Vísir - 29.04.1966, Blaðsíða 16
fmmi :
: :
, :
Landsþing SVFI hóíst i gær. Forseti jbess gagnrýnir
framkvæmd flugleitar að Flugsýnarvélinni i vetur
Frá 13. landsþlngi S.V.F.Í. Gunnar Friðriksson heldur setningarræðuna.
Innan skamms verður lögð
sérstök lína frá loftskeytastöð-
inni í Gufunesi í hið sjálfvirka
skiptiborð bæjarsímans í
Reykjavík, sem svo verður
tengt símum starfsmanna
S.V.F.Í. og formanna björgunar-
sveitanna þannig, að þegar stutt
verður á hnapp í Gufunesi
hringir hjá öllum þessum aðilum
samtímis. Á þetta að tryggja,
að þegar slys ber að höndum
sé hraði björgunaraðgerða sem
mestur og neyðarköli fari ekki
fram hjá neinum fyrrgreindra
aðiia.
Kom þetta fram í setningar-
ræðu Gunnars Friðrikssonar
forseta S.V.F.Í. á 13. landsþingi
þess, sem sett var í gær.
Sagði ennfremur í ræðunni
að frá upphafi vega hafi þessi
þjónusta verið innt af höndum
af starfsmönnum félagsins og
umkvartanir hafi ekki komið
fram um misbresti á þessu
sviði, fyrr en á s.l. sumri, er
vélbáturinn Þorbjörn frá Reykja
vík fórst við Reykjanes.
Vék Gunnar í ræðu sinni
einnig að endurskipulagningu
björgunarsveitanna og stofnun
nýrra, sem mikil áherzla hefur
verið lögð á frá því að 12. lands
þingið var haldið, en þar í er
meðal annars falið að sköpuð
sé skjótvirkari samvinna, þar
sem til fleiri sveita kemur um
framkvæmd björgunar. Taki
það til allra aðila, sem að björg
Framh. á bls. 6.
Kmipmenn
Fðstudagur 29. aprfl 1966
Bein lína úr Gufunesi til sturfs-
jr
mmm® SVFI
.• ....
Stærsti slippur lundsins á Akureyri
Annnr minni byggður í Knfnnrfirði í sumnr
í fyrradag var gengið frá
samningum við pólska fyrir-
tækið Cekop um smíði dráttar-
brauta á Akureyri og i Hafnar-
firði. Eru þeir á grundvelli út-
boðs á þessum verkum, sem
gert var í fyrra, en þá var leit-
að eftir tilboðum í þessar fram-
kvæmdir víða í Evrópu og
reyndust Pólverjarnir eiga
hagstæðasta tilboðið. Dráttar-
brautin á Akureyri verður fær
um að taka 2000 lesta skip, og
þar með stærsta dráttarbraut á
landinu. Hafnarfjarðarslippur-
inn kemur til með að taka allt
að 500 tonna skip, en þar verða
stækkunarmöguleikar og er
reiknað með að hann taki 1200
lesta skip í framtíðinni.
Áætlað verð dráttarbrautar-
innar á Akureyri er um 30
milljónir hingað komin, þar
með reiknuð undirbúningsvinna
að uppsetningu. Pólska fyrir-
tækið mun lána helming þeirrar
upphæðar gegn 6% vöxtum til
4 ára.
Nýja dráttarbrautin verður á
sama stað og sú gamla er nú.
Framkvæmdir við uppsetning-
una munu hefjast nú í sumar
en þeim á að vera lokið haust-
ið 1967. — Slippstöðin mun
taka við rekstrinum úr hendi
bæjarins.
Eins og fyrr segir verður
þetta stærsta dráttarbraut á
landinu, á að geta tekið 2 þús.
lesta skip. En auk þess verður
hægt að taka allt að 800 lesta
skip í hliðarfærslu og er reikn-
að með að hægt verði að fjölga
þeim.
★
I Hafnarfirði verður eiginlega
ekki um dráttarbraut að ræða.
heldur eins konar skipalyftu.
Mun skipið þá sigla inn í sér-
staka kví, skoröað þar á palli,
og því er síðan lyft á pallinum
og dregið af honum yfir á hlið-
arfærsluvagn, sem færir skipið
á stæði, og á að vera aaðvelt
að færa skip til.
Lyftan hefur verið keypt frá
Syncrolyft í Bandaríkjunum, en
lyftupallar teinar, spil og
annað verður keypt af Cekop.
Slippurinn verður staðsettur
við suðurhafnargarðinn. Þarna
eiga að vera stæði fyrir 8 skip
allt að 500 lesta.
Verkið mun að líkindum
verða búið á miðju ári 1968.
Kostnaður við verkið, allt er á-
ætlaður 30 milljónir.
vilja aðild oð
verðlagsnefndum
i
Aðalfundur Kaupmannasamíaka ,
íslands, sem haidinn var í gær, ,
gerði margar ályktanir í málefnum
verzlunarinnar. M. a. beindi fund-
urinn þeim tilmælum til ríkisstjóm
arinnar, að haldið verði áfram
lækkun hæstu tolla og að þegar
verði afnumin öll verðlagsákvæði.
Þá taldi fundurinn það lágmarks-
réttindi stéttinni til handa, að
teidu yfirvöld rétt að viðhalda
verðlagsákvæðum, fái stéttin fulla
aðild að þeim nefndum, sem um
þessi mál fjalla, þar á meðal í
verðlagsnefnd landbúnaðarafurða.
Sigurður Magnússon var einróma
kosinn oddamaður í stjóm samtak
anna og Reynir Sigurðsson vara-
maður hans. Endurskoðendur vom
kjörnir Valur Pálsson og Svavar
Pálsson.
Geir Hallgrimsson
Agúst Geirs&on
Þórir Kr. Þórðarson
Hulda Valtýsdóttir
Fundur borgarstjóra meS íbúum Lang-
bolts, Voga og Heimabverfis íkvöid
Fundurmn verður í Luugurúsbíói
1 kvöld boðar Gelr Hall-
grimsson borgarstjóri til síðasta
fundar síns með ibúum Reykja-
víkur til viðræðna um borgar-
málin. Verður þessi fundur hald
inn með íbúum Langholts-,
Voga- og Helmahverfis. Er fund
urinn haldinn i Laugarásbíói
og hefst hann kl. 8.30 e.h. —
Fundarstjóri verður Ágúst Geirs
son símvirkl, en fundarritarar
frú Hulda Valtýsdóttir og Jón
Árnason.
Þetta er sjöttl fundur borg-
arstjóra með fbúum hinna
ýmsu hverfa. Allir hafa þeir
verið mjög fjöisóttir og raunar
færri komizt að en vildu. Hafa
fundir þesslr mælzt hið bezta
fyrir hjá fólkinu í borginni,
ekki sízt vegna þess aö þar
gefst hverjum sem er tækifæri
á því að bera fram fyrirspumir
um áhugaefni sín og fá um það
svör borgarstjóra.
Em íbúar fyrmefndra hverfa
hvattir tii að koma á fundinn f
kvöld og bera fram fyrirsp.