Vísir - 26.07.1966, Side 1

Vísir - 26.07.1966, Side 1
* VISIR Við hafrannsókn- ir í norðurhöfum í Reykjavíkurhöfn liggja um þessar mundir þrjú erlend haf- rannsóknarskip. Tvö þeirra, Hydra og Sverdrup komu hing- aö á föstudag og lögðust að Ing ólfsgarði. Skip þessi hafa verið við hafrannsóknir hér á norð- anverðu Atlantshafi frá í vor en hið þriðja, Vidal, sem kom hing að á sunnudag, hefur meðal ann ars kannað ísröndina norður af íslandi. Hafrannsóknir Breta heyra undir brezka flotamálaráðuneyt ið, en eru ekki í samráði við Al- þjóðahafrannsóknarráðið, sem ísland er aðili að. Þær eru því ekki í neinum tengslum við íslenzkar haf- og fiskirannsókn- ir, en vísindamennirnir um borö munu þó ræða við kollega sína hér einhvem næsta dag áður en skipin sigla aftur úr höfn. Fremst á myndinni eru brezku skipin Hydra (stærra) liggja utan á íslenzku varðskipi. og Vidal, en á bak við sézt norska sldpið Sverdup LAXVEIÐAR I ELLIÐAANUM HELMINQI MEIRI EN f FYRRA Einn veiðimnður hefur fvívegis fengið 14 luxu Laxveiðarnar í Elliðaánum hafa verið mjög góðar undan- farið og eru nú komnir næstum helmingi fleiri laxar á land en í fyrra, þó að útlitið hafi verið slæmt fyrst í sumar. Á hádegi í gær höfðu veiðzt 373 laxar móti um 200 á sama tíma i fyrra. Ástæðan fyrir því að meira veiðist nú en í fyrra, er án efa að nokkru léyti sú, að vatnið er mun betra í ánum nú en það var í fyrra. Álíka margir laxar hafa gengið í gegnum KANNAR ÞEISTAREYKJASVÆÐIÐ teljarann. Á hádegi í gær höfðu Frh. á bls. 6. Síðar í þessari viku verður framkvæmd könnun að ein- hverju leyti á Þeistareykjasvæð inu eftir þvf sem Sigurður Þór- arinsson tjáði blaðinu í morg- un. Guðmundur Sigvaldason jarð fræðingur er nú staddur við rannsöknir inni við Öskju, á- samt Eysteini Tryggvasyni og fleiri vísindamönnum. Kemur Guðmundur hingað til Reykjavíkur í lok vikunnar, en á bakaleiðinni mun hann koma við á Þeistareykjasvæðinu og gera einhverjar athuganir við- víkjandi jarðhitabreytingunum þar. Ekki hefur frétzt af neinum teljandi breytingum á svæðinu síðan í fyrri viku, þegar upp komst um jarðhitabreytingam- ar þar. Skátar ganga fylktu liði inn á mótssvæðið. Flöskuskeyti voru sett á flot í tjöm við hátiðar svæðlð en tjomln er líkan af alheimskorti. Landsmót Landsmót skáta að Hreöa- vatni var sett í gær kl. 4. Fylktu skátar liði við hátíðarsvæðið. Fluttu fyrst ávörp Borghildur Fenger og Ingólfur Ármanns- son mótsstjórar, en síðan var fluttur þáttur um sögu islenzka fánans og fánamir fjórir, sem Eslendingar hafa átt dregnir að húni um leið og sagan var sögð. skáta sett Skátahöfðingi, Jónas B. Jóns son, flutti ávarp, en síðan voru flöskuskeyti frá öllum tjaldbúð- unum sett á flot í tjöm við há- tiðarsvæðið þar sem þau munu vera út mótið en verður siðan kastað á haf út. Voru mótsfáninn og þjóðfán- ar allra þátttökuþjóða dregnir að húni og var þá Landsmót skáta 1966 sett. Mikill fjöldi íslenzkra ferða- ianga er hér um þessar mund- ir vegna heimsmeistarakeppn- innar í knattspymu. Sumir hafa komið á sjálfs sín vegum og séð um allt skipulag á eigin spýtur, en aðrir hafa komiö í hópum frá feröaskrifstofunum. Stærsti hópurinn kom hing- að í gærkvöldi, en lenti í marg- víslegum erfiðleikum við kom- una. Farið var beint á Wembley og horft á leik Uruguay og Mexíkó, en síðan var haldið til ...jtels þess, sem flokkurinn var bókaður á. Það kom í ljós að hótelið, eða öllu heldur her- bergin, sem voru á víð og dreif, voru í 3 tíma fjarlægð frá Lond on með strætisvagni, í smábæ einum, sem heitir Heme Bay. Þar er allvinsæll sumarleyfis- staður fyrir eldra fólk, en fyrir fólk sem vill vera daglega í London hefði veriö ógjörningur að búa þama. Einnig kom í ljós að hópurinn kom tveim dögum of snemma samkvæmt því sem hótelstýran Mrs. Matthewsman sagði og varð þvi að búa við ákaflega ófullnægjandi skilyrði fyrstu nóttina. Fararstjórar hópsins, þeir Jón Ásgeirsson og Magnús Péturs- son, báðir kunnir fyrir afskipti sín af íþróttamálum brugðust hart og skjótt við og tókst aö útvega 30 herbergi á sama hótel inu á bezta staö Lundúna á Mount Royal Hotel, og þangað var haldið snemma í morgun og setzt að um 5 leytið í dag. Margir í hópnum voru ákaf- lega óánægðir með þjónustu þessa, ekki sízt með miðasöl- una, því þeir höfðu pantað fyrir meira en ári og löngu greitt fyrir miða í sæti, en þeg- ar til kom fengu þeir aðeins miða í stæði fyrir aftan annað markið, — á versta stað á vell- inum. Þeir höfðu á orði að betra væri að sitja inni á hótelher- bergi og horfa á leikina í sjón- varpi. — jbp.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.