Vísir - 18.12.1965, Síða 9

Vísir - 18.12.1965, Síða 9
V 1 S I R . Laugardagur 18. desember 1965. 9 Öm Amarson: ILLGRESI, Helgafell 1965. þetta er fjórða útgáfa á ljóðum þessa vinsæla látna skálds. Minningin um örn Amarson (Magnús Ste-1 m fánsson) er hjúpuð vinarþeli. ' “ Ljóð hans náðu til fólks með óbrjálað tilvemskyn, fólks HAGLEIKUR HJARTANS með brjöstvit. Hann var þó ekkert í líkingu við Davíð frá Fagraskógi sem skáld, þótt hann væri alþýðlegur í kveðskap sínum. Öm Amarson byrjaði snemma að yrkja, að því er sagt er, virtist. gagntekinn af löngun til að verða skáld frá því að hann var barn eða frá átta ára aldri. Hann hefur sjálfur sagt frá því, þegar hann tók fullnaðarákvörðun um framtið sína: „Dag nokk- um kom ég að máli við mömmu, ákaflega laundrjúg- ur og undirfurðulegur, og sagði: „Mamma, nú veit ég, hvað ég ætla að verða!“ „Og hvað er það nú?“ spurði hún. „Ég ætla að verða smiður - skáld — og kraftamaður“ . . Ég held ég hafi aldrei að fullu horfið frá þessum fyrir ætlunum“. Emi Amarsyni hafði líka snemma verið kunn sú þjóðtrú, „ að sá maður væri skáldgáfu gæddur, sem væri svo tyngulangur, að tungan nasðí nefi“. Og hann sagðist líka hafa gert allt, sem í valdi hans stóð til þess að teygja úr tungunni, svo að hún næði nefinu, „en því miður og mér til mikillar skapraunar tókst það aldrei . . . “ Aldrei alveg hefði mátt bæta hér við, því að það var eins og vantaði aðeins herzlu muninn, að hann yrði gott eða ágætt skáld. Hann þróað- ist að vísu smám saman upp í að verða liðtækt skáld, en skorti hins vegar alltaf „tungulengd“, sem hefði get- að gert kveðskap hans að miklum skáldskap. Kunnastur er Örn Arnar- son fyrir Rímur af Oddi sterka og kvæðið „Stjáni blái“. Sjaldan hefur hressilegri afmorsstaka verið kveðin á íslenzku en þetta síðasta erindi í „Dómadags ræðu Odds sterka" Kveð ég hátt, unz dagur dvín, dýran hátt við baugalín. Venus hátt í vestri skín. Við skulum hátta, elskan mín. Karlmannlega er ort. Þessi óvæmna vísa hljómar eins og stef úr söng um íslenzkar ást ir gegnum aldir. Og hversu heilnæmt er ekki nú á tímum að rifja upp þetta erindi úr „Stjáni blái“: Drottinn sjálfur stóð á ströndu. Stillist vindur! Lækki sær! Hátt er siglt og stöðugt stjómað. Stýra kannt þú, sonur kær. Hörð er lundin, hraust er mundin, hjartað gott, sem undir slær. gitt kvæði Arnar Arnarsonar, „Náttúruraddir", er eins og látbragðsglenna, sem er óvenjulegt fyrirbæri í ís- lenzkri ljóðagerð nema þá einna helzt hjá Steini Stein- arr: Ég hlusta hrifinn á frúna, sem hljóðfærið leikur á og lýsir titrandi tónum tærandi ástarþrá. Eneinhverjir hjáróma hljómar heyrast í stofuna inn, þvf utan við gluggann emjar ólukkans kötturinn. Aumingja kötturinn úti er ástfanginn, kæra frú, og syngur með sínum rómi um sama efni og þú. Svana.þárfípt „qpquett^rie", er gullfúndur f íslenzkum nú- tímabókmenntum, en fyrir- finnst á nokkrum stöðum í forn- og miðaldarbókmennt- um okkar. Öm Arnarson. Tónninn í kveðskap Arnar Arnarsonár er yfirleitt alltaf geðfelldur. Skáldið kveður sig frá sorginni inn í gleðina, og hann er alltaf blessunarlega laus við tilfinningavæmni. Það kemur skýrt fram í þess. um ljóðlínum skáldsins: Sorgin léttist, sárið grær, sólin gegn um skýin hlær, hreinni útsýn hugur fær, himinninn nær í dag en gær. Ljóð Arnar Arnarsonar munu geymast eitthvað um ó- komin ár, en ekki gleymast, þótt þau séu ekki ýkja stór- . brotin. ,Jt>au geymast eins pg það bezta af íslenzkum þjóð- vísum, á meðan þjóðarsálin varðveitir næmleika sinn fyr ir haglegri smíði hjartans. stgr. VEL TIL VERKS VANDAÐ STEINAR OG STERKIR LITIR. Svipmyndir 16 myndlistarmanna. Skálholt h.f. Reykjavík. 1965. — Dókaútgáfan Skálholt h.f. hef- ur þegar, þó að ungt fyrir- tæki sé, fengið á sig það al menningsorð að hún gæfi ekki út nema góðar bækur og vand- aðar að frágangi. Er þetta ó- neitanlega mikilvæg sérstaða, og veit ég ekki neitt af eldri útgáfufyrirtækum njóta hennar, nema Bókfellsútgáfuna, sem undantekningarlítið hefur reynzt því ætlunarverki sínu trú — sem að sjálfsögðu ætti að vera meginregla allra þeirra, er leggja stund á útgáfustarf- semi — að láta einungis góðar bækur og vandvirknislega unn- ar frá sér fara. Margir aðrir út- gefendur hafa að sjálfsögðu líka gefið út stórmerkar og vel gerðar bækur, en flestir fallið í þá freistni að láta léttmeti fljóta með — og er mér ekki grunlaust um að það hafi á stundum þénað þeim göfuga tilgangi að standa nokkurn straum af kostnaði við útgáfu þeirra betri. Þeir í Skálholti h.f. hafa staðizt þá freistingu enn i ár. Steinar og sterkir litir hefur inni að halda viðræður, sem 16 rithöfundar og blaðamenn hafa átt við jafnmarga myndlistar- menn okkar, en tveir ungir ljósmyndarar, Kristján Magnús son og Oddur Ólafsson, hafa lagt til myndir af listamönnun- um og Gísli B. Bjömsson séð um brot og útlit. Þannig hafa útgefendur gert allt, sem i þeirra vaidi stóð, til þess að bókin mætti verða hinn eigu- legasti gripur og augnayndi hverjum þeim, sem sér við bækur fleira en það eitt, sem skrifað stendur. Að ytra útliti er bókin og hin vandaðasta. Slíka jólagjöf getur maður sent vandfýsnustu vinum sínum, viss um að hún verði vel þegin og þökkuð við fyrstu sýn. Hið eina, sem ég felli mig ekki fyllilega við í því sambandi, er val fyrirsagnalet- urs, en það er smásmugulegt smekksatriði. Bókin er prentuð á mjög góðan pappír — en þó varla nógu góðan til þess, að ljósmyndirnar njóti sín til fulls; til þess hefði þurft sér- stakan pappír undir þær, og bað mundi að sjálfsögðu hafa gert bókina mun dýrari. Og þá kemur að orðinu. Það gefur auga leið, að ekki getur ríkt neinn samræmdur heildar- blær. þar sem sextán menn ræða við aðra sextán, þar verð ur að minnsta kosti um þrjátíu og tvö tilbrigði að ræða þó að viðræðuefnið sé eitt og hið sama. Þetta gerir hvoru tveggja i senn, skapar skemmtilega fjölbrevtni og nokkum losara- brag. Enn er það, að viðtölin eru mjög misjafnt unnin; auð- vitað eru listamennimir sjálfir ekki aliir jafnvel til slíkra við- ræðna fallnir, eins og greini lega kemur fram — og svo hitt. sem kannski ræður þama enn meiru um, að viðtalendurnir eru það líka. Ber þó mest á því, að þeir virðast hafa iagt harla ólíkan skilning í hlutverk sitt. Sumir leitast við að draga upp sem skýrasta mynd af listamanninum sem manni — eins og Oddur Bjömsson, sem ræðir við Sverri Haraldsson. en það er eitt athyglisverðasta viðtalið i bókinni innan síns þrönga ramma. Aðrir leggja á- herzlu á að laða hvoru tveggja fram, manninn og listamann- inn, afstöðu hans til ■ listar sinnar og myndlistar almennt — og bera viðtöl Thors Vil- hjálmssonar og Matthíasar Jóhannessen við Þorvald Skúla son og Gunnlaug Scheving af öðmm að því leyti. Halldór Laxness hefur tekið þann kost- inn að skrifa grein um Svavar Guðnason, merk grein fyrir sig, en nokkuð úr stfl. Aðrir hafa látið sér nægja að gera þokka- leg blaðaviðtöl við sína menn; þokkaleg en heldur svipdauf samin eftir formúiunni: hvar er maðurinn fæddur og uppal- inn og hvernig stóð á þeim skramba að þú fórst að drabba í myndlist í stað þess að skokka ruddar brautir og svo framvegis. Þótt undarlegt megi virðast, verður samtal þeirra Sigurðar Benediktssonar og meistara Kjarvals litlausast og bragðdaufast í þeim fiokki — en það á að líkindum rætur sín ar að rekja til þess að meist- arinn hefur verið höfuðsetinn af blaðamönnum að undan- fömu og þvi þurrausinn — gal- tómur eins og hurðarlaus hest hússkofi, eins og hann hefur sjálfur áður komizt að orði, einhvern tíma þegar hann var betur upplagður en í þetta skipti. Önnur „blaðaviðtöl" eru vel unnin sem slík, og þar sem þau skipa meirihluta bókarinn- ar. ráða þau mestu um svipmót Gunnlaugur Scheving. hennar að því leytí til. Sá heild arsvipur verður viðfelldinn — en vart eins stórbrotinn og efni standa til. Skálholt h.f. hefur sízt brugð izt almenningsáliti sínu með þessari bók. Hún er hin vand- aðasta að öllum frágangí. Og þó að innihaldið hefði ef til vill getað orðið jafnbetra, ef öðru vísi hefði verið að farið — sem þó er alls ekki víst — þá er bókin í heild gott verk og þarft og stendur fyrir sínu. Loftur Guðmundsson.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.