Vísir - 16.12.1965, Síða 6
6
V1SIR . Fimmtudagur 16. desember 1965.
hbe
Siónnrhóll
' framhald af bls. 2
Hin stóra og rausnarlega gjöf
þeirra hjóna er einslæmi, en þeir,
sem til þekkja eru hrærðir yfir
göfuglyndi því, sem gjöfin felur
í sér og þeim hug, sem að baki
gjöfinni stendur.
Þau hjónin telja að þau séu í
mikilli þakkarskuld við F.H. Öll
börn þeirra hjóna hafa verið fé-
lagar og þátttakendur í félags
starfsemi F.H. Fyrst sem börn, en
síðar sem fullorðið fólk og nú hin
síðari ár hafa þeir bræður Boði,
Bjami og Birgir allir gegnt meira
og minna mikilvægum störfum
innan félagsins. Til dæmis er
Birgir þjálfari og fyrirliði hins
frækna handknattleiksliðs og
Bjarni á sæti í stjóm landsliðs-
nefndar H.S.Í.
Björn og Guðbjörn telja að þátt-
taka bama þeirra í félagsstarfi
F.H. og kynni þeirra af félaginu
hafi haft mjög mikil áhrif á mótun
þeirra og aukið á og bætt mann-
kosti þeirra.
Hjónin dæma þetta af fenginni
reynslu s.I. 25 ára og sérstaklega
s.l. 15 árin, þar sem má segja, að
Sjónarhóll hafi að mörgu leyti ver-
ið annað heimili F.H.-inga.
Þangað hefur verið haldið fyrir
áríðandi leiki og þangað hefur aft-
ur verið snúið eftir stóra sigra og
einnig þegar hallað hefur undan
fæti hjá félaginu. En i hvoru til-
fellinu sem er hefir ávallt sama
hlýjan og gestrisnin mætt F.H.-
ingum og félögum þeirra.
Með gjöf sinni vilja þau hjónin
stuðla að því að sem flestum hafn
firzkum unglingum gefist kostur
á að fá þá aðhlvnningu og að-
hald á uppvaxtarárum sínum, sem
þau telja að félagsstarfsemi F.H.
hafi veitt börnum þeirra. Ef stjórn
F.H. telur rétt á sinum tíma að
selja Sjónarhól ætti andvirði eign
arinnar að verða drjúgur liður til
að reisa veglegt félagshéimili F.H.
á þeim stað sem stjómin telur
heppilegri. Þannig myndi gjöfin
alla vega verða lyftistöng fyrir enn
öflugri og víðtækari starfsemi fé-
lagsins.
Stjórn F.H. og allir þeir, sem
hafa unnið að félagsstörfum F.H.
á undanförnum árum eru hrærðir
vfir hinni rausnarlegu gjöf. Betri
t varanlegri meðmæli er ekki
hægt að húgsa sér.
Fyrir Hallstein Hinriksson og þá
menn aðra, sem gegnum árin hafa
stritað við að halda félagsstarf-
seminni gangandi, oft þreyttir og
leiðir yfir skilningsleysi og van-
bakklæti, er þessi gjöf blessun
fyrir vel unnin störf. Hún mun
hjálpa mönnum til að sannfærast
um þá staðrevnd, að þótt oft í
hinu daglega striti finnist mönn-
um þeir standa einir uppi og
hjálparvana, sakir skilningsleysis
og skorts á hinum rétta félags-
anda, þá sýnir þessi gjöf óve-
fengjanlega, að það cr til fólk sem
fylgist með starfi þeirra og bar-
áttu og metur þrautseigju þeirra
við að glíma við erfiðleikana.
Þessi gjöf verður því ómetanleg
fvrir F.H. og íþróttahreyfinguna
f Hafnarfirði, í þeirri merkingu
að menn yngri og eldri fyllast
krafti, sem mun koma fram í fé-
lagsstarfseminni á komandi árum,
ekki hvað sizt í að vera hvetjandi
afl ungum sem gömlum til að
smita út frá sér góðum áhrifum
til vegsauka uppvaxandi kynslóð-
um.
Þannig mun samþykki þeirra
systkinanna verða fagur og sterk-
ur minnisvarði foreldra þeirra. Og.
það verður verk F.H. að framlag
þeirra hjónanna verði til þess, að
hin unga æska Hafnarfjarðar verði
aðnjótandi þeirra áhrifa, sem þau
telja að hafi orðið svo mikilvæg
fyrir uppeldi bama þeirra.
Food Center —
Framhald af bls. 1.
staður. Þó væri vegna tak-
markaðs húsrýmis aðeins
hægt að sýna lítið af handa-
vinnu og iðnaðarvarningi.
Hann ræddi um Island sem
ferðamannaland, benti á,
að þar væru fullkomin hótel
hituð með hverahita, þar
væru ár fullar af laxi og vötn
full af silungi.
Hann skýrði frá stofnun
félagsins Icelandic Food Cent
er og gat þess sérstaklega hve
ráðherra hefði verið áhuga-
samur um stofnun þess. Hann
sagðiaðBretar hefðu um lang
an aldur kunnað að meta ís-
lenzkan fisk, en hér yrði
margs konar annan íslenzkur
matur á boðstólum, svo sem
rækjur, humar, síld auk hins
ljúffenga íslenzka lambakjöts.
Hann þakkaði starfsfólkinu
fyrir vel unnin störf, sérstak
lega Halldóri Gröndal fram-
kvæmdastjóra, sem hefði sjálf
ur valið allt annað starfsfólk.
Ingólfur Jónsson sagði m.a.
að sér væri mikil ánægja að
• ypra viðstaddur opnun þessa
fýrirtækis, það væri allmikilvæg
ur vioburður í samskiptúm
Breta og Islendinga. Hann
ræddi síðan nokkuð um ísland
sem ferðamannaland og benti á
sérkenni íslands. Hafísinn væri
oft ekki langt undan norður-
ströndinni, en þar hagaði einn-
ig svo til yfir hásumarið, að sól
in sigi ekki til viðar og í þeirri
nóttlausu veröld mætti finna
mikla fegurð og víðsýni.
Sérkenni íslands, sagði hann
er að þar er náttúran enn víða
ósnert og kvaðst hann telja að
það væri aðalástæðan fyrir því,
hve skemmtiferðamenn laðast
að landinu. Þeir sem einu sinni
hafa komið vilja koma aftur.
Hann rakti nánar hinn aukna
ferðamannastraum til íslands.
Til dæmis skýrði hann frá því,
að árið 1953 hefðu komið til
íslands 737 brezkir skemmti-
ferðamenn en s.l. ár hefðu þeir
verið 2980 og enn mundu þeir
verða fleiri á þessu ári. Það
auðveldar ferðamönnum ' að
x heimsækja ísland, hvað sam-
göngur eru orðnar greiðar og
benti hann í þessu sambandi á
næstum daglegar flugferðir
Flugfélags íslands og Loftleiða.
' En jafnframt þessu fjölgar
einnig íslenzkum ferðamönn-
um í Bretlandi.
Ráðherra vék að margháttuð
um öðrum samskiptum þjóð-
anna og ræddi um þá þýðingu
KveSjuathöfn um manninn minn
SIGFÚS GUÐNASON
frá Skarði, Eskihlíð 10A sem andaðist 10. desember
fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 17. desember
kl. 3 síðdegis. Jarðsett verður að Skarði i Landssveit
laugardag 18. desember kl. 1 e.h. Bílferð vferður frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 9 árdegis.
sem verzlunin hefði haft. Út-1
flutningsafurðir íslendinga |
væru sjávarafurðir en einnig j
nokkuð af landbúnaðarafurðum.!
Fyrir það kaupa Islendingar
mest iðnaðarvörur í Bretlandi.
Þá rakti Ingólfur Jónsson í
hvaða tilgangi Icelandic Food
Centre væri stofnað. — Við vit
um sagði hann að Bretar kunna
að meta íslenzkan fisk. Nú vilj
um við fá tækifæri til að kynna
hugmyndir okkar í matreiðslu
islenzícra afurða og vonum að
þið lærið að meta bragðið. Með
al annars mun hér verða á boð
stólum hið ljúffenga íslenzka
lambakjöt, matreitt á þann hátt
að bragð þess og sérkenni komi
sem bezt fram. Er það von mín,
sagði ráðherra, að opnun Ice-
landic Food Centre í dag megi
verða framlag til vinsamlegra
samskipta Bretlands og Islands.
Ráðherra Iét I ljós þakklæti
til allra þeirra sem lagt hefðu
hönd að verki til að koma þessu
fyrirtæki á. Hann nefndi sér-
staklega Bjöm Bjömsson
kaupmann í London, sem hefði
m. a. tekizt að útvega ágætan
stað fyrir stofnunina í Regent
Street, einnig þakkaði hann
stjómarnefnd, framkvæmda
stjóra og starfsfólki hve vel þeir
hefðu unnið að verkinu.
Óveður —
Framh. af bls. 1
til kl. 8 í morgun. í Reykjavík
varð úrkomumagnið á sama tíma
18 mm.
í morgun var lægðin tekin að
grynnast og veður að ganga niður.
Á vesturhelmingi landsins var þó
enn víða 6—8 vindstig með skúr-
um eða krapaéljum. Á láglendi
var yfirleitt 2—6 stiga hiti, heitast
7 stig á Dalatanga. Á Hveravöllum
yar 2 stiga frost.
Um norðaustanvert landið var
veður yfirleitt gott og víða bjart-
viðri.
Ekki höfðu Vísi borizt neinar
fregnir um meiri háttar tjón eða
skemmdir af völdum hvassviðris í
gær og nótt. Slysavarnafélaginu
hafði ekki borizt nein beiðni um
aðstoð, hvorki á sjó né landi,
enda munu bátar hafa haft sig
tímanlega í var, þeir sem á sjó
voru. Ekki höfðu heldur orðið
neinar teljandi vegarskemmdir af
völdu:.i vatns eða úrrennslis. Veg-
imir eru líka enn frosnir og hjálp-
ar það mjög upp á sakimar.
Jóna S. Jónsdóttir
iólfðutningur í
Kefluvíkurmálinu
hufinn
í gær hófst í sakadómi Reykja-
Víkur málflutningur í Keflavíkur-
málinu svonefnda. Rannsókn þessa
máls hefur staðið yfir í nærri tvö
ár, og er þetta mjög yfirgripsmikið
mál svo málsskjöl eru orðinn þykk
ur hlaði.
Fulltrúi saksóknara flutti í gær
ákæmræðu. Hófst hún kl. 10 um
morguninn og var henni ekki lok
ið kl. 6 síðdegis þegar dómhlé var
gefið. Málið er höfðað gegn þess-
um aðiljum Jósafat Amgrímssyni,
Eyþóri Þórðarsyni, Þórði Halldórs-
syni, Áka Gráns og Albert Sand-
ers. Hver þeirra um sig hefur sinn
verjanda og eru þeir þessir: Áki
Jakobsson, Ámi Guðjónsson, Guð
mundur Ingvi Sigurðsson, Páll S.
Pálsson og Benedikt Sigurjónsson.
NYTSÖM JÓLAGJÖF
LÓÐBYSSUR
RafvISgerSfr
UfvarpsviSgerSir
SÍS HAFNARSTRÆTI
Raðhús — Kópavogi
Höfum til sölu raðhús í Kópavogi, kjallara og 2 hæðir.
í kjallara, sem er lítið niðurgrafinn eru 2 herb. þvotta-
hús og 2 geymslur. Á 1. hæð er eldhús og 2 stórar
samliggjandi stofur, hol og W.C. Uppi eru.4 herbergi
og bað. Húsið er 65 ferm. hvor hæð. Selst fokhelt
með tvöföldu gleri og fullklárað að utan. Mætti gera
2 íbúðir. Verð kr. 650 þús. Útborgun kr. 500 þús.
Allir veðréttir lausir. Bílskúrsréttindi fylgja. Teikning
ar liggja fyrir á skrifstofu vorri.
TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR
Austurstræti 10A. 5. hæð. Sími 24850. Kvöldsími 37272.
BILSKÚR
MUNIÐ afmælishappdrætti Varðar
Skrifstofan er í Sjálfstæðishúsinu. I
ca 100 ferm. geymsluhúsnæði til leigu á góð-
um stað í bænum. Ljós og hiti. Uppl. í síma
21025 kl. 3—6.
m