Vísir - 30.04.1966, Qupperneq 16
tf*saí
Kjarvals-
sýning
Á sunnudagskvöld 1. maí lýk
ur Kjarvalssýningu þeirri, sem
staðið hefur yfir undanfamar
vikur í Listasafni Islands. At-
hygli skal vakin á því, að þar er
nú í fyrsta sinn til sýnis mál-
verkið Svanasöngur, sem Kjar-
val gaf Listasafninu fyrir
skemmstu. Laugardaginn 30.
apríl og sunnudaginn 1. maí
verður sýningin opin frá kl.
13,30—22. Fólki er bent á aö
nota þetta einstaka tækifæri til
að kynnast listaverkum Jó-
hannesar S. Kjarvais í eigu Lista
safns íslands.
LOKID AÐALSKIPULAGI SEL-
TJA RNA RNESHREPPS
Lokið er gerð tillöguuppdrátt-
ar að aðalskipulagi Seltjamar-
neshrepps og er uppdrátturinn
til sýnis þessa dagana á skrif-
stofu hreppsins. Uppdráttur
þessl er gerður á grundvelli einn
ar tillögu af sex, sem skipu-
lagsstjóri ríkisins gerði fyrir
Seltjarnarnes árið 1964. Hefur
síðan verið unnið að ýmsum at-
hugunum varðandi skipulagið og
liggur niðurstaða beirra nú fyrir
í uppdrætti þeim, sem nú er til
sýnis.
Gatnakerfi skipulagsins bygg-
ist á þeirri grundvallarhugmynd,
að Eiðsgrandi verði aðaltenging
in við Reykjavík, og að aðal-
götur á nesinu sjálfu liggi með-
fram ströndinni, umhverfis
byggðina. Verður því íbúða-
byggðin sjálf að mestu laus við
gegnumakstur, og að auki verð
ur kerfi gangstiga um íbúða-
svæðin.
Meginhluti landsins er ætlað-
ur til íbúðabygginga. Eru þau
svæði einkum þrjú: Svæði frá
Vegamótum að Suðurbraut,
svæði á Valhúsahæð og um-
hverfi hennar, og svæði vestan
Lindarbrautar — Iðnaðarsvæði
verða mjög takmörkuð á nesinu
og verða aöeins við Bygggarö og
Isbjö.rninn. Miðbæjarsvæði er á-
ætlaö á anðu svæði suðvestan
Isbjarnarins og svæði fyrir ýms
ar stofnanir er áætlað, að verði
norðaustan Seitjarnar.
Samfelld opin svæði eru aðal-
lega þrjú: Suðumes, Grandamir
og Snoppan. Valhúsahæöin. í-
þróttasvæði I mýrinni við Eíóí.
Á grundvelli þessa aðalskapu
lags verður síðan unnið að detli
skipulagi einstakra bygginga-
svæða eftir því sem þörf krefur.
PatreksíjarBarhöfn dýpkuB
um 40-50þús. rúnunetra
Um þessar mundir er unnið að
dýpkun hafnarinnar á Patreksfirði,
en dæluskipið Sandey annast það
verk. Verkið hófst skömmu eftir
páska og mun sennilega liúka í lok
mai. Aðallega er unnið að dýpkun
og breikkun innsiglingarrennu og
að auka snúningssvæði í höfninni
sjáifri. Ætlunin er, að skipið dæli
upp 40—50.000 rúmmetrum alls.
Seinna verður urinið að því að
steypa ofan á hafnarbakkann, sem
liggur út með innsiglingunni. Alls
verður varið 3 millj. kr. í þessar
framkvæmdir i sumar og er helm-
ings þess fjár afiað úr Viðreisnar-
sjóði Evrópuráðsins.
Innsigling Patreksfjarðarhafnar
hefur ætíð valdið nokkrum erfið-
leikum, hefur verið of grunn og
þröng og hefur það tiðum gerzt, að
skip hafa kennt grunns í henni.
Nú á að ganga þannig frá henni,
að hún verði 40 metra breið á fullu
dýpi, sem er 6 til 7 metrar. Þej
ar ofan á það bætisL að snúning:
svæði hafnarinnar verður auki
upp í 130 metra þvermál, eiga ö
núverandi skip íslenzka flotans a
geta athafnað sig i höfninni. Höfr
in á Patreksfirði var upphafleg
gerð með nokkuð sérkennilegum
hætti. Þannig háttaði til, að stöðu-
vatn var á Vatnseyrinni og var
grafin renna úr þvi og fram í sjó,
en vatnið dýpkað.
Kristján hengir upp
ÍRSKAR kartöfl
ur í búðir hér
Um miðjan mai koma hingað
650 tonn af írskum úrvalskart-
öflum. Geta Reykvíkingar litið
með gleði til þeirra tíðinda,
vegna þess að hörmulegt hefur
kartöfluástandið oft verið hér
á vorin. Hafa menn þá orðið að
notast við pólskar kartöflur sem
ekki hafa alltaf verið í sérstök-
um gæðaflokki.
Hér er að þessu sinni um að
ræða fyrsta flokks vöru og eru
kartöflumar að þessu sinni
keyptar frá irlandi vegna þess
að þar ríkir engin gin- og klaufa 1
veiki. Ekki hafa í mörg ár kom-
ið kartöflur hingað til lands frá |
Iriandi þar sem kartöfluviðskipt
unum hefur verið beint austur á
bóginn vegna vöruskiptanna við
austantjaldslöndin. írland er |
sem kunnugt er eitt mesta kart
öfluræktarland í heimi.
Má búast við að hinum írsku
kartöflum verði dreift í verzl-
anir seinni hluta maimánaðar.
Efninu, sem Sandey dælir upp, er
dælt eftir leiðslum vfir Vatnseyr-
ina um 350 metra ieið og er notað
til landmyndunar sunnan og innan
við eyrina.
í dag ki. 2 opnar Kristján Daviðsson listmálari sýningu í Bogasal á
19 málverkum eftir sig. Sýningin verður opin 2—10 e.h. næstu tfu
daga. Tvö ár eru sfðan Kristján hélt síðast einkasýningu, en þessa dag-
ana eru einnig sýnd málverk eftir hann á samsýnlngu í Unnhúsi. —
Myndin er tekin af Kristjáni við uppsetningu sýningarinnar í Bogasal.
Áhugi á starfí
— Það hafa þegar þó nokkr-
ir spurzt fyrir um starfiö við
veðurathuganir á Hveravöllum,
svo að ég reikna með að það
sæki allmargir um það, sagði
Flosi Hrafn Sigurösson deildar-
stjóri áhaldadeildar Veðurstof-
unnar í viðtali við Vísi i morg
un, en Veðurstofan hefur aug-
lýst eftir fólki til að dveljast á
Hveravöllum næsta vetur og
sumar.
— Hvernig hefur gengiö á
Hveravöllum í vetur?
— Þaö hefur gengiö mjög vel
betur en maður bjóst viö.
Björgvin Ólafsson og Ingibjörg
Guömundsdóttir hafa veriö
þama innfrá síðan í ágúst og
veröa þar til nýir starfsmenn
koma og taka viö.
— Hafa þau getað komið til
byggða á þessum tíma?
— Nei. það er reiknað meö aö
fólk sé á staðnum allan tímann
og ekki reiknað með aö farið
sé inn á Hveravelli yfir veturinn
En í vetur hefur veriö svo snjó-
létt aö þaö hefur veriö dá-
lítið um að fóik færi inneftir
og held ég aö mér sé óhætt aö
segja að þau hafi fengið heim-
sóknir mánaðarlega. Ættingjar
þeirra hafa heimsótt þau og
Veðurstofan þá notað tækifærið
og sent þeim eitthvert nýmeti
en annars er gert ráð fyrir að
vistir allar séu fluttar þangað
á haustin. Það er dieselrafstöð
við húsiö og því hefur verið
komið fyrir frystikistu, þannig
að þau þurfa ekki eingöngu að
lifa á niðursoönum eða söltuð-
um mat.
— Verða veðurathuganir á
öörum stööum á hálendinu í
sumar?
— Þaö hefur ekki verið
gengið frá þeim málum ennþá
en undanfarin ár hefur verið
maður við veðurathuganir í Jök
ulheimum um þriggja mánaða
skeið og má gera ráð fyrir að
svo verði aftur í sumar, en um
aðra staði verður vart að ræða.
\
í árekstri
við lög-
regluaa
Rétt fyrir kl. 6 í fyrradag varð
árekstur á gatnamótum Miklu-
brautar og Eskihlíðar. R 10546,
sem er af gerðinni „Volga“, kom
ofan Miklubrautina og sat kona
undir stýri, en samtímis kom
lögreglubifreið um Miklatorg og
beygði upp í Eskihlíðina. Skall
Volgan á hlið lögregluþílsins
með þeim afleiðingum, sem
myndirnar sýna. Ekki er vitað
um meiðsl í sambandi við árekst
urinn.