Vísir - 25.03.1966, Síða 3
V1S IR . Föstudagur 25. marz 1966,
3
Það var enn rúmur mánuður
tll páska þegar fyrstu páskaegg
in komu í verzlanirnar. Þau
voru sett upp í hillur og á borð
og þar standa þau flest enn.
Páskaeggjasalan hefst ekki aö
ráði fyrr en í dymbilvikunni og
flest eggin seljast laugardaginn
fyrir páska. Það eru nefnilega
margir sem ekki treysta sér til
aö geyma þessi gimilegu súkku
laðiegg yfir bænadagana, hætt-
dýrkun heiðinna forfeðra okkar
á vorhátiðunum, en hafi flutzt
yfir á páskana með kristnltöku
þegar páskarnir urðu aöalvor-
hátíðln.
*
Víöa í nágrannalöndum okk-
ar er mikið um páskaskreyting-
ar — líkt og jólaskreytingar —
og hér á iandi hafa margir tek
ið þann sið upp, mála t.d. fagr
ar myndir á venjuleg hænuegg
klippa út alis kyns myndir yf-
irleitt af blómum, hænum, ung
um og eggjum o.s.frv.
Súkkulaöiverksmiðjurnar
byrja yfirleitt að undirbúa
páskasælgætið strax um ára-
mót og um þessar mundir er
víða mikið að gera því að ver
iö er að gera síðustu eggin,
pakka þelm inn og senda þau út
Myndsjáin brá sér i sælgætis-
gerðina Mónu fyrir skömmu til
að sjá hvemlg páskaeggiö væri
gert, já, og reyndar hænan líka
þvi að Móna hefur nú tekið
upp þá nýbreytni að framleiöa
súkkulaðihænur og unga.
Þegar súkkulaðiö kemur úr
lögunarvéllnni er það sett í
form: eitt hænuform, ef úr því
á að veröa hæna, annars í tvö
HVÍRNIG PASKAEGGIN VERÐA TIL
»
an á að þau veröi innbyrt fyrr
en leyfilegt er er þá of mikll.
En hvers vegna erum við að
boröa þessi súkkulaöiegg?
Það er álitlð að þessi mikla
eggjahátið, sem alltaf verður
stórkostlegri með hverju árinu
sem líður, sé leifar af frjósemis
form sem hvort um sig er i
laginu eins og hálft egg. Síðan
eru formin sett á sérstakt tæki
sem sér um aö snúa þelm þann
ig að súkkulaöið jafnlst út f
formunum, meðan þaö er aö
harðna. Þegar súkkulaðlð er orð
ið hart eru formin tekin, hænan
er fullgerð, aðeins eftir að setja
inn i hana sælgætiö, sem kalla
mætti eggin hennar og setja
botninn i. Eggin eru aftur á
móti limd saman en áöur en
hægt er að gera það er framhlið
eggsins skreytt og sælgæti —
og málsháttur auðvitað — sett
Páskaeggin standa og bíða þess aö verða boröuö, og þau eru af öllum stærðum, allt frá örsmáum
upp í risastór.
Hér eru hænumar komnar með ungana sína.
inn í. Síðan er eftir að setja á er tilbúið — bíður bara pásk-
fótinn, pakka egginu inn og það anna.
Formin með hænunum eru látin snúast meðan súkkulaðiö er að
storkna svo aö veggimir verði jafnþykkir.
2/o-6 herb. íbúðir til sölu
3ja og 4ra herb. íbúðir tilbúnar undir tréverk í Hraun-
bæ. Einbýlishús í smíðum í Kópavogi.
6 herb. hæðir í tvíbýlishúsum í Hafnarfirði tilbúnar
undir tréverk.
2ja herb. íbúðir í Austurbrún og Ljósheimum.
2ja herb. íbúð nýstandsett á hæð í steinhúsi. Verð
kr. 650 þús. Útb. 250 þús.
3ja herb. íbúð í steinhúsi ný standsett. Verð 750 þús
Einbýlishús í gamla bænum. Verð 750 þús. Útb. 300
þús..
1 5 herb. íbúð. Verð 800 þús.
Enn fremur iðnaðarhús og verzlunarpláss til sölu.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN Austurstræti 12
Simar 14120. 20424 og kvöldsími 10974.