Vísir - 01.04.1966, Síða 15

Vísir - 01.04.1966, Síða 15
VÍSIR . Föstudagur 1. apríl 1966. 75 C-5>S>‘«>S>5>«>5>»>5>»>5>£>5>£>5>£>5>2>5>E>5>S>:5>E>,5>S>5>©'5>S>'5>e>5>S>S>®'S>®'5>ÍF*5>C-5>S>5>S>5>*> HARVEI FERGUSSON: Xr Don Pedro Saga úr Rio - Grande - dalnum — og til lausnar vandamála. Þetta haföi þó orðið með þeim hætti, að það varð ekki til neins tjóns Don Augustin átti enn jarðir sínar og var hæstráðandi, að minnsta kosti að nafninu, hann naut áfram viðurkenningar alþýðumanna, sem heilsuðu honum af sömu virðingu og auömýkt og áður, en hann varð nú aö vísu að greiða sumum, er störfuðu fyrir hann í reiðu fé. En svo voru þeir ófáir sem ekki ótt uðust Don Augustin lengur, þótt þeir sýndu honum virðingu og það voru þeir sem inntu störf af hendi fyrir Leo og sama máli gegndi um ýmsa, sem lánað höfðu fé hjá hon um til kaupa á gripum og með því að koma undir sig fótunum og voru á leiðinni að verða efnalega sjálfstæðir. Leo hafði unnið sigra í sinni bar- áttu og Don Augustin gat ekki unnt að honum sigranna og vildi hann burt, og mundi sennilegast hafa fagnaö í hjarta sínu ,ef hann heföi dottið af hestbaki og hálsbrotnað. En báöir voru lífsreyndir menn og vissu, aö menn verða oft að sætta sig við ýmislegt í þessu lífi, sem þeim var ógeðfelt. Og hvor um sig hafði tekið í sig, að líta á til- veru hins, sem eitt af því, er þeir yrðu að þola. Sú staðreynd, að Leo var vinur föður Orlando, styrkti að stöðu hans í samfélaginu í Don Pedro, og hafði þær afleiöingar, að Don Augustin ekki aðeins reyndi að þola þaö böl, að Leo var til og hafði setzt þama að, heldur kom kurteisiega fram við hann, heilsaði honum með sínu linleskjulega hand taki, er hann kom á heimili hans, og Leo kom ávallt fram af kurteisi og lézt hlusta af mikilli athygli, er Don Augustin talaði, en ein hans mesta ánægja var að segja sögur og stundum þær sömu upp aftur og aftur. Don Augustin leit því á Leo sem „góðan hlustanda" og taldi þann hæfileika hans eina kost. Don Augustin varð tíðrætt um bemsku- og uppvaxtarár sín. Hann var ekki kominn yfir fertugt, en hann talaöi um viðburöi áranna áð- ur en hann kvæntist eins og gam- all maður minnist af stolti og þrá afreka frá yngri árum. Þegar Don Augustin var um tvítugt og Bllu lengur var farið í árlega leiðangra yfir fjöllin til þess aö smala saman buffalóum til söfnunar árs kjö.t- birgða, og á hausti hverju var far ið til Chihuahua í viðskiptaerindum því að aðeins þar var hægt að fá vefnaðarvöru, sykur, súkkulaöi og hnífa. Nú voru hjarðir buffalóa fá- ar og strjálar vegna ásóknar grin- góa, til þess að fella þá skinnanna vegna, og eftir aö vagnalesta-ferð irnar hófust var óþarft aö fara til Chihuaþua „tiL innkaupa. Hann t^l aði um þennan tíma sem „hina gömlu góöu daga“, sem aldrei kæmu aftur. Don Augustin kvað leiðangurs- ferðirnar hafa verið sitt líf og yndi. Þá gat hann beitt valdi, látið til sín taka, stjórnaö. Hann lýsti sér sem forsprakka, órögum og ötulum manni sem var ekki í essinu sínu nema á vettvangi athafna og afreka og þoldi illa vanagang hversdags lífsins á heimavettvangi. Á þeim tíma, er hann var ungur maður, naut hann sín og naut lífsins. Ekk- ert annað skipti máli. Hann ræddi um þetta af mælsku, hrifni, margt vafalaust orðum aukið, en satt í aðalatriðum. Mesta afrek sitt hafði hann unnið í leiðangri til Chihuahua, þegar A„ache-rauðskinnar höfðu um- kringt flokk hans skammt fyrir sunnan Juarez. Mexikanar gátu þó rutt sér braut inn í gil nokkurt og bjuggust þar til vamar, en Don Augustin bauöst til þess að ríða einn síns liðs eftir hjálp. Menn hans höfðu engar vatnsbirgðir. Þeir höfðu riffla að vopnum, en skot- færi voru af skornum skammti. — Þetta varð að reyna, sagði hann Það var það eina, sem gat orðið til bjargar. Ég átti jarpa meri, sem var frá á fæti, og margoft hafði sigrað í kappreiðum. Ég reið henni berbakt Ég átti þá ekki á hættu aö festast í ístaði og var í minni hættu að meiðast, ef hún væri skot in til bana undan mér, en þá hefði hnakkhorn getað stungizt í mig. Ég hleypti á sprett gegn rauð- skinnum og sveiflaöi sverði mfnu og allt í einu var ég í miðri örva drífu. Ein fór gegnum upphand- leggsvöðva, en önnur lenti í lend þeirrar jörpu, og lá þá við að hún kastaði mér af sér, en mér tókst að sitja hana og fór hún nú sem fugl flygi. Þar með lauk hann sögunni, sat þögull og horfði í gaupnir sér, nið ursokkinn í hugsanir sínar. Vafa- laust lifði hann upp aftur 1 huga sér stundir þessa afreks og ann- arra. Og nú örlaöi í fyrsta skipti á virðingu fyrir þessum manni í huga Leos, því að hann varð að viður kenna, aö hann átti hugrekki til að bera, sem hann sjálfur átti ekki snefil af. Don Augustin hafði þá, þrátt fyrir allt eitthvað það til að bera, sem gert hafði forfeður hans mikla, en hann hafði lítil not af í Don Pedro. III. . . . Leo hafði ekki lengur á- hyggjur af viðhorfum og skiptum við Vierra og konu hans Dona Lupe þegar hann var einn með henni eða honum, en honum leið aldrei nota lega £ návist þeirra beggja, og einkanlega frá fyrstu heimsókn Lupe til hans. Hann vonaði, að Lupe liti sömu augum á, og að félagsleg tengsl hans við heimili þeirra gætu farið minnkandi hægt og hægt án þess að neinn styggð- ist við. En áform Lupe voru öll önnur. Aðeins nokkrum dögum eft ir hinn eftirminnilega ástafund þeirra bauð hún honum heim og hann gat vitanlega ekki hafnað boö inu. Og enn sat hann þar í sal og ræddi við eiginmann hennar meðan þeir biðu komu hennar. Þegar hún kom inn horfði hann á hana furðu lostinn. Hún var £ Ijósbláum kjól með gult langsjal með rauðum rósum á heröum og handlék löfin framan á sér sem væri hún næsta taugaóstyrk. Hon um virtist hún haldin ákafri þrá eftir honum. Hún hafði ávallt ver- ið dálítið skrækróma á stundum og tal hennar blandið beizku háði, og vottur fyrirlitningar £ brosi henn- ar. Nú virtist hún gerbreytt. Hér var komin ný Lupe, með nýrri rcdd og nýju brosi. Það ljómaði af ásjónu hennar og hún gekk til þeirra hlæjandi, heilsaði honum með handabandi, og settist milli þeirra, eins og hrósandi sigri, ró- leg, ánægð á svip. Pótt hvorugt þeirra virtist ætla að geta notið ánægjunnar meö henni. Eiginmað- urinn horfði á hana á svip eins og hann vissi hvorki £ þennan heim né annan og Leo óskaöi sér þess, að breytingin sem á henni var orð- in, hefði ekki komiö svona bert £ Ijós, en það þurfti ekki að fara £ neinar grafgötur með eitt. Hún var ekkert smeyk við Don August- in, það, sem hún hafði gert, hafði ekki veikt sjálfstraust hennar eða öryggi, og var það Leo ekki Iftið fagnaöarefni. En sæll var hann ekki. Hann óskaði sér þess ,að hann væri kominn eitthvað langt £ burt, og samtfmis var hann að hugsa um hvort, og þá hvenær Lupe myndi koma til hans aftur, þvf að minningin um komu henn ar blossaði nú upp og lét hann engan frið hafa og vakti girnd hans til lffs á ný. Hann óskaöi sér sem snöggvast, að Don Augustin yrði að engu, gufaði upp þar sem hann sat, og gufan legöi upp um reykháfinn og hyrfi út f bláinn, en ekki var hann £ vafa um, að Don Augustin mundi vera að óska sér þess, að vald og áhrif Leo nokkurs Mendes mætti gufa upp og nafn hans verða öllum gleymt eilfflega. Og þama sat hann og reyndi að fitja upp á einhverju umræöuefni um leið og hann hugsaði um hjóna bandið sem tvfhöföaða ófreskju. Og það skaut upp f kollinum á honum hugarslangri um hvað þau myndu ræða þessi tvö, þegar þau voru ein, þvf að þegar aðrir voru viðstaddir var nánast sem þau væru ókunnugt hvort ööru. Hann hugsaði einnig um það hvort þau mundu nokkum tíma hafa elskazt ákaft, en ef svo var, þá var það löngu liöið, því að á allra vitorði var að Don Augustin var fyrir löngu farinn að leita f aörar áttir og ýmsar áttir. Fermingargjöfin i ór Gefið menntandi og þrosk- andi fermingargjöf: NYSTROM Upphleyptu landakortin og hnettimir leysa vandann við landa- fræðinámið. Kortin inn- römmuð með festingum. Fæst r næstu bókabúð. Heildsölubirgðir: Ámi Ólafsson & Co. Suðurlandsbraut 12. Sfmi 37960. Ia< gningin nelzt betur meö BE* TAKZAM AN7 X AKE SUKS THAT LUAW7A IS THE 5ASE 0F Nr OF’EKATIOM FO&THIS ^RINS OP_rOACHEKS.EBCX w 7 A R Z A n Tarzan og ég erum sannfærðir um að Lu- anda sé miðstöð pessara veiðiþjófa Eric. Við erum ákveðnir f því Brand dómari að komast fyrir rætur þessarar glæpastarfsemi, sem tekur slíkan toll úr dýraríkinu. En hvers vegna hafið þiö komið til mín? ' ITIS OUR BELIEF THAT VWW'S * flŒTTV' THE RINSLEAFER OF TRIS TwStí ACCUSATIOH, BAN7IS BEINS 7R0TECTE7- P??rK! IKWÖW ÍAAYBE OFFICIALLY— ELSE/ OFHOSUCH j WHY HASM'T JUSTICE 17/ SITUATION < X SEEN POKE TO7ATEI?) / EXISTINS HERE„' v——wm& ( THE PUSUC AP** OFFICIALS are- KE[7R0ACH1/ WE THOUSHT W SORRV, FRIEN7S... V V0UC0UL7 / SINCE ttlNE IS A GIVE US A / JUPICIARV fOSITION - 4 LEA7.T0SET1 X GANNOT AFF0R7T0 US STAKTE7 A BECOME INV0LVE7 • OMTHIS Ælr IN VOUR. plam!.. iWSSIONÍ JBf BES17ES I 70N0T-I BELIEVE THERE IS , ÆtHiL ' ’Vanv such goiuss-on'. Vvw „ViSmim. R#g, 0. 5- Pal Ofl.—All llghM ro«rv«d Al Vin^ Copr. IVéZby Unlwd ff«otwim íjrndkal*, ln«. * | *Eá>> BÍanz- laneslii 'tifll nadihel i«dt Friiur Það er trú okkar að foringinn fyrir glæpa hringnum sé vemdaður ef til vill opinber lega, hvemig getur staðið á því ■ að réttvísinni f þessu máli hefur verið framfylgt? Þetta er nokkuö hörð ákæra Pet er. Ég veit ekki til þess aö nokkrar slíkar kringumstæður hafi skapazt hér og opin- berir starfsmenn eru hafnir yfir allan grun. Við héldum aö þú gætir gefið okkur vfs- bendingu svo að við gætum hafizt handa um framkvæmdimar. Mér þykir þetta leitt vinir mfnir, þar sem ég er f dómarasæti þá get ég ekki hætt á þaö að blanda mér í mál- ið. Auk þess trúi ég því ekki að nokkuð slíkt sé á ferðinni. cuámM* glans hárlagningar- vökva HIIIDSÖLUIHCÞI* ÍSLENZK ERLENDAVERZLUNARFÉWGIÐHF ffKAMLKIDSLURCTTIHDt AMAHTI Hff )í< I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.