Vísir - 30.04.1966, Síða 5
V í SIR . Laugardagur 30. apríl 1966.
5
þingsjá Vísis
Fmrnóknarflokkurím kfofínn i kísilgúrmálinu
Karí Kristjánsson samþykkur málinu
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um kísilgúrverksmiðju við 3M[ý
vatn kom til annarrar umræðu
á fundi í efri deild í gær. Um
frumvarpið hafði komið fram
eitt nefndarálit frá fjárhags-
nrfnd deildarinnar og mælti
hún einróma með samþykkt
frumvarpsins en einn nefndar-
manna, Helgi Bergs (F) skrif
aði undir samþykkt nefndar
innar með fyrirvara.
Karl Kristjánsson (F) mælti
fyrimefndaráliti fjárhagsnefndar.
Vek bann í upphafi máls síns að
aödraganda þessa frumvarps en
hann er sá að hið hollenzka fyr-
irtæki, AIME, sem upphaflega tók
þátt í stofnun kísilgúrverksmiðj-
unnar hefði ekki treyst sér til
frekari þátttöku í þessu fyrir-
tæki, en samningar heföu hins
vegar tekizt við bandaríska fyrir
tækið Johns-Manville um að taka
þátt í kísilgúrverksmiðjunni með
íslendingum. En ákveðnar hefðu
verið breytingar á rekstri fyrir-
tækisins og starfsemi þess, m.a.
varðandi sölufélag það, sem á
að selja afurðir verksmiöjunnar
Sagði ræðumaður að þess vegna
hefði orðið að leggja frumvarp
þetta fyrir Alþingi til staðfesting
ar á ýmsum atriðum sem samið
hefði verið um með fyrirvara um
samþykkt Alþingis og væru þau
atriði breytt frá fyrri lögum um
kísilgúrverksmiðjuna sem væru
frá 1964. Síðan vék framsögumað
ur að framkvæmdum þeim, sem
hafnar væru við Mývatn og lýsti
þeim í nokkrum orðum. Þá sagði
ræðumaður að með því að stað-
setja sölufélag verksmiðjunnar
hérlendis hefðu íslendingar aukn
ar tekjur af því félagi þar sem um
boðslaun þess yrðu skattskyld
hér á landi. Að síðustu rómaði
Karl Kristjánsson mjög hlut
Magnúsar Jónssonar fjármálaráð
herra við samningaumræðurnar
og sagði að hann hefði þar komið
fram af festu og lipurð.
Hjalti Haraldsson (K) sagðist
ekki vera málinu andstæður en
lögin frá 1964 heföu verið okkur
hagstæðari.
Helgi Bergs (F) sagði aö hér
væri næstum um ólíkt mál að
ræða og hefði verið 1964. Eignar-
hluti ríkissjóðs í félaginu væri
minnkaöur niður í 51% en þó
mætti segja að umráö íslendinga
væru tryggð. Þá fann ræðumað
ur að því að verið væri að breyta
skattreglum til að samræma á-
kvæði frumvarpsins ísl. lögum
og væri það alltaf óheppileg
lausn að gera frávik frá skattregl
um í slíkum tilvikum.
Að lokum sagði Helgi aö hann
vildi fá að vita hve lengi samn-
ingur þessi ætti að gilda og hvort
Firmakeppni / Kópavogi
Trésmiðja Sig. Elíassonar sigraði í bridge-
firmakeppni KÓpavagS. Spilari: Kári Jónasson.
Keppt var um farandbikar, sem Sparisjóður Kópa-
vogs gaf á sínum tíma. Alls tóku þátt í keppninni 32
firmu og er röð 16 efstu þessi. Nöfn spilara í sviga:
1. Trésmiðja Sig. Elíassonar 1166 st. (Kári Jónasson)
2. Vibro h.f. 1139 st. (Oddur Sigurjónsson)
3. Vélsmiðja Gunnl. Jónssonar 1128 st. (Guðm. Gunn-
laugsson).
4. Nesti, Reykjanesbraut 1122 st. (Ingi Eyvinds.)
5. Rörsteypa Kópavogs 1121 st. (Walter Hjaltested)
6. Sparisjóður Kópavogs 1113 st. (Sævin Bjarnason)
7. Sælgætisgerðin Drift 1105 st. (Björn Sveinsson)
8. Kópavogs Apótek 1096 st. (Bjarni Pétursson)
9. Sjúkrasamlagið 1094 st. (Helgi Benónýsson)
10. Netagerð Eggerts 1077 st. (Magnús Þórðarson)
11. Málning h.f. 1074 st. (Gylfi Gunnarsson)
12. Biðskýlið, Borgarholtsbraut 1062 st. (Gunnar Sig-
urbjörnsson)
13. Borgarbúðin 1052 st. (Guðm. Oddsson)
14. KRON 1048 st. (Ármann Lárusson).
15. Veitingasalir Félagsheimilisins 1048 st. (Benjamín
Guðmundsson).
16. Stimplagerðin 1048 st. (Gunnl. Sigurgeirsson)
Eftirtalin fyrirtæki urðu að sætta sig við að lenda í
B-flokki í þetta sinn (í stafrófsröð):
Biðskýlið h.f.
Blikksmiðjan Vogar /-
Blómaskálinn
Borgarsmiðjan
Efnagerðin Valur
Hjólbarðaviðgerðin, Múla
Hraðfrystihúsið Hvammur
íslenzk Húsgögn
Stjórnin óskar Trésmiðju Sig. Elíassonar til ham-
ingju með bikarinn og flytur öllum fyrirtækjunum
þakkir sínar fyrir tryggð þeirra við bridgefélagið og
heitir á áframhaldandi stuðning þeirra.
Síðasta spilakvöldið á þessu starfsári verður föstu-
daginn 6. maí og verður þá allsherjar verðlaunaafhend-
ing.
Tekið verður á móti keppnisgjaldinu.
Járnsmiðja Kópavogs
Kópavogsbíó
Litaskálinn
Verk h.f.
Ora h.f.
Pétur Maack, Bifreiðaverkst.
Últíma h.f.
Verkfæri og Járnvörur.
nokkur ákvæði laganna ættu sér
ekki stoð í ísl. lögum.
Jóhann Hafstein sagði aö samn
ingur þessi hefði lagagildi í 20
ár og að sjálfsögðu væru öll á-
kvæði hans samkvæmt ísl. lög-
um, eins og t.d. samningurinn um
álbræðslu.
Benda mætti á það ákvæöi í
frumvarpinu að áformaö væri að
skjóta deilumálum, ef upp kæmu
til alþjóðlegs gerðardöms og
benti ráðherrann á frumvarp sem
nú lægi fyrir Alþingi um að ís-
land gerðist aðili að alþjóölegum
geröardómi sem leysti deilumál
ef upp kæmu milli ríkja.
Magnús Jónsson fjármálaráð-
herra sagði að gerðardómurinn
yrði væntanlega þannig settur að
hvor deiluaðili um sig til-
nefndi einn mann i dóminn og
Hæstiréttur Islands oddamann.
Gils Guömundsson K) sagði að
samningur þessi væri ólíkt óhag
stæðari íslendingum en samning
uuinn við hið hollenzka fyrirtæki
Helgi Bergs (F) bar fram frávís-
.unartillögu og kom hún fyrst til
atkvæða og var felld með 10 atkv.
gegn 8.
Siðan var viðhaft nafnakall við
1. gr. frumvarpsins og var hún
samþykkt með 11 atkv. gegn 8.
Þeir sem vildu samþykkja frum-
varpiö voru þessir þingmenn:
Auður Auðuns, Sigurður Ó. ÓI-
afsson, Ragnar Jónsson, Pétur
Pétursson, Eggert G. Þorsteins-
son, Jón Árnason, Karl Kristjáns-
son, Magnús Jónsson, Ólafur
Björnsson, Sveinn Guðmundsson
og Þorvaldur G. Kristjánsson.
Þeir þingmenn sem voru and
vígir frumvarpinu voru: Alfreð
Gíslason, Ásgeir Bjarnason,
Hialti Haraldsson, Gils Guð-
mundsson, Helgi Bergs, Bjami
Guðbjörnsson, Ólafur Jóhannes-
son og Páll Þorsteinsson. Einn
þingmaður deildarinnar var fjar
staddur. Var það Jón Þorsteins-
son (A).
Álbræðsla
Frumvarpið um álbræðslu var
einnig tekið til umræðu í efri
deild í gær. Um frumvarpið hafa
komið fram þrjú nefndarálit
Meirihluti nefndarinnar leggur til
áð frumvarpið veröi samþykkt ó-
breytt. Að minnihluta nefndará-
litunum standa þeir Gils Guð-
mundsson (K) annars vegar, sem
leggur til að frumvarpið verði
fellt og til vara að það öðlist ein-
ungis lagagildi að það hafi hlotiö
samþykkt viö þjóðaratkvæða-
greiðslu. Minni hlutinn, en hann
skipa fulltrúar Framsóknarflokks
ins í nefndinni leggur til að frum
varpið verði tekið út af dagskrá
og næsta mál tekið fyrir (rök-
studd dagskrá).
Sveinn Guðmundsson haföi
framsögu fyrir nefndaráliti meiri
hlutans. Gils Guðmundsson og
Helgi Bergs fyrir álitum minni-
hlutanna tveggja. Var Helgi Bergs
að tala er fundi var frestað um
kvöldverðarleytið i gærkvöldi' og
var búizt við að iðnaðarmálaráö-
herra mundi tala við umræðuna
er lokið væri ræðum um nefndar-
álitin.
FRUMS ÝNINGA R Á
HÁLFUM MÁNUÐI
gkammt er nú stórra högga á
milli hjá Þjóöleikhúsinu. Á hálf
um mánuði eru frumsýnd fjögur
leikhúsverk. Fyrst má geta- frum-
sýningarinnar á Prjónastofan Sól-
in leikriti Laxness, sem vakti
mikla athygli. Þann 1. maí frum-
sýnir Þjóöleikhúsið svo tvo ein-
þáttunga í Lindarbæ og verður
frumsýningin kl. 4 e. h.
Fyrra leikritið á sýningarskránni
er hinn þekkti einþáttungur „Ferð-
in til skugganna grænu“, eftir
danska skáldið Finn Methling.
Þetta er ljóðrænt og fagurt verk,
sem hefur hlotið mjög góða dóma
í heimalandi skáldsins og hefur nú
í mörg ár' verið á sýningarskrá
Konunglega leikhússins í Kaup-
mannahöfn. Það er aöeins eitt hlut-
verk í leiknum og hefur þetta sér-
stæöa hlutverk jafnan verið túlkað
af úrvals leikkonum. Danska leik-
konan, Ingeborg Brams, hlaut á
Birgir Engilberts
sínum tíma mikið lof fyrir leik
sinn í þessu vandmeðfarna hlut-
verki.
Hér er það leikið af Herdísi Þor-
valdsdóttur. Sýningartími leiksins
er tæpur klukkutími.
Ennfremur verður sýndur í Lind-
arbæ einþáttungurinn „Loftbólurn-
ar“, eftir ungan höfund, Birgi Eng
ilberts, og er hann aðeins 19 ára
að aldri. Þetta er fvrsta leikritið,
sem sýnt hefur veriö eftir Birgi.
Sextán ára hóf Birgir nám í leik-
myndagerð í Þjóðleikhúsinu og lauk
námi sínu þar s.l. vor. Hann starf-
ar nú hjá Þjóðleikhúsinu við leik-
myndagerð.
Loftbólurnar er gamanleikur og
eru leikendur aðeins þrír. Hlutverk-
in era leikin af Bessa Bjarnasyni,
Gunnari Eyjólfssyni og Gísla Al-
freössyni. Leikstjóri er Benedikt
Árnason.
Föstudaginn 6. maí frumsýnir
Þjóðleikhúsið hina þekktu óperu
Ævintýri Hoffmanns, eftir Offen-
bach. Leikstjóri er Leif Söderström
frá Stokkhólmsóperunni, en hann
sviðsetti óperuna Madame Butter
fly á s. 1 .vori Hljómsveitarstjóri er
Bohdan Wodiczko og er óþarfi að
kynna hann, því að svo vel er
hann þekktur sem stjórnandi Sin-
fóníuhljómsveitarinnar hér. Um
30 hljóðfæraleikarai munu taka
þátt í flutningi óperunnar.
Aöalhlutverkið er sungiö af
Magnúsi Jónssyni, en hann er ný
kominn tii landsins eftir margra
ára starf við Konunglega leikhúsið
í Kaupmannahöfn. Aörir, sem fara
með stór hlutverk í óperunni eru:
Sigurveig Hjaltested, Guömundur
Jónsson, sem kemur fram í fjórum
mismunandi gervum, Svala Nielsen,
Þuríður Pálsdóttir, Eygló Viktors-
Leif Söderström
dóttir, Guðmundur Guðjónsson, Jón
Sigurbjörnsson, Sverrir Kjartans-
son og fl. 30 félagar úr Þjóðleikhúss
kórnum syngja með í óperunni og
auk þess nokkrar dansmeyjar og
aukaleikarar.
Óperan Ævintýri Hoffmanns er í
fimm þáttum og er sýningartími
óperunnar þrír klukkutímar. Ópera
þess er sambland af draumi og veru
leika þar sem draumarnir eru oft
eins konar martröð. Skiptast þar á
harmþrungin augnabú.k og oft mjög
skopleg. Búningar og leiktjöld eru
litrík og hefur leikstjórinn Leif
Söderström, gert bæöi leikmynda
og búningateikningar.
.ass