjallaranum.
Þetta er togarinn Síríus, eign
útgerðarfélags Tryggva Ófeigs-
sonar, en togarinn sleit sig laus
an frá legufærum sínum á Sund
unum og rak inh á Elliðaárvog í
skjóli nætur og myrkurs. Þar lá
hann með stefnið uppi í fjöru,
þegar starfsmenn f vélsmiðjun
um við Súðarvog, hinum megin
við voginn, mættu til vinnu á
mánudaginn, skammt frá Áburð
arverksmiðjunni, en þó í hvarfi
frá henni.
í gær var togarinn dreginn út
á flóðinu og reyndist hann ekki
skemmdur og leki hafði ekki
komið að honum að því er virt;
ist við fyrstu athuganir. Það var
Goðanesið, skip tryggingafélag-
anna, sem kom og dró skipið á j
flot. Liggur skipið nú við Ingólfs /
garð í Reykjavíkurhöfn. >
Listmunauppboð í dug
Sigurður Benediktsson heldur
listmunauppboð í Þjóðleikhúss
kjallaranum i dag kl. 17 og
verða munimir til sýnis til kl.
16 f dag.
Á uppboðinu má búast við að
verði yfir 60 munir, en síðdegis
í gær höfðu borizt um 50 mun
ir og voru þá munir enn að
berast.
Einn merkasti gripurinn á
uppboðinu verður Buddahof úr
fflabeini, rúmlega hálfur metri
á hæð. Er það indversk lista
smíð, talin frá seinni hluta 18.
aldar.
Þá er forkunnarfagur hand-
sleginn málmdiskur lagður gulli
með 9 samsettum myndum úr
svörtum marmara, lapís og agöt
um Er diskurinn talinn gerður
í Flórens um 1840.
Gamalt kínverskt borð ásamt
tveimur stólum verður boð"
upp, einnig lítið „negraborð"
smíðað á Italíu á 18. öld og
danskt borð með djúpskurðar
plötu.
Mikið verður boðið upp af
silfurmunum, bæði einstökum
munum svo sem hnífum skálum
og vösum, svo og fleiri munum
saman, t.d. borðsilfri og kaffi
setti úr sænsku silfri.
Þá eru munir úr postulíni og
fílabeini ,og að lokum má geta
tveggja persneskra gólfábreiðna
sem seldar verða hvor í slnu
lagi.
OOUOOBQBBUUDUDUaDUQaDI
17 DAGAR
TIL JÓLA
□□□□□□□□DDDDDI3DOODDDD
I