Vísir - 04.02.1966, Side 16

Vísir - 04.02.1966, Side 16
VISIR Föstudatrur 4. febrúar 1966. Framlag tilMenaingarsjéBs Norðurlamla fímmfaldast Mátti ekki seinna vera að altaris töflunni yrði bjargað 1 Saurbæjarkirkju á Barða- strönd, þeirri sem fauk í of- viðrinu á dögunum var merki- Ieg og gömul altaristafla, sem flutt var suður i Þjóðminjasafn ið fyrir þremur eða fjórum ár- um, og er hún varðveitt þar. Var það mikið happ að hún skyldi vera komin úr kirkjunni nú. Það sem vekur athygli við þessa altaristöflu umfram þær, sem algengastar eru í kirkjum, er það, að aðalpersónumar á töflunni eru ekki neinar biblíu- verur, hvorki Jesú Kristur, Mar ía mey, postulamir eða guð al- máttugur sjálfur, heldur em það sýslumannshjónin og ábúend- umir í Saurbæ, sem þar skipa öndvegið. Hjónin eru Björn Gíslason sýslu maður Magnússonar frá Hlfðar- enda og Guðrún dóttir Eggerts Björnssonar ríka á Skarði Bjöm var talinn höfðingjaefni, en dó ungur, aðeins 29 ára gamall ár ið 1679. Guðrún ekkja hans lifði hins vegar hálfri öld leng- ur, dó 88 ára að aldri árið 1724, þá karlæg og löngu blind orðin. Talið er að hún hafi orðið blind Framh. á bls. 6 Hér eru Bretarmr Meyer og Sewell, sem hina nýju bygginga- tækni kynna. Á vori komanda er í ráði að byggja hér í Árbæjarhverfi einbýlishús, sem verSur sýnis hús fyrir svonefnt „Betocel- kerfi“, en slík hús eru hlaðin úr sérstakri gerS holsteina, sem fylltir eru einangrunar- steypu, en í henni er sandur, sement, vatn og einangrunar efni sérstakrar tegundar, og fást þannig traustir veggir, er hún harðnar. Komnar eru hingað til lands vélar þær, sem þarf við gerð slíkra húsa, þ. e. til þess að steypa hol- steina og blokkir og vél til blöndunar einangumarsteyp- unnar. Það er enskur maður hér, Sewell að nafni, búfræðingur, en hann hefir dvalizt hér á landi í fimm ár, sem fékk áhuga á þessu kerfi og að kynna það hér, og nú er hingað kominn Mr. Meyer sérfræðingur frá Betocel alþjóðabyggingafélaginu, sem hefir skrifstofur í Basel í Sviss og Norwich í Norfolk á Eng- landi, og hefir tíðindamaður frá Vfsi fengið nokkrar upplýsingar frá þeim. Munu þeir sýna vél- amar í notkun, sennifega upp úr næstu viku. Framh. á 6. síðu. Altaristaflan gamla úr Saurbæjarkirkju. Menntamálaráðherrar Norður- landa komu saman til fundar f Helsingör 2. og 3. febrúar, þeg- ar að loknum fundi Norðurlanda ráðs í Kaupmannahöfn. Rædd vom ýmis mál varðandi sam- vinnu Norðurlanda í menning- armálum. Meðal annars var tekin formleg ákvörðun um að frá 1. janúar 1967 skyldi framlagið til tylenningar- sjóðs Norðurlanda hækka úr sex hundmð þúsund dönskum krónum i þrjár milljónir danskar krónur, Ákvörðun um þotukaup nú í mánuð inum og þotan kemur næsta ár Eftir hálfan mánuð eða um miðj an febrúar mun Flugfélag íslands taka ákvörðun um þotukaup. Áð- ur hafði verið búizt við að á- kvörðun yrði tekin um áramótin, en að þvi er segir í Faxafréttum kom í ljós að ýmis atriði í athug un varðandi kaupin voru yfirgrips meiri og tóku lengri tíma, en ráð hafði verið fyrir gert, svo að nið- Tóbaksvörum stol- ið fyrir 15 þús. kr. , Miklum verðmætum í tóbaks i lengjur af Roy-vindlingum og vörum var stolið við innbrot í nokkrar birgðir af King Edward verzlunina Foss í Bankastræti í | vindlum. fyrrinótt. ! Láta mun nærri að verðmæti Hafði þjófurinn á brott með sér hvorki meira né minna en 40 pakka lengjur af Camel-vindlingum, 5 framangreindra tóbaksvara nemi nálægt 15 þús. kr. Málið er í rann| sókn. ] urstaða yrði ekki til fyrr en um miðjan febrúar. Það sem þar er um að ræða er að velja þá teg- und, sem heppilegust er fyrir £s- lenzkar aðstæður og þarf að miða viC flutningaþörf og vegalengdir og sem hagkvæmastan rekstur. Eins og áður hefur verið sagt í fréttum, munu það aðallega vera þrjár flugvélar sem hafa komið til greina, þ. e. frá Boeing og Douglas-verksmiðjunum amerisku og Vickers-verksmiðjunum brezku. Fulltrúar þeirra allra hafa verið hér á ferðinni. Þó ákvörðun verði tekin nú í mánuðinum er afgreiðslutimi svo langur, að það verður aldrei fyrr f fyrsta lagi vorið 1967, sem þotan verður afhent og þannig hægt að hefja ferðir með hinni nýju þotu. eða um það bil 20 milljónir íslenzk ar krónur. Jafnframt var ákveðið að fela bráðabirgðastjóm sjóðsins, sem skipuð er embættismönnum frá menntamálaráðuneytunum, að endurskoða reglumar um sjóðinn, þannig að fulltrúar Norðurlanda- ráðs taki sæti í stjórninni, en þing Norðurlandaráðs hafði samþykkt á ’skomn til ríkisstjómanna um hvort tveggja. Ennfremur var rætt um reglur um þóknun til rithöfunda fyrir lán bóka úr almenningsbóka- söfnum, og mun embættismanna- nefnd fjalla nánar um málið á næstunni. Ráðherrafundinn sóttu af íslands hálfu Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, og Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri, svo og Ólafur Jó- hannesson, prófessor, af hálfu menntamálanefndar Norðurlanda- ráðs. 7 DAGAR EFTIR Nú eru aðeins sjö dagar, þangað til dregið verður í afmælis- happdrætti Varðar. Þeir, sem fengið hafa senda miða, eru beðnir að draga ekki að gera skil. Skrifstofan er í Sjálfstæð- ishúsinu við Austurvöll, simi 1 71 00. Betocel-blöndunarvél í notkun. Betocel-sýnishús reist í vor í Árbæjarh verfinu Vélar komnar til landsins og verða sýndar í næstu viku

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.