Vísir - 05.03.1966, Page 11
Birgir
MEÐ í 24. sinn.
Þórarinn
MEÐ í 3. sinn.
íslendingar gegn heimsmeisturum
— NýHíarnir bahir boða forföll
^ Hvorugur nýliðanna, sem keppa áttu með landsliðinu um helgina gegn
Rúmenum verða með. — Báðir nýliðamir, Sigurður Dagsson og Öm
Hallsteinsson eru veikir og útilokað er með öllu að Sigurður verði með, en
líkurnar með Örn öllu betri.
^ Við hringdum í gærdag heim til Sigurðar Dagssonar og fengum þær upp-
lýsingar að eftir síðasta leik Vals á dögunum hafi Sigurður komið fárveikur
heim og hefur legið síðan með háan hita. Hefur hann miklar þjáningar í liða-
mótum og telja læknar að hér sé um svæsna liðagigt að ræða. Getur Sigurð-
ur ekki staðið í fætuma. Batni Sigurði ekki nú um helgina stendur til að leggja
hann inn á sjúkrahús til rannsóknar.
í stað Geirs og Sigurðar hefði
landsiiðsnefnd valið þá Birgi
Bjömsson FH og Þórarin Ól-
afsson Viking til að leika þenn-
an leik. Verða því engir nýliðar
með í þessum leik, en þetta
verður þriðji landsleikur Þór-
arins og 24. landsleikur Birgis
Björnssonar.
Landsleikurinn í dag hefst kl.
17 að lokinni setningarathöfn.
íslenzka landsliðið á hér i
höggi við sterkasta liðið til
þessa. RUmenar eru án saman-
Þá hringdum við til Laugar-
vatns ,en eins og við höfum áð-
ur skýrt frá er Geir Hallsteins-
son meiddur. „Ég meiddi mig á
mánudaginn í körfubolta, kom
illa niður“, sagði Geir. „Síðan
hef ég haft blývatn við tognun-
ina, sem er í vöðva, og í morg-
un var ég oröinn það góður,
að ég gat hlaupið um, en það
versnar í því ef ég sný mér
harkalega“.
Geir kvaðst ekki viss en hvort
hann ætti að vera með í leikn-
um, enda kæmi fleira til ,því
amma hans verður jarðsimgin I
dag eftir hádegi og af þeim
sökum getur hann ekki veriö
með á fundi með liðinu á Hót-
el Sögu ki. 1. Kvaðst hann ætla
áð ræða betur um málið við
Sigurð Jónsson, formann lands-
liðsnefndar, eftir hádegið og
mundu þeir í sameiningu taka
ákvörðun um þetta. Síðar um
daginn hringdi Sigurður Jóns-
son til blaöslns og kvað það
hafa orðið að ráöi að Geir yrði
ekki með í þetta sinn.
burðar sterkasta handknattleiks
lið heims í dag. Liðsmenn eru
mjög ólikir því sem við eigum
að venjast af handknattleiks-
mönnum, því liðsmenn virðast
hvorki vera óvenjuháir í loft-
inu né kraftalegir. Það eru ieik-
aðferðir þeirra og leikbrellur,
sem gera liðið að því sem það
er.
íslenzku Ieikmennirnir þekkja
sumir hverjir til helztu leik-
manna Rúmena frá þvi á heims
meistarakeppninni 1958, þar á
meðal hinn fræga Ion Moser,
sem hefur oft verið kallaður
bezti handknattleiksmaður
helms.
Þaö verður gaman að sjá þetta
Iið Rúmena i dag og á morg-
un og útlit er fyrir mikla að-
sókn og enn einu sinni lítur út
fyrir að nýja Laugardalshöllin
muni ekki rúma alla þá, sem
vilja krækja sér í miða. Þess
vegna er það ráölegging okk-
ar hér á síðunni, að menn tryggi
sér miða sem fyrst í dag, til
að vera ekki gerðir afturreka,
þegar á staöinn er komið, —
en það hefur því miður verið
of oft í vetur. — jbp —
Tekst KR
nð tryggja
forystuna ?
• ÍR og KR bítast annað kvöld '
í körfuknattleiknum um sigur á ,
íslandsmótinu. Verður leikur
þessara liða eflaust mjög spenn-
andi eins Og nokkrir undanfar-
andi leikir þeirra, en ÍR á hér
allt að vinna í leik sínum gegn
íslandsmeisturunum.
• KR-ingar munu hins vegar
selja sig dýru verði og fari svo
að þeir vinni ÍR eni þeir lang )
efstir í 1. deild með 8 stig eftir |
4 leiki, en.ÍR þarf að vinna þenn i
an leik tll að þeir standi jafnt j
að vígi og KR, þegar seinni um- i
ferð keppninnar hefst. Vinni ÍR
eru KR, ÍR og Ármann öll með
6 stig að lokinni fyrri umferð-
inni.
j
Leikurinn fer fram á Háfoga !
landi og hefst kl. 20.15 annað
kvöld.
I m hvlfjitiu
Islandsmötinu í handknattleik
verður haldið áfram laugardaginn
5. marz í Iþróttahúsi Vals og hefst
kl. 20.00. Leikið verður i
2. flokki kvenna:
B-riðill:
Ármann—F.H.
Valur—Víkingur
1. flokkur karla:
A-riðfll;
Fram—Valur.
Vikingur—Í.R.
Mánudaginn 7. marz verður
leikið í Hálogalandi og hefst leik-
kvöldið kl. 20.15. Leikið verður i
2. deild karla:
Vikingur—I.R.
3. flokkur karla:
B-riðili:
K.R.—Breiðablik.
Ármann—F.H.
A-riðill:
Haukar—Víkingur.
Þriðjudaginn 8. marz að Háloga-
landi kl. 20.15 verður leikið i 1.
deild karla:
Fram—K.R.
Valur—F.H.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja þvottastöð fyrir
Strætisvagna Reykjavíkur við Kirkjusand,
hér í borg. Útboðsgögn verða afhent í skrif-
stofu vorri, Vonarstræti 8, gegn 3000 króna
skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
i MÚRARAR
Óskum eftir múrarasveinum til þess að múra
að innan eitt stigahús (9 íbúðir) tilboð óskast
fyrir þriðjudagskvöld merkt „múrverk —
4264“.
Trésmiðir —
Framh. af ols. 16.
son, Sigurður Ólafsson, Ólafur Páls
son.
Varamenn í trúnaðarráði: Björn
Guðbrandsson, Ömólfur Bjömsson,
Ásmundur Þorkelsson, Guömundur
Hervinsson, Einar Einarsson, Há-
túni, Karl Þorvaldsson.
Núverandi stjóm Trésmíðafélags
Reykjavíkur hefur setið við völd í
félaginu 6 s. 1. ár. Hefur forysta
hennar í múlefnum trésmiða verið
frámunalega léleg, svo leitun mun
vera á ööru eins í verklýðshreyfing
unni enda hafa stjórnarmeðlimir
haft allt öðru að sinna, eins og félag
amir bezt vita. Það er þvl hags-
munaleg nauðsyn fyrir trésmiði að
gefa núverandi forystumönnum
félagsins hæfilega ráöningu og það
gera þeir bezt með því að styrkja
B-listann í kosningunum.
Starf rafveitustjóra
i Siglufirði
Samkvæmt samþykkt rafveitunefndar og bæjarstjómar
Siglufjarðar er starf rafveitustjóra í Siglufirði hér með
auglýst laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15
marz n.k. Umsóknum skal skila til undirritaðs eða
Baldurs Eiríkssonar formanns rafveitunefndar
Siglufirði, 4. marz 1966
Bæjarstjórinn í Siglufirði.
Vegna brottflutnings
er til sölu
Nýtízkuleg húsgögn í stúlknaherbergi og í dagstofu,
ný sýningarvél og fl. rafmagnsáhöld. Til sýnis laugar-
dag frá kl. 19 — 21 og sunnudag frá kl. 13 — 15, Nes-
vegi 15, Lestin.
isaaanaga