Vísir - 04.02.1966, Síða 2

Vísir - 04.02.1966, Síða 2
?Það er gaman á skíðum 33 „Sjáið bara hvað ég er dugleg . . . nú ætla ég að taka beygju . . . “ en meira gaman að aka f ínum bíl4 TTUn var í New York að valda uppþotutn, síðast þegar við fréttum af henni. Nú er hún í lltlu fjallaþorpi 1 heimalandi sfnu — og þar veldur hún einnig uppþotum. En nú er það ekki barmurlnn fagr) eða fótleggimir — öllu siíku er vandlega pakkað inn í hlý skíðaföt — heldur bif reiðin Roils Royce. Þegar Brigitte Bardot kom úr ferðalagi sfnu í USA keypti hún sér Rolls Royce á bílasölu í París og hélt síðan upp til fjalla. Allir sem þekktu hana héldu að hún væri gengin af göflunum að ætla sér að aka slíkri bifreið. En BB sat við sinn keip — og hefur nú reynzt al- veg hörkubílstjóri. Þess má geta að hún greiddi nær milljón kr. fyrir gripinn. Brigitte hefur leigt sér skála þarna uppi f fjöllunum og meðal þess, sem í honum eru, eru sjö svefnherbergi og sjö baðher- bergi. Á hverjum morgni fer hún niður í þorpið fyrir neðan að gera innkaup og auðvitað á „Rollsinum". Þá er uppi fótur og fit meðal þorpsbúa og gesta Frægt fólk hafa þeir oft séð á staðnum, þvf að þetta hefur löngujn’ verið hæíi frægra per- 'sóna, sem vilja fela sig, en Rolls Royce er sjaldséður gestur. * MARGT STÓRT Frá hádegi til klukkan þrjú rennir BB sér á skíðum. Hún velur þennan tíma, því þá er sólin hæst á lofti. Þessa þrjá tíma er yfirleitt mannmargt á svölum hótel ,,Belvédére“ en þaðan er hægt að fylgjast með hverri hreyfingu BB. Það ér uppi fótur og fit í þorpinu þegar BB kemur akandi í I „RoIlsinum“, sem hún keypti á nær milljón krónur á bfla- sölu í París. GERIR EITTSMÁTT I Kári skrifar: • ■ —-------------------- ■yið möluðum þá skozku f bolt anum um daginn — sumir segja að þeir hafi sparað kraft- ana, en það er ekki annað en á- róður, eins og líka það, að þeir hafi „ekki haft neina getu“ eins og það heitir á fþróttamálinu. Þeir höfðu einmitt stórkostlega getu, en okkar menn höfðu þó enn meiri getu — það mætti kannski lfka segja að við höfum leikið þessa leiki fyrir ofan getu. . það er lfka hægt. Ég þori að fullyrða að okkar menn geti getið sér mikla von f heimsmeistarakeppnum, reyndar á hvaða vettvöngum sem er er- lendis með slfkri svakagetu, þetta skozka lið lítur út fyrir að vera eitt hið sterkasta f heimi eins og stendur geta þess þarna f keppninni var öldungis gffur- leg ... þetta með blökkumenn- ina bandarísku um daginn, það var lýsingin f höllinni, sem eyðilagði þann leik fyrir okkur Okkar menn sáu mótherjana eins og ógreinilega skugga þeg ar bezt lét, en oftast runnu þeir alveg saman við rökkrið ... það ætti að vera ákvæði f körfunni um það, að blökku- leikmenn væri hvítmálaðir við slíkar aðstæður, helzt að sett væri á þá eitthvað sjálflýsandi Annars er rétt að minnast á f- þróttahöllina. Geta hennar er í rauninni alltof lítil. Til þess að fþróttamenn vorir geti notið sín erlendis, þarf að byggja að minnsta kosti fimm álfka — en betur lýstar — og svo þarf 3-4 vflrbyggða v knattspyrnuvelli! Þetta er lágmarkið. Iþróttamenn vorir eru getumestir í heimi, en ^antar bara skilyrði, sem þeir eiga skilið. — Og mér dett ur eitt f hug — hvers vegna eru þeir ekki settir á Iaun frá ríkinu eins og svokallaðir lista- menn? Við eigum sennilega getuminnstu listamenn f heimi — því er verið að ausa fjárfúlg um f þá, á meðan getumestu í- bróttamenn í heimi. strákarnir okkar, eru Iátnir svelta? Kannski ekki beinlínis svelta ... fþróttamaðurinn Iifir ekki á einum saman drukk, eigi hann að verða á heimsmælikvarða .. . Óblíðar viðtökur kaupenda. lyTóðir blaðburðardrengs kom 1 til mín um daginn og kvað svo komið, að hún sæi sér ekki annað fært en láta son sinn hætta að bera út blað það, sem hann hefði undanfarið bor ið til áskrifenda á morgnana. Væri það viðtökur kaupenda, sem þvf yllu. Ef það kæmi fyrir að hann væri í seinna lagi með blaðið mætti hann eiga von á skömmum —- kaupendur tækju alls ekkert tillit til þess þótt illskuveður væri og erfitt að komast áfram. Nú undanfarið hefur veður stundum verið slíkt, að varla hefði verið hundi út sigandi, eins og sagt var. En blaðburðar fólk og bréfberar hefðu þó sýnt mikinn dugnað og yfirleitt kom ið blöðum og pósti til skila, þótt einhverjar tafir hefðu orð ið á. Væri því hart að viðtak- endur skyldu geta fengið af sér að skammast yfir seinkunum, sem ættu rætur sínar að rekja til slíkra orsaka. „Komdu seinna!“ Annað væri móttakan, sem blaðburðarbörnin fengju stund um, þegar þau kæmu að inn- heimta áskriftargjöldin. Hún vildi þó taka fram að flestir hefðu tekið syni hennar vel og greitt áskriftargjaldið umyrða- laust og leyft honum að bíða inni í gangi meðan þeir náðu í peningana, ef veður var vont úti fyrir. En það væru til aðr- ir. sem virtust lfta á blaðburðar börnin sem einhver illmenni, sem væru komin til að svíkja út úr þeim fé — og meðhöndl- uðu þau sem slfk. Væri hurðum þá stundum skellt um leið og börnin hefðu stunið upp erind- inu og þeim sagt að koma seinna. Hefði kveðið svo hart að þessu að sonur hennar hefði farið fjóra daga í röð erindis- leysu í sama húsið. Svarið hefði alltaf verið: „Reyndu að koma annað kvöld.“ Og þótt fólk feng ist nú til að borga áskriftar- gjöldin þá léti það þennan al- kunna „rukkarapirring“ bitna á drengnum og væri hann enginn maður til að taka við slíkum ó- notum. Mig langar til að spyrja fólk hvað það eiginlega hugsi með slíkri framkomu, sagði móðirin að lokum. Og Kári vill þá bæta þvf við að blaðakaupendur ættu einu sinni að setja sig í huganum í spor blaðburðarbarnanna sem á dimmum vetrarkvöldum og oft f vondum veðrum koma til að sækja greiðsluna fyrir blaðið — blaðið sem kaupendurnir sjálfir hafa óskað eftir að fá. Að svolítilli umhugsun lokinni sjá þeir sig vonandi um hönd og gæta þess að hafa ávallt mánaðargreiðsluna fyrir blaðið tilbúna úr því að mánaðamót eru komin. Spara þeir sér þann ig óþarfa leiðindi og blaðburðar börnunum bæði leiðindi og fyr irhöfn.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.