Vísir - 05.08.1966, Blaðsíða 1
[11
VÍSIR
íhuga málshöfðun vegna
endurvarpsins í Eyjum
14.000 krónum stolið
af drukknum manni
uö i þágu hlnnar ólöglegu sjón-
varpsstarfsemi“.
Þá hafði blaðið tal af MagnUsi
H. Magnússyni, stöðvarstjóra í
Vestmannaeyjum og spurðist
fyrir um fyrirmæli frá Lands-
símanum. Magnús sagðist ekki
enn vera búinn að fá skeytið í
hendumar, en hefði frétt í gær,
að skeytið væri á leiðinni. Þar
væru fyrirmæli um, að aðstaða
Landssímans á Klifinu sé ekki
notuð í þágu endurvarpsstarf-
seminnar. „Að sjálfsögðu verð
ég að fara eftir fyrirmælum
skeytisins, en endurvarpsstöðin,
sem magnarinn stendur á, er á
fjallinu Klifi, en Landssíminn
borgar leigufé til bæjarins fyrir
afnotarétt af fiallinu"-
málaráöuneytinu og spurðist fyr
ir um gang mála í sjónvarps-
málinu svo nefnda í Vestmanna-
eyjum. Blrgir Thorlacius sagöi:
„Mér er kunnugt um, aö lög-
fræðingar Ríkisútvarpsins og
Landssímans hafa verið að at-
huga lagagrundvöll fyrir máls-
höfðun vegna þeirra brota, sem
átt hafa sér stað í Vestmanna-
eyjum gagnvart Ríkisútvarpinu
og Landssimanum. Ennfremur
er mér kunnugt um, að Lands-
síminn hefur verið að undirbúa
fyrirmæli til stöövarstjóra Pósts
og síma í Vestmannaeyjum um
að gera ráöstafanir til þess, aö
aöstaða Landssímans á Klifinu
í Vestmannaeyjum sé ekki not-
Vísir hafði í morgun samband
við Birgi Thorlacius, ráðuneytis-
stjóra í forsætis- og mennta-
Starfsmenn á bornum, frá vinstri: Jón Kristóferss on, Hugi Heigason, Frímann Júiíusson og Gunnar
Steingrímsson. Að baki þeirra snýst sjálfur borinn, sem nær meira en 700 m niður 1 Iður jarðar.
1 gær var drukkinn maður rænd
ur veski sinu á Lindargötu með
14.000 kr. Hann varð var við það,
þegar hann kom heim um kvöldið
og mundi óljóst eftir því, að hann
hafði komizt í kunnlngskap við
mann og ekið með honum um
bæinn í leigubil.
Lögregiunni tókst að hafa upp á
leigubilstjóranum, sem hafði ekið
þeim og gat hann gefið lýsingu á
þeim, sem rændi.
Hitinn stígur í metholunni við Hengil
Um 12 leytið i nótt var kært
vegna drykkjuláta í húsi vestur i
bæ. Þegar lögreglan kom á vett
vang, fann hún .nann, sem stóð
heima við lýsingu á þeim, sem
rændi drukkna manninn. Fannst
á honum veskið, sem var m.a. auö
kennt á því, að það innihélt ensk
pund, lírur og sýrlenzka mynt. Gat
leigubílstjórinn einnig staðfest að
um sama mann var að ræða.
Var manninum stungið inn ásamt
tveimur öðrum, sem höfðu sleg
izt f för með honum. Rannsóknar
lögreglan mun kanna málið i dag.
Hitinn í holunni, sem verið er víkur á Nesjavöllum, norðan
að bora fyrir Hitaveltu Reykja- Hengils virðist stíga en eftir því
Saltað á Siglufirði,
Dalvík og Raufarhöfn
Töluvert var kastað á miðunum
við Jan Mayen síðasta sólarhring,
enda veður ágætt. Torfurnar eru
margar og stórar, en mjög stygg
ar og þess vegna mörg „búm“-
köst. 9 skip tilkynntu um afla sam
tals 832 tonn. Mestur hluti aflans
fer í flutningaskip á miðunum,
en vitað var um þrjú skip á leið
til lands með síld i salt, tvö til
Raufarhafnar og eitt til Siglufjarð
ar.
Tiltölulega mikið af síldinni, sem
veiðzt hefur að undanfömu hefur
BLADID í DAG
farið til Raufarhafnar og Norður-
landshafna, en hins vegar er síld
arlaust að mestu á Austfjörðum.
Framh á bls. 6
sem neðar dregur og var orð-
inn 259 °C á 721 metra dýpi i
gær. Eins og skýrt var frá i
Vísi á miðvikudag var hitastig-
iö í holunni oröið hiö mesta, sem
mælzt hefur í borholu hér á
landi, 253 °C síðastiiðlnn þriðju-
dag. Nú hefur enn bætzt við
það met.
Vísir fór austur á Nesjavelli
i gær og hitti þar bormennina
að verki. Sagði Dagbjartur Sig
ursteindórsson, sem er verk-
stjóri þar á staðnum, að borun
in hefði gengið vel. Hún hefði
hafizt um 25. júlí, en ekki væri
vitað hversu lengi yrði borað
ennþá og væri beðið eftir gufu
gosi úr holunni, þegar það
kæmi yrði að líkindum hætt,
ella yrði borað eitthvað niður
undir 1200 metra. Það er Card-
well borinn, sem notaður er við
þessa borun. Næsta verkefni
hans verður borhola fyrir kisil
gúrverksmiðjuna viö Mývatn.
Á blaðsíðu 7 í Visi í dag er
viðtal við Guðmund Pálmason
um rannsóknir á jarðhitasvæð
inu við Hengil.
Ný framhaldssaga:
Hús
gátunnar
I dag hefst í blaðinu ný tram-
haldssaga, Hús gátunnar, eftir
Cathrine Froy, kunnan skemmti
sagnahöfund. Sagan fjaliar um
ástir og örlög sem að iíkum læt-
ur, ástir og örlög ungrar stúlku,
leikkonu, sem vill komast að
við eitt af stóru ieikhúsunum,
öðlast frægð, fé og hamingju.
BIs. 3 Rciöhjólanðmskeiö
úti á landl. Myndsjá.
— 7 Aukið starf Herferð-
ar gegn hungri.
— 8 Efnahagsástandið
f Bretlandi.
— 9 Viðtal við Guðmund
Pálmason um boran-
ir í Hengli fyrir hita
veitu til Reykjavikur
Þjóðhátíðargestir í Vestmanna-
eyjum ganga undir „Sigurbogann'
Viðtal v/ð Alexander Guðmundsson formann
Þórs um undirbúning Þjóðhátiðarinnar
Þjóðhátíðin í Vestmanna-
eyjum verður sett kl. 14 í dag
í Herjólfsdal og þar mun hátíð-
in standa til sunnudagskvölds.
Verða hátfðahöldin að venju
mjög fjölbreytt og er búizt við
miklum fjölda gesta, bæði
heimamönnum og aðkomufólki.
Það er íþróttafélagið Þór, sem
stendur þetta ár fyrir hátiða-
höldunum og átti Vísir í morgun
tal við Alexander Guðmunds-
son, formann Þórs, og spurði
hann um undirbúning þjóðhá-
tíðarinnar.
— Það hefur verið unnið mik-
ið í Herjólfsdal undanfama
daga, sagði Alexander, við að
koma upp búðum, skipuleggja
tjaldstæði og götur, koma upp
fánastöngum, skreytingum og
danspöllum en ræðupallinn þarf
ekki að hugsa um, því hann er
þarna fyrir, gerður af náttúr-
unnar hendi.
— Þjóðhátíðin í ár verður
með líku sniði og undanfarin ár,
nema hvað skemmtikraftar
verða ekki þeir sömu og svo eru
skreytingarnar alltaf eitthvað
frábrugðnar frá ári til árs. Nú
er t.d. hliðið, sem hátiðargestir
ganga um inn á svæðið í lik-
ingu við Sigurbogann franska
og inni á svæðinu hefur verið
komið fyrir myllu, sem snýst.
Á tjöminni f dalnum er dreki
einn mikill, sem spúir eldi, en
hann var einnig þarna á ferð
fyrir tveimur árum. Svo er að
sjálfsögðu búið að koma fyrir
fánástöngum, þar sem íslenzki
fáninn verður og veifur í fána-
litunum.
— Fyrstu tjöldin voru reist
í dalnum í gær, en þá kom mik-
ill fjöldi aðkomufólks, og mér
er sagt að upppantað hafi verið
í allar ferðir hingað. Það verður
séð fvrir nægum ferðum hing-
að meðan hátíðin stendur,
verður Flugfélag íslands t. d.
með einar 10 ferðir á dag, Eyja-
flug verður með margar ferðir
og Herjólfur mun ganga milli
Þorlákshafnar og Vestmanna-
eyja eins og hann getur annað.
— Það er ómögulegt að segja
til um mannfjöldann, sem verð-
Frh. á bls. 6.