Vísir - 30.04.1966, Qupperneq 1
VISIR
m
1450 ÚRLAUSNIR
— Skriflegu prófin í Háskól-
anum byrjuðu snemma í þessari
viku og standa þau yfir í rúm
ar sex vikur eða allt fram til
7. júní. Munnleg og verkleg próf
standa enn lengur, sagði Stein
grímur J. Þorsteinsson prófess-
or þegar blaðið hafði tal af hon-
um í Háskólanum í gærdag.
I hátíðasalnum sem nú hefur
verið breytt í prófsal sátu 30
verkfræðistúdentar á fyrsta ári
yfir teikniborðunum, en prófað
var í teiknifræði.
Eins og undangengin ár er
Steingrímur prófstjóri og hann
heldur áfram. — Prófin hafa
aukizt til þeirra muna frá því
í fyrravor, að skrifiegu úrlausn
imar verða í þessum vorprófum
1450, en í fyrra voru þær rétt
um 1000.
Að þessari aukningu stuðlar
Framh á bls 6.
Stúdentar á fyrsta ári í verkfræði þreyta teiknifræðípróf. Prófstjóri Steingrímur J. Þorsteinsson
gengur á milii sætaraðanna.
Samkomulag við lækna Borgarsjúkrahússins
Ósamið við lækna Landspítalans — 1 dagur til stefnu — vænlegri sáttahorfur
Samkomulag hefur náðst i
læknadeilunni hvað snertir
Borgarsjúkrahúsið, en enn
miðar Iítt í samkomulagsátt
hjá læknum og samninga-
nefnd ríkisstjórnarinnar varð-
andi starfsaðstöðu og launa-
kjör á Landspítalanum og
Rannsóknarstofu háskólans.
Standa vonir til að þetta sam
komulag borgarlæknanna
muni auðvelda samkomulag
við ríkisráðnu læknana.
Eins og skýrt var frá í Vísi
í gær hélt Iaunamálanefnd
Læknafélags Reykjavíkur
fund síðdegis í gær með full
trúum borgarinnar og lauk
honum með því að samkomu-
lag náðist um framkomnar til
ritað, að áskildu samþykki
Læknafélags Reykjavíkur og
borgarráðs. Munu þeir aðilar
Iialda fundi mjög bráðlega
Framhald á bls. 6.
FH íslands-
meistari
- Víkingur í 1. deild
FH varð íslandsmeistari í
gærkvöldi. Unnu Hafnfirðingar
Fram í úrslitaleiknum með 21:15
og var leikurinn allan tímann
hörkuspennandi. í hálfleik var
staðan 8:8, en FH náði snemma
3 marka forskoti, og jók það
undir lokin.
Var sigur FH í aila staði verð
skuldaður, enda var leikur liðs-
Fram. á bls. 6.
íslenzkum matvælaiðnaði?
Tilraunir i undirbúningi i Rannsóknastofnun iðnaóarins
Visir talar v/ð Pétur Sigurjónsson forstjóra
Nýjar aðferðir eru nú farnar
að ryðja sér mjög til rúms við
vinnslu matvæla, og er allt eins
víst, að með þeim verði bylting
í framleiðslu og geymslu mat-
væla. Hér er um að ræða svo-
kallaða frystiþurrkun annars
vegar og geislun eða gerilsneyð-
ingu með geislavirkum efnum
hins vegar. Hingað til lands hafa
undanfarið borizt matvæli frysti
þurrkuð. En framleiðsla með
þeirri aðferð er víða hafin er-
lendis. Tilraunir með frysti-
þurrkun eru nú í undirbúnlngi
hér á landi.
RANNSÓKNIR HAFNAR HÉR
Blaðið sneri sér til Péturs Sig-
urjónssonar, forstjóra Rannsókn
arstofnunar iðnaðarins, en sú
stofnun var sett á laggirnar sam
kvæmt lögum frá 25. mai i
fyrra og hóf starfsemi sína í
haust, og hefur m. a. þessar
rannsóknir með höndum.
Aðspurður um þessa nýju að-
ferð sagði hann:
— Hún er fólgin í sérstakri
þurrkun. Matvælin eru fryst og
síðan er frosna vatninu breytt
í vatnsgufu með undirþrýstingi
og matvælin þannig þurrkuð án
Frystitæki, sem notað er við
rannsóknir, svipað því sem
Rannsóknarstofnun iðnaðarins
fær í haust.
þess að þíða þau. Þetta gerir
það að verkum að í þeim verð-
ur engin hreyfing á efnum, þann
ig haldast bragðefni í matnvæl-
unum öfugt við venjulega þurrk
un, þar sem efni raskast venju-
Framh á bls 6.
Borgarstjóri í ræðustól. Aðrir á myndinni
Hulda Valtýsdóttir og Jón Ámason.
eru talið frá vinstri, Þórir Kr. Þórðarson, Ágúst Geirsson,
í gær var haldinn seinasti
hverfisfundur af sex, sem
Geir Hallgrímsson hafði á-
kveðið að halda með borgar-
búum, í þeim tilgangi að
kynna þeim það helzta, sem
á döfinni væri á vegum borg-
arinnar sem og til að kynn-
ast sérstökum óskum borgar-
búa með tilliti til borgarinn-
ar almennt, en þó sérstaklega
með hin einstöku hverfi í
huga. Fundurinn í gær var
haldinn með íbúum Lang-
holts, Voga og Heimahverfis,
I Laugarásbíói, en hann sóttu
um 400 manns. Með þessum
fundi hafa alls um 3200
manns sótt þessa fundi borg-
arstjóra og verður að teljast
að þessi nýlunda hafi gefið
góða raun og þessi tilhögunson símvirki, en fundarritarar frú
því notuð framvegis. Mikið Hulda Valtýsdóttir og Jon Ama
hefur verið um það að fólk son yfirkennari.
hafi borið fram fyrirspurnir áGeir Hallgrímsson rakti ýmsa þætti
fundum þessum eða.milli 20 borgarmálefna og einkum þá,
og 30 á hverjum fundi. sem varða íbúa þessara hverfa,
Fundarstjóri var Ágúst Geirs Framh. á bls. 6.
f