Vísir - 05.03.1966, Blaðsíða 15

Vísir - 05.03.1966, Blaðsíða 15
V í SIR . Laugardagur 5. marz 1966. 75 P'5>S>5>C^>S>5>S>5>í!>í5>«>5>S>5>Z>5>*>5>Z>5>í>5>£!‘5SS£5>S>S5ffíSiZ5íSSS>S*S>5>Z>S:>í>5>*>5>*>5>S>S>®' IHARVEI FERGUSSON: >f- | Don Pedro | — Saga úr Rio - Grande - dalnum — f Dálítið skömmustulegur á svip þreif hann í taglið á múlasnanum því að I þessari nauð fannst honum styrkur f því, aö geta haldið sér í eitthvað lifandi. Og áfram upp á við eftir hlykkjóttri götunni í skorn ingnum hélt múlasninn þolinmóð lega áfram með Leo í eftirdragi, og við og við hrukku lausir stéinar und an fótum þeirra og ultu niður göt- una. Og svo barst að eyrum eins og svar við kalli, langdregið span- gól, sem hljómaði eins og angistar- fullt væl skepnu í sárri neyð, en þetta var raunar kvöldsöngur sléttu úlfanna í La Bajada hæðum. Þennan söng átti hann oft eftir aö heyra og venjast honum og jafnvel finn- ast hann láta vel í eyrum, aðeins vegna tilfinningarinnar að heyra f einhverju, sem var lifandi, en á þess ari stundu fannst honum þetta ógurlegt á að hlýöa og eins og úr einhverjum undirheimum komið. Múlasninn nam staðar og sperrti eyrun og Leo lagði við hlustimar. Því lengur sem leiö á þetta ferða- lag því meira lfktust áhrifin möru I og honum fannst að nú væri öllu ! að verða lokið og framundan opið i víti, þar sem hans var beðið af ! féndum sem vældu í kór. Þetta j var svo likt harmleik á sviöi, fannst I honimi allt í einu, aö furðulegt var, j og allt í einu rykkti hann höfðinu ! aftur á bak og hló, kaldranalega, v og án þess að vita af hverju hann rak upp hlátur. Og svo æpti hann j út í myrkrið eins hátt og hann gat j og honum óx hugrekki viö að heyra i sjálfan sig kalla. V i Svo furðulegt sem það var hætti I spangólið, í svip heyrðist dvínandi } ýlfur, en svo varð dauðakyrrð. Brátt ýtti hann við múlasnanum og j áfram héldu þeir félagar, og Leo ! var dálítið brattari, af þvf aö hann \ var dálítið stoltur af að hafa látiö i til sín taka, en eftir að hafa pjakk j að svona áfram hálfa klukkustund I var eins og fætumir gætu ekki I borið hann lengur, en þá fann hann J alit í einu, að mjúkur sandur var ! undir fótum hans. Framundan var 1 smálækur, og þeir fóru yfir hann, ' og hann hresstist allur vi öþað, að kalt vatnið lék um þreytta og auma fætur hans. Hann sá óljóst í myrkrinu, að þeir áttu skammt ófarið að dökk- leitu húsi, og þaðan stukku- nú f áttina til þeirra þrír þvengmjóir hundar, urrandi og geltandi, og er þeir komu hlupu þeir geltandi hvem hringinn af öðmm kringum hann og múlasnann. 15. Hann stóð grafkyrr hjá asna sín- um og bjóst til þess að setjast á bak honum milli klyfjanna, ef hund amir gerðu sig líklega til árásar á hann. Loksins opnuðust dyr á húsinu og hann sá eins og gula rönd úti í sortanum, því aö dymar voru ekki lokaðar nema til hálfs, en úl; um þær hafði gengiö maður, sem skipaði hundunum að þegja, og gekk svo í áttina til hans. Hann gekk hægt og var var um sig. — Ég er farandsali, sagði Leo veikum rómi og ég er mjög þreytt- ur. Maðurinn staröi á hann andar- tak eins og steini lostinn. Gott og vel, sagði hann að lok- um, komið með mér . . . og mað- urinn sneri við og gekk í áttina til hússins og Leo á eftir honum. Hann var leiddur í stofu, sem var lík öllum öðrum sem hann hafði komið f með hvítkölkuðum veggj- um, eldstó f einu hominu, en lítið af húsgögnum, og þau sem þar voru voru heimatilbúin. Maöurinn, sem hafði boöið hon- um inn, var ungur maður, dökkur á hörund með Rauðskinnaefrivarar skegg. Kona hans kom brátt úr örðu herbergi. Hún var lagleg og líka dökk á hörund. Hún hafði greinilega skipt um kjól f skyndi, og var sá, sem hún var f blár baðmullarkjóll. Konan var berfætt, hár hennar var mikið og sítt og hrundi það niður herðar henni sem fossstrengir af stalli. Hún heilsaöi honum kurteis lega, lágum rómi, eins og sjálfsagt var samkvæmt mexikönskum sið- venjum, en nokkurrar furðu gætti í augum hennar. Og það var svo sem augljóst að hvorugt þeirra hjóna gat áttað sig fyllilega á gest inum sem var útlendingslegur í út- liti og hreimur máls hans annar- legur. Svo hzfði hann komið óvænt og skyndilega. Ástæða gat verið til grunsemda, en gestrisni var þeim hjónum báðum f blóö borin. — Ég get borgað, sagði Leo. — Það skiptir engu, sagði maöur- inn, setjizt niður. Og hann benti honum á madressu á gólfinu, en yfir hana hafði verið breitt Navajo- teppi. Madressan var fyrir aftan Leo. Og um leið og maðurinn sem hafði boöið honum að koma með sér sagði við hann Setjizt, datt hann aftur á bak ofan á madress- una fyrir aftan sig, þunglamalega, eins og maöur sem hafði misst allan líkamsþrótt, og hreinlega gefizt upp- iut... .n — Polebrito, sagði konan og brosti nú fyrst. Þeim skildist nú báð um, að hann var nærri hjálparvana. Konan skaraði og blés í eldinn til þess að glæöa hann, en hann hafði nærri verið útkulnaður og maður- inn gekk út til þess að huga aö asna Leós. Og brátt kom hann inn, með hnakkinn og farangurstöskuna. Leo dróst með miklum erfiðis- munum að töskum sinum og titr- andi höndum dró hann upp úr ann- arri þeirra stóra flösku fulla af brennivini, sem Velardes hafði gef- ið honum að skilnaði. Hann náði úr henni tappanum og rétti manninum og brosti veiklega, en hann band- aði henni frá sér: — Þú skalt drekka úr henni, þér veitir ekki af hressingu. Leo hristi höfuðið. — Þú fyrst, sagð hann ákveðinn. Hann var búinn að vera nógu lengi í landinu til þess að vera jafningi annara á sviði kurteisi. Maðurinn tók nú við flöskunni, og svolgraði í sig úr henni, og rétti Leo hana svo aftur. Þar næst rétti Leo konunni hana, en hún varð feimnisleg á svip og leit sem snöggv ast á mann sinn, fékk sér svo sopa ákveðin á svip, fékk sér annan og fór að skellihlæja. Þaö var greini- legt, að það var ný reynsla í hennar lífi að bragða áfengi. Svo fóru þau öll að hlæja og þótt hláturinn dytti fljótt niöur nægði þetta til þess að eyða allri forvitni og undrun. Leo lyfti flöskunni að munni sér og drakk langan, langan teig, með tár in í augunum. Áfengið verkaöi þann ig á hann, að honum fannst ylur fara um æðamar og það var sem þreytan hyrfi, og hann var mátt vana, en sæll. Konan færði honum kjötkássu kryddaða með rauöum pip ar. Maturinn var heitur og hann gat varla hsjldið opnum augunum meðan hann mataðist. Og þegar því var lokið sá hann, að þau höfðu búið um hann í flatsæng á gólfinu og hann hallaði sér út af í öllum fötunum og var sofnaður um leið. VI. Tveimur árum eftir aö Leo fór yfir sléttuna til La Bajada var nafn hans á allra vörum vítt þar um slóðir, og hann var enda vel kunn ur í öllum þorpum Mexikana og Rauðskinna milli Santa Fe og Socorro, en milli þessara staða vom nærri 150 mílur vegar. En hinir ríku og voldugu höfðu ekki af honum nein persónuleg kynni ,en fjöldi manna af alþýöu stétt þekkti hann nógu vel til þess að nefna hann skímarnafni hans og biðu óþreyjufullir komu hans, þvf að Leo var óvenjulegur farand- sali. Enginn hafði komizt í kynni við neinn slíkan af stétt farandsala á þessum slóðum — og ekki kom neinn slíkur í hans stað, þegar hann var farinn að fullu og öllu og langa lengi mundu menn hann og töluöu um hann. Hann hafði sannarlega skilið eftir minningu um sig í hug- um manna. Meginregla hans var að vera góð ur farandsali og einkunnarorö hans voru: Viðskiptin fyrst — annað síðar. Hann kom fram af mikilli alúð og nærgætni við viðskiptavini sína, því að hann vissi að hann mundi hagnast á því efnahagslega. Fæstir viðskiptavinir hans geröu neinar kröfur, en ef hann. komst að því, að þeir ólu einhverjar von- ir, til dæmis um aö eignast eitt- hvað, sem þá vanhagaði um, en gerðu sér eiginlega ekki vonir um, að geta nokkum tíma fengið, þá lagði hann sig í líma meö að láta þessar óskir rætast. Svo nærgæt- inn var hann og þolinmóður, að menn höföu aldrei haft af slíku aö segja fyrr. Og á komu hans til þorpanna komst brátt ákveðinn svipur, allt tengt komunni var hefö bundiö, og ekki brugðið út af nema nauðsyn krefði veðurs vegna. Hann kom alltaf með gott handa krökkunum og það voru þau, sem alltaf sáu fyrst til hans á þjóð- veginum, og tilkynntu komu hans meö köllum og bægslagangi, og svo komu þau á móti honum í hóp. Og þegar hann loks komst á torgið var hann með heila fylk- ingu í eftirdragi. Nærri allir höfðu Án nokkurrar viðvörunar falla menn og Hérna koma þeir. hestar fyrir kúlnahríðinni. farið á stjá til þess að fagna hon- um. Stundum varð þaö að ágrein- ingsefni milli þorpsbúa hver ætti að hýsa hann og að kvöldi dags var jafnan fjölmennt í húsinu, sem hann hafði þegið gistingu í, — menn söfnuðust saman kringum hann til þess að spyrja hann spjör- unum úr og masa. VÍSIR Auglýsinga- móttuko i TIÍNGÖTU 7 og Luugavegi 178 Sími 1-16-63 VÍSIR VÍSIR er einu | síðdegisbluðið kemur út alla virka daga allart ársms hrmg i w Askriftarsími 1-16-61 BEiZ.. L~Am

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.