Vísir - 26.03.1966, Page 1

Vísir - 26.03.1966, Page 1
VISIR BORGARRÁÐ REYKJAVÍKUR í NÝJUM FUNDARSAL Borgarráösfundur í Reykjavík í hinum nýja fundarsal. Taliö frá vinstri: Gunnlaugur Pétursson borgarritari, Bfrgir Isl. Gunnarsson, próf. Þórir Kr. Þóöarson, frú Auöur Auöuns, Geir Hallgrímsson borgarst jóri, Páll Lfndal borgarlögmaður, Kristján Benediktsson, Guömundur Vigfússon, Óskar Haligrímsson og Gústaf E. Pálsson borgarverkfræðingur. Myndin sem hér birtist var tek- in á borgarráðsfundi í Reykjavík sem haldinn var f gær. Ljósmynd- ari blaðsins fékk leyfi til að koma á fundinn og taka mynd þar í til- efni þess, að nú nýlega er farið aö halda borgarráðsfundi í nýju fundarherbergi sem hefur verið inn réttað í skrifstofum borgarinnar á fimmtu hæð í húsi Reykjavíkur- apóteks. Jafnframt fundarsalnum hefur verið komið þar fyrir lestrar- sal sem ætlaður er til afnota borg- arfulltrúum þar sem þeir hafa greið an aðgang að borgarskjölum og er þetta ætlað til þess, að þeir eigi Framh. á 5. síðu. 56. árg. — Laugardagur 26. marz 1966. - 72. tbl. Kjorval gaf Listasafninu ntálverkið sem selzt hafði á 75 þásund krónur Á uppboðinu hjá Sigurði Benediktssyni sl. miðvikudag var Listasafni Islands slegin myndin „Svanasöngur“ eða „Bak og fyrir" eins og hún nefnist öðru nafni eftir Jóhann- es Kjarval á 75 þús kr. Var næsfchæsta boð í málverkið að upphæð 72 þús. kr. Hefur listamaðurinn nú á- kveöið að afhenda Listasafninu þessa mynd að gjöf og hefur hún verið þegin með þökkum. Á sama uppboði var fulltrúa safnsins, Gunnlaugi Þórðar- syni, slegin myndin „Heyþurrk ur eftir Heklugos" á 45 þús. kr. og þótti gott verð. Hafði blaðið tal af Gunnlaugi Þórðarsyni og sagði hann eftir- farandi: Framh. á bls. 5. Aukning þjóiartekna aldrei örari en s.l. ár Úr ræðu forsætisrúðherru í gær Forsætisráðherra dr. Bjami Benediktsson rakti efnahagsþró- unlna s.l. ár i útvarpsræöu sinni í gær. í upphafi ræöu sinnar vitnaði hann i ummæli Helga Bergs á miðstjómarfundi Fram- sóknarflokksins nú nýverið og sagði aö kommúnistar væm ekki einir um þann hroka að ætla sig eina færa um að sitja viö stjóm- völ hvaö sem hver segði og hver sem stefna þeirra væri. Hann gerði og að umræðu- efni kvartanir Framsóknar- manna út af kjördæmaskipun- inni, og sagði það vera skoðun Sjálfstæðisflokksins að kjör- dæmaskipunin ætti að miðast við styrkleika þingflokka hvert sinn og að því mundu sjálfstæö- ismenn ávallt vinna. Framsókn- armehn segðu í hvert sinn er þeir fengju ekki nægilegan stuðn ing við kosningar til að mynda ríkisstjóm, að nú hefði lýðræðið fallið á prófinu. Það vfceri aft- ur á móti skoðun sjálfstæðis- manna, að það væru þingmenn, sem ættu að ganga undir próf kjósenda, en ekki öfugt eins og framsóknarmenn vildu láta i veðri vaka. Forsætisrh. sagði, að aðvörunarorð um verðbólgu hefðu ekki borið jafn mikinn ár- angur og æskilegt hefði verið. Allt frá tímum fyrri heims- styrjaldar hefði verið háð harð- vítug barátta gegn jafnvægis- leysi í efnahagslífinu. Þótt ekki hefði enn tekizt aö stöðva verð- bólguþróunina heföi þó tekizt að stöðva að nokkru þá þróun, er vinstri stjómin hefði komið af stað. Einnig sagði forsætisráðherra að aldrei hefði verið gert eins mikið í tryggingarmálum og nú ———Mni iiin ■uuwiii undir forystu núverandi ríkis- stjómar, og nefndi sem dæmi, að hagur aldraðs fólks hefði aldrei verið betri en nú I dag. Einnig hefðu framkvæmdir aldrei verið meiri og stórfelld- ari en í dag og vitnaði forsætis- ráðherra í tölur um fjárfestingu í sjávarútvegi, og sagði að ríkis stjómin hefði stutt þessa auknu fjárfestingu með stórauknum hagstæðum stofnlánum. Forsæt- isráðherra sagði að á sl. 7 árum hefði þjóðarauðurinn aukizt úr 28 þús. millj. kr. og í 41 þús. millj. kr. og væri þessi aukning mest megnis vegna spamaðar innan lands. Væru þessar tölur allar miðaðar við fast verðlag. Siðan vitnaði forsætisráð- herra í ummæli þeirra Lúðvíks Jósepssonar og Magnúsar Kjart- anssonar um góðæri það er ríkti hér á landi. Jafnframt hefði Einar Olgeirsson sagt í þingræðu hinn 16. þ.m. að það ánægjulegasta við þessa heil- brigðu þróun væri þaö, að hún hefði ekki verið aðeins fáum til gagns. Vissulega væru þessi ummæli á annan veg en stjórn arandstæöingar segðu í kvöld, en menn yrðu að fyrirgefa þeim ef þeir þreyttust á að lofa ríkisstjórnina. Forsætisráðherra sagði að vöxtur þjóðarteknanna hefði aldrei verið örari en á Framh. á 5. síðu. Stjórnarandstaðan deildi á stærstu framfarafyrirtæki þjóðarinnar Umræðurnar í gær snerust mest um Búrfellsvirkjun og úlbræðslu Útvarpsumræðumar í gær snerust að miklu leyti um Búrfellsvirkjun ina og hina væntanlegu samninga um smíði ál- bræðslu sem mun kaupa raforku frá Búrfellsvirkj uninni. Vom umræður þessar mjög gagnlegar fyrir það að við þær skýr ast málin verulega fyrir landsmönnum, en búizt er við að þau verði lögð í næstu viku fyrir AI- þingi. Það varð ljóst af umræðun- um, að nú eru að hefjast hér á landi einhverjar stærstu og þýðingarmestu framfarafram- kvæmdir i sögu þjóðarinn- ar, á næsta leiti er að rætast sá draumur, sem allir stjóm- málaflokkar hafa um áratugi sett efst á stefnuskrá sina, virkj un stærstu fallvatna landsins. En stjórnarandstöðuflokkamir Framsókn og kommúnistar eiga erfitt með að unna núverandi stjórnarflokkum þess heiðurs að koma þessum stórvirkjum í framkvæmd og því snúast þeir gegn sjálfum framkvæmdunum af ósegjanlegri heift og finna þeim allt til foráttu. Landsmenn sem hlýddu á um- ræðumar í gær munu hafa undr azt öll þau ólíkustu rök, sem stjómarandstæðingar gátu verið að tína upp, svo sem það að ísalögin I Þjórsá væru svo mikil að það væri vonlaust að virkja fljótið, að fremur hefði átt að virkja Dettifoss, að ekki ætti að leyfa byggingu álbræðslu, þó það fyrirtæki skapi stórvirkjun- inni fjárhagslegan grundvöll. Virtist afstaða stjómarandstöð- unnar og sérstaklega þó Fram- sóknarmanna vera heldur aum- leg, enda auðvelt að sýna fram á mótsagnirnar 1 málflutningi manna sem fyrir einu ári voru að berjast fyrir því að álbræðsla yrði byggð á Akureyri, en nú eru komnir á þá skoðun að ál- bræðsla verði eitthvert þjóðar- mein sem beri að forðast. Jóhann Hafstein iðnaðarmála- ráðherra tók fyrstur til máls af ræðumönnum Sjálfstæðisflokks- ins og gerði hann ýtarlega grein fyrir undirbúningi stórvirkjun- ar og alúmínsamnings. Hann skýrði það með glöggum rök- um, hvers vegna virkjun í Þjórs- Framh. á 5. síðu.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.