Vísir - 25.03.1966, Blaðsíða 13

Vísir - 25.03.1966, Blaðsíða 13
V1SIR . Föstudagur 25. marz 1966. 13 Þjónusta Þjónusta HÚSGAGNABÓLSTRUN Klæöi og geri við bólstruö húsgögn. Tekiö á móti pöntunum I sima 33384. Bý til svefnbekki og sófa eftir pöntunum Sýnishom fyrir- liggjandi. Geriö svo vel og lítiö inn. Kynnið vður veröið. — Húsgagna- bólstrun Jóns S. Árnasonar, Vesturgötu 53b. HÚSEIGENDUR ATHUGIÐ Tökum aö okkur húsaviögerðir, setjum upp rennur og niðurföll, skiptum um járn, sprunguviögerðir. Einnig uppsetning á sjónvarps- loftnetum og ísetning á tvöföfdu gleri. Sími 17670 og á kvöldin í 51139. HÚSBYGGJENDUR — BIFREIÐASTJÓRAR Tökum að okkur rafiagnir, viögerðir og rafvélar. Einnig bílarafmagn, svo sem startara, dynamóa og stiliingar Rafvélaverkstæði Símonar Melsted, Síðumúla 19. Sími 40526. HEIMILISTÆKJAVIÐGERÐIR Þvottavélar, hrærivélar og önnur heimilistæki, raflagnir og rafmótor- vindingar. Sækjum, sendum. Rafvélaverkstæöi H. B Ólafssonar, Síðu múla 17. Sími 30470. ÞAKRENNUR — NIÐURFÖLL Smíði og uppsetning. — Ennfremur kantjárn, kjöljám, þensluker, sorprör og ventlar. Borgarblikksmiðjan, Múla v/Suðurlandsbraut. Símar 20904 og 30330 (kvöldsími 20904). GÓLFTEPPA- OG HÚSGAGNAHREINSUN Hreinsum í heimahúsum. — Sækjum, sendum. —Leggjum gólfteppi. Söluumboð fyrir Vefarann h.f. 35607, 36783 Og 21534. Hreinsun h.f., Bolholti 6. Símar HÚSAVIÐGERÐIR Við önnumst viðhald húsa yðar. Góð þjónusta. Glerísetning, húsa- málningar o. m. fl. Uppl. í síma 40283. BIFREIÐAEIGENDUR Alsprautum og blettum bifreiðir yðar. Fljót og góð afgreiösla. Bíla- sprautun Gunnars D. Júlíussonar B-götu 6 Blesugróf. Sími 32867 frá kl. 12—1 daglega. Bifreiðaviðgerðir Ryðbæting, réttingar, nýsmiði, plastviðgerðir, sprautun og aðr- ar smærri viðgerðir. Jón J. Jakobsson, Gelgjutanga. Simi 31040. ÁHALDALEIGAN SÍMI 13728 Til leigu víbratorar fyrir steypu, vatnsdælur, steypuhrærivélar o.fl. Sent og sótt ef óskað er Áhaldaleigan, Skaftafelli við Nesveg, Seltjarnamesi. ísskápa- og pianóflutningar á sama stað. Sími 13728. BIT ___ HJALR BÍTLARNIR BÍT liR BÍTLARNIR BÍT VINNUVÉLAR — TIL LEIGU Leigjum út litiar steypuhrærivélar Ennfremur rafknuna grjót- og múrhamra með borum og fleygum. Steinborar - Vibratorar — Vatnsdæiur Leigan s/f Sími 23480._____________ LJÓSASTILLINGAR Bifreiðaeigendur við getum nú stillt fyrir yður ljósin á bifreiðunum - fljót og góð afgreiðsla ( Ljósastillingastöðinni að Lang holtsvegi 171. Opið frá kl. 8 — 12 og 13.30 til 19 alla virka daga nema miðvikudaga til kl. 22 og laugardaga til kl. 15. — Félag ísl. bifreiðaeigenda._________ BIFREIÐAEIGENDUR! Sprautum og réttum. - Bílaverkstæðið Vesturás h.f., Sfðumúla 15 B, sími 35740. _________________ KLÆÐNINGAR — BÓLSTRUN Barmahlíð 14, simi 16212 — Tökum að okkur alls konar klæðningar. Fljót og vönduð vinna. Sækjum, sendum. Mikið úrval af áklæði, svefnbekkir á verkstæðisveröi á sama staö. RYÐBÆTINGAR Ryðbætingar, trefjaplast eða jám. Réttingar og aörar smærri við- gerðir. Fljót afgreiösla. — Plastval, Nesvegi 57, sími 21376. HITABLÁSARAR — TIL LEIGU hentugir í nýbyggingar, skipalestar o. fl. Uppl. á kvöldin í síma 41839. HÚSAVIÐGERÐIR Getum bætt viö okkur utan og innan húss viðgeröum. Setjum I tvöfalt gler, skiptum og gerum við þök og ýmislegt fleira. Vönduð vinna. Utvegum allt efni. (Pantiö fyrir sumarið). Sími 21172 allan daginn. VIÐGERÐIR — ÞJÓNUSTA Önnumst allar utan- og innanhússviðgerðir og breytingar. Þétt- um sprungur, lögum og skiptum um þök. Ennfremur mosaik og flís- ar o. fl. Uppl. allan daginn í síma 21604. Auknar — Framh af bls. 7 ingu Húsnæðismálastjórnar. Lán þessi verða veitt einstakl- ingum og stofnunum, en einkum samtökum ungs fólks, sem hyggst ráðast í byggingu íbúða. Öryrkjabandalagið mun fá lán af þessu fé til byggingar, sem bandalagið hyggst reisa að Há- túni 10. Er undirbúningur að þeirri bvggingu þegar hafinn að því er Jóhann Löve hefur tjáð okkur og teikningar þegar tilbúnar að miklu leyti. Sam- kvæmt þeim verða þar íbúðir fyrir rúmlega 100 einstaklinga. Fréttamaður blaðsins brá sér inn í Austurbrún 6 en þar er veglegt háhýsi í smíðum á vegum borgarinnar. Hús þetta er á 12 hæðum og er það með svipuðu sniði og háhýsin tvö sem fyrir eru við Austurbrún, svokallaðar piparsveinablokkir. Á hverri hæð hússins eru 6 íbúðir nema þeirri neðstu aðeins 3, en þar er fyrirhugað geymslu- pláss. Efsta hæðin, sú 13. er inndregin og er þar reiknað með samkomusal eða einhverju sam- eiginlegu plássi fyrir allar íbúð- irnar. Bygging þessa húss er liður í þeirri viðleitni borgarinnar að sjá öldruðu fólki, öryrkjum og einstæðum mæðrum fyrir við- unandi húsnæði og jafnframt til útrýmingar heilsuspillandi hí- býla i borginni. — Byrjað var á smíði þessa húss vorið 1964 en það varð fokhelt í júlí síðast- liðnum. Unnið er nú af kappi að innréttingu hússins og mið- ar því verki vel áfram. Unnið er að málningu og það verk langt komið. Búið er að setja upp eldhúsinnréttingar og aðra skápa í efstu hæðimar og búizt er við að þeim hluta verksins verði lokið um næstu mánaða- mót. Form s.f., Hafnarfirði, sér um smiði allra innréttinga. íbúðirnar, sem eru 69 tals- ins eru allar með sama sniði og allar jafn stórar, 50 ferm. innandyra. íbúðimar eru mjög skemmtilegar fyrir einstaklinga eða iitlar fjölskyldur. Þær sam- anstanda af eldhúsi, baði og stórri stofu með rúmgóðum svefnkróki. Svalir fylgja hverri íbúð. Eftir er að ganga frá lyftu og stigahúsi, og 13. hæðin og sú fyrsta em enn þá óinn- réttaðar, en búizt er við að húsið verði tilbúið til notkunar fyrir mánaðamótin maí—júní. Það vekur sérstaka eftirtekt hversu hagkvæm vinnubrögð eru höfð við innréttingu þessa húss. En allar innréttingar eru framleiddar í fjöldaframleiðslu, enda allar eins. Meistari við húsbygginguna er Sveinbjörn Sigurðsson. IÐNSKÓLINN / REYKJAVÍK Um 60 kennslustunda kvöldnámskeið fyrir umsækjendur um störf á teiknistofum verður haldið á tímabilinu 13. apríl til 21. maí, ef næg þátttaka fæst. Kennd verða undirstöðuatriði í teiknitækni. Innritun fer fram á skrifstofu skólans til 1. apríl. — Námskeiðsgjald kr. 500.00 greiðist við innritun. Skólastjóri.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.