Vísir


Vísir - 15.03.1966, Qupperneq 3

Vísir - 15.03.1966, Qupperneq 3
VÍSIR . Þriðjudagur 15. marz 1966. J anu I i Armann Brynjólfsson vinnur við vélina, sem framleiðir gagnlegan hlut fyrir yngstu þjóðfélagsþegnana. 70-80 TONN AF PLASTPOKUM Á ÁRl Ásgeir Long ber saman lok5ð af plastfötunni og mótið mörg kíló að þyngd. Fallegar og þægilegar umbúðir eru einn liðurinn í þjónustu verzlana við viðskiptavini sína nú á dögum. Meðal þeirra eru plastpokamir, sem núna þykja ómissandi utan um ýmsar fram- lciðslutegundir. Fyrir nokkmm árum voru þeir næstum óþekkt fyrirbrigði. Árlega framleiðir verksmiðjan að Reykjalundi plastpoka fyrir landsmenn og nemur framleiðsl- an 70—80 tonnum af plastpok- um á ári. Vélin gengur dag sem nótt, en ekki hefur ennþá tekizt að anna eftirspuminni eftir þess um sjálfsagða þætti lífsþægind- anna. í apríl eða mai verður komið upp annarri vél tii plastpoka- framleiðslu að sögn Jóns Þórðar sonar framleiðslustjóra verk- smiðjunnar að Reykjalundi. Fór Myndsjáin í ferðalag að Reykjalundi núna fyrir helgina tll þess að kynnast framleiðsl- unni, sem m.a. er fóigin f notk Þorleifur Eggertsson við vélina, sem gengur dag og nótt. un plasts í ýmiss konar hluti. Mörg handtök liggja að baki áður en hlutirnir koma alskapað ir úr vélunum, sem hafa ieyst manninn af hólmi á mörgum sviðum. Fer einn mikilvægasti þáttur- inn fram f mótasalnum þar sem mót fyrir hvert einasta smá- stykki eru smíðuð í mótavélun um eftir að búið er að teikna upp hlutinn. Stundum eru feng in leigumót, aðallega fyrir leik- föngin og má því stundum sjá merkið „Made in Danmark“ á einhverri vörutegundinni þótt hún sé íslenzk framleiðsla að öðru Ieyti. Erú þó flest allar framieiðslutegundimar teiknað- ar að Reykjalundi. Ásgeir Long yfirmaður í móta salnum sýndi litla plastfötu, sem á að nota undir ávaxtamauk og stálmótin, sem hún er gerð eftir, en þau ein kosta á milli 50—60 þúsund krónur. Smíðinni á mótunum má ekki skakka 2/100 úr millimetra, sagði Ásgeir um leið og hann bar lokið á einni fötunni við viðamikið mótið, mörg kíló á þyngd. Þegar komið er inn í vélasal- inn blasir við nýjasta fram- leiðslutegundin, sem ekki er enn þá komin á markaðinn. Er hún miðuð við þarfir yngstu þjóð- félagsþegnanna, lítill hlutur, stöðugur á gólfi svo að engin hætta er á að innihaldið fari á það. Hefur verksmiðjan þegar framieitt 2 þús. stykki af bama koppunum, sem bráðum eiga að koma á markaðinn. Fram- leiðslan gengur greitt, vélin af- kastar 40—60 stykkjum á klst. En plastið er einnig notað í leikföng, matarílát, vatnsrör o. fl. sem allt er merkt „Reykja- lundur“. > Ármann Brynjólfsson við hjólið, sem hringar upp vatnsrörin, en 300 þúsund metrar af þeim voru framleiddir að Reykjalundi s.l. ár. UILS061 m JStv

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.