Vísir - 05.03.1966, Blaðsíða 6
V í SIR . Laugardagur 5. marz 1966.
Bruni —
Framhald af bls. 1.
— Hvemig stendur á því að
það er leyft að byggja svona
hús?
— Það hefur aldrei verið
leyft það er sannleikur málsins.
— Hvemig stendur þá á því
að húsið stóð þarna og brann
þama?
— Það var jú lögð fram
teikning að húsi á þessum stað
og teikningin samþykkt, en
bara ekki farið eftir teikning-
unni þegar húsið var byggt. 1
því fellst ógæfan.
Á teikningunni sem lögð var
fram, var sýnt steypt gólf á
hæð í noröurenda hússins,
þetta gólf var jafnframt loft í
kyndiklefa. Jafnframt hafði
brunavarnaeftirlit ríkisins, sem
þá hafði umsjón með bygging-
um 1 Kópavogi, gert kröfu um
að dyr á kyndiklefa inn í
geymslu yrðu teknar af, og að-
eins utangengt yrði inn í kyndi
klefann.
— Var þessu ekki hlýtt?
— Nei, í stað þess að byggja
samkvæmt teikningunni og fyr
irmælum brunavarnaeftirlitsins
var timburgólf sett í loftið yf-
ir kyndiklefanum, ekki lokað
út í geymsluna, né gert utan-
gengt í kyndiklefann, heldur
haft opið úr honum upp á verk
stæðið.
Þá var suöurhluti hússins, er
var að mestu á einni hæð, sýnd
ur á teikningunni með steypta
útveggi. Þeir veggir voru al-
drei steyptir, heldur byggðir
úr timbri.
— Var ekki haft eftirlit með
smíði hússins?
— Til þess er í rauninni ekki
neinn mannafli að fylgja eftir
byggingu hvers einstaks húss,
þó þaö þyrfti að vera. En I jan
úarmánuði sl. fór ég ásamt Her
manni Hallgrímssyni frá Sam-
vinnutryggingum í eftirlitsferð
suður í Kópavog og skoðuöum
við þar nokkra staði, þ.á.m.
verkstæði Páls Jónssonar.
— Urðuð þið þá þess áskynja
sem vanrækt hafði verið?
— Já, og eiginlega vel það.
Því það verð ég að segja að
þvílíkan vinnustað hafði ég al-
drei áður augum litiö. Um-
gengnin var blátt áfram ferleg.
Venjulegu fólki var alls ekki
fært um verkstæðið fyrir haug-
um af hálfunnu efni, spónum
og sagi. Eigandinn var ekki við
í það skipti, en ég gaf fyrir-
mæli um aö ruslið yrði hreinsað
út þegar í stað.
Var það gert?
— Ég fór nokkrum dögum
seinna suður á Álfhólsveg, á-
samt Hermanni og þá hittum
við fyrir eigandann. Hafði hann
í millitíðinni hreinsað nokkuð af
ruslinu út. 1 þetta skipti lagði
ég fyrir Pál Jónsson, eiganda
verkstæöisins að fjarlægja loft-
hitunarketil á efri hæð, sem þar
hafði verið settur niður án leyf-
is, enda var staðsetning hans
og umbúnaður allur ólöglegur
og jafnframt mjög varhuga-
verður. í öðru lagi lagði ég fyr
ir Pál aö ganga frá ketilhúsinu,
loka upp á verkstæðið, eld-
treysta loftið, loka inn i geymsl
una frá ketilhúsinu, gera utan-
gengt og fjarlægja spónastíu úr
ketilhúsinu. Var Páli tjáð að
þetta yrði hann að framkvæma
tafarlaust og tók hann því vel.
— En framkvæmdir e.t.v. taf
izt áður en kviknaði í?
— Við athugun, sem gerð var
á brunarústunum viröist ekkert
hafa verið gert af því, sem fyr
ir eigandann hafði verið lagt.
— Hvað er hægt að gera í
svona tilvikum?
— Það er ekki nema eðlilegt
að spurt sé. Svona tilfelli sýna
það, að málin eru ekki tekin
nógu föstum tökum. Ef til vill
má kenna eldvamaeftirlitinu
um að það gangi ekki nógu hart
fram og loki tafarlaust fyrir raf
magn og innsigli kynditæki. En
það er nú svo. Fyrst reynum
við að fá menn með góðu til að
bæta úr hlutunum, en reynsl
an er því miður sú að það
tekst í fæstum tilfellum.
— Sendiö þið viðkomandi að-
ilum aðvörun?
— Já, við byrjum á því aö
senda þeim aðilum bréf, sem
þurfa að gera endurbætur á
húsakynnum sínum. Og í bréf-
unum teljum við upp, það sem
úrbóta er þörf. Að nokkrum
tíma liönum frá því að bréfin
hafa verið send, athugum við
hvort nokkuð hafi verið hafizt
handa. Ef ekki, eigum við ekki
annars úrkosta en beita höröu,
iátum innsigla kynditækin og í
sumum tilfellum að banna at-
vinnurekstur eða samkomuhald
þar til úrbætur hafa verið gerð
ar.
— Hafið þið nokkurs staðar
látið til skarar skríða?
— Ekki um valdbeitingu enn
sem komið er. Fram til þessa
höfum við aðeins skrifað aðvör
unarbréf og við reynt eftir föng
um aö fara samningsleiðina. En
hér eftir verður að grípa til rót
tækra ráðstafana ef eldvarna-
eftirlitið á að koma að ein-
hverju hagnýtu gagni.
— Er eldvömum víða ábóta-
vant hér í Reykjavík og ná-
grenni.
— Því miður. Það má segja
að búnaði sé meira eða minna
ábótavant á flestum vinnustöð
um, samkomuhúsum og skól-
um, þótt ekki sé það neitt í á-
þekkum mæli og á Álfhólsvegi
11, þar sem bruninn varð.
— Hvernig taka húseigend-
ur þessum aðvörunum eldvama
eftirlitsins?
— Það má segja að einstöku
aðilar bregöist fljótt og vel við
og geri það sem fariö er fram
á. En þeir eru miklu fleiri, sem
taka málaleitan okkar með al-
geru kæruleysi og sýna engan
lit á að gera nokkrar endur-
bætur.
—- En á ekki eldvarnaeftirlit
ið í rauninni að fyrirbyggja
eldhættuna með því að fara yf
ir húsateikningar áður en hús-
in em byggð?
— Jú, eftir að sú nýskipan
mála komst á, hef ég farið yfir
allar húsateikningar hjá bygg-
ingafulltrúa áður en þær eru
lagðar fyrir bygginganefnd. En
það er bara ekki nóg. Það þarf
að koma á ströngu eftirliti til
að framfylgja því að farið sé
eftir teikningunum og settum
reglum fylgt. Annars getur
hver og einn sniðgengið teikn-
ingamar, líkt og það sem við
höfum einmitt tekið dæmi af
suður í Kópavogi.
— Það er vafalaust af ónóg
um eldvömum að svona mikið
er um eldsvoða í Reykjavík og
nágrenni?
— Ég veit aö fólki blöskrar
allir þessir eldsvoðar, skilur
ekki hvernig á þeim stendur.
En ég furða mig persónulega á
hinu, að þeir skuli ekki verða
enn fleiri og enn ægilegri mið-
aö við umbúnað og umgengni
Manni virðist það stundum und
ir hælinn lagt hvort í húsinu
kviknar eða ekki. En þannig á
það vissulega ekki að vera.
Slysovarnakonur —
Framhald af bls. 16.
konumar efna til bingós í Sjálfstæö-
ishúsinu. Mun þar verða mikið úr-
val eigulegra hluta meðal vinninga,
svo sem skrifborð, standlampi,
borðbúnaður auk fjölda annarra
ágætra muna.
Undir lok þessa mánaðar hyggj-
ast konumar hafa kaffisölu í Slysa
vamafélagshúsinu. Mælum viö ein
dregið með því ágæta kaffi, sem
þar er jafnan á boðstólum, þegar
svo stendur á. Ekki ætti þaö heldur
að skemma lystina, að vita að all-
ur ágóöi kaffisölunnar rennur til
almennra velferðarmála, sem og
annar ágóöi af starfsemi Slysavarna
félagsins.
LítilS drengur —
Framhald af bls. 16.
en hrópuðu til hans: „Haltu niöri í
þér andanum“, Svo heppilega vildi
til að fullorðinn mann, Guttorm Sig
urbjartsson endurskoðanda, bar þar
að í tæka tíð. Kom hann auga á
drenginn úti í sjónum. Óð hann út
í og tókst honum að ná taki á priki,
sem drengurinn hafði í hendi og
rétti til hans, ekki varð drengnum
meint af volkinu, utan það að hon-
um hefur skiljanlega orðiö hrollkalt.
Fjaran getur orðið hættulegur
leikstaöur fyrir börn, sem á þessu
sést, sérstaklega, þegar Is er við
land. Þegar fjarar undan ísnum fell
ur hann venjulega og situr síðan á
botninum, þegar fellur að. Er þvi
skiljanlega hætta á að þeir, sem
hætta sér of nærri flæðarmáli renni
út £ og á það að sjálfsögðu mest viö
um böm.
Öllum þeim mörgu nær og fjær sem sýndu okkur samúð
við andlát og útför
ODDGEIRS KRISTJÁNSSONAR
og heiðruöu minningu hans færum viö alúöarþakkir.
Sylvía Guðjónsdóttir,
Hildur Oddgeirsdóttir,
Hrefna Oddgeirsdóttír og böm
og systkini hins látna.
Flugvél —
Framh. af bls. 1
réttindi og hefur þegar einka-
flugmannspróf.
Hafði blaðið tal af Sævari í
gær og bað hann að skýra frá
atburðinum:
— Ég var I æfingaflugi, þeg-
ar mótorinn missti kraftinn og
vélin fór að smálækka. Ég var
staddur yfir Árbæjarhverfinu
og varð að komast frá því ein-
hvem veginm, það komst ekk-
ert annað að, ég hafði 1 huga
að lenda á einhverju túni ,en
komst ekki á það og lenti á
þessum mel.
Það gafst annars ósköp lítill
tími til þess að hugsa um annaö
en að halda vélinni uppi og á
lofti. Vélin fór ekki strax á
hvolf, ég tel að hún hafi mnnið
á tveim hjólum 30-40 m. vega-
lengd áður en ég snerti með
nefhjólinu, þaö brotnaöi um
leið ,en vélin var nærri stoppuð
þegar hún fór yfir sig.
Sjálfur fann ég ekkert högg,
l þegar vélin kom niður og var
sjálfur fastur í beltinu. Ég kom
mér út úr vélinni I snarhasti
og var smástund hjá henni áöur
en ég lagði af stað niður veg-
inn. Meðan ég var hjá flugvél-
inni flaug lítil vél yfir, ég held
frá Þyt og kölluðu þeir strax
upp flugtuminn. Ég gekk síðan
yfir hæðina og kom niöur á veg
inn um leið og sjúkrabíll og
lögregla sem komu á móti mér
Jú, þeir voru undrandi yfir
því að sjá mig heilan á húfi
og spurðu strax að því hvort
annar maöur hefði verið með
mér í vélinni.
ASB —
Framhald af bls. 16.
málum, meðferð gjaldeyris og
frelsi til að flvtja hagnað af rekstr-
inum úr landi.
Vegna þessa skorar ASÍ á öll
„þjóðholl öfl“ í landinu að berjast
gegn samningi um alúmíníum-verk-
smiðju.
Tónlist —
Framh. af bls 1
Sveinbjörnsson, Jón Nordal
Jón Leifs, Jón Þórarinsson, Jór-
unni Viðar, Leif Þórarinsson,
Magnús Bl. Jóhannsson og Þor-
kel Sigurbjömsson.
Flytjendur verkanna verða
þeir Ingvar Jónass. fiðluleikari
Gunnar Egilsson klarinettleikari
Pétur Þorvaldsson cellóleikari,
og Þorkell Sigurbjömsson pí-
anó.
Sagði Þorkell Sigurbjömsson
í viðtali viö blaðið í morgun að
reynt hefði veriö af megni að
hafa efnið sem fjölbreyttast en
það hefði takmarkazt við fjögur
hljóðfæri en hann teldi að samt
sem áður gæfi það góða hug-
mynd um ýmsar tegundir tón-
smíða á íslandi.
— Ég held að þetta sé í
fyrsta sinn, sem beinlínis er
farið fram á það af erlendum að
ilum að Islendingar komi að
heiman til þess að kynna ís-
lenzka tónlist á opinberum tón
leikum og er þetta einstætt
tækifæri fyrir alla aðila, sem
að flutningnum standa, sagði
Þorkell I viötalinu.
25 tilboð —
Framhald af bls. 1.
Tankamir verða byggðir úr stáli
og kemur það til landsins um mitt
sumar. Verður þá strax hafizt
handa um að setja annan þeirra
saman og á að verða tilbúinn til
notkunar áður en vetur gengnr í
garð.
Geymarnir nýju eiga að standa
| norðan við gömlu geymana á öskju
l hliðarkollinum.
AUGLÝSING
VARÐANDI GIN OG KLAUFAVEIKI
Vegna þess aö gin- og klaufaveikifaraldur geisar nú
í ýmsum löndum á meginlandi Evrópu, vill landbúnaö-
arráðuneytið enn á ný vekja athygli yfirvalda og al-
mennings á því, að stranglega ber að fylgja reglum
laga nr. 11. 1928 um varnir gegn gin- og klaufaveiki.
Tekið skal fram, að samkvæmt téðum lögum og aug-
lýsingu þessari er bannaður með öllu innflutningur á
heyi, hálmi, alidýraáburði, sláturafurðum hvers konar,
húðum, mjólk og mjólkurafurðum sem og eggjum.
Stórgripahúðir, sem nota þarf við togveiðar hér við
land, má þó flytja inn, enda hafi þær sannanlega verið
sótthreinsaðar erlendis.
Enn fremur er bannaður innflutningur á lifandi jurt-
um, trjám, trjágreinum og könglum, grænmeti og hvers
konar garðávöxtum.
Farþegar og áhafnir farartækja skuiu að viðlögðum
drengskap gefa yfirlýsingu um dvöl sína erlendis,
strax og þau koma til íslands.
Brot á lögum nr. 11. 1928 og auglýsingum, sem
settar eru samkvæmt þeim, varðar sektum.
Landbúnaðarráðuneytið, 4. marz 1966
Ingólfur Jónsson
/Gunnl. E. Briem
Tilkynning
Þeir sem telja sig eiga bíla á geymslusvæði
„Vöku“ á Ártúnshöfða, þurfa að gera grein
fyrir eignarheimild sinni og vitja þeirra fyrir
20. þ. m. Hlutaðeigendur hafi samband við
afgreiðslumann „Vöku“, Síðumúla 20, og
greiði áfallinn kostnað. Að áðurnefndum
fresti liðnum verður svæðið hreinsað og bíl-
garmar fluttir, á kostnað og ábyrgð eigenda,
á sorphauga, án frekari viðvörunar.
Reykjavík, 1. marz 1966
Skrifstofur Reykjavíkurborgar
Hreinsunardeild.