Vísir - 18.12.1965, Blaðsíða 3
Ldugardagur 18. desember 1965.
J
Vi
!
Jólaannríki hiá
bögglapóstinum
Það er mannmargt í af-
greiðslusal Bögglapóstsins allir
eru að koma af stað síðustu
pökkunum, sem eiga að fara út
á land eða til útlanda fyrir jól-
in. Sumir eru komnir til þess
að ná í jólapakkana, sem
streyma nú að utan af landi.
Á bak við vinna starfsmenn
Bögglapóstsins að sundurgrein-
ingu bögglanna. í hverju horni
eru háir hlaðar af sekkjum,
troðfullum af pökkum, sem
senda á af stað. Einn staflinn
á að fara með Esjunni til Vest-
fjarða og er verið að aka
sekkjunum út á bryggju þar
sem þeim verður skipað upp.
Stór hrúga póstpoka bíður eftir
því að vera send til Borgar-
fjarðar, Akureyrarpósturinn
liggur í háum hrauk.
Skipaferðir til útlanda eru að
mestu um garð gengnar og
sending böggla þangað. Böggla-
sendingarnar þangað byrja fyr
ir alvöru síðustu vikuna í nóv-
ember og halda áfram af full-
um krafti fram í miðjan desem-
ber. í nokkra daga berast
Bögglapóststofunni frá hálfu
upp £ tonn af flugpósti á dag,
sem þarf að afgreiða og senda
í sekkjunum, en 40 kíló eru í
sekk allt smápinklar, það er því
mikið að gera og starfsmenn-
imir vinna dag sem nótt i mesta
annríkinu. Frá síðustu viku í
nóvember og fram í miðjan
desember voru sendir 366 sekk
ir með flugi til útlanda og 370
sekkir með skipum, mest allt
eru þetta jóiasendingar. Alls
voru sendir á þessu tímabili
tæpir átján hundruð sekkir frá
Bögglapóststofunni bæði til út-
landa og innanlands.
Helgi Björgvinsson deildar-
stjóri vísar veginn á milli stafl-
anna og segir frá um leið.
— Við segjum að reykt kjöt-
læri séu í miklum meirihluta í
sendingunum sem fara til út-
landa, segir Helgi, flestar send
ingamar fara til Danmerkur en
svo hafa pakkasendingar til
Bandaríkjanna og Svíþj. stór-
aukizt. Danmörk er miðstöð
fyrir flestalla pakka, sem fara
til Evrópu en samt fer mest af
þeim þangað, undir niðri er
bara andsk. . . . traustur kunn
ingsskapur á milli Dana og Is-
lendinga.
Starfsmennirnir . sextán hafa
augsýnilega nóg að gera, auka
mennirnir þrír, allir stúdentar,
sem hafa fengið sér vinnu til
þess að afla sér smáauka-
skildings fyrir jólin, hafa snar-
lega skipt um hlutverk og liggja
ékki á liði sinu.
Þegar búið er að afgreiða
jólapóstinn, sem á að senda
með skipum. bílum og flugvéi-
um út um víða veröld hefst af-
greiðsla á jólasendingunum sem
berast til Reykjavfkur fyrir al-
vöm og verður það núna um
helgina.
•*&gjíy i
%
:PÚ
1 “1 íW, ' Æ
Mh.'- 4 Hp f WM l 'fi
3'! r/i ... ..••/. *
A:i féí , 9
Jóiapakkarnir eru farnir að streyma til Reykjavíkur. Högni Óskarsson bætir enn einum pakk-
anum í hiaðann.
iiMiiiiisiii
■ • V
... . ...
Jólasendingamar vora í hraukum í hverju horni.
Jón Gíslason hjá Akureyrarpóstinum.